Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Side 2
H 1 1 f Íð E F T I R V—I—Cj—N—U.
Vikan 26. ianúar til 1. febrúar
Ifókus
Stórmyndin Cast Away hefur slegið í gegn úti í hinum stóra heimi undanfarið og er straWfSrtið að spá
hversu mörg óskarsverðlaun falli henni í skaut. Þetta er svo sem ekkert skrýtið ef litið er tit þess áð vinn-
ingsliðið Tom Hanks og Robert Zemeckis standa saman að myndinni. Myndin verður frumsýnd í kvöld
Háskólabíói, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói Akureyri. f Lífinu eftir vinnu finnur þú boðsmiða á
myndina. I
Erfið persónuleg
barátta
Tom Hanks leikur Chuck Nol-
and, verkfræðing hjá flutningafyr-
irtækinu FedEx, sem er alltaf í
strtði við klukkuna, bæði í vinn-
unni og í einkalífinu. Hið hraða líf-
erni hans gerir það að verkum að
hann þarf sífellt að vera á ferðinni
og viðbúinn öllu - enda eru löng
ferðalög oft ákveðin með stuttum
fyrirvara. Þetta þýðir að sjálfsögðu
að hann dvelur oft löngum stund-
um fjarri Kelly, kærustunni sinni,
sem leikin er af Helen Hunt.
Án allra hefðbundinna
þæginda
Þessi hraða tilvera Chucks tekur
skjótan enda einn daginn þegar
hann lendir í flugslysi og skolar á
land á fjarlægri eyju - í eins
frumtæðu umhverfi og hægt er að
ímynda sér. Á eyjunni er hann auð-
vitað án allra þægindanna sem
komast af og halda í vonina um að
komast burt eru afleiðingar þessar-
ar sérstæðu lífsreynslu.
Arsundirbúningur
Hanks átti upphaflegu hugmynd-
ina að myndinni og byrjaði hann að
vinna að henni með handritshöf-
undinum William Broyles fyrir
um sex árum þegar þeir unnu sam-
an að Apollo 13. Helen Hunt fékk
hlutverk kærustu hans hins vegar
óvænt þegar hún var að ræða önn-
ur verkefni við Robert Zemeckis.
Upptökur á myndinni fóru fram á
16 mánaða tímabili og var tekið árs-
hlé til að Tom Hanks gæti undirbú-
ið þær líkamlegu breytingar sem
verða á persónu hans í myndinni.
Þetta árshlé notaði Robert Zem-
eckis og fjöldi samstarfsmanna
hans til að taka upp myndina What
Lies Beneath. Afar lítið tal er í
myndinni þegar Chuck er að reyna
Örvæntingin grípur um sig hjá Chuck þegar hann hefur dvalist í fjögur ár á eyðieyju. Eftir að hafa lært að bjarga sér um
nauðsynjar eins og mat og vatn þarf hann að takast á við enn erfiöari þrekraun; að koma sér heim.
Tommi er ekki þekktur fyrir annað en að leggja sig fram við tökurnar enda
tvöfaldur óskarsverðlaunahafi.
hann er vanur og verður hann nú
að læra að verða sér úti um helstu
nauðsynjar eins og mat, vatn og
auðvitað eitthvað til að hýrast í.
Það er þó ekki nóg því eftir að hann
hefur náð tökum á þessu hefst hin
erfiða persónulega barátta. Minn-
ingamar um kærustuna halda í
honum lífinu á eyjunni. Annað
mikilvægt atriði í baráttu hans er
vinátta hans við hafnarboltann
Wilson, sem skolar á land með
FedEx pakka úr flugslysinu. Eftir
að hafa dvalist einn á eyjunni í fjög-
ur ár gefst Chuck tækifæri til að
komast aftur í siðmenninguna en
þá þarf hann að takast á við óvænta
erfiðleika sem eru tilfinningalegs
eðlis. Það að honum hefur tekist að
Chuck kemst að því að það er ekki
auðvelt að veiða sér til matar.
að verða sér úti um nauðsynjar og
ná tökum á sjálfum sér og alls eng-
in tónlist. Hanks segir að þetta sé
góð tilbreyting frá venjulegum
myndum, þar sem tónlist sé oft all-
ráðandi. Eins segir hann að við
séum líklega orðin of vön rödd
sögumanns i svona tilvikum.
