Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2001, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2001, Side 1
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2001 15 Meistaratitillinn blasir nú við Celtic Fátt virðist nú ætla að verða í vegi fyrir því að Celtic verði skoskur meistari í knattspyrnu í vor. Celtic jók forystu sína í úrvalsdeildinni í gær- kvöld um 14 stig þegar liðið sigraði Motherwell, 1-0, á Parkhead í Glasgow að viðstöddum 60 þúsund áhorfendum. Það var Tékkinn Lubomir Moravick sem skoraði sigurmarkið sex mínútum fyrir leikslok en hann hafði áður komið inn á sem varamaður. Celtic sótti linnulítið og fóru þeir Stillian Pter- ov og Henrik Larsson illa með upplögð tækifæri og Chris Sutton átti skot í stöng. „Þetta var góður sigur,1' sagði Martin O’Neill, knattspyrnustjóri Celtic, eftir leikinn. Tveir aðrir leikir voru háðir þar sem Dunfermline sigraði Dundee, 0-1, og Aberdeen sigraði St. Mirren, 3-1. Celtic hefur 72 stig, Hibernian 58 stig og Glasgow Rangers 57 stig. í 1. deild ensku knattspyrnunnar vann Sheffield Wednesday mikilvægan sigur á Nottingham Forest, 0-1, og skoraði Gerald Sibon markið á 76. mín- útu. -JKS Sjöundi þjálfarinn á síðustu fimm árum Þjálfaraskipti urðu hjá þýska handknattleiksliðinu Essen þegar Jörn Uwe Lommel var sagt upp störfum og við tók Hans Dieter Schmitz sem verður með liðið út þetta tímabil. Þessi skipti vöktu mikla undrun í fjölmiðlum því Lommel hefur náð ágætum árangri með Essen en hann átti ekki samleið með forseta liðsins sem ákvað að reka hann. Tapið gegn Eisenach fyllti mælinn en Essen er i 7. sæti í deildinni og er komið í 8-liða úrslit i bikarkeppninni. „Þetta verður sjöundi þjálfarinn sem ég hef haft hjá Essen á fimm árum. Ég var svo sem ekkert ánægður með Lommel um tíma en í vetur hefur hann geflð mér tækifæri. Schmitz var ráðinn bara tímabundiö svo félagið þarf að leita að nýjum eftir tímabilið," sagði Patrekur Jóhannesson. -JKS Kom ekki á óvart - þjálfari Panathinaikos sagði upp störfum „Þetta hefur vofað yfir síðustu daga. Liðið er búið að tapa fjórum af síðustu fimm leikjum sinum og svona ástand gat ekki gengið öllu lengur. Þessi skipti komu þvi engum á óvart en auðvitað er leiðinlegt þegar svona gerist,“ sagði Helgi Sigurðsson, leikmaður með gríska liðinu Panathinaikos, en í gær sagði þjálfari liðsins, Angelos Anastasiadis, upp störfum og mun aðstoðarþjálfarinn, Stratos Apostolakis, taka við liðinu ‘ tímabundið. „Liðið hefur leikið sérlega illa að undanfornu og sérstaklega í fyrrakvöld þegar liðið tapaði fyrir Sturm Graz í meistaradeildinni. Það er ómögulegt að segja til um hvort þessi skipti hafi einhver áhrif á það hvort ég fái að spila meira en ég hef fengið fram að þessu. Einhvem veginn hef ég það á tilfinningunni að ekki verði miklar breytingar á því, maður veit þó aldrei hvað gerist," sagði Helgi. -JKS Lucas Radebe og Rio Ferdinand fagna ööru markinu sem Alan Smith skoraði fyrir Leeds gegn Anderlecht í meist- aradeildinni í Briis- sel i gærkvöld. Reuter Leeds tryggði sér sæti í 8-liða úr- slitum meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld eftir stór- kostlegan sigur á Anderlecht, 1-4, í D-riðli. Leeds lék frábæra knatt- spyrnu og yfirspilaði belgíska liðið á köflum. Leeds