Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2001, Qupperneq 1
15
m
Bandaríski táningurmn Venus
Williams hneykslaði marga er hún
mætti frekar fáklædd til leiks á opna
ástralska mótinu i tennis sem nú
stendur yfir. Heimsfrægir tennisleik-
arar á borð við Pam Shriver sögðust
hafa sopið hveljur löngum stundum og
þá sérstaklega í uppgjöfunum. „Ég
sagði oft við sjálfa mig: Oh, oh. Nú
hljóta þau að detta út. Ef sú hefði orð-
ið raunin hefði það skaðað iþróttina
verulega," sagði Pam Shriver i gær.
Ekki voru aUir sammála henni og
margir voru þeirrar skoðunar að þessi
nýi búningur hennar, sökum þess hve
efnislitiU hann er, myndi bara auka
áhuga á íþróttinni.
Fjórir úr Haukum
- í pressuliðinu sem mætir Bandaríkjamönnum
íþróttafréttamenn í samtökum íþróttafréttamanna hafa valið pressuliðið
sem keppir við bandaríska landsliðið á sunnudag en sá leikur verður sá
þriðji og síðasti hjá liði Bandaríkjamanna sem er á leið á heimsmeistara-
mótið í Frakklandi líkt og það íslenska. Bandaríkjamenn spUa áður við ís-
lenska landsliðið á Seltjarnamesi í kvöld og á Selfossi á morgun. í pressulið-
inu verða fjórir leikmenn frá Haukum sem eru efstir
NissandeUd karla eftir 13 umferðir. Pressuliðið skipa eftir-
taldir 14 leikmenn:
Markverðir: Bergsveinn Bergsveinsson FH, Roland
Eradze Val Aðrir leikmenn: Tjörvi Ólafsson Haukum,
Páll Þórólfsson UMFA, Valdimar Grímsson Val, Bjarki Sig-
urðsson UMFA, Eduard Moskalenko Stjörnunni, Magnús
Már Þórðarson UMFA, Amar Pétursson Stjörnunni, Óskar
Ármannsson Haukum, Rúnar Sigtryggsson Haukum, Héð-
inn GUsson FH, HaUdór Ingólfsson Haukum og Alexander
Petersons Gróttu-KR. Þjálfari pressuliðsins er Viggó Sig-
urðsson. -ÓÓJ
Viggó Sigurös-
son stjórnar
pressuliðinu.
Island í 52. sætinu
íslenska landsliðið i knattspyrnu féll niður um tvö sæti á
styrkleikalista Alþjóða knattspymusambandsins sem birtur
var í gær. íslendingar voru í 50. sæti síðast þegar listinn var
birtur en eru nú í 52. sæti. Nígería og FUabeinsströndin
komust upp fyrir ísland sem lék enga landsleiki á þessu
tímabili. BrasUíumenn eru enn efstir en á hæla þeim koma
Frakkar og Argentínumenn. Nú er það líka orðið ljóst að
ísland mætir Chile í 8 liða úrslitum á Árþúsundamótinu í
Kalkútta á laugardaginn.
Ronaldinho til Parísar
Forráðamenn franska liðsins Paris St. Germain tUkynntu
í gær að þeir hefðu keypt brasUíska framherjann Ronald-
inho frá Gremio. Samkvæmt fréttum frá París á Ronaldinho
að hafa skrifað undir fimm ára samning við félagið og byrj-
ar hann að spUa með liðinu á næsta keppnistímabili. Luis
Femandez, þjálfari Paris St. Germain, vonast til þess að
Ronaldinho og Nicolas Anelka nái vel saman í framlínu
liðsins á næsta keppnistímabili.
Hardaway alveg úr leik
Hinn snjáUi leikmaður Phoenix Suns, Penny Hardaway,
leikur ekki meira með liði sínu i vetur. Hardaway hefur átt
við meiðsli að striða á hné í aUan vetur og hafa forráða-
menn Phoenix ákveðið að hvíla hann það sem eftir liflr
keppnistímabils til að fá hann fullkomlega góðan. Þetta er
mikið áfaU fyrir Phoenix Suns sem á fyrir höndum harða
baráttu í vetur á toppi Kyrrahafsdeildarinnar. Hardaway
spUaði 60 leiki á síðasta keppnistímabili og skoraði 16,9 stig,
tók 5,8 fráköst og gaf 5,3 stoðsendingar að meðaltali í þeim.
