Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Page 15
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
I>V
Fréttir
15
••3»
Þá fékk einnig mjög góðan hljóm-
grunn á fundinum tillaga um stofnun
kjaradeilusjóðs, sem í daglegu tali eru
kallaðir verkfallssjóðir, en hjá hvor-
ugu félaginu höfðu verið til slíkir
sjóðir. Var samþykkt að 10% inn-
heimtra félagsgjalda rynnu í þann
sjóð og lög sjóðsins yrðu tilbúin áður
en til aðalfundar kæmi 2001. Var mál
forustumanna nýja félagsins og verka-
lýðsleiðtoga sem gestir voru á fundin-
um að ekkert væri sterkara er til
kjaradeilu kæmi en sterkur verkfalls-
sjóður, hann væri það vopn sem at-
vinnurekendur hræddust mest.
Jón Karlsson, nýkjörinn formaður
Öldunnar stéttarfélags, kvaðst ekki í
neinum vafa um að þessi sameining
yrði til þess að efla stöðu verkafólks í
Skagafirði. „Við erum sterkari sam-
an,“ sagði Jón en kvaðst ekki ætla að
fara að rekja það hvers vegna þetta
hefði ekki gerst fyrr.
Valdimar Guðmannsson, formaður
Samstöðu, einn gesta er til máls tóku,
kvaðst þess fullviss að þetta væri
vísirinn að því að verkalýðsfélög í
Skagafirði og Húnaþingi mundu sam-
einast í eitt félag. Með tilkomu Þver-
árfjallsvegar yrði styttra fyrir sig að
fara á Sauðárkrók en vestur á
Hvammstanga, þannig að á því sæju
allir hve landfræðilega það lægi vel
við að allt þetta svæði yrði eitt félags-
og atvinnusvæði.
Ýmsir skemmtilegir punktar komu
fram á fundinum, m.a. þegar Ásdís
Stjórnarmenn
Jón Karlsson var kosinn formaöur
Öldunnar stéttarfélags, Ásdís Guö-
mundsdóttir varaformaöur og t.v. er
Snorri Björn Sigurðsson fundarstjóri.
DV-MYNDIR ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
Gestir nýs félags
Verkalýösleiötogar sem voru gestir á
fundinum: Björn Snæbjörnsson,
Snær Karlsson, Halldór Björnsson
og Valdimar Guömannsson.
Fram og Aldan sameinast í eitt:
Þúsund manna
verkalýðsfélag
- sjúkrasjóður greiddi fyrir frjósemisaðgerðir
DV. SAUÐÁRKRÓKI:
Blað var brotið í sögu verkalýðs-
mála i Skagafirði á dögunum þegar
gengið var frá sameiningu verkalýðs-
felagsins Fram og verkakvennafélags-
ins Öldunnar í eitt þúsund manna fé-
lag sem hlotið hefur nafnið Aldan
stéttarfélag. Mikill einhugur ríkti á
þessum fundi og kom fram í máli allra
er til máls tóku að hér væri um nauð-
synlegt gæfuspor að ræða.
Það fór eins og margir höfðu ætlað
að farið yrði að tillögu uppstillingar-
nefndar við stjórnarkjör í hinu nýja
félagi. Jón Karlsson var kjörinn for-
maður, Ásdís Guðmundsdóttir vara-
formaður, Guðni Kristjánsson ritari
og Guðrún Björnsdóttir gjaldkeri.
Fundarstjóri var Snorri Björn Sig-
urðsson sveitarstjóri.
Við upphaf fundar lýsti Jón Karls-
son aðdraganda að sameiningu félag-
anna og sagði að vel hefði verið vand-
að til hennar. Því næst var farið yfir
lög og samþykktir félagsins og voru
engar athugasemdir gerðar við þær á
fundinum.
Guðmundsdóttir vitnaði í lög sjúkra-
sjóða félaganna og sagði að mismun-
urinn á félögunum kæmi kannski best
fram í því að í lögum sjúkrasjóðs
Fram hefði verið kveðið á um að
heimild væri til að greiða sjúkravist á
SÁÁ en í sjúkrasjóði Öldunnar
ákvæði um greiðslú frjósemisaðgerða
fyrir félagskonur.
-ÞÁ
FÉLAG JÁRNIÐNAÐARMANNA
Allsherj aratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsheijaratkvæðagreiðslu við kjör
stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna fyrir
starfsárið 2001 til 2002.
Tillögum um skipan stjómar og trúnaðarmannaráðs félagsins skal
skila til kjörstjómar á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 30,
Reykjavík, ásamt meðmælum 100 fúllgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjóm félagsins og auk þess
tillögur um 21 til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn
þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjómar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 17.00 fimmtudaginn
18. janúar 2001.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
» 5 í
ÍJÍ
ita
■ ■ ■ ■ ■■ ...
m
AV-D37 Heimabíómagnari
70+70+70+70+70 Wött RMS • 8 Inn-gangar ásamt 5,1 innc
Super T-Bassi FM/MB/LB útvarp meö 32 stööva minni R
DSP BBE Hljómkerfi
29.900
GLIUJ3L
AV-D77 Heimabíómagnari
DOLBY DIGITAL
120+120+120+120+120 Wött RMS • DSP ■ BBE Hljómkerfi • Super T-Bassi Tengi
fyrir Bassahátalara FM/MB/LB útvarp meö 32 stöðva minni RDS
33.300
SLÍUJSL
ftjys
AV-D97 Hetmabiómagnan DOLBY DIGITAL DIGITAL THEATER SYSTEM
120+120+120+120+120 Wött RMS • 4 Stafrœnir inngangar 3 Ljósleiöarar og 1
RCA • DSP • BBE Hljómkerfi • Super T-Bassi ■ Midmght Theatre • Tengi fyrir
Bassahátalara FM/MB/LB útvarp meö 32 stööva minni RDS
<43.300
stiuja
Spil
r
Aiwa XD-DV370 -
5,1ch. Stream útgangar 1x Ijósleiöari • 1x coaxial • Spilar öll kerfi spilar • DVD/CD/R
CD-RW • (3D Sound) • Scart tengi • S-Video útgangur • Composite video útgangur
4 eöa 16 sinnum zoom 10bita D/A video converter • Spilar MP3
33.300
SLIUJ3L
Silverstone 300
Heimabíóhátalarasett
Framhátalarar 150 Wött
Miöjuhátalari 80 Wött
Bakhátalarar 70 Wött
34.900
RAOÍðiÆR
★ ★★★★
DVD103 DVD Spilari
BDÍIar öll kerfi • 5.1 r
Spilar öll kerfi • 5,1 rása stream útgangur (Dolby Digital/DTS)
Euro Scart tengi ■ S-Video útgangur Composite Video útgangur
23.300
Armðla 38 • Sími 5531133
IVIan-Fim. 18 til 21
Laugand. 23. des.
des. 3:D3 til 1 9:QO / Föstud. 22. des. 0:00 til 22:00
1 □:Q.O til 23:00 / Sunnud. 2-4. des. 0:00 til 12:00