Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 4
Vikan 26. ianúar tii 1. febrúar ÍASIA £....E.T......I.iiiR v t n m n Ifókus Á tónleika Við erum að vinna að nýrri plötu um þessar mundir þannig að það hefur ver- ið litið annað en stanslaus vinna hjá okkur und- i anfarið. Á laug- í ardagskvöldið fengum við þó lang- þráð fri og kíktum á tónleika með íslensku uppáhaldshljómsveitinni minni, Sóldögg, á Gauki á Stöng. Pródúserinn okkar frá Bandaríkj- unum er á landinu og við vildum sýna honum íslenskt tónlistarlíf. Honum leist bara mjög vel á tón- leikana og haföi orð á því að is- lensk bönd spiluðu almennt mjög vel. Hreimur Örn Heimisson, söngv- ari í hljómsveitinni Land og synir Qottf óbyggðunum „Ég fór í jeppa- og vélsleðaferð við rætur Langjökuls. íslensk náttúra kemur mér stöðugt á óvart og alltaf er gott að komast í óbyggð- imar. Ég sat aft- an á hjá brjáluðum vélsleðagaur sem keyrði mjög hratt og ég var næstum flogin af. Þetta var þó hin besta skemmtun." Bjargey Ólafsdóttir myndlistar- kona „Það merki- I legasta sem ég , gerði í vikunni | var þegar ég fór i viðtal hjá i Birni Jörundi | og félögum á | Skjá einum. i Það tókst mjög 1 vel og þáttur- inn var allur mjög góð- ur og sérstaklega hljómsveitin Buff. Það var íþróttaþema í þætt- inum og bassaleikarinn var alltaf að tala um íþróttagreinina boð- bassa. Það kom aldrei fram hvað það var en hann keppir vist í þessu, í 300 m boöbassa." Styrmir Hafliðason, gítarleikari kristilegu rokksveitarinnar Godszpeed „Ég fór á Villiljós á fóstu- daginn ásamt nokkrum félög- um. Ekki vor- um við þó svo vinsælir að vera á boðs- sýningunni heldur fórum við á fyrstu sýningu fyrir almúgann. Við mættum nokkuð seint og höfðum áhyggjur af að ná ekki í sæti ... það reyndist þó ekki erfítt þvi áhorfendur hefði mátt telja á fingrum annarrar handar. Mynd- in sjálf var nokkuð góð en þó fékk maður á tiffinninguna að hljóð- maðurinn hefði verið að reykja eitthvað yfir sumum atriðum í byrjun myndarinnar þar sem þau voru mjög illa hljóðsett... En að því frátöldu var myndin ágætasta skemmtun og vel þess virði að sjá.“ Tryggvi Ólafsson setjari Föstudagur 3 26/1 Popp ■ FÖSTUDAGSBRÆÐINGUR Á OEYSI KAKÓ- BAR Þaö verður klikkaöur fóstudagsbræðlngur á Geysl Kakóbar í kvöld. Hljómsveitirnar sem troða upp eru Forgaröur Helvítis, Snafu, Andlát og fleiri. Tónleikarnir eru haldnir af Hinu húsinu og dordingull.com. Gamanið byrjar um klukkan 20 og stendur til 23.30. ■ SÖNGVAKEPPNI SAMFÉS 2001 Söngvakeppnl Samfés veröur haldin í kvöld í Laugardalshöll. Þangaö koma 43 hæfileikarík- ir ungir keppendur frá jafnmörgum félagsmið- stóðvum víös vegar af landinu. Dómnefndin er skipuö Hrelmi úr Landi og sonum, Villa úr 200.000 naglbítum, Erpi úr Rottweiler, írisi úr Buttercup og Birgittu úr írafári. Að lokinni keppni skemmtir fjöllistamaðurinn The Mighty Gareth meö töfrabrögðum og fíflalátum. Sigur- vegari Söngkeppni Samfés áriö 2000, Ragn- heiöur Gröndal frá Garðalundi, syngur eitt lag. Húsiö opnar klukkan 18 en keppnin byrjar