Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2001, Page 1
15
Pétur fngvarsson og
iærisveinar hans í Hamri
mattu þoia sitt fyrsta tap á
heimavelli sinum i Hverageröi
í vetur eftir aö hata unniö 11
fyrstu ieikina þar í deiid og
bikurum.
16-17
;-Ís*S
Cassano
til Roma
Roma hefur samið við einn
eftirsóttasta leikmanninn á ítal-
íu, sóknarmanninn Antonio
Cassano, sem spilar með Bari, til
5 ára. Roma og Juventus hafa
barist um leikmanninn um
nokkurt skeið. Svo virtist á
tímabili sem hann væri á leið til
Juventus og hefur samningurinn
valdið nokkru fjaðrafoki á Ítalíu.
Cassano mun fara til Roma eftir
tímabilið en hann spilar mjög
svipaða stöðu og Francesco Totti
og á því engan veginn víst sæti í
liðinu. -HRM
Sprewell og
Mutombo
Framherjinn Latrell Sprewell
hjá New York Knicks og mið-
herjinn Dikembe Mutombo hjá
Atlanta Hawks hafa verið valdir
í lið í Austurdeildarinnar í
Stjörnuleik NBA-deildarinnar
sem fram fer í Washington 11.
febrúar næstkomandi. Sprewell
og Mutombo koma í staðinn fyr-
ir Grant Hill og Alonzo Mourn-
ing sem báðir voru valdir í.byrj-
unarlið Austurdeildarinnar.
Larry Brown, þjálfari liðsins,
mun ákveða hvaða leikmenn
taka stöðu þeirra í byrjunarlið-
inu. Sprewell hefur þrisvar áður
verið valinn en Mutombo fjórum
sinnum. Mutombo þakkaði heið-
urinn með frábærum leik gegn
Toronto Raptors í fyrrinótt.
Mutombo skoraði 21 stig, tók 29
fráköst og varði sex skot. -ósk
Egyptar
slógu út
Rússa
Egyptar komu hressilega á
óvart á heimsmeistaramótinu í
Frakklandi í gær þegar þeir
báru sigurorð af Ólympíumeist-
urum Rússa, 21-19, í átta liða úr-
slitum keppninnar. Frakkar eru
einnig komnir i undanúrslit eft-
ir sigur á Þjóðverjum eftir fram-
lengdan leik, 26-23. Svíar unnu
stórsigur á Úkraínumönnum,
34-20, og Júgóslavar staðfestu
styrk sinn þegar þeir lögðu
Spánverja, 26-24. I undanúrslita-
leikjunum mætast Svíþjóð og
Júgóslavía annars vegar og Eg-
yptaland og Frakkland hins veg-
ar. Þessar viðureignir verða án
efa magnaðar og verður fróðlegt
að fylgjast með því hvort Egypt-
um takist að fylgja eftir
fræknum sigri á Rússum. -ósk
Fer ef við follum
- segir línumaðurinn Róbert Sighvatsson
i. § o.„ m
É * 'jpr *»=
Róbert Sighvatsson
Línumaðurinn Róbert Sighvatsson stóð
sig með prýði á heimsmeistaramótinu í
Frakklandi og hafa fyrirspurnir borist í
hann bæði frá þýskum og spænskum lið-
um. Róbert leikur undir stjóm Guðmund-
ar Guðmundssonar hjá Bayer Dormagen í
Þýskalandi og er liðið eins og stendur í
mikilli fallhættu.
„Það er klárt að ég fer frá Bayer Dor-
magen ef við föllum. Minn metnaður nær
lengra en að spila í þýsku 2. deildinni,"
sagði Róbert Sighvatsson.
Róbert nýtti 17 af 20 skotum sínum á
HM (85%) og hefur nýtt yfír 80% skota
sinna á tveimur síðustu stórmótum.
-JKS/ósk
Guðmundur afram
Nú er orðið ljóst að varnarmað-
urinn ungi og efnilegi, Guðmund-
ur Mete verður áfram í herbúðum
sænska liðsins Malmö. Guðmund-
ur skrifaði á dögunum undir nýj-
an tveggja ára samning við félagið,
sem hafnaði i öðru sæti í sænsku
1. deildinni og tryggði sér þar með
sæti í Allsvenskan á ný eftir eins
árs veru í 1. deildinni.
Eftirsóttur
Guðmundur, sem er á tuttugasta
aldursári, lék fjóra landsleiki með
íslenska landsliðinu skipuðum
leikmönnum 21 árs og yngri á ár-
inu og stóð sig með mikilli prýði.
Hann var eftirsóttur síðasta haust
og einn þeirra sem sýndi honum
áhuga var knattspyrnustjóri
Stoke, Guðjón Þórðarson. Hann
hafnaði tilboði frá norska úrvals-
deildarliðinu Lilleström og auk
þess voru flestöll félög í efstu deild
hér heima á höttunum á eftir þess-
um efnilega leikmanni.
Berst um stööuna
Samkvæmt umboðsmanni Guð-
mundar, Ólafí Garðarssyni, leist
honum best á að halda áfram i
Malmö. Baráttan um miðvarðar-
stöðuna er reyndar mjög hörö því
félagið hefur keypt tvo nýja mið-
verði fyrir næsta keppnistímabil.
-ósk
Föstudagur 2. feb. 2001
dvsport@ff.is
NBA-deildin í nótt:
Niu í röð hjá Úlfunum
Minnesota Timberwolves vann utah-Charlotte........87-76
sinn níunda leik í röð í NBA- Marshall 20, Malone 16, Stockton 11 (9
deildinni í nótt en úrslitin urðu stoðs.) - Wesley 15, Campbell 14.
annars þessi: Portland-Phoenix...100-92
Dallas-Miami .....95-91 (frl) Smith 20, Wallace 19, Stoudamire 17 (10
Finley 26 (11 frák.), Eisley 17, Laettner 13 stoðs.), Sabonis 15 - Robinson 42, Rogers
- Mason 23, Hardaway 21, Grant 9 (15 fr.). 11, Kidd 10, Delk 10, Del Negro 10.
New York-Philadelphia . . . 80-87 Seattle-Chicago ....97-91
Houston 27, Sprewell 21, Camby 12 (9 fr., Baker 22, Davis 19, Barry 17 (11 stoðs.) -
4 varin), Johnson 8 - Iverson 31, McKie Mercer 30, Brand 19, Artest 13.
16, Hill 12, Ratliff 9 (13 frák.), Buford 8. Cleveland-Minnesota.81-90
Houston-LA Clippers .... 84-101 Gatling 15, Miller 14, Jackson 11 -
Taylor 16, Mobley 13, Williams 13, Brandon 27, Garnett 18 (10 fráköst),
Francis 12 - Odom 19 (7 frák., 10 stoðs.), Szczerbiak 16.
Piatkowski 15, Mcinnis 14, Maggette 11. -HRM