Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Side 29
33
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
DV Tilvera
Afmælisbarníð
• IIíDW
Ralph 38 ára
Leikarinn
Ralph Fiennes
fæddist í Suffolk
á Englandi á
þessum degi
árið 1962. Ralph
hefur leikið í
átján kvik-
myndum og
þeirra frægast-
ar eru Sun-
shine, The Eng-
lish Patient,
Quiz Show og
Schindler’s List, en í þeirri síðast-
nefndu fór hann hreint á kostum.
Gildir fyrir laugardaginn 23. desember
Vatnsberlnn (20. ian.-i8. febr.)
. Hlutirnir ganga vel hjá
þér um þessar mundir.
Sýndu þeim sem leita
tff þín eftir aðstoð
tig-
Rskarnlr (1.9. febr.-20. mars>:
Notaðu daginn til að
Iskipuleggja næstu
daga. Kvöldið verður
afar skemmtilegt í
góðra'vina hópi.
Hrúturlnn (21. mars-19. apríil:
fV Þú nýtur mikils stuðn-
" ings innan tjölskvld-
unnar í ákveðnu máli.
Vinur þinn þarf á þér
Nautið (20. april-20. maíl:
Nú er góður timi fyrir
breytingar sem lengi
hafa verið í bígerð. Þú
___ færð góðar fréttir
langt að.
Tviburarnlr (21. mai-21. iúní):
Dagurinn verður róleg-
’ ur og samstarf þitt við
aðra gengur mjög vel.
Einhver gleður þig
með óvæntri aðstoð.
Tviburarnlr (2
*
Krabblnn (22. iúní-22. iúiii:
Þú gerir meira úr
, gagnrýni sem þú færð
' á þig en efni standa til.
Happatölur þinar eru
'og 28.
Liónlð (23. iúli- 22. áeúst);
Þér gengur vel að fá
fólk á þitt band en
vertu samt ekki of að-
gangsharður. Hug-
myndir þínar falla i góðan jarð-
veg.
Mevlan (23. áeúst-22. sent.):
Fyrirhuguð ferðaáætl-
un gæti raskast og
vertu viðbúinn að
^ r þurfa að láta undan
óskum annarra.
Vogin (23. sept.-23. okt.1:
Leitaðu til fjölskyldu
þinnar ef þú þarfiiast
hjálpar. Ástvinur er
þér ofarlega í huga
þessa dagana.
VQgln (23. si
ý
Sporðdreki (24. okt.-?1. nfiv.):
Varastu of mikla við-
\ kvæmi þó einhver hafi
\ \ sagt eitthvað sem sær-
!f* ir þig. Líklega hefúr
þetta ekkeit verið illa meint.
Bogamaður (22. náv.-21. des.l:
LÞú hefur ástæðu til að
Pvera nokkuð bjartsýnn
í fjármálum, þó ætt-
irðu að hafa vaðið fyr-
ir neðan þig og íliuga öll kaup vel.
Stelngeltln (22. 6es.-l9. ian );
Einhver ættingi eða
vinur hefur samband
við þig og kemur þér á
óvart. Kvöldið verður
skemmtilegt.
Brokarlaus í
skoskum vetri
Spennan, sem skapast hefur í
kringum brúðkaup Guy Ritchies og
Madonnu, magnast dag frá degi en á
morgun ganga hjónaleysin í það
heilaga. í gær var jafnframt búist
við að sonur þeirra, Rocco, yrði
skírður.
Brúðkaupið er haldið í bænum
Dornoch í skosku Hálöndunum og
hefur viðbúnaður og fréttaumfjöll-
un um atburð af þessu tagi ekki ver-
ið jafn mikill í manna minnum.
Gestimir eru óðum að flykkjast að
og þeirra á meðal eru mörg þekkt
andlit. Gwynet Paltrow, verður
brúðarmær, þá verður Stella
McCartney einnig á staðnum en
talið er nær fullvíst að hún hafi
hannað brúðkjólinn á Madonnu.
Popparinn Sting lætur sig heldur
ekki vanta í fylgd konu sinnar og þá
er einnig búist við að Celine Dion
og Elton John mæti. Því hefur jafn-
vel verið fleygt fram að barnsfaðir
Madonnu frá fyrra sambandi láti
Guy Ritchie og Madonna
Flugu hvort í sirmi þoturwi til
giftingarinnar sem veröur í
Dornoch í skosku Hálöndunum.
einnig sjá sig en ekki fylgdi sögunni
hvort Sean Penn, fyrrum eiginmað-
ur hennar, kæmi líka.
Madonna og Ritchie hafa þegar
komið sér ágætlega fyrir í Dornoch
en þau flugu þangað hvort í sinni
einkaþotunni fyrr í vikunni. Hjóna-
leysin dvelja engu að síður undir
sama þaki og hafa tekið á leigu Ski-
bo-kastala sem hýsir auk þess alla
gesti brúðkaupsins.
Mikið hefur verið rætt um klæðn-
aðinn sem parið verður í viö gifting-
una en sem fyrr segir er litið vitað
um kjólinn nema að hann er að öll-
um likindum hannaðaur af Stellu
McCartney. Guy verður hins vegar í
Skotapilsi að fornum sið og að öll-
um líkindum brókarlaus undir.
Velta menn nú vöngum yfir hvort
Madonna muni gera slikt hið sama.
Búist er við því að Elton John muni
taka lagið við giftinguna og þá er
einnig búist við því að Sting þenji
raddböndin.
Sluppu með
skrekkinn
Leikkonan Sandra Bullock komst
í hann krappan þegar flugvél sem
hún var í ásamt unnusta sínum,
Bob Scneider, rann út af flugbraut-
inni í Jackson Hole í Wyoming í
gær. ís var á brautinni þegar atvik-
ið átti sér stað en talsmaður
leikkonunnar sagði skötuhjúin hafa
sloppið með skrekkinn. Óhætt er að
segja að ólukkan elti Söndru en í
fyrra fékk hún snjóbretti í höfuðið
og átti lengi við höfuðmeiösl að
stríða í kjölfarið.
A brimbretti
Brimbrettaíþróttin hefur löngum veriö vinsæl í heitari löndum en nýveriö
lauk síöustu umferö í heimsmeistarkeþþninni í brimbrettasiglingum á
Hawaii.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Syngjandi
jólasveinn
1.990 kr
Syngjandi jólasveinn
sem dansar
DV-MYND ÓMAR
Hátíölegt
Börnin stóöu sig vel í helgileiknum
og eins og sjá má var þetta hátíöleg
stund í kirkjunni í Stýkkishólmi.
Helgileikur
í jólaundir-
búningnum
DV, STYKKISHÓLMI:
Þriðji bekkur grunnskólans sýndi
á dögunum helgileik í Stykkis-
hólmskirkju. Áttu leikskólaböm og
krakkamir í 1. til 4. bekk grunn-
skólans samverustund í kirkjunni
þar sem sungið var og séra Gunnar
Eiríkur Hauksson flutti hugvekju.
Þessi athöfn hefur verið fastur liður
í jólaundirbúningi leikskólans og
yngri bekkja grunnskólans um
nokkurra ára skeið. Eins og sést á
þessari mynd ferst krökkunum
verkið vel úr hendi.
-DVÓ/ÓJ
STofi/MUH/isi í fiŒxjöy/iuni l c/ay
Bæjarhraum 12 Hf. • Sími 565 1234
Opib alla daga til jóla 10-22
usgogn