Masuoka með nauma forystu
Japanski ökuþórinn Hiroshi Masuoka er með sex mín-
útna forystu á Frakkann Jean-Louis Schlesser í bílaflokki í
París-Dakar-rallinu eftir sextándu sérleið, hina 214 kíló-
metra löngu leið frá Nema í Márentaníu til Bamako í Malí,
sem ekin var í gær. Portúgalinn Carlos Sousa var fljótastur
á þeirri sérleið en Schlesser varð þriðji. ítalinn Fabrizio Me-
oni hefur enn örugga forystu í mótorhjólaflokki þrátt fyrir
að hafa ekki náð sér á strik í gær. Meoni hefur tæplega tutt-
ugu mínútna forystu á Spánverjann Jordi Arcarons.
Getum unnið Svía
Daniel Constantini, þjálfari franska landsliðsins í hand-
knattleik, hefur fulla trú á því að lið sitt geti lagt Svía að
veUi ef liðin mætast í heimsmeistarakeppninni í Frakklandi
sem hefst eftir tæpa viku. Frakkar og Svíar léku vináttu-
landsleik um síðustu helgi í Svíþjóð og fóru heimamenn
með sigur af hólmi, 26-23. Þrátt fyrir þetta segist Constant-
ini sannfærður um að getan til að leggja Svia að velli sé fyr-
ir hendi í franska liðinu og lofar öðruvísi leik ef liðin mæt-
ast aftur. „Það verður aUt öðruvísi þegar um alvöruleik er
að ræða. Við þurfum að vísu að spUa okkar áUra besta leik
en það er ekki nokkur vafi í mínum huga að við getum lagt
Svía að veUi,“ sagði Constantini. -ósk
Undirbúningur fyrir heimsmeistarakeppnina í Frakklandi kominn á lokastig:
- skiptir öllu máli,
segir Dagur Sigurðsson, fyrirliði Islands, um möguleikana á HM
Dagur Sigurösson.
íslendingar mæta Bandaríkjamönnum í
kvöld á Seltjarnamesi kl. 20. Þetta er fyrri
leikur þjóðanna sem mætast aftur á Selfossi
annað kvöld. Með þessum tveimur leikjum
lýkur undirbúningi islenska liðsins fyrir HM
í Frakklandi og mun Þorbjöm Jensson lands-
liðsþjálfari tilkynna endanlegan hóp á laugar-
daginn.
Tveir leikmenn íslenska liðsins, Dagur Sig-
urðsson og Róbert Duranona, hafa átt við
meiðsli að stríða en þeir eru þó báðir að koma
til. Duranona verður með í kvöld en Dagur
mun hvíla þar sem ekki þykir rétt að taka
áhættu á að meiðslin taki sig upp að nýju. DV-
Sport hafði samband við Dag og forvitnaðist
um meiðslin og væntingar í Frakklandi.
„Ég er meiddur í festingu sem nær frá
hásin upp í kálfa og það má lítið út af bregða
til að ég missi af heimsmeistarakeppninni. Ég
hef hins vegar fundið stóran mun á mér síð-
ustu daga og vonast til að vera með gegn
Bandaríkjamönnum á fóstudagskvöldið,“ sagði
Dagur Sigurðsson.
Bjartsýnn
„Spánarmótið gekk að mörgu leyti þokka-
lega ef undan er skilinn seinni hálfleikurinn
gegn Norðmönnum. Við vorum að prófa nýtt
afbrigði af vamarleik og fannst mér það takast
vel. Við erum í ágætum málum eins og staðan
er í dag og ég er bjartsýnn fyrir keppnina í
Frakklandi. Við erum í mjög erflðum riðli þar
sem liðin em sterk og það verður með þessa
leiki eins og alla aðra á stórmótum. Dagsform-
ið skiptir öllu og við verðum að vera klárir í
leikina," sagði Dagur Sigurðsson. -ósk