klukkan 19. •K1úbbar ■ EMMA Á THOMSEN Patíið heldur áfram á Thomsen og í kvöld ætlar hún Emma (D.i.Y..collective) aö svala danssjúkum landanum. Með henni I kvöld spilar Ýmir (bongó). •Krár ■ DJ ATU PLUTO Á CAFÉ GRÓF DJ Atli Pluto mætir á Cafe Gróf I kvöld og ætlar að sjá til þess aö gleðin verði í algleymingi. Hann mun frumflytja nokkur nýjustu danslög þessa árs og ætlar að keyra upþ bijálaða stemningu að hætti hússins. „Tvelr fyrir einn“-tilboðið stendur sem hæst þessa helgi. Húsið opnað klukkan 21 og 500 kr. kostar inn eftir mið- nætti. ■ SALSASTEMNING í HÚSI MÁLARANS Hann Ricardo ætlar aö sjá til þess að það verði ekta salsafílingur I Húsi málarans í kvöld. ■ FÁLKAR í KÓPAVOGI Það verður fjör sem aldrei fyrr á Players Sport Café í Kópavogi í kvöld. Hljómsveitin Fálkar ætla að troöa upp og spila alvöru-dreifbýlisrokk fyrir djammara. ■ DISKÓTEK Á NJALLANUM Þaö verður al vöru-diskótek á Njallanum í Hafnarfirði í kvöld. Um að gera að mæta með góða skapið og í glansgallanum. Góður plötusnúður ætlar að sjá um stemninguna. ■ DJ LE CHEF Á NELLYS Dj le Chef ætlar að sjá um stemninguna á Nelly’s í kvöld. Góð til- boð á barnum. Ifókus CAST býður ÁWAY íbíó Háskólabfó 120 miðar Sam-bíóin 120 miðar Borgarbíó 60 miðar fyrstir koma, fyrstir fá. ■ FM - PARTI A KLAUSTRINU I tilefni af nýj- um og ferskum áherslum verður haldið voða flott partí í kvöld á Klaustrinu. Skemmtana- stjórarnir Ásgeir Kolbeins og Gummi Gonz bjóða ykkur alvöruveitingar. Heiöar Austmann, FM-957-maður, sér um réttu tónlistina í flott- ara Klaustri. Nældu þér í miða á FM-957. ■ SPRELU í LEIKHÚSKJALLARANUM Það er alltaf jafnmikið fjör í Leikhúskjallaranum, sér- staklega þegar Dj sprelli er í búrinu. 23 ára inn og snyrtilegur klæðnaður. ■ ÍSLENSK ALVÖRU-DISKÓDROTTNING Hin eina sanna diskódrottning íslands, Helga Möller, ætlar aö syngja með hljómsveitinni Hot’n Sweet á Kringlukránni I kvöld. ■ ÓSKRANDI STEMNING Á KAFFI STRÆTÓ Trúbadorinn Elnar Jönsson verður á sínum stað á Kaffi strætó í kvöld og milli tarna i dyr- unum kemur dyravörðurinn knái, Hjörtur Geirs- son, stökkvandi upp á sviö og fer svo mjúkum höndum um bassann að einn tónn getur nægt tii aö galdra kvenfólk úr nærhaldinu. ■ BLÁTT ÁFRAM Á JÓA RISA Það verður mik- ið fjör og mikil gleði á skemmtistaðnum Jóa risa í Breiðholti því dúettinn Blátt áfram ætlar að leika fýrir dansi. ■ JÓN FORSETI Á CATALINA Gleðin mun ráða ríkjum á Catalina, Hamraborg, í kvöld eins og önnur kvöld þegar Jón forseti fær að troða upp og gera allt vitlaust. Snyrtilegur klæðnaður er skilyröi. ■ SVITI OG G-STRING Á SKUGGA Þá er búiö að opna Skuggabarinn að nýju og í kvöid verð- ur RogB-sviti. Plötusnúðarnir Nökkvl og Áki verða að plötusnúðast. Stelpur sem mæta í G- String fá fritt inn. Sveittur dyravörður mun lík- legast biðja stúlkurnar að girða niður um sig svo að enginn svindli. Þegar píurnar eru búnar að girða sig aftur og komnar inn fá þær glaön- ing frá barþjónunum. (Konur eru leikföng og skál fyrir því.) Húsið opnar klukkan 23 og það kostar 500 kall inn eftir miðnætti fyrir karl- menn og konur sem fóru í venjulegar nærjur. 