Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Page 14
í f ó k u s
Litlu sjálfstæöu leikhúsiö eru í fókus, eins og
þau hafa verið undanfarið, enda alltaf gaman
að sjá þegar einhver storkar Stóra bróður
sem Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur
sannarlega eru. Uppgangur Iðnós undanfarin
ár er til mikillar fyrirmyndar og eftir sameining-
una á síðasta ári getur fólk farið að gera sér
vonir um alvöru samkeppni. Það hefur enda
sýnt sig í vetur að þessi litli risi hefur verið
mjög áberandi og umræður um kaup á Bíó-
borginni virðast benda til enn frekari útþenslu
sem hlýtur að endingu að skila okkur betra
leikhúsi. Það er ekki hægt annað en að taka
ofan fyrir þeim sem þora að taka af skarið
með þessum hætti, að standa í hárinu á sér
stærri aðilum sem ofan á hefðina hafa það
fram yfir að vera haldið uppi af rikisstyrkjum.
Er hægt að búast við mikilli framþróun hjá
stofnun sem er á fjárlögum?
ú r f ó k u s
Áramótaskaup Sjónvarpsins var líklegast ein-
hver versta dagskrárgerð sem send hefur ver-
ið út í íslensku sjónvarpi. Meira að sega
Bingó Lottó bliknar í samanburðinum. Ára-
mótaskaupið er eitthvað sem allir horfa á og
þannig hefur það verið um langt skeið. Venju-
lega er það svo að skaupiö er hin ágætasta
skemmtun, oft misjafnt að gæöum en ætíð
hefur mátt finna eitthvað í því sem hægt er að
hafa gaman af. Þetta árið var hins vegar allt
annað uppi á teningnum því frá upphafi til
enda sátu flestir þegjandi, litu hver á annan
og biðu eftir bröndurunum. Eins og við mátti
búast var útgangspunkturinn velgengni Skjá-
sEins og íslenskra íþróttamanna á árinu en
það, og fleiri skotheld tækifæri til brandara-
smíöa eins og Maður er nefndur þættirnir, var
einkar illa nýtt. Eftir stendur sú tilhugsun að
það var fjöldi manns á launum við framleiðslu
Áramótaskaupsins og þaö fólk hafði ekki einu
sinni dug til að geta þess hver væri höfundur
þess. Þess í staðinn var íslenska þjóðin skrif-
uð fyrir heriegheitunum, nokkuð sem fæstir
vilja eflaust láta bendla sig við.
Það hafa allir heyrt frasann og flestir líklega gripið til hans einhvern tímann. Það
sem byrjaði sem auglýsing fyrir Budweiser hefur á skömmum tíma breyst í alþjóð-
legt fyrirbæri og virðast vinsældirnar engan enda ætla að taka. Það skemmtilega við
þetta allt saman er þó að fyrirbærið má rekja til fámenns vinahóps úr háskóla
sem gerði fátt annað en að láta eins og fávitar.
Hver man ekki eftir einhverju
heimskulegu sem tíðkaðist í gamla
vinahópnum, sérstöku handtaki
eða frasa sem aöeins nokkrir aðil-
ar vissu um hvað snerist? Ef þú
hefðir verið aðeins klárari eða
heppnari hefðir þú getað breytt
þínum frasa í alþjóðlegt fyrirbrigði
sem milljónir notast við daglega.
En það gerðist ekki, var.það nokk-
uð?
Byrjaði í háskóla
Charles Stone III gerði það aft-
ur á móti, en
hefðin sem
hann og félagar
hans tóku upp
að láta eins og fífl. Þeir
byrja að nota fras-
ann fræga og
skemmta
fyrir
fimmtán
árum hef-
ur gert það
að verkum að
ársins 2000 verður
ekki minnst fyrir
fljúgandi bíla eða undra
lausnir á sviði erfða-
fræði. Nei, árið 2000
var árið sem fólk
gelti að
hvort
öðru
ems og
dýrvit-
lausir
hundar.
