Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Síða 7
Rósa Guðmundsdóttir hefur haft hægt um sig að undanförnu enda á kafi í að vinna við nýja fyrirtækið
sitt, Tic, sem hún stofnaði ásamt Snædísi Þorleifsdóttur. Rósa er hætt að vera skemmtanastjóri Spotlight
og einbeitir sér algjörlega að því að koma fyrirtækinu upp. Tic er umboðsskrifstofa fyrir íslenska og er-
lenda listamenn og hæfileikafólk.
„Ég hætti á Spotlight og fór að
einbeita mér að því að koma fyrir-
tækinu af stað. Ég hef ekkert
slæmt að segja um Spotlight enda
er ég mjög ánægð með mitt starf
þar og allt sem ég hef gert útfrá
þvi. En nú er ég á kafi í markaðs-
setningu og vinnu fyrir nýju um-
boðsskrifstofuna sem við Snædís
stofnuðum saman,“ segir Rósa.
Öflug sambönd erlendis
„Við erum búin að vera að vinna
að þessu frá því í sumar og nýlega
héldum við opnunarteiti á Astro.
Eigendur fyrirtækisins eru íslensk-
ir og amerískir fjárfestar og við
erum með mörg mjög öflug sam-
bönd erlendis. Við höfum tenging-
ar í skemmtanaiðnaðinn í Los Ang-
eles, London, New York og Paris
sem getur komið sér vel fyrir ís-
lenska listamenn," segir Rósa um
nýja fyrirtækið. Eitt af markmið-
um Tic er að beina erlendum fjár-
festum inn á íslenskan markað og
einnig að bæta við þá öru þróun
sem er í gangi í tölvu- og internet-
bransanum. „Okkur langar að efla
íslenskt listalíf og viðskiptalíf í
takt við það sem er að gerast er-
lendis," segir Rósa. „Það sem við
höfum í höndunum eru möguleikar
á því að smíða ýmis samstarfsverk-
efni milli íslands og annarra landa,
aðallega Bandaríkjanna. Annað
markmið er að koma islenskum
listamönnum á framfæri erlendis
og einnig að flytja inn erlenda
listamenn til íslands."
Hvaða stjörnu myndir þú helst
vilja flytja til landsins?
„Mig langar rosalega að fá hana
Madonnu til að koma til íslands.
Þetta er bara persónulegur áhugi
og markmið en ég efast ekki um að
mér eigi eftir að takast það ein-
hvern tímann."
Auga fyrir talent
„Snædis er framkvæmdastjórinn
hjá Tic en mitt hlutverk er að sjá
um fjölmiðlatengingu og vera rödd
fyrirtækisins út á við. Ég tek
einnig þátt í sköpunarstarfi hér
innandyra. Starfsheitið á ensku er
„creative director", en það er ekki
til neitt almennilegt íslensk orð
yfir það.“ En Rósa sér líka um að
uppgötva nýja listamenn. „Ég er
svo mikill listamaður sjálf að ég
þekki hæfileika þegar ég sé þá. En
þegar viðkemur erlendum markaði
þá höfum við sambönd inn á borð
hjá frægum listamönnum. Skrif-
stofan hérna er opin fyrir alla lista-
menn sem vilja kíkja við og ef okk-
ur líst vel á það sem þeir eru aö
gera þá verður það tekið fyrir. Við
getum boðið þeim sambönd erlend-
is sem tæki þá annars mjög langan
tíma að fá. Svona umboðsskrifstofu
hefur vantað lengi hérlendis."
Útibú í London og New
York
„Við erum með ýmis samstarfs-
verkefni milli okkar og erlendra
aðila sem bæði gæti átt sér stað
hérlendis og erlendis. Það er mikill
möguleiki á aðild íslenskra lista-
manna að svoleiðis verkefnum og
útflutningur á þeim.“ Rósa' vill
ekki uppljóstra neinum nöfnum
eins og er en plötufyrirtækið EMI
og kvikmyndafyrirtækin 20th Cent-
ury Fox og Paramount segir hún
vera meðal þeirra fyrirtækja sem
eru i sambandi við Tic. „Seinna,
þegar við byrjum að smíða verkefni
þá sé ég stóra hluti gerast en fólk
hefur brennt sig á því að vera að
segja allt of snemma frá því sem er
í gangi. En ég get sagt að við höfum
mjög öflug sambönd sem spanna allt
frá kvikmyndaverunum í Hollívúdd
yfir í stærstu tónlistarnöfnin í L.A.
og London. Það eru ýmsir möguleik-
ar í boði sem við erum að vinna
með. Það er ein af okkar stefnum að
fá listamenn af hvers konar stærð-
argráðu hingað til lands.“ Rósa seg-
ir að Tic sé strax byrjað að stækka
við sig. „Við erum nú þegar búin að
opna skrifstofur í Reykjavík og Los
Angeles og stefnum að því að opna
líka útibú í London og New York.