22 ára aldurstakmark. ■ DJ BIRPY Á CAFE AMSTERDAM Það veríÞ ur svakastuð og alvöru-danspartí á Cafe Amsterdam í kvöld undir handleiðslu Þrastar á FM957. Djamm fram á morgun með Dj Birdy. ■ ÞÓR BÆRING Á SPORTKAFFl Það veröur stuð og hamingja á Sportkaffi að venju því þangaö fara alltaf sportararnir að djamma. Bæringurinn verður í búrinu og sér um góöa stemningu í kvöld. ■ UZ Á NAUSTINU Hin fagra Liz Gammon frá Englandi leikur á píanó og syngur fyrir matar- gesti á Naustinu í kvöld, frá klukkan 22 til 03. ■ NJÁLL í HAFNARFIRÐI Hann Njáll ætlar að spila létta tónlist fyrir gestina á Kaffi Læk í Hafnarfirði í kvöld. Missið ekki af þessu. ■ SIXTIES Á KAFFI REYKJAVÍK Hljómsveitin Sixties leikur fyrir dansi á Kaffi Reykjavík í kvöld og er markmiðið að halda uppi ekta 60’stemningu. ■ SVENSEN OG HALLFUNKEL Á GULLÓLD- INNI Svensen og Hallfunkel eru alltaf jafnmikl- ir stuðboltar og ætla að trylla lýðinn á Gullöld- inni í kvöld. I B ö 11 ■ DANSLEIKUR MEP GEIRMUNDI VALTÝRS- SYNI Það veröur almennur dansleikur með Geirmundi Valtýssyni I Ásgaröi, Glæsibæ, í kvöld. Húsið veröur opnaö klukkan 22 og eru allir velkopinir sem fíla að dansa. fKlassík ■ GUNNAR PÁLL Á GRAND HÓTEL REYKJA- VÍK Hinn sívinsæli Gunnar Páll spilar róman- tíska og hugljúfa tónlist á Grand Hótel Reykja- vík. Gunni byrjar gamanið klukkan 19.15 og hættir ekki fyrr en 23. Allir velkomnir. •Sveitin ■ SKUGGA-BALDUR Á HELLU Diskórokktek- ið Skugga-Baldur sér um fjörið á skemmti- staðnum Kristjáni X á Hellu í kvöld. Reykur, þoka, sviti, Ijósadýrð og svo framvegis. ■ STEBBI HILMARS OG EYJÓLFUR KRIST- JÁNS Á KRÓKNUM Alltaf er gaman að vera á Króknum. Gömlu hundarnir, þeir Stefán Hilm- arsson og Eyjólfur Krlstjánsson, verða með tónleika á Kaffi Krók á Sauðárkróki i kvöld. Dagskráin er tvískiþt. Annars vegar ætla þeir að taka gömul og góð Simon and Garfunkel- lög, hins vegar íslensk lög sem þeir hafa sung- ið á síöustu árum. ■ EINN & SJÖTÍU Á VH> POLLINN Hljómsveit in Einn & sjötíu skemmtir á skemmtistaðnum Við Pollinn á Akureyri í kvöld. iLeikhús ■ ANTIGÓNA í kvöld kl. 20 verður Antigóna eftir Sófókles sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins. Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson en aðal- hlutverk eru meðal annars í höndum Halldóru Björnsdóttur og Arnars Jónssonar. ■ HÁALOFT Geðveiki svarti gamaneinleikurinn Háaloft heldur nú áfram eftir áramótin. Sýning í kvöld kl. 21 í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpan- um. Einleikari og höfundur verksins er Vala Þórsdóttir leikkona. Uppselt. ■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN LEGGUR SIG Sjeikspír eins og hann leggur sig er sýndur i kvöld kl. 20 i Loftkastalanum. ■ SÝND VEIÐI Leikritið Sýnd veiði sýnt í kvöld kl. 20 í Iðnó. ■ VÓLUSPÁ Leikritið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn verður sýnt í Möguleikhúsinu viö Hlemm kl. 10.45 í dag. Uppselt. ■ LANGAFI PRAKKARI Langafi prakkari eftir Sigrúnu Eldjárn veröur sýndur i Möguleikhús- Inu við Hlemm klukkan 10 í dag. Uppselt. ■ JÁ. HAMINGJAN - FRUMSÝNING Þjóðleik- húsið frumsýnir í kvöld klukkan 20.30 á Litla sviði leiksýninguna Já, hamingjan eftir Krist- ján Þórð Hrafnsson. Verkið fjallar á hnyttinn hátt um tvo mjög ólíka bræður. Leikstjóri: Mel- korka Tekla Óiafsdóttlr. Leikendur: Pálmi Gestsson og Baldur Trausti Hreinsson. Upp- selt. