Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Side 32
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
I>V
4
48
Ættfræði
Áttatíu og fimm ára
Sigurður Bjarnason
fyrrv. sendiherra, alþm. og ritstjóri Morgunblaðsins
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
- Wéra____________________________________
4^-Rannveig Magnúsdóttir,
Eyrargötu 5, Suöureyri.
Sigurgeir Sigurdórsson,
Hrísateigi 14, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Ásta Ástmannsdóttir,
Grýtubakka 18, Reykjavík.
Rósa María Sigurðardóttir,
Melasíðu 3, Akureyri.
Sigríóur Oddgeirsdóttir,
Miöleiti 1, Reykjavlk.
70 ára_________________________________
Svava G. Sigmundsdóttir,
Lækjasmára 6, Kópavogi. Hún veröur að
heiman.
60 ára_________________________________
Kjartan Jónsson,
Hjarðarnesi, Nesjahr. A-Skaft.
50_ára_________________________________
Anna Halldórsdóttir,
Furuhlíð 7, Sauðárkróki.
Arndís Björg Sigurðardóttir,
Hólagötu 5, Vestmannaeyjum.
Bjarni Þór Jónatansson,
Hraunbraut 23, Kópavogi.
Elís Ingvarsson,
Hraunbraut 14, Kópavogi.
Haraldur Haraldsson,
Ofanleiti 9, Reykjavík.
Ingibjörg B. Frímannsdóttir,
Aðallandi 19, Reykjavík.
Jóhannes B. Björgvinsson,
Tryggvagötu 4, Selfossi.
Signý Ástmarsdóttir,
' Holtabrún 16, Bolungarvík.
40 ára_________________________________
Guðmundur Guðjónsson,
Kirkjutorgi 6a, Reykjavík.
Guðrún Björg Jóhannsdóttir,
Kotárgeröi 5, Akureyri.
Ingibjörg G. Kristjánsdóttir,
Smáratúni 32, Keflavík.
Jónína Laskowska,
Seljabraut 80, Reykjavík.
Sigrún Birgisdóttir,
Hverfisgötu 40, Hafnarfiröi.
Sigrún Sól Sólmundsdóttir,
—. Hjallavegi 22, Reykjavík.
Svava Rögnvaldsdóttir,
Tjarnarlundi 2d, Akureyri.
Þorbjörg Eva Erlendsdóttir,
Sjafnargötu 12, Reykjavík.
Þóra Ólafsdóttir Hjartar,
Dalbraut 2, Dalvík.
Sigurður Bjamason, fyrrv. sendi-
herra, alþm. og ritstjóri Morgun-
blaðsins, Útsölum, Seltjamamesi,
er áttatíu og fimm ára i dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist i Vigur í ísa-
fjarðardjúpi og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1936, lög-
fræðiprófi frá HÍ1941 og lauk fram-
haldsnámi í lögfræði í Cambridge á
Englandi 1945.
Sigurður var ritstjóri Vestur-
lands 1942-50, ritstjóri Stefnis
1950-53, blaðamaður við Morgun-
blaðið frá 1941, stjómmálaritstjóri
þess frá 1947 og aðalritstjóri þess
1956-70, alþm. 1942-59, varaþm.
1959-63 og alþm. 1963-70, forseti
neðri deildar Alþingis 1949-56 og
1963-70, var sendiherra íslands í
Danmörku 1970-76 og jafnframt í Ir-
landi, Tyrklandi og fyrsti sendi-
herra íslands í Kína, í Bretlandi
1976-82 og jafnframt írlandi,
Hollandi og Nígeríu, og fyrir Ind-
land, Kýpur og Túnis 1983-85 en
hann gegndi lykilhlutverki við
heimkomu handritanna til íslands.
