Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Page 3
ifókus
Vikan 26. ianúar til 1. febrúar
ULLLá.
•LEJU-B
Hljómsveitin Forgarður Helvítis átti tíu ára afmæli 2. janúar og var að gefa út disk
sem er samansafn af öllum upptökum hennar. Hljómsveitin ætlar að halda tónleika á
Geysi Kakóbar í kvöld þar sem diskurinn verður kynntur. Þórunn Þorleifsdóttir fékk
söngvarann Sigurð Harðarson í stutt viðtal.
viö mælum meö
STOÐ - GÆJAR
'X'< ■[ 'í:
„Hljómsveitimar Andlát og Snafu
verða einnig að spila í kvöld en þær
hafa líka nýverið gefið út plötu
þannig að þetta verða hálfgerðir út-
gáfutónleikar hjá okkur öllum. Það
verður hægt að kaupa diskana á
staðnum og eru þeir allir á mjög
góðu verði. Við ætlum að reyna að
setja textana upp á myndvarpa svo
áhorfendur geti sungið með ef þá
langar til. Við höfum stundum fengið
fyrirspumir um textana og hefur fólk
oft haldið að þetta sé bara öskur.
Þetta er liður í tónleikaröð Hins
Hússins eða svokallaður fóstudags-
bræðingur. Þarna geta krakkar kom-
ið og skemmt sér án þess að drekka,“
segir Sigurður um tónleikana í
kvöld.
Anarkisti og femínisti
Sigurður er starfandi hjúkrunar-
fræðingur á almennri handlæknis-
deild í Fossvogi en hefur verið söngv-
ari hljómsveitarinnar þau tíu ár sem
hún hefur verið starfandi. Það er að-
allega Sigurður sem sér um að semja
textana sem flestir eru pólitískar
ádeilur á samfélagið. „Ég er anar-
kisti og það er alveg ákveðin pólitík í
því,“ segir Sigurður.
Á diskinum eru nokkur lög sem
fjalla um stööu kynjanna, hver er af-
staöa þín til kvenréttinda?
„Ég er femínisti en þó ekki. Ég get
ekki kallað mig femínista þar sem ég
er karlmaður og mun aldrei geta sett
mig í spor kvenna sem alast upp í
karlasamfélagi." Sigurður segist
samt ekki mundu ganga í félagið Brí-
et ef hann mætti það. „Ég fila stelp-
urnar í Bríet og það sem þær eru að
gera en þær vilja banna margt og ég
er ekki sammála því. Þú leysir engin
vandamál með ritskoðun og þó margt
í klámi geti verið mjög óviðfelldið þá
ber hver og einn ábyrgð á því sem
hann gefur frá sér og sömuleiðis ber
hver og einn ábyrgð á
því hvemig hann tekur því sem
hann les. En að öðru leyti er ég mjög
sammála flestum skoðunum
femínista."
Guð er deyfilyf
Eitt lagið á diskinum fjallar um að
brenna niður kirkjur og annað heitir
Guð er stærsta lygi í heimi en Sig-
urður viil samt ekki meina að hann
sé trúleysingi. „Ég er frekar trúar-
bragðaleysingi en trúleysingi. Ég hef
mikla andúð á trúarbrögðum og
finnst þau
kúgandi á
andlega leit
fólks. Mér HfepSJV \
finnst trú á ’
Guð vera
deyfilyf gagnvart tilgangsleysi hins
daglega lífs en hins vegar ber ég
mikla virðingu fyrir álfum og tröll-
um.“
Hvaó heldur þú aö veröi um þig
þegar þú deyrö?
„Ég rotna bara eins og önnur dýr.“
Eru félagar þínir í hljómsveitinni
sammála skoöunum þinum?
„Ég er eini anarkistinn i bandinu,
það er einn sem er vinstrisinnaður
og tveir eru í ásatrúarfélaginu. Við
erum sammála um margt, meðal ann-
ars kúgunareðli kirkjunnar en alls
ekki allt,“ segir Sigurður en bætir
þvi við að hann megi ekki semja
texta sem hinir hljómsveitarmeðlim-
imir eru ósammála.
