Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Blaðsíða 4
Jósef Ólason er
sendiboði Elvis
Presley og hefur
dýrkað Kónginn frá
8 ára aldri. Hann
fagnar afmæli Pres-
leys í Þórshöll á
laugardaginn og
tekur þar lagið í
fullum skrúða.
Jón Trausti Reynis-
son átti samtal við
Jósef, sem
Ijóstraði upp
draumum um
Kónginn og fyrir
ætlunum um að
leita hans í
Bandaríkjunum.
„Mig dreymir oft sama
drauminn þar sem ég
er heiðursgestur á
tónleikum hjá El-
vis. Eftir tón-
leikana fer
ég bak-
sviðs og
h e i 1 s a
upp a
K ó n g -
inn. Ég
segi hon-
um hvern-
ig mér líkuðu tónleikarnir og
að ég ætli að feta í hans fótspor
á íslandi. En ég tek svo fram að
ég sé bara sendiboði og er ekki
að reyna að stæla hann. Það
getur enginn stælað Kónginn,"
segir Jósef Ólason, formaður
Hins íslenska aðdáendaklúbbs
Elvis Presleys, oftast kallaður
Jobbi.
Rokkkóngurinn fæddist fyrir
66 árum á næsta mánudag og í
tilefni þess ætlar Elvisklúbbur-
inn að halda veglega afmælis-
hátið í Þórshöll á laugardags-
kvöldið klukkan 9. Fjórir með-
limir klúbbsins munu klæða
sig upp í Elvisbúninga og þenja
raddböndin að hætti hins kon-
ungborna rokkara.
„Ég og Héðinn Valdimarsson,
sem er annar forsprakki í
að
finna
w
/
klúbbn-
um, stígum
ásamt tveimur
þrettán ára strák-
um á svið í fullum
skrúða. Annar
strákurinn verður í
rauðum flauelsbún-
ingi eins og þeim
sem Elvis notaði
þegar hann var 16
ára en hinn
strákurinn
verður í blá-
um flauels-
b ú n i n g i .
H é ð i n n
verður í
svokölluð-
u m
Hawaii-
galla El-
vis en ég
verð í
s ó 1 a r -
gallan-
um, sem
er síð-
asti gall-
inn sem
Kóngur-
inn not-
aði og
var hann
þá orðinn ansi
bústinn,“ segir
Jobbi og
bendir á
að þrír
þess-
a r a
galla eru
framleiddir á
íslandi.
Á afmælishátíð-
inni verða einnig
sýndar myndir og
tónleikar á breiðtjaldi
ásamt því að stuttlega
verður farið yfir sögu Pres-
leys. Jobbi segir nú vera
rétta tímann til að kynna
Elvis fyrir íslendingum.
„Músíkin á íslandi hefur
verið í lægð undanfarið.
Við ætlum að láta unga
fólkið vita af því að Kóng-
urinn er hér. Hvar sem
ég hef farið i búninginn
og sungið Elvislögin
fyrir ungt fólk hef ég
fengið góðar viðtökur.
Fólk þarf bara að
heyra tónlistina
hans en ef menn
fíla hann ekki
eða skilja hann
ekki er það
þeirra mál.
Þetta er eins
konar mús-
íkalskt trú-
boð af okk-
ar hálfu,“
segir hann.
Jobbi slær þó þunga varnagla
við Elvis-skemmtanir sínar.
„Ég er alls ekki að reyna að
herma eftir honum eða stæla
hann. Það er bara einn sannur
Kóngur og ég vil ekki einu
sinni reyna að vera hann.
Margir hafa farið í lýtaaðgerðir
og fleira til að líkjast Elvis en
mér finnst það vitleysa. Við í
Elvisklúbbnum erum aðeins
að túlka lög hans á okkar
hátt og ég hef mína takta á
sviðinu sem ég bjó til sjálf-
ur. Við erum sendiboðar El-
vis en ekki hermikrákur,"
segir hann.'
Allt frá dauða Elvis árið 1977
hefur komið fram fjöldi furðu-
fugla sem halda því fram að
þeir hafi talað við Elvis fyrir
handan. Jobbi gefur litið fyrir
þessar furðusögur og segir
Kónginn vera sprelllifandi.
„Elvis býr á búgarði föðurs
síns, um 20 kílómetrum frá
Graceland. Ég er viss um það
og ég er alvarlega að íhuga að
fara til Bandaríkjanna í sumar
og reyna að berja Kónginn aug-
um. Það var mér þungbært fyr-
ir 24 árum þegar ég frétti um
meintan dauða hans. Þá ákvað
ég að eignast minn eigin galla
og halda merki hans á lofti. Ég
skemmti krökkum sem eiga
bágt og hef gert góða hluti sem
Elvis-skemmtikraftur,“ segir
Jósef Ólason, sendiboði Elvis á
íslandi, sem skemmtir á afmæl-
ishátið Kóngsins í Þórshöll á
næstu helgi.
heimasíða vikunnar
dumblaws.com
Frakklandi má ekkert svín vera
kallað Napóleon af eiganda sínum?
1 Danmörku er ólöglegt að starta
bíl ef einhver er undir honum. í
Alabama er ólöglegt að karlmaður
skyrpi fyrir framan konu. í York í
Englandi er löglegt að skjóta
Skota með boga og örvum alla
daga nema sunnudaga. Stund-
um hefur höfundur siðunnar
myndskreytt lög sem honum
þykir sérstaklega fáránleg.
Einnig má þarna skoða
heimskulega og misheppn-
aða glæpi (Dumb criminal
acts) og öðlast algjörlega til-
gangslausa vitneskju (Dumb
Facts) eins og að Thomas
Edison hafi verið myrkfæl-
inn og að höfrungar sofi
með annaö augað opið. Svo
má kíkja á fræðiheiti á ofsa-
hræðslu af ýmsu tagi (Real
Fears) sem maður hafði
ekki hugmynd um að væri
til. Uranophobia er til
dæmis hræðsla við himininn og
Arachibutyrophobia sem er
hræðsla við að hnetusmjör festist í
gómnum. Þessi síða er tilvalin ef
manni leiðist og vantar að eyða
tíma sínum í eitthvað algjörlega til-
gangslaust.
Hér hafa nokkrir Kanar tekið sig
til og safnað saman ógrynni af
heimskulegum reglum og lögum úr
hinum og þessum löndum og skellt
þeim á þessa síðu. Vissir þú að í
f Ó k U S 5. janúar 2001