Sigurður var formaður Stúdenta-
ráðs HÍ 1938-39, formaður Stúdenta-
félags Reykjavíkur 1941-42, forseti
bæjarstjómar ísafjarðar 1946-50,
formaður BÍ og Norræna blaða-
mannasambandsins 1957-58, for-
maður menningarsjóðs blaðamanna
1946-62, sat í útvarpsráði 1947-70 og
formaður 1959, formaður íslands-
deildar Norðurlandaráðs og forseti í
ráðinu 1953-59 og 1963-70, í Þing-
vallanefnd 1957-70, sat á allsherjar-
þingi SÞ 1960-62, formaður Nor-
ræna félagsins 1965-70, formaður ut-
anríkismálanefndar Alþingis og hef-
ur setið í fjölda opinberra nefnda.
Sigurður hefur skrifað fjölda
timarits- og blaðagreina ásamt út-
varpserindum um þjóðleg og sögu-
leg efni. Hann hefur verið sæmdur
Qölda orða og heiðursmerkja og
sýndur annar sómi í viðurkenning-
arskyni fyrir margháttuð opinber
störf sín.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 5.2. 1956 Ólöfu
Pálsdóttur, f. 14.4. 1920, myndhöggv-
ara. Hún er dóttir Páls Ólafssonar,
útgerðarmanns og ræðismanns, og
k.h., Hildar Stefánsdóttur húsmóð-
ur.
Börn Sigurðar og Ólafar eru Hild-
ur Helga, f. 8.8. 1956, sagnfræðingur
og kynningarstjóri Listasafns ís-
lands, gift Richard Middleton, bók-
menntafræðingi og blaðamanni, og
er sonur þeirra Óðinn Páll; Ólafur
Páll, f. 13.6.1960, menningar- og bók-
menntafræðingur, MA í kvik-
myndahandrita- og heimildamynda-
gerð, MA i kvikmyndaleikstjórn og
kvikmyndaleikstjóri, kvæntur Sus-
an Demuth, bókmenntafræðingi og
rithöfundi.
Systkini Sigurðar: Björn, nú lát-
inn, bóndi í Vigur; Baldur, nú lát-
inn, oddviti og hreppstjóri í Vigur;
Þorbjörg, fyrrv. skólastjóri Hús-
mæðraskólans á ísafirði; Þórunn,
kennari í Reykjavík; Sigurlaug,
fyrrv. alþm. og kennari.
Foreldrar Sigurðar voru Bjarni
Sigurðsson, f. 24.7.1889, d. 30.7.1974,
hreppstjóri í Vigur, og k.h., Björg
Björnsdóttir, f. 7.7.1889, d. 24.1.1977,
húsfreyja.
Ætt
Bjami var bróðir Sigurðar, sýslu-
manns á Sauðárkróki, foður listmál-
aranna Sigurðar og Hrólfs, og Áma,
pr. á Blönduósi. Bjarni var sonur
Sigurðar, pr. og alþm. í Vigur, bróð-
ur Stefáns skólameistara, fóður Val-
týs ritstjóra. Sigurður var sonur
Stefáns, b. á Heiði Stefánssonar og
Guðrúnar Sigurðardóttur, skálds á
Heiði Guðmundssonar.
Móðir Bjama var Þórunn, systir
Ólafs, afa Ólafs Bjamasonar pró-
fessors. Annar bróðir Þórunnar var
Brynjólfur, langafi Þorsteins Gunn-
arssonar arkitekts. Þórunn var dótt-
ir Bjama, dbrm á Kjaransstöðum
Brynjólfssonar, b. á Ytra-Hólmi
Teitssonar, bróður Arndísar,
langömmu Finnboga, föður Vigdís-
ar. Móðir Þórunnar var Helga Ólafs-
dóttir Stephensen, stúdents í Galtar-
holti Bjömssonar Stephensen,
dómsmálaritara á Esjubergi Ólafs-
sonar, ættföður Stephensenættar
Stefánssonar. Móöir Þómnnar var
Anna, systir Þórunnar, langömmu
Jónasar, föður Jónasar Rafnar
alþm. Anna var dóttir Stefáns
Schevings, umboðsmanns á Leirá,
og Helgu Jónsdóttur, pr. á Staða-
stað, Magnússonar, bróður Skúla fó-
geta.