Fjögurra dætra hljómsveit
Sigurður segist ekki halda að
stefnan verði tekin á erlendan mark-
að alveg á næstunni. „Hljómsveitin á
allt í alit fjórar dætur og tveir okkar
eru miklir fjölskyldumenn. Það væri
samt mjög gaman að spila erlendis ef
tækifærið byðist." Sigurður segist
hlusta á öfgatónlist sem heyrist ekki
í íslensku útvarpi nema þá helst í
þáttunum Hamsatólg á rás tvö og
Babylon á Radíó X. Annars hafa fé-
lagarnir í bandinu verið að setja upp
heimasíðu þangað sem hægt er að
kíkja til að fá upplýsingar um hljóm-
sveitina og lögin þeirra. Slóðin er
www.helviti.com.
Ertu ekkert veikur fyrir vin-
sældapoppi?
„Nei, en ef ég er staddur á árshátíð
eða skemmtun þar sem svoleiðis
músík er spiluð þá dansa ég alveg við
hana. Ég er ekki félagsskítur og alls
ekki leiðinlegur náungi," segir Sig-
urður að lokum.
Stuð-gæjunum. Þeir
Garðar og Ólafur leika hressandi
músík og gamla slagara við öll
tækifæri og bera nafn með rentu.
Upplýsingar um þá félaga má nálg-
ast i síma 567 4526.
Trigger
happy TV.
Sjónvarps-
þættinum
sem sýndur
er á Ríkis-
sjónvarpinu
á miðviku-
dagskvöld-
um. Grínist-
inn Dom Joly fer á kostum við að
áreita fólk með fáránlegum fífla-
brögðum.
Rokklandi. Á sunnudaginn ætl-
ar Óli Palli að tileinka þungarokk-
skóngunum í
Black Sabbath
þáttinn. Ozzy
Osborne og fé-
lagar eru enn
kóngarnir og
voru sannkall-
aðir spor-
göngumenn
fyrir metal
byltinguna og öll þessi strákabönd
á hip-hop massive linunni. Eða
hefur einhver séð Fred Durnst af-
hausa hænsni með framtönnun-
um?
Plástrum. Það er lenska hjá ís-
lendingum að nota bara plástra
eftir slys og pústra. Ef vel á að
vera eiga menn að dúða sig með
plástrum á helstu álagspunkta alla
daga. Fyrirbyggjandi aðgerðir af
þessu tagi myndu fækka slysum
til muna.
hVói ti' 1. 'I BUPÖM (ifi
gera um helgina
Ég er í fríi á fostudaginn þannig að ég verð bara
með Matthildi dóttur minni. Kannski ég fari meö
hana í heimsókn til einhvers barns svo hún geti
leikið sér á meðan ég drekk kaffi með mömmunni.
Ég þekki eina litla stelpu sem heitir Melkorka og
er eins árs og vonandi verða þær Matthildur vin-
konur. Seinnipartinn ætla ég að nota í að þvo ull-
arpeysur og skrifa reikninga. Á laugardaginn er ég
að vinna og geri líklega lítið annað en það. Samt
ætla ég að skreppa frá um miðjan daginn til að fara
í jóga með vinkonu minni til að róa hugann. Kast-
ljóshópurinn hittist alltaf á sunnudögum og fundar
og þá fáum við okkur stundum eitthvert gott vín.
Eftir það ætla ég að hitta nokkrar konur en við ætl-
um að prjóna saman og sauma út. Þessar konur ætla
að kenna mér harðangurssaum frá Hardanger i Nor-
egi. Á sunnudagskvöld borða ég einhvem góðan mat
með fjölskyldu minni heima hjá foreldrum mínum.
Eva María Jónsdóttir, einn umsjónarmaöur Kastljóss í
Ríkissjónvarpinu.
seaíu,
aí hver)u
xfíU ddcí ko/rti
^Írárs-A. fjy3(f
£iKt'i
Leigubflstjórar eru með feita rassa, sendiferðarbflstjórar eru með feitarí rassa og strsetó- *
bflstjórar eru með feitustu rassana og gyllinæð. Svona er mctorðastíginn f bflabransanum.