Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 42
'1
' 58
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
Tilvera DV
Sviðsljós
Tískuvikur í Moskvu og Búkarest:
Kátir frumsýnigargestir
Leikararnir Salma Hayek, Michael Douglas, Catherine Zeta-Jones og Benicio
Del Toro léku á als oddi er þeir stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara viö frumsýn-
ingu myndarinnar Traffic í Los Angeles á dögunum.
Leo krafinn um
- háar skaðabætur
Leikarinn Roger
Wilson hefur
stefnt Leonardo
DiCaprio. Leo
daöraði nefnilega
við kærustu Wil-
sons, Elizabeth
Berkley, og brut-
ust út slagsmál í
kjölfarið með þeim
afleiðingum að
Wilson slasaðist.
Nú krefst hann 45
milljóna dollara i
bætur. Það er sem
sé haflð stjörnu-
stríð.
í stefnunni segir
að Leonardo hafi
hvatt félaga sína
til að misþyrma
Roger Wilson eftir
rifrildi um
leikkonuna Eliza-
beth Berkley sem
þá var kærasta
Wilsons. Wilson
fullyrðir að vinir
Leonardos hafi
ráðist á sig 1998
fyrir utan kúb-
verskan veitinga-
stað á Manhattan
í New York. Með-
al árásarmann-
anna voru tveir
leikarar.
Lögmaður Le-
onardos vísar öll-
um ásökunum
Rogers Wilsons á
bug og segir þær
helber ósannindi.
Gárungarnir
segja að krafa
Wilsons sé svo
stór að hún sé í
Leonardo DiCaprlo líkingu við stór-
Krafinn um 45 milljónir dollara í myndina Titanic.
skaöabætur vegna slagsmála.
-<r
nuunma mut.
S&eata gýöfin ó&n ég fiuut uwc
dekwídagwi uid wandi ténliöt og
keHtotjóa. fjcvt &em fi
öattemn.
H-
húð og nudd
K*i-
jjbdS;
• -r-
Húðmeðferðar- og nuddstofa
World Class Austurstræti 17,101 Rvík. Sími 562 6200
Jélasvilnar
í heimahús
Upplýsingar í síma
562 1643,
kl. 17-22.
......... "
____________
InnrömmuÖ jólagjöf
Vinsælu olíumálverkin
komin aflur
Speglar í úrvali
Falleg gjafavara
Innrömmun • Fákafeni 9 • Sími 581 4370
Fagurbláir og loðnir
kvöldkjólar
- eitt a£ því sem koma skal næsta sumar
n
Aftur til forn-
aldar
Gylltur kvöldkjóll-
inn meö viöeigandi skartgrip-
um minnir svolítiö á Egypta-
land til forna. Efniö er fagur-
lega ofiö meö símynstri. Þaö
er rússneski fatahönnuöurinn
Valentin Yudashkin sem hann-
aöi þennan kjól.
Tískuvikurnar í Moskvu og
Búkarest eru töluvert seinna á
ferðinni en gengur og gerist í
helstu tískuborgum heims. í París,
Róm, London og Mílanó kynntu
fatahönnuðir sumarlinuna fyrir
næsta ár í október og nóvember
síðastliðnum.
Hvað sem því líður þá var hald-
in tískuvika í Moskvu fyrir stuttu
og þótti hún hin glæsilegasta.
Margir hönnuðir sýndu fatnað en
sá sem vakti hvað mesta athygli
heitir Valentin Yudashkin og hef-
ur aðsetur i Moskvu. í fatalínu
hans er að flnna glæsilega kvöld-
kjóla þar sem bláir og gylltir litir
eru ráðandi. Þá vakti tískuhús
Nijole, sem hefur aðsetur i Lit-
háen, einnig athygli fyrir frumleg-
an klæðnað. Hér á síðunni má sjá
nokkur dæmi um hvemig rúss-
neskir og rúmenskir hönnuðir af-
greiða tiskuna fyrir næsta sumar.
Svart, hvítt og
loðið
Hér má sjá einn
frægasta tískuljós-
myndara Rúmeníu,
Luönu, bregða sér
í nýtt hlutverk og
skarta þessari
glæsilegu loðkápu.
Kápuna hannaöi
rúmenski hönnuö-
urinn Flora Nasta-
se en nýjasta fata-
lína hennar var
sýnd á mikilli tísku-
sýningu í Búkarest
fyrir skömmu.
Geislabaugur
eða hvað!
Þessi appelsínugula
loökápa, með risa-
vöxnu höfuðskrauti,
er frá tískuhúsi
Nijole sem er aö
finna í Litháen.
Fatnaöurinn var
sýndur á tískuvik-
unni í Moskvu.
Svart og seiðandi
Glæsilegur kvöldkjóll úr
léttu efni frá hönnuöin-
um Valentin Yudashkin.
Kóngablátt og loðiö
Heiöurinn af þessum glæsilega
kvöldkjól á rússneski fatahönnuöur-
inn Valentin Yudashkin. Þessi
klæönaöur var sýndur á tískuvikunni
í Moskvu fyrir skömmu.