Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Síða 7
■i
Ifókus
Vikan 26.ianúar tii 1. febrúar
1 1 f Í-Ö Fin F
iLLL
María Kristín Steinsson er ung listakona sem setti upp glæsi-
lega málverkasýningu í versluninni Gallerí Sautján á Laugavegi
í síðustu viku
sioustu VIKU-^fr
■w--^jafst
upp a
„Gallerl Sautján er mikið í því að
styrkja unga listamenn sem eru að
reyna fyrir sér. Ég hafði samband
við verslunareigendur og var bara
svo heppin að komast að. Ég opnaði
sýningu þar síðasta fóstudag þar
sem ég er að sýna verkin mín,“ seg-
ir María Kristín um sýninguna í
Gallerí Sautján sem mun standa til
19. febrúar.
Fjölbreytt listaverk
María segist ekki hafa unnið með
neitt sérstakt þema eða stíl á sýn-
ingunni en þetta eru aðallega olíu-
málverk sem hún er að sýna. Hún
segist stefna á að fara utan að
mennta sig í myndlist þar sem hún
er búin að gefast upp á listamafí-
unni í LHÍ. „Ég lærði listasögu í
Háskóla íslands og hef klárað for-
nám í myndlist. Síðan hef ég gert
tvær tilraunir til að komast inn í
Listaháskólann en tvívegis verið
hafnað þannig að ég stefni á að
komast í nám annaðhvort í London
eða Paris. Ég er búin að sækja um í
nokkrum skólum og bið bara eftir
svari frá þeim.“
Ætlar þú aö leggja myndlistina
fyrir þig?
„Það er það sem mig langar að
gera ef ég mögulega get. En það er
mjög erfitt að lifa á myndlistinni
einni saman, því miður."
Skilur kærastann eftir á
Fróni
María Kristín er búin að vera í
sambandi í tæp sjö ár en verður að
skilja kærastann eftir heima þegar
hún fer utan í nám. „Hann verður
bara að bíða eftir mér,“ segir hún
hlæjandi, „þetta verður sennilega
svolítið erfitt en ég hef reynslu af
því að vera lengi að heiman þannig
að þetta á örugglega eftir að ganga
vel.“
Hver eru áhugamál þín fyrir utan
myndlist?
„Mér finnst rosalega skemmtilegt
að ferðast og stúdera tungumál. Ég
var einu sinni búsett í Frakklandi
þar sem ég fékk vinnu sem aðstoð-
armaður á skrifstofu. Frakkland
heillar mig sérstaklega mikið,“ seg-
ir María og bætir því við að hún
tali frönsku nokkuð vel. „Mér
finnst líka gaman að vera aktíf í
skemmtanalífinu og geri svolítið í
því að fara út á lífið.“
b i ó
Bíóborgin
Replacements Keanu Reeves fæddist í Líbanon,
en hefur aldrei verið vændur um að vera meölim-
ur í Hizbollah-skæruliðahreyfingunni. Samt lofar
þessi mynd góðu um framhaldið. Mikið af steikt-
um, en sparaðu remúlaðið, Takk.
Sýnd kl.: 5,45, 8,10,20
Play it to the Bone * .Play It to the Bone er ekki
merkileg mynd fyrir aöra en viöskiptafræðinga. Eft-
ir myndina geta þeir glímt við spuminguna: Hvern-
ig stendur á því aö menn fjárfesta hundruö millj-
óna I svona handriti?" GSE
Sýnd kl.: 5,40, 8,10,10
Unbreakable ★★ .Unbreakable er næstum eins
og The Sixth Sense. Hún er myrk og hæg en ekki
eins ógnvekjandi og fyrirrennarinn. Stóri gallinn er
hins vegar endirinn. ,“ GSE
Sýnd kl.: 5,45,8,10,10
Bíóhöllin
Blaimornaverkefnið II Blair witch nr. 1 er einhver
snjallasta markaösbrella sem sést hefur í
Hollywood, eða ef til vill frekar markaðsgabb. En
eins og fólk man þá trúöi engin Pétri þegar hann
kallaði .Úlfur, úlfur" að tilefnislausu. Og ef gert
hefði verið framhald á ævintýrinu um Pétur og
Úlfinn þá hefðu bæjarbúar hengt Pétur á ráðhús-
torginu.
