Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 6
6
Fréttir
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
I>V
Uppkaup húsa á hættusvæði í Bolungarvík er feimnismál:
Snjóflóðavarnir hamli
gegn fólksflótta
- ófullnægjandi snjóflóðavamir fyrir 520 milljónir króna eða uppkaup fyrir 100 til 400 milljónir
Fyrirhugaöar framkvæmdir við
snjóflóðamannvirki fyrir ofan
byggðina í Bolungarvík eru taldar
kosta um 520 milljónir króna. Það
jafngildir um hálfri milljón króna á
hvern íbúa bæjarins. Þrátt fyrir þá
vamargarða sem nú er fyrirhugað
að gera verður áfram að rýma þau
hús sem næst fjallinu standa. Ef
engir vamargarðar yrðu byggðir
myndu uppkaup húsa á mesta
hættusvæðinu í Bolungarvík hins
vegar ekki kosta nema 140 til 400
milljónir króna.
Ekki hefur verið léð máls á því að
kaupa upp hús við Dísarland þar
sem snjóflóð hef-
ur fallið á að
minnsta kosti
þrjú af sex hús-
um í götunni.
Þessir íbúar
verða áfram í
hættu og þurfa
að rýma hús sín
ef hættuástand
skapast, þó
áhættan minnki
eitthvað með tilkomu garðanna.
Það vekur athygli að ef engir
garðar yrðu gerðir þyrftu íbúar
12-14 húsa að yfirgefa heimili sín
strax og einhver hætta skapast. Eft-
ir því sem hættan eykst fjölgar þeim
húsum sem áætlanir yfirvalda gera
ráð fyrir að séu rýmd. Hugsanlega
gæti þurft aö rýma allt að 40 hús. Að
mati margra heimamanna er ólík-
legt talið að nokkum ttmann þurfi
að rýma allt að 60 hús til viðbótar
sem hugsanlega gætu fallið undir þá
skilgreiningu sem ýtrasta hættumat
gerir ráð fyrir. Við ýtrustu skil-
greiningu á snjóflóðahættu gæti
hún varðað allt að 500 íbúa í pláss-
inu en að öllu jöfnu ekki nema 50 til
150 manns.
Óróleiki þrátt fyrir
varnargarða
Ljóst er að íbúum þeirra húsa
sem næst fyrirhuguðum mannvirkj-
um munu standa verður ekki rótt
þrátt fyrir varnargarðana. Hafa
sumir þeirra óskað eftir uppkaup-
um húsa sinna
eins og Olgeir
Hávarðarson og
fjölskylda. Lög
um Ofanflóða-
sjóð gerir ekki
ráð fyrir að
bæði sé hægt að
byggja hundruð
milljóna króna
varnarmann-
virki og kaupa
upp hús á sama tíma. Þetta er tekist
á um í Bolungarvík nú.
Olgeir hefur lýst því yfir að menn
þurfi ekki að óttast að hann hlaupi
á brott úr bænum ef húsið verði
keypt af honum, hann vilji aðeins
flyta sig á ömggari stað.
Lítið hefur verið fjallað um hug-
myndir sem lúta að því að gera enga
varnargarða heldur einungis að
kaupa upp hús á svæðinu sem í
Innlent fréttaljós
Hörður Kristjánsson
blaðamaöur
DV-MYND HKR.
Dísarland 10 og 14 í Bolungarvík
Líklega væri bæöi ódýrara og öruggara aö sleppa snjóftóöavörnum aö mestu
eöa öllu leyti og kaupa þess í staö upp öll hús viö Dísarland og nálægar göt-
ur. Hugmynd sem fáir vilja ræöa í heyranda hljóöi.
Snjóflóðahættusvæöi í Bolungarvík
Skyggöa svæöiö sýnir þann hluta Bolungarvíkurkaupstaöar sem hugsanlega
gæti veriö í hættu ef aftakasnjófióö félli úr Traöarhyrnu. Þaö sem taliö er
raunverulegt hættusvæöi í dag er þó mun minna. Nú er beöiö er eftir endan-
legri skilgreiningu á hættumati sem á aö klárast á næsta ári samkvæmt
reglugerö frá því í sumar.
mestri hættu eru. Ljóst er að sveit-
arstjómarmenn óttast þá umræðu
af hræðslu við að missa enn fleiri
íbúa en oröið er suður á mölina.
Ef þessi möguleiki væri hins veg-
ar í alvöru uppi á yfirborðinu væri
veriö að tala um uppkaup á að
minnsta kosti 14 húsum, eða jafnvel
allt að 40 húsum, allt eftir því hvað
menn telja síðan ásættanlega
áhættu varðandi þau hús sem eftir
standa. Miðað við þann kostnaö við
snjóflóðamannvirkin sem nú er gert
ráð fyrir má ætla að mjög ásættan-
legt kaupverö 14 húsa miðaö við
markaðsverð í Bolungarvík gæti
verið um 140 milljónir króna. Upp-
kaup á 40 húsum myndu samkvæmt
þessu kosta opinbera aðila um 400
milljónir króna. Miðað við reynsl-
una og kaupverð fasteigna á hættu-
svæði í Hnífsdal má leiða aö þvi lík-
um að allt að 50-60 hús fengjust fyr-
ir sömu upphæð og nú er ætlaö að
setja í vamir sem fyrirfram er vitað
að muni ekki verða fullnægjandi í
Bolungarvík. -HKr.