Saga Whasssuup?-fyrirbrigð-
isins er í sem stystu máli þannig að
Stone og félagar hans, Paul Willi-
ams, Fred Thomas Jr. og Scott
Brooks, voru saman í skóla í Fíla-
delfíu þar sem gerðu fátt annað en
ser
lengi við að garga
hann að hvor öðrum. Sto-
ne gerðist svo nokkuð
virtur myndbandaleik-
stjóri og gerði myndbönd
fyrir ekki ómerkari aðila en
Public Enemy, Earth Wind
& Fire og síðast en ekki síst
The Roots, sem eru taldir
miklir áhrifamenn í myndbanda-
gerð svartra. Hlutur Stone í
myndböndum þeirra var skopstæl-
ing á gangstera-
myndböndum, þ.m.t.
eitt atriði þar sem fylgdar-
dömurnar hrista rassinn á sér svo
hressilega að þær fá krampa.
Gömlu félagarnir ráðnir
Árið 1998 gerði Stone stuttmynd
þar sem hann endurvakti gamla siði
frá háskólaárunum. Myndin lenti
inni á borði hjá auglýsingastofu sem
sendi hana til Budweiser. Voru
honum boðnar stórar fúlgur fyrir að
leikstýra röð auglýsinga og haldin
voru áheyrnarpróf fyrir 240 manns
af öllum kynþáttum. Þegar fimm
mm-
ú t u r
voru eftir
af áheyrnarpróf-
inu gengu gömlu félagamir inn og
voru ráðnir á staðnum.
Fyrsta auglýsingin fór í loftið í
desember 1999 og vakti strax mikil
viðbrögð. Þegar fjórar auglýsingar
voru svo frumsýndar í kringum
Super Bowl (sem er hápunkturinn
á annars helgeðveikri auglýsinga-
súpu Bandaríkjamanna) fór allt úr
böndunum.
Það var þó ekki fyrr en auglýsing-
arnar hirtu Grand Clio-verðlaunin
í Frakklandi sem bestu auglýsing-
arnar í veröldinni að þeim var dreift
um allan heim og jókst hróður fjór-
menninganna mikið í kjölfarið. Þeg-
ar þetta er ritað eru auglýsingarnar
orðnar hátt í tíu, en þær má flestar
finna á www.adorific.com.
Tveggja ára samningur
í Bretlandi hafa auglýsingamar
verið birtar á BBC, sem alla jafna
sýnir ekki auglýsingar, lífverðir
drottningar hafa fengið ávítur
fyrir að nota frasann í vinnunni
og æsifréttablaðið Sun breytti
nafninu á slúðurdálki sínum til að
líkjast Whasssuup? Við íslendingar
þurfum þó ekki að hafa áhyggjur af
því að þessar auglýsingar trufli okk-
ur frá slíkum gæðaauglýsingum
eins og Hversdagsís og endalausum
farsímaauglýsingum, það er hugsað
fyrir því. En það breytir því þó ekki
að fjórmenningarnir sem gargað
hafa Whasssuup? í fjölda ára eru
orðnir það þekktir í Bandaríkjunum
að talað er um stóra kvikmynda-
samninga fyrir þá. Charles Stone III
hefur svo skrifað undir tveggja ára
samning við Budweiser, þannig að
fólk þarf ekki að búast við öðru en
fleiri auglýsingar séu væntanlegar.
hverjir voru hvar
Á Thomsen á föstudagskvöldið voru meðal ann-
arra plötusnúðarnir Eldar Ástþórsson, Frímann,
Árni Einar og
Grétar G. auk
þeirra Árna Þórs
Vigfússonar
sjónvarpsstjóra
ásamt Svölu
Björgvinsdóttur
og eins sást I
Hjálmar Blöndal
framkvæmda-
stjóra hjá Reykja-
vik.com
Á Prikinu á
föstudagskvöld
voru meðal ann-
arra þau Erpur Þ. Eyvindarson, Maríkó Margrét
Ragnarsdóttir og
Ingólfur kærasti henn-
ar auk Svölu Björg-
vinsdóttur. Þá gat fólk
rekið augun í ekki
ófrægari fyrirsætur en
Elísabetu Davíösdótt-
ur og Önnu Rakel Ró-
bertsdóttur en þeir
Sölvi og Steini úr
Quarashi tóku það ró-
lega við barinn. Á laug-
ardagskvöldið bar
hæst nærveru
söngvarans í Manic
Street Preachers og annarra hljómsveitarmeðlima
og fylgifiska.