gaf Anderlecht rot- höggið í fyrri háffleik með þremur góðum mörkum og skoraði Afan Smith tvö þeirra og Mark Viduka eitt. Ian Harte skoraði fjóröa mark- ið úr vítaspyrnu seint í leiknum. „Ég er afskaplega stoltur af mín- um leikmönnum. Við erum ekki búnir að vinna keppnina en komnir engu að síður mun lengra sem fáa óraði fyrir. Við mætum Real Ma- drid í næsta leik sem ég tel vera með sterkasta liðið í keppninni," sagði David O’Leary, knattspymu- stjóri Leeds, eftir leikinn í Brússel í gærkvöld. Real Madrid, sem leikur í sama riðli, er einnig komið áfram. Liðið gerði jafntefli við Lazio í Róm. Dino Zoff, þjálfari Lazio, leyndi ekki von- brigðum sínum og sagði að liðið væri að súpa seyðið af ósigrinum gegn Anderlecht og Leeds fyrr í keppninni sem hefði verið með öllu óásættanlegt. Arsenal tapaði dýrmætum stigum gegn Lyon á Highbury. Frakkamir jöfnuðu leikinn á lokamínútunni. Arsene Wenger sagði eftir leikinn vera þrátt fyrir allt bjartsýnn á að liðinu tækist að komast í 8-liða úr- slitin. Bayem hefur svo gott sem tryggt sér sæti í 8-liða úrslitunum eftir góðan sigur á Spartak í Moskvu. Um tíma var óvíst hvort leikurinn gæti farið fram því vallarskilyrði voru vart bjóðandi neinum en um og yfir 20 stiga frost hefur verið í Moskvu síðustu daga. „Það var mikilvægt að skora snemma leiks og miðað við aðstæður er ég mjög ánægður," sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern. -JKS Leeds ham Olafur skoraði sjö mörk Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg þegar lið- ið sigraði Eisenach, 30-20, í þýsku Bundeslígunni í hand- knattleik i gærkvöld. Patrekur Jóhannesson skoraði fjögur mörk fyrir Essen sem sigraði Nordhorn, 23-21, á heimavelli. Guðmundur Hrafnkelsson stóð í markinu lengstum og varði vel. Svíinn Jesper Larsson byrjaði i markinu en meidd- ist eftir. sex mínútna leik og kom Guðmund- ur þá inn á í hans stað. Talið er að meiðsli Larssons séu alvar- leg svo Guðmund- ur mun standa í markinu i næstu leikjum. Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark fyrir Bayer Dormagen sem tapaði á heimavelli fyrir Flensburg, 23-26. Úrslit i öðrum lekjum urðu þau að Lemgo sigr- aði Wallau Massenheim, 27-21, Wuppertal og Bad Schwartau skildu jöfn, 23-23, og Kiel tapaði sínum þriðja leik í röð, nú fyrir Grosswaldstadt, 29-27. Flensburg hefur 39 stig í efsta sætinu. Lemgo hefur 36 stig, Magdeburg 35 stig og Massen- heim 35 stig. -JKS Evrópumet í stangarstökki Rússneska stúlkan Svetlana Feofanova setti í gærkvöld Evr- ópumet í stangarstökki innan- hús þegar hún fór yfir 4,65 metra á móti í Grikklandi. -JKS C-riðill: ■MEISTARADEILDIN Arsenal-Lyon.................1-1 1-0 Bergkamp (33.), 1-1 Edmilson (90.) Spartak Moskva-Bayern .... 0-3 0-1 Scholl (17.), 0-2 SchoU (75. víta- sp.), 0-3 Sergio (87.) Bayern 4 3 1 0 7-2 10 Arsenal 4 12 15-7 5 Lyon 4 112 4-3 4 Spartak 4 1 0 3 4-8 3 D-riðill: Lazio-Real Madrid.............2-2 1-0 Nedved (4.), 1-1 Solari (32.), 2-1 Crespo (53.), 2-2 Raul (73.) Anderlecht-Leeds..............1-4 0-1 Smith (12.), 0-2 Viduka (33.), 0-3 Smith (33.), 1-3 Koller (75.), 1-4 Harte (80. vítasp.) Real M. 4 3 10 11-5 10 Leeds 4 3 0 1 7-4 9 Anderlecht 4 1 0 3 4-10 3 Lazio 4 0 1 3 4-7 1 . I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.