Vilja auka öryggi Hvalfjarðaganga:
Spölur á ekki
fyrir myndavél
DV, HVALFIRDI:_____________________
Margvíslegar ráðstafanir voru
gerðar á nýliðnu starfsári Hvalfjarð-
arganga til aö tryggja enn frekar ör-
yggi vegfarenda í göngunum og þar
verður hreint ekki látið staðar
numið. Stjórnarformaður Spalar,
Gísli Gíslason, sagði á aðalfundi fé-
lagsins í dag að öryggismálin væru
stjóm Spalar sérstakt metnaðarmál.
Hann greindi frá því aö rækilega
hefðu verið kannaðir möguleikar á
að setja upp fullkomið myndavéla-
kerfi í göngunum.
í ljós kom að kostnaöur við slíka
framkvæmd yrði á bilinu 50-60
milljónir króna, sem þótti of stór
biti, í bili að minnsta kosti. Stjórn
félagsins ákvað því að fresta fram-
kvæmdum að sinni og biða eftir nið-
urstöðum skýrslu sem væntanleg er
frá Efnahagsstofnuninni í París,
OECD, um öryggismál í jarðgöng-
um.
Hins vegar bauð stjórn Spalar
embætti ríkislögreglustjóra að félag-
ið myndi greiða stofnkostnaö við að
setja upp hraðamyndavélar í göng-
unum og taka þátt í rekstri þeirra.
Boðið var þegið en enn hefur ekki
orðið af framkvæmdum. Gisli Gísla-
son sagði að ráðamenn Spalar teldu
brýnustu öryggisþætti ganganna
vera þá að halda umferðarhraðan-
um niðri.
-DVÓ
Hvalfjarðargöngin
Stjórn Spalar vill tryggla frekara öryggi í göngunum.
Sandkorn
Gylfi Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Falinn bæjarstjóri
Kristján Þór
Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri á
það gjarnan til að
taka þátt í lifinu
með „þegnum sín-
um“ og bregða á
leik ef möguleiki
er á, enda tekur
hann. sig mátulega
hátíðlega. Nú, þegar miðbæjarkaup-
menn á Akureyri berjast af alefli
gegn nýju Glerártorgi og efna til upp-
ákoma er bæjarstjórinn með í leikn-
um, alveg eins og hann er til í að
láta sjá sig á Glerártorgi sé eftir þvi
leitað. Á laugardaginn var eitt af
„skemmtiatriðunum" í miðbæ Akur-
eyrar að finna bæjarstjórann. Hann
átti að fela sig á miðbæjarsvæðinu og
veita átti heppnum finnanda verð-
laun. Þegar þetta var skrifað var
ekki vitað hvort „bæsi“ var fundinn.
Dansinn stiginn
Bjami Fel.
íþróttafréttamaður
heldur sínu striki á
ríkisfjölmiðlunum
og gefur ekkert eft-
ir. Hann fór mik-
inn i lýsingu sinni
á bikarleik Fram
og Hauka í hand-
boltanum í síðustu
viku, en þar gekk mikið á og menn
tóku hver annan engum vettlingatök-
um. Bjarni tíundaði þetta skilmerki-
lega í beinni lýsingu af leiknum og
þegar honum fannst leikmenn takast
heldur harkalega á kom þetta gull-
korn: „Hér er mikill darraðardans
stiginn." Framarar „lutu svo í gólf-
dúk“ en „það er næsta vist“ að þeir
voru ekki ánægðir með það. Það er
alltaf gaman að Bjama og enn er
hann ókrýndur konungur þegar
íþróttalýsingarnar eru annars vegar.
Merkilegar rjúpur
Skotveiði-
menn i Eyja-
firði eru ekki
mjög hressir
þessa dagana,
enda hefur
verið erfitt að
stunda veið-
amar í haust, tíðarfar hefur lengst af
verið mjög óhagstætt, frekar lítið virð-
ist vera af fugli á svæðinu og hann
styggur ef til hans sést á annað borð.
Á einum stað hafa menn þó frekar get-
að gengið að fugli visum en á öðmm
stöðum, en það er við utanverðan
Eyjafjörð að austanverðu. Þar bannaði
að vísu umhverfisráðherra mönnum
að skjóta rjúpur í haust vegna ein-
hverra rannsókna. „Rannsóknarijúp-
umar“ hafa hins vegar tekið upp á því
að fljúga með senditæki vísindamann-
anna inn á bannsvæðið, væntanlega
vegna þess að þar em byssur bannað-
ar. En rjúpumar hafa hins vegar
hmnið þar niður, sennilega hafa
senditækin drepiö þær einhverra
hluta vegna. Afleiðingin er m.a. sú að
byssulausir skotveiðimenn fá sér
gjaman göngutúr á svæðinu og tína
þar upp dauðar rjúpur í jólamatinn,
enda ekkert að hafa annars staðar.
Enn hækkar það
Stangaveiðimenn
hlusta hins vegar
forviða á þær frétt-
ir sem berast af
Blöndu, en áin var
boðin út í haust.
Akureyringar sém
hafa haft ána á
leigu undanfarin
ár buðu víst um 7
milljónir í hana og hækkuðu sig
verulega frá sl. sumri. Það dugði þó
skammt því Stangaveiðifélag Reykja-
víkur og Árni Baldursson sem helst
hafa stuðiað aö síhækkandi veiðileyf-
um hér á landi undanfarin ár fóru í
enn eitt verðstríðið og herma fregnir
að SVFR hafi boðið 10,5 milljónir og
Árni 11 milljónir og hreppt hnossið.
Oft og iöulega er vatnið í Blöndu svo
drullugt að ekki er hægt að veiöa í
því og þá húkka menn að sögn.
Veiðileyfin í Blöndu næsta sumar
veröa því án efa dýmstu húkkleyfi
sögunnar.