Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Síða 1
15
Verið velkomin
í stærstu sport-
vöruversiun
landsins. Bjóðum
upp á öll helstu
vörumerkin á
einum stað;
Adidas, Nike,
Puma, Reebok,
Rla, ProTouch o.fl.
Þin frístund - okkar fag
VINTERSPORT
Bíldshöfða • 110 Reykjavík • sími 510 8020 • www.intersport.is
.
25. Gamlárshlaup IR for fram á gamtársdag
og alls voru 275 keppendur skráöir í þaö og er
það næstmesta þatttaka i' hlaupinu frá upphafi
I karlaflokki sigraöi Stefán Águst Hafsteinsson
ÍR, sem sést koma i mark á myndinni, á timan-
um 36,29 mín., í ööru sæti varö Árni Már Jóns-
son, FH. a 36,48 min. og þriöji varö Daöi Rúnar
Jonsson, FH, á 36,55 mín. í kvennaflokki sigraöi'
Friða Run Þórðardóttir, ÍR. á timanum 41,13 mín.,
önnur varö Rannveig Oddsdóttir, Langhlauparafé-
lagi Reykjavikur. á 41.18 min. og þriöja varö Gerö-
ur Run Guölaugsdottir. IR. á 41,33 min.
Frabært tækifæri
- segir Atli Eövaldsson landsliösþjálfari um mótið á Indlandi
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í
knattspymu, sagðist í samtali við
DV-Sport renna blint í sjóinn með
styrkleika andstæðinga Islendinga á
Super Soccer Millenium Cup sem
fram fer á Indlandi seinna í mánuð-
inum.
„Við vitum ekkert um þessi lið óg
þetta er frábært tækifæri bæði fyrir
mig og strákana til að takast á við
nýja og framandi mótherja. Sérstak-
lega verður spennandi að leika gegn
Úrúgvæ sem kemur til með tefla
fram mjög sterku liði jafnvel þótt
allra bestu leikmennimir séu ekki
með. Indónesía og Indland em meira
óskrifað blað en það verður mikil og
góð reynsla fyrir strákana að spila
gegn heimamönnum í því klikkaða
andrúmslofti sem þar ríkir,“ sagði
Atli.
Stefnan aö komast áfram
„Ég lít á þetta mót sem frábært
tækifæri fyrir þetta unga og reynslu-
litla lið til að stíga sín fyrstu skref í
alþjóðlegri knattspymu. Ég vonast
til þess að við náum að stilla saman
strengina og að góð úrslit fylgi í kjöl-
farið. Á þessu móti get ég prófað
stráka sem ég hefði kannski annars
ekki getað prófað og það er gott fyr-
ir mig og þá. Vonandi ná þessir
strákar að sýna sitt rétta andlit og þá
kvíði ég engu um úrslitin í leikjun-
mn. Markmið okkar hlýtur að vera
að komast áfram upp úr riðlinum og
spila að minnsta kosti fjóra leiki.“
Enginn valinn utan
Noröurlanda
Þaó vakti athygli aö leikmaöur
eins og Andri Sigþórsson var ekki
valinn í landsliöiö jafnvel þótt aust-
urríska deildin byrji ekki fyrr en í
mars. Af hverju var hann eöa aðrir
sem eru í vetrarfríi ekki valdir?
„Við tókum þá ákvörðun að velja
aðeins þá leikmenn sem spila með ís-
lenskum liðum eða liðum frá Norð-
urlöndum þar sem lið annars staðar
í Evrópu era ekki hrifm af því að
hleypa leikmönnum sínum í „þýð-
ingarlausa" vináttulandsleiki. Andri
er að koma sér 1 form eftir meiðsl og
hann spilaði lítið eftir að hann kom
til Austurríkis fyrir jól. Við
ákváðum að gefa honum frið
til að koma sér í gott form í ró-
legheitum f stað þess að ana út
í landsleikjahrinu í litlu sem
engu leikformi. Ég er viss um
að félag hans hefði ekki verið
hrifið af þvl að sleppa honum
til Indlands á miðju undirbún-
ingstímabili."
