Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 18
18
Útlönd
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
DV
Poul Nyrup Rasmussen
Danski forsætisráöherrann búinn að
glata stuðningi blaðsins Politiken.
Politiken afneit-
ar Poul Nyrup
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, varð fyrir
pólitísku áfalli um helgina þegar
blaðið Politiken afneitaði honum.
Politiken, sem alla jafna er hlið-
hollt ríkisstjórninni undir forystu
jafnaðarmanna, lagði til í leiðara að
Poul Nyrup segði af sér sem forsæt-
isráðherra til að auka möguleika
stjómarinnar í næstu kosningum.
Kjósendur flýja jafnaðarmanna-
flokk Nyrups í stórum stil vegna
þess að þeir hafa ekki lengur trú á
forystu flokksins, segir i niðurstöð-
um skoðanakönnunar sem Politiken
lét gera.
Tíu létust í slys-
um í Ölpunum
Tíu manns týndu lífi í slysum i
ítalska hluta Alpafjallanna i gær,
þar á meðal íjórir menn sem féllu í
opinn dauðann hver á eftir öðrum
við að reyna að bjarga hundi í sjálf-
heldu.
Fjallasérfræðingar sem frétta-
menn ítalska ríkissjónvarpsins
ræddu við sögðu að ísingu væri um
að kenna hvemig fór í mörgum til-
vikum. Fólk hefði runnið til í
hálkunni á göngustígum og hrapað
fyrir björg.
Að sögn björgunarmanna voru
mennirnir sem reyndu að bjarga
hundinum þrautþjálfaðir fjallgöngu-
menn.
Á síðasta ári urðu um 4.800 slys í
fjöllum Ítalíu, að sögn forráða-
manna ítalska Alpaklúbbsins.
Sandra Day O'Connor
Þessi íhaldssami hæstaréttardómari
fékk hland fyrir hjartað þegar útlit
var fyrir að Gore hefði sigraö Bush.
Hæstaréttardóm-
ara leist ekki á
sigur Als Gores
Bandaríski hæstaréttardómarinn
Sandra Day O’Connor varð miður
sín í kosningapartíi að kvöldi for-
setakjördagsins í nóvember þegar
fyrstu tölur bentu til að A1 Gore
hefði sigrað í Flórída. „Þetta er
hræðilegt," sagði dómarinn, að sögn
tímaritsins Newsweek.
O’Connor taldi þar með að kosn-
ingarnar væru búnar en hún er
ákafur repúblikani. Eiginmaður
hennar sagði kunningjum að þau
hjónin hefðu ætlað að setjast í helg-
an stein en sigur Gores myndi þýða
að hún þyrfti að þjóna fjögur ár til
viðbótar þar sem hún gæti ekki
hugsað sér að demókrati skipaði eft-
irmann hennar.
George W. Bush byrjaður að skipa í æðstu embætti:
Vilja loka vinnumarkaði
Þýsk stjórnvöld vilja að Evrópu-
sambandið loki vinnumarkaði sín-
um fyrir þegnum landanna sem nú
bíða inngöngu, aðallega frá Austur-
Evrópu, í sjö ár eftir að þau ganga í
sambandið, að sögn blaðsins
Berliner Zeitung.
Árásir í Grosní
Tsjetsjenskir uppreisnarmenn
gerðu árás á skrifstofu borgarstjór-
ans í héraðshöfuðborginni Grosní í
gær. Borgarstjórinn er hallur undir
Moskvuvaldið.
Ráðist á drauga fortíðar
Robert Hue, leiðtogi
franskra kommúnista,
veittist harkalega að
stalínískum fortíðar-
draugum flokksins um
helgina. Hann sagði að
franski Kommúnista-
flokkurinn hefði verið
sleginn mikilli blindu gagnvart of-
sóknum á tímum sovétkommúnism-
ans.
Pope útskrifaður
Banaríski kaup-
sýslumaðurinn Ed-
mond Pope, sem
var dæmdur til
fangelsisvistar fyrir
njósnir í Rússlandi
en síðan náðaður af
Pútín Rússlandsfor-
seta, hefur verið út-
skrifaður af sjúkrahúsi bandaríska
hersins í Þýskalandi. Pope, sem er
með krabbamein, var látinn laus af
heilsufarsástæðum.
Nýtt þýskt kúariðutilfelli
Þýsk yfirvöld staðfestu í gær ann-
að tilfelli kúariðu í landinu og í
Bæjaralandi er verið að rannsaka
tvö hugsanleg tilfelli til viðbótar.
Varað við jarðskjálfta
íranskur vísindamaður hefur var-
að við því að gífurlega harður jarð-
skjálfti kunni að vera yfirvofandi í
Teheran, höfuðborg írans. Spáð er
að skjálftinn gæti orðið allt að 1,4
milljónum manna að bana og eyði-
lagt 60 prósent borgarinnar.
Bjargað úr sjávarháska
Þeir höfðu ærna ástæðu til þakka guði og syngja, þessir afrísku innflytjendur, eftir að spænska lögreglan bjargaði
þeim úr sjávarháska undan Spánarströndum. Um 250 manns frá ýmsum Afríkulöndum var bjargað þegar bátur þeirra
sökk á Gíbraltarsundi. Ekki er vitað til þess að neinn hafi farist. Óljóst er hvort fólkið veröur sent aftur heim til Afríku.