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Leikritið Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones verður sýnt I kvöld kl. 20 á Smíðaverkstæði Þjóðlelk- hússins. Það er uppselt á þessa sýningu. •Opnanir ■ ÓLAFUR HELGASON í GERÐUBERGI Mynd- listarmaðurinn Ólafur Jakob Helgason opnar í dag myndlistarsýningu í Félagsstarfi Gerðu- bergs klukkan 16. Félagar úr Tónhorninu og Gerðubergskórinn munu syngja og leika við opnunina. Ólafur er fæddur árið 1920 á Pat- reksfirði og stundaði hann húsasmíðar þar til hann hætti störfum árið 1990 fyrir aldurs sak- ir. Síðustu ár hefur hann smíðað líkön af göml- um fiskibátum og málað íslenskar landslags- myndir. Málverkin á sýningunni eru frá ýmsum stöðum á landinu og eru þau öll máluð með akríllitum. Þá gefur á sýningunni að líta eitt af líkönum Ólafs, af fiskibáti sem faðir hans var á til fjölda ára. ■ VILLT OG LANDIÐ í HAFNARBORG Nú standa yfir sýningarnar Villt, sýning á skúlptúr- um og Ijósmyndum eftir Kaisu Koivisto, og Landið, sýning á lágmyndum úr gifsi eftir Sari Maarit Cedergren í Hafnarborg í Hafnarfiröi. Kaisu Koivisto er frá Finnlandi og list hennar fjallar gjarnan um samband manna og hús- dýra. Hún hefur sýnt víða síðustu sex árin og eru verk hennar í öllum helstu listasöfnun í heimalandi hennar. Sari Maarit Cedergren er fædd í Finnlandi en hefur búið og starfað hér síðan 1986. Verk hennar fjalla um landslagið og fjarvíddina, hvernig birta og skuggar kalla fram ýmis áhrif og stemningu. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11-17 og sýningarnar standa til mánudagsins 5. febr- úar. •Fundir ■ LÍÐAN KVENNA FYRIR BLÆÐINGAR Her- dís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og dósent viö hjúkrunar- fræðideild Háskóla íslands, heldur opinn fyrir- lestur í hátíðasal Háskóla íslands í dag klukk- an 15. Heiti fýrirlestursins er Sannar frásagn- ir: Um mótsagnakenndar niðurstöðurrann- sókna á líðan kvenna fyrir blæðlngar. Fyrirlest- urinn byggist á doktorsritgerð Herdísar. í fyrir- lestrinum verður leitast við að skýra mismun- andi niðurstöður úr þremur rannsóknum. Hægt verður aö fá frekari upplýsingar í síma 525 4299. LaugardaguF •K1úbbar ■ ÁRNI E. OG ALFRED MORE Á THOMSEN Fyrirliðarnir í íslenska skífuþeytaralandsliðinu, þeir Árni E. og Alfred More, halda partíinu á Thomsen í fullu fjöri til klukkan 7 að morgni sunnudags. Gleymið ekki Chill out-inu í breytt- um kjallara. • Krár ■ KIDDI GHOZT Á CAFÉ GRÓF DJ Kiddi Ghozt, frumkvöðull Neyðarástands í borginni, verður á Café Gróf í kvöld. Draugurinn ætlar að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.