Sýnd kl.: 6, 8,10
Cast Away Nýjasta mynd
með óskarsverðlaunahafan-
um Tom Hanks og frá lek-
stjóra Forest Gump fjallar um
starfsmann hjá hraðsending-
arfyrirtæki sem festist á
eyðieyju um árabil.
Sýnd ki.: 6, 8,10
The Road to El Dorado Leið-
in til El Dorado liggur I gegnum Háskólabíó.
Sýnd kl.: 4, 6
The 6th Day Það er búiö að kióna Arnald Surts-
negra og það eru misjafnar skoðanir um það mál.
Sýnd kl.: 8,10,15
The Grinch ★★
Sýnd kl.: 3,50, 5,55
The Family Man ★★ „Helsti veikieiki The Family
Man er hversu ófrumleg samtölin eru. Myndin er
dæmi um góða hugmynd sem ekki er unnið nógu
vel úr. Þáttur leikaranna bjargar því sem þjargað
veröur og gerir myndina að ágætri afþreyingu.
Segir mér svo hugur að mynd þessi eigi eftir aö
vera jólamynd á sjónvarpsstöðvum um ókomin
ár,“ -HK-
Sýnd kl.: 8,10,15
Dinosaur Þaö er alþekkt að sumir geti haft gam-
an af saur og Dinosaur ætti að stuðla að útvíkkun
þess hóps.
Sýnd kl.: 4
Bring ft on „700 kall er ekkert verð fyrir að fá að
sjá tugi mellna skaka á sér júgrin og gera flikk-
flakk yfir æsilegum kappleikjum. Hver þarf sögu-
þráð þegar hann hefur G-streng," -ES
Sýnd kl.: 3,50, 5,55
Pokemon 2
Sýnd kl.: 3,45
Háskólabíó
The Road to El Dorado Leiðin til El Dorado ligg-
ur I gegnum Háskólabíó.
Sýnd kl.: 6, 8,10
Cast Away (sjá Bíóhöllj
Sýnd kl.: 6, 8,10
Meet the Parents ★★ „Meet the Parents er ekki
alvond mynd. Stundum lifnar yfir henni og hún
virðist ætla á flug en fatast slðan, höktir en hrekk-
ur samt aftur í gang. Þegar hún lendir lofar hún
framhaldi: Meet the Inlaws. Vonandi sleppir þá
Jay Roach beislinu af kjánanum I sér,“ GSE
Sýnd kl.: 5,30, 8,10,30
Villiljós ★ „Villiljós er of ein-
tóna til að geta talist raun-
sönn. Myndin er eins og þétt-
ur bassi í grunge-lagi; þung-
lynd, myrk og gælir við dauð-
ann. Hana skortir meiri
breidd til að verða trúverðug.
Táknin sem dreift er um
myndina ná ekki að skjóta
rótum I frásögninni; verða
eins og ofhlaönar neðanmálsgreinar. Uppbrot
myndarinnar í fimm þætti sem tengjast óljóst inn-
byrðis virðist frekar ráðast af tísku en þörf. Mynd-
in virkar eins og stílæfing; skólaverkefni í artrí-
smartí-fartí-parti. Brýnið sverö ykkar, krakkarl,"
GSE
Sýnd kl.: 6, 8,10
Savlng Grace „Saving Grace er fyndin og
skemmtileg mynd allt fram I lokin þegar endirinn
verður að rútínu sem allt of oft er notaður. Leikur
I Saving Grace er frábær," -HK-
Sýnd kl.: 10
Ikingut .Handribð er lipurlega skrifaö og ágætur
húmor I því. Þó má segja um það, sem og mynd-
ina I heild, að það eigi sínar hæðir og lægðir. Að
all sögunnar er að það næst að framkalla barns-
lega einlægni sem skilar sér til áhorfenda, enda
má segja að Ikíngut sé fyrst og fremst fjölskyldu-
mynd," -HK-
Sýnd kl.: 6, 8
Kringlubíó
The Family Man ★★ (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 5,45, 8,10,20
Blaimornaverkefnið II (Sjá Bióhöll)
Sýnd kl.: 4, 6, 8,10
Bring it on (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 3,45
Replacements (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 5,45, 8,10,20
Villiljós ★ (Sjá Háskólabíó) Sýnd kl.: 6, 8,10
Pokemon 2
Sýnd kl.: 3,45
Laugarásbíó
Meet the Parents ★★ (sjá Háskólabíó)
Sýnd kl.: 5,45, 8,1015
Little Nicky Það er allt annað en auðvelt að vera
sonur djöfulsins úr móðurkviði engils.
