Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2001, Page 4
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001
kastaoggripa.is
Harpa Melsted, fyrirliöi
Hauka, á fleygiferö.
Haukastúlkur hafa sett
á laggirnar nýja heimasíðu
á netfanginu www.hauk-
ar.is/handbolti/stelpur.
Haukastúlkur, sem leika
um helgina til úrslita um
bikarinn gegn ÍBV og eru
efstar í deildinni, hafa lagt
mikið í siðuna og hún vel
þess virði að skoöa.
Það sem vekur einna
mesta athygli við fyrstu
sýn er nafnið, kasta-
oggrípa.is en það er komið
út frá gagnrýni Viggós Sig-
urðssonar, þjálfara karla-
liðsins, á grip og
knatttækni kvenfólks í
handbolta. Stelpumar tóku
henni létt og fengu meðal
annars Viggó til að skrifa
fyrsta pistilinn á síðuna og
er það mjög skemmtileg
lesning. -ÓÓJ
UEFA-bikarinn
AS Roma-Liverpool.........0-2
0-1 Michael Owen (46.), 0-2 Michael
Oewn (72.).
Porto-Nantes.............3-1
0-1 Hassan Ahamada (14.), 1-1 Jose
Esquerdinha (17., víti), 2-1 sjálfsmark
(58.), 3-1 Carlos Sectertario (87.).
Alaves-Inter Milan .......3-3
1-0 Javi Moreno (43.), 1-1 Alvaro
Recoba (45.), 1-2 Alvaro Recoba (50.),
1-3 Christian Vieri (65.), 2-3 Oscar
Tellez (70.), 3-3 Ivan Alonso (73.).
AEK-Barcelona ............0-1
0-1 Luis Enrique (41.)
Slavia Pragh-Kaiserslautem . 0-0
PSV Eindhoven-Parma .....2-1
1-0 Andre Ooijker (24.), 1-1 Patrick
Mboma (67.), 2-1 Dennis Rommedahl
(73.).
R. Vallecano-Bordeaux ...4-1
0-1 Lillian LasLandes (2.), 1-1 Ramon
De Quintana (19.), 2-1 Elvir Bolic
(73.), 3-1 Jose Maria Quevedo (82.),
4-1 Michel (90.).
Stuttgart-Celta Vigo .....0-0
Þetta var ekki kvöld ítölsku
liðanna í Evrópukeppninni því tvö
þeirra töpuðu (Roma og Parma) og
Inter Milan klúðraði niður tveggja
marka forustu. ítölsku liðin hafa
unnið þenna bikar átta sinnum á
síðustu 12 árum. -ÓÓJ
Urslitaleikur bikarkeppni HSI í karlaflokki:
NBA-deildin:
Portland
- vann
Sacramento
Portland Trailblazers vann
Sacramento Kings í leik efstu
liða Kyrrahafsriðils af miklu ör-
yggi, 105-81 og heldur efsta sæti
riðilsins. Stjömuframherjinn
Rasheed Wallace var útilokaður
frá þátttöku í leiknum eftir sína
aðra tæknivillu snemma í seinni
hálfleik en það kom ekki að sök.
Sacramento lék án annars
stjömuframherja, Chris
Webbers sem á við ökklameiðsli
að stríða en Sacramento var að
tapa 4. leiknum af síðustu 5.
Úrslit í nótt:
Dallas-Cleveland ..102-81
Finley 17, Nowitzky 17 (15 frák., 3
varin), Bradley 13, Eisley 12 - Miller
14, Jackson 14, Traylor 11, Brown 10.
Indiana-Detroit .....82-73
Miller 19, Harrington 16, Best 11 (4
stolnir), Croshere 11, O'Neal 6 (12
frák., 4 varin) - Stackhouse 40,
Wallace 11, Smith 9.
