Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2001, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2001 Walker skorar 47 - en Boston tapaði Antoine Walker skoraði 47 stig og gaf 13 stoðsendingar fyrir Boston Celtics í 106-111 tapleik gegn Sacramento. Larry Brown verður þjálfari austurdeildar í Stjörnuleiknum. Úrslitin í nótt: Phildelphia-Chicago.99-88 Iverson 43, Ratliff 12, McKie 11, Lynch 9 (9 frák.) - Brand 24 (19 frák.), Drew 24, Mercer 12, Ruffín 4 (14 frák.) New Jersey-Washington . . 108-89 Van Hom 27 (12 frák.), Marbury 22, Newman 16, Jackson 15 - Howard 18 (10 frák.), Hamilton 18, Whitney 14. Charlotte-Dallas.....90-91 Mashburn 22 (9 frák., 9 stoðs.), Wesley 19, Brown 14 - Nowitzky 27, Eisley 23 (8 stoðs.), Finley 14. Utah-Minnesota.......81-89 Malone 22 (13 frák.), Marshall 19 (10 frák.), Stockton 10 (10 stoðs.) -Garnett 23 (11 frák.), Brandon 19 (11 stoðs.) San Antonio-Toronto.91-98 Duncan 22 (11 fr„ 5 varin), Anderson 20, Robinson 15 (8 fr„ 6 var.) - Carter 27, Jackson 23 (10 stoðs.), Peterson 15. Denver-Vancouver....121-97 Van Exel 21, McDyess 20 (20 frák.) - Abdur-Rahim 24, Dickerson 18. Sacramento-Boston...111-106 Webber 30 (9 frák., 5 varin), Stojakovic 26, Divac 12 (11 fr„ 7 st.) - Walker 47 (13 st„ 4 stol.), Pierce 18. Seattle-Phoenix .....80-89 Barry 19, Patterson 19, Payton 15, Baker 12 - Rogers 17, Delk 16, Kidd 15, Robinson 13, Marion 7 (16 frák.). - NBA-deildin gerð upp með útnefningum leikmanna í bestu liðin Enginn efast um að NBA körfuboltadeildin bandaríska sé sú langbesta í heiminum og hafi verið það frá stofnun. Hér hafa að gamni verið sett saman nokkur lið með ýmsum upplýsingum um leikmenn. Það er alltaf erfitt að meta hvaða leikmaður sé bestur og hvaða lið sé best þegar slikt er skoðaö í sögulegu samhengi enda erfitt að bera saman leikmenn og lið sem hafa verið uppi á mismunandi tímum. Eins er erfitt að fá menn til að vera sammála um hver sé besti miðherjinn o.s.frv. vegna þess hversu gifurlega margir stórkostlegir leikmenn hafa spilað í þessari deild. Það liggur því ljóst fyrir að sleppa verður fullt af leikmönnum þegar svona lið eru sett saman og eflaust væru þau eins mismunandi og mennirnir væru margir sem settu þau saman; sitt sýnist hverjum. -SMS Besta lið allra tíma Miðherji: Wilt Chamberlain (The Big Dipper), 31.419 stig (30,1), 23.942 fráköst (22,9). Tölurnar segja allt sem segja þarf, ótrú- legur leikmaður sem vann tvo meistaratitla á ferlinum, 1967 með Phildelphia 76ers og 1972 meö Los Angeles Lakers. Var bæði valinn nýliði ársins og mikilvægasti leikmaðurinn árið 1960 (Wes Unseld er sá eini sem hefur leikiö það effir, árið 1969). Var stigakóngur sjö ár í röð og skoraði eitt árið 50,4 stig að meðaltali í leik. Framherjar: Larry Bird (Larry Legend), 21.791 stig (24,3), 8.974 fráköst (10,0), 5.695 stoðsendingar (6,3). Af mörgum talinn besti hvíti leikmaður allra tíma þótt um hann væri sagt að hann gæti hvorki stokkið hátt né hlaupið hratt. Gæddur gífurlegum skilningi á leiknum sem og miklu innsæi og leiddi hann Boston Celtics þrívegis til sigurs í NBA-deildinni, 1981, 1984, 1986, og var valinn mikilvægasti leikmaðurinn 1984, 1985 og 1986. Karl Malone (The Mailman) 31.041 stig (26,0) 12.618 fráköst (10,6). Sennilega besti kraftframherji (Power forward) allra tíma. Gífurlega sterkur líkamlega og einnig góður skotmaður. Mjög stöðugur leikmaður sem sjaldan hefur misst taktinn á löngum og glæsilegum ferli. Bakverðir: Michael Jordan (Air Jordan), 29.277 stig (31,5) 5.836 frá- köst (6,3) 5.012 stoðsendingar (5,4). Besti leikmaður allra tíma - goðsögn í lifanda lífi. Sex sinnum meistari með Chicago Bulls, 1991, 1992, 1993, 1996, 1997 og 1998, og stigakóngur tiu sinnum. Magic Johnson, 17.707 stig (19,5), 6.559 fráköst (7,2), 10.141 stoðsendingar (11,2). Ótrúlegur bakvörður sem gaf stórkost- legar sendingar og mikill leiðtogi sem