Óskabarnið
Tom Hanks fer
ekki einungis
með aðalhlut-
verkið í mynd-
inni heldur er
hann einnig einn
framleiðendanna.
Eins og alþjóð
veit hefur Tom
fengið ótal verð-
laun fyrir leik
sinn en síðasta
mynd hans var
Græna mílan. Árið 1999 fékk hann
fjórðu óskarsverðlaunatilnefning-
una sína fyrir leik sinn í Saving
Private Ryan en allir ættu að
muna þegar hann hirti verðlaunin
tvö ár í röð fyrir Philadelphia og
Forrest Gump. Áður hafði Tommi
fengið Golden Globe verðlaunin og
óskarstilnefningu fyrir kvikmynd-
ina Big þar sem hann lék lítinn
strák í líkama fullvaxins manns.
Kappinn fékk nokkuð lof fyrir
leik sinn í Apollo 13 og áhugi hans
á geimferðaáætlun Bandaríkjanna
Það þýðir ekkert annað en að telja
dagana þegar maður er á eyðieyju.
sannaðist enn betur með sjónvarps-
seríunni From the Earth to the
Moon, þar sem rifjuö er upp saga
Apolio ferða Bandaríkjanna. Sú ser-
ía hlaut meðal annars hin eftirsóttu
Emmy-verðlaun en Tommi var
framleiðandi hennar auk þess að
leikstýra einum hluta, taka þátt í
semja einhverja hluta og leika í ein-
um þeirra. Árið 1996 þreytti hann
frumraun sína á sviði leikstjórnar
með kvikmyndinni That Thing
You Do auk þess að semja handrit-
ið að myndinni. Meðal annarra
mynda þessa óskabams sem nefna
mætti eru Splash, Bachelor Par-
ty, Pimchline, Nothing in Comm-
on og Volunteers.
Margverðlaunuð í
sjónvarpi
Leikkonan Helen Hunt fékk bæði
Golden Globe verðlaunin og óskar
fyrir hlutverk sitt sem þjónustu-
stúlkan og einstæða móðirin í As
Good As It Gets ekki alls fyrir
löngu og hafði áður verið verðlaun-
uð fyrir hlutverk sitt í hinni skít-
leiðinlegu Twist-
er. Hún notaði
tímann á milli
taka vel og lék í
myndunum Pay
It Forward með
Kevin Spacey og
What Women
Want með Mel
Gibson en sú
mynd er einmitt
væntanleg á klak-
ann innan
skamms. Af öðrum kvikmyndahlut-
verkum stelpunnar ber líklega helst
að nefna hlutverk hennar í The
Waterdance, Kiss of Death og
Peggy Sue Got Married. En það
sjónvarpið sem hefur samt aflað
henni meiri frama og peninga, hlut-
verk hennar sem Jamie Buchman í
verðlaunaþáttunum Mad About
You þekkja flestir. Fyrir það hefur
hún sjö sinnum verið tilnefnd til
Emmy verðlaunanna og hirt þau
fimm sinnum auk þess að krækja
sér í fjölda annarra verðlauna.
Gott teymi með Hanks
Leikstjórann Robert Zemeckis
ætti vart að þurfa að kynna fyrir
fólki. 1 samvinnu við Tom Hanks
færði hann okkur Forrest Gump og
hlaut óskarinn fyrir og eins og áður
er getið gerði hann síðast ræmuna
What Lies Beneath. Robbi á einnig
heiðurinn af Contact sem skartaði
lesbiunni Jodie Foster í aðalhlut-
verki og eins kassastykkinu Who
Framed Roger Rabbit sem sló í
gegn árið 1988. Back to the Future-
ævintýrið skrifast einnig á kapp-
ann, hann skrifaði hluta handrits
fyrstu myndarinnar og leikstýrði
henni og sá svo um allan pakkann í
seinni myndunum tveim. Meðal
annarra mynda hans er tilvalið að
nefna Romancing the Stone,
Death Becomes Her, Used Cars og
I Wanna Hold Your Hand.
Tom Hanks verður dálítið óhrjálegur eftir fjögurra ára dvöl á eyjunni.