Toronto-Miami........91-98
Carter 28, Davis 16 (11 frák., 6 varin),
Oakley 13 (15 frák.), Peterson 11 -
Hardaway 18 (10 stoðs.), Jones 18,
Mason 14, Grant 14, Green 14(10 frák.)
San Antonio-Washington . 102-78
Duncan 19 (12 frák., 5 varin),
Robinson 16, Jackson 14, Walker 11 -
Richmond 18, Hamilton 16, Howard
11.
Portland-Sacramento .... 105-81
Stoudamire 20, Smith 17, Wells 13,
Sabonis 11 (4 varin), Wallace 10 -
Divac 19, Jackson 13, Stojakovic 12.
Seattle-Boston ....88-108
Payton 20 (14 stoðs.), Lewis 17, Ewing
14 (10 frák.), Patterson 10 - Walker 30
(4 stolnir), Pierce 18, Williams 13,
Potapenko 12.
Vancouver-Golden State . . . 99-89
Abdur-Rahim 22 (5 varin), Bibby 22,
Dickerson 20, Reeves 12 - Jamison 24
(10 frák., 5 stolnir), Sura 16, Jackson
14, Blaylock 14 (11 stoðs.).
-HRM
Ojafn leikur
- ef Haukar leika af eðlilegri getu, segir Ólafur Lárusson, þjálfari Gróttu/KR
„Sagan segir að ef það er jafn
mikill styrkleikamunur á liðum
eins og ég tel að sé í dag á milli
Hauka og HK þá verði leikir þeirra
sjaldan spennandi. Þetta er þó bikar
og það getur allt gerst en ég tel þó
að staða liðanna í deildinni gefi
réttan mun á getu liðanna. Haukar
eru með mun betra og reynslumeira
lið en HK og ef þeir leika af eðlilegri
getu get ég ekki séð að þessi leikur
verði spennandi," sagði Ólafur Lár-
usson, þjálfari Gróttu/KR, í samtali
við DV-Sport þegar hann var spurð-
ur um viðureign Hauka og HK í bik-
arúrslitaleik HSÍ í karlaflokki.
Allir reikna með sigri Hauka
„Það sem helst getur háð Hauk-
um er það að allir reikna með
þeirra sigri og flestir reyndar auð-
veldum. Það er oft erfitt að mæta í
leik vitandi það að allir búast við
sigri. Að sama skapi getur það ver-
ið þægilegt fyrir HK-menn sem hafa
enga pressu á sér að mæta í Höllina.
Þeir geta læðst bakdyramegin, laus-
ir við allar vonir og væntingar
stuðningsmanna sinna, vitandi það
að þeir eru þegar búnir
að gera meira en flestir
bjuggust við.“
Upphaf seinni
hálfleiks mikilvægt
„Ég held að lykillinn
að góðu gengi HK-
manna í leiknum felist
í því að þeir nái að
hanga í Haukum fram I
hálfleik og slðan fyrstu
tíu mínútumar í seinni
Olafur Björn Lárusson,
þjálfari Gróttu/KR.
hálfleik. Það er á þeim kafla sem
Haukarnir hafa gert út um marga
leiki í vetur. Þeir koma út í seinni
hálfleikinn af sérstökum krafti eins
og við kynntumst á Seltjamarnesi
fyrr í vetur. EfHK-menn komast í
gegnum þessar tíu mínútur þá eru
ýmsir möguleikar í stöðunni."
HK þarf að stoppa
Halldór
„Haukarnir eru með
tvo frábæra markverði,
sterka vörn sem getur
beitt fleiri en einni vam-
araðferð og fjölbreytileg-
an sóknarleik. Það er
mikilvægt fyrir HK að
stoppa Halldór Ingólfs-
son. Hann er Haukum gíf-
urlega mikilvægur í sókn-
arleiknum, bæði hvað varðar mörk,
línusendingar og opnanir fyrir
horn. Ef Halldór kemst ekki í gang
gætu Haukar lent í vandræðum því
þeir eiga engan leikmann til að
leysa hann af. Þetta er sennilega
eina staðan á vellinum sem Haukar
hafa ekki tvo menn í stöðu.