færði Los Angeles Lakers fimm meistaratitla, 1980, 1982, 1985, 1987 og 1988. Val- inn mikilvægasti leikmaðurinn 1987, 1989 og 1990. Varamenn: Miðherji: Kareem Abdul Jabbar (Big Fella), 38.387 stig (24,6) 17.440 fráköst (11,2), 3.189 varin skot. Hóf ferilinn hjá Milwaukee Bucks og varð meistari með þeim 1971. Flutti sig síðan um set tU Los Angeles og með Lakers vann hann fimm meistaratitla. Hann er stigahæsti leikmaöur allra tíma og vandséð að nokk- ur slái því við. Var valinn mikUvægasti leikmaður NBA 6 sinnum og er sá leikmaður sem leikið hefur flestar mínútur í sögunni (57.446). Framherjar: Elvin Hayes (The Big E), 27.313 stig (21,0) 16.279 fráköst (12-,5). Meistari með Washington BuUets 1978 (Þeirra eini) og lék lungann úr ferlinum með þeim. 1 sama gæðaflokki og Karl Malone og hefur verið um hann sagt að hann sé fyrirmynd nútíma kraftframherjanna. Elgin Baylor, 23149 stig (27,4), 11.463 fráköst (13,5). Stór- kostlegar tölur en enginn titiU. Lék i tólf ár með Lakers en ákvað að leggja skóna á hUluna þegar níu leikir voru búnir af keppnistímabUinu 1971-2 en það ár varð Lakers loksins meistari eftir mörg naum töp í úrslitum undanfarinna ára. Bakverðh-: Oscar Robertson (The Big O), 26.710 stig (25,7) 7.804 fráköst (7,5) 9.887 stoðsendingar (9,5). Einn fjölhæfasti leikmaður sög- unnar og sá eini sem hefur afrekað það að vera með tvöfalda þrennu að meðaltali í leik heUt keppnistímabU (1962,30,8 stig, 12,5 fráköst og 11,4 stoðsendingar). Meistari meö MUwaukee Bucks 1971 en lék lengst af með Cincinnati. Jerry West (Mr. Clutch), 25.192 stig (27,0), 5.376 fráköst (5,8), 6.238 stoðsendingar (6,7). Ótrúlegar tölur hjá manni sem er undir 1,90 cm. Geysilega harður og fylginn sér og ávaUt bestur þegar mest á reyndi. Náði þó aðeins að verða meistari með Lakers einu sinni, 1972, en tapaði í lokaúrslitum átta sinnum og oftast gegn Boston. Besta evr- ópska liöið Miðheiji: Vlade Divac, Júgóslaviu 9.907 stig (12,4) 6.913 fráköst (8,7). Spjaraði sig vel með Lakers og seinna með Sacramento. Sterkur og baráttuglaður leikmaður. Framherjar: Detlef Schrempf, Þýskalandi, 15.657 stig (14,1), 6.945 fráköst (6,3). Traustur og sterkur leik- maður sem lagði skóna á hiUuna eftir s.l. keppnistímabU. Kiki Vandeweghe, Þýska- landi, 15.980 stig (19,7). MikUl skotmaður og skorari með Den- ver og Portland á níunda ára- tugnum. Bakverðir: Drazen Petrovic, Króatíu, 4.461 stig (15,4). Var á góðri leið með að verða stjarna í NBA þeg- ar hann lést langt um aldur fram í bUslysi árið 1993. Sarunas Marciulionis (Roon- ey) Litháen, 4.631 stig (12,8). Var einn af „Run TMC“ (Tim Hardaway, Chris Mullin og Marciulionis gengu undir þessu nafni í upphafi tíunda áratugar- ins er þeir spiluðu með Golden State Warriors sem var þá eitt hraðasta og skemmtUegasta lið aUra tíma). varamenn: Miðherji: Arvidas Sabonis, Litháen, 4.537 stig (13,7), 2.770 fráköst (8,4). Frábærar sendingar og góð skot ásamt miklum skilningi á leikn- um einkenna Sabonis. Framherjar: Toni Kukoc (The Croatian Cr- eation) Króatíu, 6.646 stig (14,0) 1.981 stoðsendingar (4,2). MikU- vægur hlekkur í meistaraliði Chicago BuUs 1996, 1997 og 1998. Þekktur fyrir ævintýralegar sendingar og þriggja stiga skot. Dirk Nowitski, Þýskalandi. 1.820 stig (14,1) 694 fráköst (5,4). Er nú á sínu þriðja ári i deUdinni með DaUas Mavericks og er aUtaf að verða betri og betri. Góðar hreyfmgar miðað við mikla stærð (210 cm.). Bakverðir: Predrag Stojakovic, Júgóslavía. 1279 stig (10,5), 419 fráköst (3,4). Leikmaður sem spil- ar yflrleitt sem þristur (smaU forward) en getur auðveldlega leyst bakvarðastöðu. Er líkt og Nowitski á sínu þriðja ári í deild- inni og stefnir í að verða frábær leikmaður. Spilar með Sacra- mento Kings. Predrag Danilovic (Sasha), Júgóslavía. 957 stig (12.8), lék með Miami Heat og DaUas Ma- vericks 1995-1997.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.