Meðal móðursystkina Sigurðar
var Haraldur leikari, faðir Stefáns
yfirlæknis, og Sigurður, faðir
Bjöms, læknis á Keldum. Björg var
dóttir Bjöms, dbrm. á Veðramóti
Jónssonar og Þörbjargar, systur
Sigurðar, pr. í Vigur.
Sigurður verður að heiman á
afmælisdaginn.
SKILTI Á LEIÐI
Plastkr.1990.-, Ál kr. 2600,-
Pantið tímanlega fyrir jól
Euro - Visa • sendum I póstkröfu
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Svenir Olsen Baldur Fredriksen
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
SuCurhlið35 • Simi 581 3300
allan sólarhringinn. www.utfararstofa.Ghf.is/
Júlíana Viggósdóttir, Þangbakka 8,
Reykjavík, lést fimmtud. 14.12. Útförin
verður auglýst síðar.
Kjartan Gíslason málarameistari,
Jöklafold 12, lést föstud. 15.12.
Sigurlaug Stefánsdóttir frá Smyrlabergi,
^Vogatungu 31a, Kópavogi, er látin.
Ævar Guómundsson lögmaður, Malarási
9, Reykjavík, er látinn.
Regina Benedikta Thoroddsen lést á
Landspítalanum við Hringbraut
miðvikud. 6.12. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey.
Hlóöver F. Magnússon bóndi, Hellum,
Landsveit, lést á heimili sínu laugard.
-^,9.12. Jaröarförin hefur fariö fram í
kyrrþey aö ósk hins látna.
Páll Jóhannsson
f ramk væmdastj óri
Páll Jóhannsson framkvæmda-
stjóri, Norðurvangi 42, Hafnarfirði,
er sextugur í dag.
Starfsferlll
Páll fæddist að Vatnsleysu í
Glæsibæjarhreppi. Fjölskylda hans
flutti síðan til Akureyrar þar sem
hann ólst upp. Hann stundaði nám í
bifvélavirkjun hjá Hreggviði Jóns-
syni í Vestmannaeyjum og síðar hjá
Ford-umboðinu í Reykjavík.
Páll hefur lengst af starfað við bif-
vélavirkjun frá því hann lauk námi.
Hann stofnaði Ýtutækni hf. 1969 og
síðan Hjólbarðaverkstæði Hafnar-
fjarðar og Vélsmiðjuna Kára hf. sem
hann starfrækti ásamt öðrum til
1980. Nú starfrækir hann smur-,
bón- og dekkjaþjónustuna, Sætúni 4,
Reykjavík, ásamt Hilmari, bróður
sínum.
Páll sat í stjóm Verktakasam-
bands íslands 1974-79. Hann var í
framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Hafnarfirði 1978 og var formaður
Útgerðarráðs Hafnarfjarðar 1978-82.
Páll hefur unnið að uppbyggingu
í Kaplakrika fyrir FH, setið í bygg-
ingamefnd í mörg ár, i stjóm hand-
knattleiksdeildar í átta ár og var
formaður hennar 1998 og 1999.
Páll hefur starfað fyrir Oddfellow-
regluna við uppbyggingu golfvallar-
svæðis í Urriðavatnsdölum, hefur
setið í stjóm Golfklúbbs Oddfellowa
og verið formaður Golfklúbbsins
Odds í þrjú ár. Hann gekk í Oddfell-
owregluna 1977 og er nú yfirmeist-
ari i stúku sinni, Bjama riddara í
Hafnarfirði.
Fjölskylda
Kona Páls er Jóhanna Engilberts-
dóttir fjármálastjóri. Hún á þrjú
böm og fjögur barnabörn.
Böm Páls eru Sig-
urjón, f. 24.7. 1959,
byggingatækni-
fræðingur en kona
hans er Gunnhildur
Jónsdóttir og eiga
þau fimm böm; Hild-
ur, f. 25.5.1975, nemi
við HÍ; Jóhann, f.