Leikur HK kemur til með að ráð-
ast mjög af markvörslunni. Ef Hlyn-
ur hrekkur í gang, sem ég gæti vel
trúað þar sem hann er stuðkarl, þá
gætu þeir náð hraðaupphlaupum og
fengið auðveld mörk sem myndu
auðvelda þeim lífið mjög. Síðan
vona ég þeirra vegna að Sigurður
Sveinsson lumi á nokkrum tromp-
um í sóknarleiknum þótt hann sé
ekki i sinu besta formi,“ sagði
Ólafur Lárusson, þjálfari
Gróttu/KR. -ósk
Það var mikill fögnuöur hjá Haukum áriö 1997 þegar félagið vann bikarinn í karla- og kvennaflokki. Spurningin er hvort sá leikur endurtaki sig á laugardaginn.
Úrslitaleikur bikarkeppni HSÍ í kvennaflokki:
Brynja og Inga Fríða
- geta spilaö stórt hlutverk í leiknum, segir Ágúst Jóhannsson
„Þessi bikarúrslitaleikur á eftir
að verða hörkuleikur. Þessi tvö lið
eru að mínu mati tvö sterkustu lið
deildarinnar. Haukarnir hafa að
vlsu haft yfirburði í vetur en ég
held samt sem áður að það komi
ekki til með að teljá mikið í þessum
leik. Þetta er bara einn leikur sem
getur farið á hvom veginn sem er,“
segir Ágúst Jóhannsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í handknattleik, um
viðureign Hauka og ÍBV í úrslita-
leik bikarkeppni HSÍ
Styrkleikar liðanna svipaðir
Vestmannaeyingar eru með mik-
ið af góðum erlendum stelpum og
þar liggur þeirra helsti styrkur.
Þær hafa góða útilínu, sérstaklega
Amelu Hegic og Tamöru Mandizch
og eins er Anita Andreassen öflug í
hægra horninu. -
Það má eiginlega
segja það sama um
Haukana. Harpa Mel-
steð og Auður Her-
mannsdóttir eru góðar
fyrir utan. Tinna Hall-
dórsdóttir hefur einnig
verið að koma sterk
inn. Inga Fríða
Tryggvadóttir er mjög
öflug á línunni og það
getur orðið erfitt fyrir ,
Eyjastúlkur að ráða við Agúst Pór Jóhannsson, hefur engin áhrif
hana. Liðin eru svipuð landsliðsþjálfari kvenna. „Ég held að stórsigur
að styrk en þó eru Haukamir með
meiri breidd og það getur fleytt lið-
um langt í leikjum sem þessum.“
Ólíkar varnir
„Vamir liðanna eru
gjörólíkar. Haukastúlk-
ur hafa leikið 3-2-1
framarlega í vetur og
hafa gert það vel en ÍBV
hefur spilað 6-0 vöm
með erlendu leikmenn-
ina sem máttarstólpa í
miðju varnarinnar."
16 marka tapið
Hauka á iBV fyrr í vetur hafi ekkert
að segja þegar að þessum leik kem-
ur. í þeim leik gekk allt upp hjá
Haukum en að sama skapi ekkert
hjá ÍBV og það gerist ekki aftur.
Ég held að það komi til með
skipta miklu máli fyrir Hauka
hvernig samvinna Brynju Steinsen
og Ingu Fríðu á eftir að ganga í
leiknum. Ef þær ná vel saman þá
hallast ég að sigri Hauka.
Ég á von á hörkuleik og ég vona
bara að áhorfendur fjölmenni í
Laugardalshöllina og skapi leiknum
þá umgjörð og stemningu sem hann
á skilið," sagði Ágúst Jóhannsson,
landsliðsþjálfari kvenna.
-ósk