Sýnd kl.: 6, 8,10
The 6th Day (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 5,45, 8,10,15
Regnboginn
Crouching Tiger Hidden
Dragon ★★★★ „Eitt atriði
gæti verið samsuða úr
Svanavatninu, ET, tölvuleikn-
um Street Fighter og Mary
Poppins. Og gengur þetta
upp? Alveg hreint glymrandi.
Þaö er eins og listin hafi loks-
ins ratað aftur heim I fjölleikahúsið. Maöur situr I
sætinu sínu og er borinn gegnum ævintýrið undr-
andi og þakklátur eins og bam," GSE
Sýnd kl.: 5,30, 8,10,30
Little Nicky (Sjá Laugarásbíó)
Sýnd kl.: 6
Charlle's Angels ★
Sýnd kl.: 6,10
Stjörnubíó
The 6th Day (Sjá Bíóhöll)
Sýnd kl.: 5,30, 8,10,20
Bless the Child Sumum finnst nauösynlegt aö
blessa ung börn og signa I bak og fyrir en aörir
vilja sleppa því ogjafnvel ánafna sjálfum djöflinum
börnunum og brenna þau marki dýrsins svo þau
geti stiknað I sjóðheitu helvíti um ókomna
tiö.Sýnd kl.: 6, 8,10
Book of Shadows: Blair Witch 2 verður frumsýnd í kvöld í Sagabíói,
Kringlubíói, Nýjabíói á Akureyri og í Nýjabíói í Keflavík. Myndin er framhald af The
Blair Witch Project sem var sýnd 1999.
Qr enn i
Hún er komin aftur, vonda
nomin frá bænum Blair í Banda-
rikjunum sém varð þess valdandi
að þrír kvikmyndanemendur
hurfu sporlaust. Nú streyma
Fjórmenningarnir ungu sem fóru til
að eltast við nornina sem virðist nú
vera farin að elta þá.
ferðamenn að bænum til að sjá
þennan sögufræga stað. Fjórir af
þessum ferðamönnum eru Trist-
an, Stephan, Erica og Kim en þau
skrá sig í hópferð sem kallast leit-
in að nominni frá Blair (Blair
Witch Hunt). Leiðsögumaður ferð-
arinnar er hinn dularfulli Jeff
Patterson sem býr í bænum og
hefur mjög vafasama fortið.
Krakkarnir leggja af stað í ferða-
lagið og tjalda þar sem hús Rustin
Parr var. Parr var hengdur fyrir
morð á sjö bömum, glæpur sem
endurspeglaði áhrif frá nominni.
Um morguninn vakna fjórmenn-
ingamir en muna ekki eftir því að
hafa farið að sofa og þaö virðist
sem fimm klukkutimum hefur
verið rænt úr lífi þeirra. I
skelfingu sinni flýta þau sér út
úr skóginum. En hryllingur-
inn er rétt að byrja. Undarleg
tákn birtast á líkama þeirra og
þau uppgötva að þegar þau
fóru úr skóginum þennan dag
voru þau ekki ein á ferð.
Leikstjóri myndarinnar er
Joe Berlinger og framleiðend-
ur eru þeir Bill Carraro og
Daniel Myrick. Höfundar
myndarinnar eru Jon Boken-
kamp, Neal Marshall og Neal
Stevens. Leikaramir em Trist-
an Skylar, Stephen Barker
Tumer, Jeffrey Donovan, Kim
Director og Erica Leerhsen.
Kim og Erica eitthvaö að kukla saman.
Gcður bíLsTjáh
/.*• eralltat
! lí'gcðum ‘gír
Eins og þú vilt
að hinir aki
skalt þú og sjálfur aka
UMFERÐAR
RAÐ ...