Stórhýsiö lönó við Tjörnina var undirlagt á gamlárs-
kvöld þar sem boöiö var til einkasamkvæmis fyrir
margt af fræga og skemmtilega fólkinu i bænum,
en nokkur óþekkt andlit sáust auðvitað með. Gest-
gjafarnir voru eins og í fyrra þeir Gísli Marteinn
Baldursson, Slguröur Kárl Krlstjánsson, Rúnar
Freyr Gíslason og fleiri úr þeim vinahópi en
skemmtiatriöi voru
meðal annars í hönd-
um Geirfuglanna og
Skárr’en ekkert pilt-
anna. Meðal annarra
sem til sást voru leik-
ararnir Ólafur Darri
Ólafsson, Edda Björg
Eyjólfsdóttir og auð-
vitað Iðnóvertinn
Magnús Geir Þóröar-
son. Eins mátti greina
andlit þeirra Kára
Hallgrímssonar hjá Íslandsbanka-FBA og frúar,
Ágústs Ágústssonar og Þorbjargar Gunnlaugs-
dóttur laganema auk Þórlinds Kjartanssonar há-
skólapólitikusar.
Gamla búllan Ozio viröist öll vera að komast í
gagnið og var endurkomunni fagnað á gamlárs-
kvöld með veglegu einkasamkvæmi. Meðal þeirra
sem litu inn voru Kristján Ragnar af SkjáEinum og
Dóra Takefusa i karlmannslíki, ívar Slgurjónsson
knattspyrnumaður úr Breiðabliki og markaösstjóri
Kringlunnar, Andri Gunnarsson plöggari, Óli Freyr
hjá INNN, Ragnar Óskarsson landsliðsmaður í
handbolta og Hallur Dan Johannsen, starfsmaður
Players, að ógleymdum þeim Dodda og Gulla hjá
Hugmyndum.
Blásið var til áramótafagnaðar á Vegamótum á
gamlárskvöld þar sem starfsmenn tölvufyrirtækis-
ins INNN voru hvaö mest áberandi. Kristján Jóns-
son Ólafssonar var auðvitað á staðnum og eins
Hjálmar Blóndal framkvæmdastjóri og þau Sóley
plötustýra og Friörik Snær.
Það var löng helgi á Astró eins og annars staðar.
Gestirnir voru ekki af verri endanum frekar en fyrri
daginn, þau Jón Jón, Kolla i GK, Unnar í Japis, og
Unnur og Eva voru á sínum stað aö vanda, Jón
Kári, Christine Allied
Domec, Siggi Zoom og
Dóri lausaljósmyndari
létu sig heldur ekki
vanta. Dóra frá Haus-
verk og Siggi Hlö
reyndu að ná athygli
fólksins en Svavar Örn
tékkaði á klæönaðin-
um, Yesmlne var mætt
en ekkert sást til Villa,
Gylfi frá Tæknivali,
Biggi tenór og Hólm-
geir sjónvarps.kóngur".
hélt uppi heiðri krakkanna og nálægt henni sást i
Jón Ólafsson og Krissa son hans (spurning hvort
þeir voru að bjóða í Stundina?). Auöun Helgason
mætti með einhverja
sjóræningja frá Nor-
egi, Valdi úr Valhöll,
Kalli Lú, Ragnar Már
frá OZ, Þröstur af FM,
Andrés Pétur eign.is,
Elísabet Árnadóttir.
Ingi sólbrúnka frá
Sælunni, Sammi úr
Jagúar, Þór Jósefsson
erótíker, Berglind og
Bergdís sem fólk ætti
aö kannast við úr ein-
hverjum fegurðarsamkeppnum, Júlli Kemp og
Gummi Stálmús.
Andri frá Heimsferö-
um lét sig ekki vanta
og Þráinn skóari
mætti öllum að óvör-
um ásamt frúnni og
félögum, Gunna „syst-
ir“ og Hanna frá ís-
lensk-Ameríska, Leo
tækniteiknari, Pétur
Ottesen sem á að
heita athafnamaður
(þó fáir viti hvaö hann
geri), Katrín Bernhöft og Bára háskólastelpur,
Arna og Díanna Dúa sem slógu eftirminnilega í
gegn í Playboy, Gummi Gonzales, Hrafnhildur ung-
frú ísland, Steini Werner, Gísli Jóhannsson,
Krummi og Elías flugmenn, Alvaro frá Sævari Karl
og Jón ivar einkaþjálfari.
Ásta úr Stundinní okkar
RCWELLS
14
f Ó k U S 5. janúar 2001