Bill Clinton í mun að koma á friði í Mið-Austurlöndum:
Rætt viö fulltrúa Palestínu-
manna og ísraela næstu daga
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
leggur nú allt kapp á að ljúka átta
ára forsetaferli sínum með því að fá
ísraela og Palestínumenn til að und-
irrita nýjan friðarsamning áður en
hann lætur af embætti 20. janúar
næstkomandi.
Fréttir bárust af því í gær að
sendinefndir Palestínumanna og
Israela myndu ræða við embættis-
menn í Washington næstu daga.
„Við munum hefja viðræður við
Bandaríkjamenn í Washington á
þriðjudag og ísraelar munu einnig
ræða við Banaríkjamennina. Ef þörf
krefur verður haldinn þríhliða
fundur," sagðik Yasser Abed Rabbo,
upplýsingamálaráðherra Palestínu-
manna, við fréttamann Reuters í
Ramallah á Vesturbakkanum.
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
Yasser Arafat
Forseti Palestínumanna er tilbúinn
að hitta Ehud Barak, forsætisráö-
herra ísraels, til að ræða friðarmál.
manna, sagði eftir fund með
vinstrisinnuðum ísraelskum þing-
mönnum að hann væri reiðubúinn
að hitta Ehud Barak, forsætisráð-
herra ísraels. En fundinn þyrfti að
undirbúa vel.
ísraelskir heimildarmenn sögðu í
gær að Shlomo Ben-Ami, utanríkis-
ráðherra ísraels, og Gilead Sher, að-
alsamningamaður stjórnar Baraks,
myndu halda til Washington á
mánudagskvöld. Þeir sögðu að fund-
ur Arafats og Baraks yrði ekki
mögulegur fyrr en eftir fundahöldin
í Washington.
Nokkrir menn féllu í átökum á
heimastjórnarsvæðum Palestínu-
manna um helgina, þar á meðal
háttsettur foringi í Fatah-samtökum
Arafats. Palestínumenn saka ísraela
um að hafa drepið hann.
Uppreisnarmenn drepa
Uppreisnarmenn í Alsír skutu
fimmtán nemendur og kennara
þeirra til bana með vélbyssum þar
sem þeir lágu í rúmum sínum í
heimavistarskóla suður af höfuð-
borginni um helgina. Öðrum nem-
endum tómst að komast undan skot-
hríðinnni.
Haider gagnrýnir á Ítalíu
Austurríski hægri-
I öfgamaðurinn Jörg
Haider gagnrýndi for-
sætisráðherra og for-
seta Ítalíu í gær.
Haider heimsótti
Páfagarð á laugardag.
Sú heimsókn var
I mjög umdeild og varð
tilefni gríðarlegra mótmælaaðgerða
í Rómarborg.
Bíbí vill í forystuna
Benjamin Netanyahu, fyrrum for-
sætisráðherra ísraels, lagði inn um-
sókn sína um að leiða Likud-banda-
lagið í forsætisráðherrakosningun-
um á næsta ári. Skoðanakannanir
benda til að Netanyahu myndi sigra
Ehud Barak forsætisráðherra í
kosningunum.
George W. Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, skipaði ráðgjafa
sinn í utanríkismálum, blökkukon-
una Condoleezzu Rice, í embætti
þjóðaröryggisráðgjafa í gær. Hún
verður fyrsta konan til að gegna
þessu mikilvæga embætti.
Við athöfn í rikisstjórabústaðn-
um í Austin í Texas tilkynnti Bush
jafnframt um skipan tveggja dyggra
aðstoðarmanna í mikilvæg embætti
í Hvíta húsinu. Þykja tilnefningarn-
ar til marks um þann vilja Bush að
fjölbreyttan hóp með sér til Wash-
ington.
Forsetinn væntanlegi skipaði A1
Gonzalez, dómara við hæstarétt
Texas, í embætti aðallögmanns
Hvíta hússins og Karen Hughes,
upplýsingafulltrúa sinn, i embætti
aðalráðgjafa.
Hin 46 ára gamla Condoleezza
Rice er annar blökkumaðurinn sem
Rice og Bush
George W. Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, og Condoieezza Rice
sem hann skipaði í gær i embætti
þjóöaröryggisráðgjafa síns.
gegnir embætti þjóðaröryggisráð-
gjafa. Hinn, Colin Powell, fyrrum yf-
irhershöfðingi, var skipaður utan-
ríkisráðherra í stjóm Bush á laug-
ardag.
Bush sagði að skilaboðin sem
hann vildi senda með tilnefningum
sínum væru eftirfarandi: „Fólk sem
leggur hart að sér og tekur réttu
ákvarðanimar í lífinu getur náð því
fram sem það vill í Ameríku.”
Bush greindi frá tilnefningunum
skömmu áður en hann lagði af stað
í fyrstu ferð sína til Washington eft-
ir að hann vann forsetaembættið
með úrskurði Hæstaréttar Banda-
ríkjanna. Bush mun næstu daga
ræða við helstu ráðamenn í Was-
hington, þar á meðal Bill Clinton
forseta og A1 Gore varaforseta sem
keppti við hann um forsetaembætt-
ið. Þá ætlar Bush að ræða við menn
sem koma til greina í stjóm hans.
Með dugnaðin-
um er allt hægt