25.1. 1978, nemi við
HÍ.
Systkini Páls:
Steinar, nú látinn,
vélvirki; Gunnar,
sjómaður, búsettur í
Noregi; Sólveig
Benný, húsfrú í Víðigerði í Eyja-
firði; Snjólaug Guðbjörg, húsfrú, bú-
sett í Bandaríkjunum; Guðlaug, nú
látin, hjúkrunarfræðingur; Númi,
skipstjóri, búsettur í Ólafsfirði;
Hilmar, framkvæmdastjóri, búsett-
ur í Reykjavík; Guðrún, húsfrú, bú-
sett á Akureyri; Heiðar, sjómaður,
búsettur á Akur-
eyri.
Foreldrar Páls
voru Jóhann
Angantýsson, f.
9.10. 1898, d. 15.5.
1990, og Hildur
Pálsdóttir, f. 11.7.
1906, d. 22.4. 1987.
Ætt
Foreldrar Jó-
hanns voru Ang-
antýr Amgríms-
son frá Gullhúsaá
á Snæfjallaströnd við Isafjarðar-
djúp, og Guðbjörg Einarsdóttir.
Foreldrar Hildar voru Páll Jóns-
son frá Helgustöðum í Fljótum í
Skagafirði, og Guðrún Jónsdóttir
frá Skáldalæk.
Merkir Islendingar
Snæbjörn Jónasson
Snæbjöm Jónasson vegamálastjóri fædd-
ist á Akureyri 18. desember 1921. For-
eldrar hans voru Jónas Jón Snæbjöms-
son, menntaskólakennari og brúarsmið-
ur á Akureyri og síðar i Reykjavík, og
k.h., Herdís Símonardóttir húsmóðir.
Snæbjörn lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri 1941,
prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla
íslands 1946, stundaði framhaldsnám
við Eidgenössische Technische
Hochschule í Zúrich í Sviss 1947-48 og
við hinn fræga verkfræðiháskóla
Massachusetts Institute of Technology í
Cambridge í Bandaríkjunum 1951.
Snæbjöm varð verkfræðingur hjá Vega-
gerð ríkisins 1948, deildarverkfræðingur
1963-64, yfirverkfræðingur 1964-74, forstjóri
tæknideildar 1974-76 og vegamálastjóri
1976-92 er hann hætti fyrir aldurs sakir.
Snæbjöm sat í stjórn Verkfræðingafé-
lags íslands, í stjórn Stéttarfélags verk-
fræðinga, var ritari íslandsdeildar
Norræna vegtæknisambandsins, sat 1
stjórn skipulagsnefndar Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu um rann-
sóknir aðildarríkja í vegagerð, í skipu-
lagsstjóm og Almannavamaráði og
var formaður um skeið. Þá var hann
formaður skipulagsstjómar og sam-
vinnunefndar um skipulag Reykjavíkur
og nágrennis og um skipulag Akureyrar
og nágrannasveitarfélaga frá 1978.
Hann lést 16. júlí 1999.
Jarðarfarir
Jónína Ragnheiður Gissurardóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Áskirkju mánud. 18.12. kl. 13.30.
Sveinn Bergmann Bjarnason (Denni
Bjarna), lést á Landspítala, Fossvogi,
þriðjud. 12.12. Jarðsungið verður frá
Dómkirkjunni mánud. 18.12. kl. 13.30.
Halldóra Guöbrandsdóttir, Brúarlandi,
Mýrum, verður jarðsungin frá Borgarnes-
kirkju mánud. 18.12. kl. 14.
Útför Daða Sigurðssonar, Engjaseli 72,
áður Höfn, Hornafirði, fer fram frá Kirkju
Óháöa safnaðarins þriöjud. 19.12. kl.
15.
Jaröarför Knud K. Andersen, Hraunbúð-
um, Vestmannaeyjum, fer fram frá
Landakirkju, Vestmannaeyjum, mánud.
18.12. kl. 14.