Hreiöar
Bjarnason
Pétur og Marel meiddir
Pétur Marteinsson og Marel
Baldvinsson, sem leika með
Stabæk í Noregi, geta ekki leik-
ið með íslenska landsliðinu á
alþjóðlega mótinu á Indlandi og
hafa Kjartan Antonsson úr ÍBV
og Hreiðar Bjamason úr Fylki
verið valdir í þeirra stað. Kjart- Kjartan
an hefur ekki leikið landsleik Antonsson
áður og er einn af fimm leik-
mönnum sem hljóta eldskím sína á
índlandi. Hreiðar lék hins vegar
sinn fyrsta og eina landsleik gegn
Maltverjum í sumar. Hinn 19 ára
gamli Helgi Valur Daníelsson, sem
leikið hefur með Peter-
borough í ensku 2. deildinni
í vetur, hefur einnig verið
valinn í landsliðshópinn eft-
ir að í ljós kom að Guð-
mundur Hreiðarsson, að-
stoðarþjálfari Atla, kemst
ekki með vegna anna í
vinnu.
Þar með hafa fjórir leik-
menn dregið sig út úr lands-
liðshópnum en áður höfðu
KR-ingamir Einar Þór Dan-
íelsson og Sigurður Örn
Jónsson hætt við vegna
meiðsla. I þeirra stað vom
valdir Valur Fannar Gísla-
son úr Fram og Sævar Þór
Gíslason, Fylki. Það er ljóst
að Atli Eðvaldsson teflir
fram reynslulitlu liði á Ind-
landi en meðallandsleikja-
fjöldi leikmanna liðsins er tæplega
3,3 landsleikir.
-ósk
Óþekkt
andlit
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu er í 2. riðli með Úrúgvæ,
gestgjöfum Indlands og Indónesíu,
í Super Soccer Millenium Cup
sem fram fer á Indlandi í janúar
og er riðillinn spilaður i Kochin.
íslendingar hafa aldrei leikið
gegn þessum þjóðum áður en þau
eru misjöfn að styrkleika. íslend-
ingar leika gegn Úrúgvæ fimmtu-
daginn 11. janúar, gegn Indverj-
um laugardaginn 13. janúar og
gegn Indónesíu mánudaginn 15.
janúar. Ef íslendingar komast
upp úr riðlinum spila þeir annað-
hvort 18. eða 20. janúar í 8-liða úr-
slitum.
Ekki hátt skrifaðir
Gestgjafar Indlands eru ekki
hátt skrifaðir í knattspymuheim-
inum. Þeir eru í 122. sæti styrk-
leikalista Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins og hafa fallið um
sextán sæti síðan um síðustu ára-
mót. Þeir hafa ráðið nýjan þjálf-
ara, Islam Akmedov frá Úsbekist-
an, en verða án síns besta manns,
Baichung Bhutia, sem leikur með
enska 2. deildar liðinu Bury. Hóp-
inn skipa eingöngu leikmenn sem
spila með indverskum liðum. Ind-
verjar fóru í keppnisferð til Eng-
lands í júlí á síðasta ári. Liðið lék
þrjá leiki, tapaði fyrir Fulham,
2-0, gerði markalaust jafnteíli við
WBA og vann landslið Bangla-
dess, 1-0.
Ekki með sterkasta liö
Úrúgvæ hefur átt góðu gengi að
fagna undanfarið undir stjórn
Argentínumannsins Daniels
Passarella og er liðið í 33. sæti
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins. Úrúgvæar
munu ekki stilla upp sterkasta
liði sínu á Indlandi. Aðeins þeir
leikmenn sem spOa heima í Úrúg-
væ skipa hópinn. 1
Indónesar em með eilítið
sterkara lið en Indverjar á pappír-
unum. Liðið er í 97. sæti á styrk-
leikalista Alþjóða knattspymu-
sambandsins. Indónesar komust í
úrslit Asíukeppninnar á síðasta
ári en enduðu í neðsta sæti í sín-
um riðli. Mikið átak var gert í
knattspyrnumálum í Indónesíu
árið 1996 og er stefnan að koma
liðinu meðal 50 bestu landsliða í
heimi árið 2002.
Aðrir riðlar em þannig skipað-
ir, staða þjóða á styrkleikalista
Alþjóða knattspyrnusambandsins
i sviga.
1. riðill i Kochin: Júgóslavía .
(9. sæti), Bosnía-Hersegóvína (78. 1
sæti), írak (79. sæti) og Bangla- ]
dess (151. sæti). i
3. riðill i Goa: Rúmenía (13. 1
sæti), Kamerún (39. sæti), Jórdan- ]
ía (105. sæti) og Hong Kong (123. i
sæti).
4. riðill í Kalkútta: Chile (19.
sæti), Úsbekistan (71. sæti), Japan
(38. sæti) og Bahrain (138. sæti).
-ósk
iiu m