Með tímanum og ef allt gengur vel
þá sé ég það alveg gerast. En nú er
þetta bara að reyna að vinna rétt úr
því sem maður hefur í höndunum."
Eruó þið ekki hrœdd við sam-
.keppni?
„Nei, við erum svo miklir friðar-
sinnar," segir Rósa og bætir því við
að þau séu mjög opin fyrir sam-
vinnu. „Við erum að gera þetta fyr-
ir íslenskt hæfileikafólk því í þess-
um bransa skiptir máli að þekkja
rétta fólkið. Ég hef verið sjálf að
vinna í minni eigin músík síðastlið-
in þrjú ár bæði í New York og
London; þar hef ég kynnst mikið af
fólki en það er bara smáhluti af
þeim samböndum sem við höfum nú
í dag. Samböndunum höfum bæði ég
og Snædís safnað á síðustu þremur
árunum."
Listamaður á leiðinni
Það er einn bandarískur mynd-
listamaður sem Tic hefur verið að
vinna með sem Rósa er til í að segja
frá. „Hann heitir Wyland og málar
ótrúlega fallegar og ævintýralegar
sjávarmyndir af höfrungum,
hvölum og fleira þannig háttar.
Hann er mjög frægur úti og enginn
annar en Pierce Brosnan var kynn-
ir í heimildamynd sem var gerð
um hann. Wyland er mikill nátt-
úruverndarsinni og var einn af
baráttumönnunum fyrir þvi að
Keiko færi aftur heim til íslands.
Hann hefur lýst yfir áhuga á þvl að
koma til landsins að vinna að
ákveðnu verkefni og hefur sú
vinnsla þegar hafist," segir Rósa
leyndardómsfull. „Verkefni af
þessu tagi myndi án efa vekja
heimsathygli.“
Tónlistarkarríer fram
undan?
Rósa er hvorki á föstu né ást-
fangin en segist vera sérstaklega
hamingjusöm. „Ég er svona barn
sem leikur _sér í sólinni,“ segir hún
dreymin. „Ég er aldrei að spá neitt
í ástarmálin, þau bara gerast. Það
er samt örugglega gaman að eiga
mig fyrir vinkonu þar sem ég er
uppátækjasöm og mjög opin.
Einnig er ég auðmjúk og trúuð,“
segir hún og bætir við: „Ég er
manneskja sem hef lent í ýmsu um
ævina og ég hef lært af því öllu
saman og það hefur gert mig að
þeirri konu sem ég er í dag.“
Ertu hœtt að módelast?
„Fyrirsætustörf hafa alltaf bara
verið hobbí í mínum augum. Með
fullri virðingu fyrir fyrirsætum þá
er ég bara ekki manneskjan í það.
Mér finnst rosalega gaman þegar
mér er boðið að sitja fyrir og stund-
um tek ég að mér að sitja fyrir eft-
ir því hvað það er.“ Rósa sat fyrir
í auglýsingu fyrir Gullsól og þóttu
myndirnar í djarfari kantinum.
„Mér þótti þessar myndir einfald-
lega fallegar og þess vegna tók ég
þátt í þessari myndatöku. Ég á
langa reynslu að baki í módelstörf-
um og hef ekki verið feimin við
myndavélina en líf mitt hefur nú
tekið aðra stefnu. Mér líkar ekki
við það að vera að hjakka stöðugt í
sama farinu og verð að halda
áfram i lífinu. Ég tel mig vera búna
að finna mína stefnu í dag og það
mun væntanlega leiða til þess að
ég sem listamaður læt ljós mitt
skína einn daginn og vonandi í
nánustu framtíð. Það hefur verið
mitt persónulega markmið lengi að
vinna með músíkina mína. Ég er
listamaður af lífi og sál.“
Getur þú ekki notað sambönd Tic
til aó koma eigin tónlist á framfœri?
„Auðvitað mun ég og örugglega
hinir í Tic-team (Tic-liðinu) kanna
vettvang fyrir okkar eigin feril. Ef
mig langar að gera plötu einhvern
tímann þá get ég notað þau sam-
bönd sem við höfum fyrir sjálfa
mig.“
Hvað gerðir þú á gamlárskvöld?
„Ég var á heimaslóðum í Vest-
mannaeyjum og fór á ball með
hljómsveitinni Undryð. Ég var
bara á bíl og fór svo bara snemma
heim aö sofa, ég er orðin svo ábyrg
manneskja."
Þegar heimskonan er spurð
hvort hún haldi aö hún eigi eftir að
búa á íslandi eða erlendis í fram-
tíðinni er hún fljót að svara. „Ég á
alltaf eftir að eiga samastað hér og
vonandi kaupi mér einhvern tím-
ann hús með æðislegum heitum
potti í garðinum. En ég myndi líka
vilja eiga íbúð í New York hjá
Central Park, hús í Beverly Hills,
íbúð i París og fallegt sveitasetur
rétt fyrir utan London," segir Rósa
að lokum.
5. janúar 2001 f ÓkUS
7