Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Side 5
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
23
I>V
Deildabikar úrslit
A-riðiU
Framarar geta þakkað fyrir sigur
á Gróttu/KR á laugardaginn, 31-29.
Heimastúlkur byrjuðu betur í leikn-
um meðan gestimir voru að ná tök-
um á vöminni. Þegar hún kom
náðu þær að halda í við Fram en
síðan bættu Framarar vömina og
við það töpuðu gestimir þremur
boltum í röð og nýttu heimastúlkur
sér það vel og juku svo við forskot-
ið sem var það orðið fimm mörk í
hálfleik, 18-13.
Nýtt lið kom inn á hjá Gróttu/KR
eftir leikhlé, miklu meiri barátta
var í leikmönnum og við það varð
vörnin mun betri og náðu þær að
minnka muninn jafnt og þétt og
jöfnuðu leikinn, 22-22, þegar 18 mín-
útur voru eftir.
Um miðjan seinni hálfleik náðu
Framstúlkur að skilja aðeins við
Gróttu/KR. Svanhildur Þengilsdótt-
ir varði þrjú skot í hávöm og upp
úr því fengu Framarar hraðaupp-
hlaup og náðu þriggja marka for-
skoti.
Eftir þennan leikkafla náðu
Grótta/KR ekki að ógna sigri Fram-
ara. Heimastúlkur geta ekki verið
sáttar við leik sinn því þær hittu á
slakan dag og sem betur fer fyrir
þær var andstæðingurinn ekki betri
en raun bar vitni því þá hefðu þær
getað lent í enn meiri vandræðum
með að innbyrða sigurinn.
Eini Ijósi punkturinn hjá Fram
voru stigin sem þær fengu fyrir sig-
urinn. Grótta/KR áttu slakan fyrri
hálfleik en náðu sér á strik i seinni
hálfleik en það er alveg ljóst að það
þarf meiri ógnun frá vinstri skyttu í
liðinu. Baráttan kom hins vegar hjá
Gróttu/KR í seinni hálfleik en hún
þarf að vera fyrir hendi allan leik-
inn til að leikir vinnist.
Var hræddur viö leikinn
„Við höfum verið með leikmenn í
meiðslum og í veikindum. Einnig
hefur verið tveggja vikna hlé
þannig að við höfum ekki haldið
dampinum eins og við höfum viljað.
Þess vegna var ég hræddur við leik-
inn og það kom á daginn. Eina já-
kvæða við leikinn var að við náðum
að klára hann og ná í stigin sem
voru í boði. Við misstum sjónar á
leiknum í smátíma en náðum áttum
aftur sem betur fer, annars hefði
getað farið illa,“ sagði Gústaf Adolf
Bjömsson, þjálfari Fram, í samtali
við DV-Sport eftir leikinn.
-BB
Haukar 15 14 1 374-271 28
Fram 16 11 5 421-352 22
ÍBV 15 11 4 333-312 22
Stjarnan 16 10 6 375-325 20
FH 16 8 8 388-363 16
Grótta/KR 16 8 8 364-345 16
Víkingur 16 8 8 344-326 16
Valur 16 6 10 297-345 12
KA/Þór 16 3 13 296-364 6
ÍR 16 0 16 200-390 0
Markahæstar:
Marina Zoueva, Fram.......144/68
Harpa Melsteð, Haukum......93/48
Alla Gokorian, Gróttu/KR .. . .89/34
Kristín Guömundsdóttir, Vík. . 87/18
Ásdís Sigurðardóttir, KA/Þór . 87/23
Hafdís Hinriksdóttir, FH...83/48
Nina K. Björnsdóttir, Stjörn. .. 75/27
Jóna Björg Pálmadóttir, Gr./KR 73/16
Guðbjörg Guömannsdóttir, Vik. 71/6
Tamara Mandizch, iBV.......65/29
Attavilltar
- Framkonur á tímabili en innbyrtu samt sigur á Gróttu/KR
Fram-Grótta/KR 31-29
1-0, 2-0, 3-2, 5-3, 6-4, 7-5, 10-5, 12-8,
15-10,17-12,(18-13), 19-15, 21-17, 22-20,
22-22, 25-22, 28-24, 29-26, 31-29.
Fram:
Mörk/viti (skot/viti): Marina Zoueva
7/1 (11/2), Katrín Tómasdóttir 6/4 (7/4),
Díana Guðjónsdóttir 4 (5), Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir 4 (5), Björk
Tómasdóttir 4 (6), Hafdís Guðjónsdóttir
2 (4), Irena Svensson 2 (5), Svanhildur
Þengilsdóttir 1 (1), Kristín Brynja
Gústafsdóttir 1 (2).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Díana
2, Hafdís 2, Guörún 2, Svanhildur).
Vitanýting: Skorað úr 5 af 6.
Varin skot/viti (skot á sig): Hugrún
Þorsteinsdóttir 13/2 (42/5, 31%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Grótta/KR:
Mörk/viti (skot/viti): Jóna Björg
Pálmadóttir 9/3 (15/4), Ragna Karen
Sigurðardóttir 7 (7), Eva Þórðardóttir 6
(9), Ágústa Edda Björnsdóttir 4 (9/1),
Eva Björk Hlöðversdóttir 3 (4).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 11
(Ragna Karen 4, Eva Þ. 3, Ágústa Edda
3, Jóna Björg).
Vítanýting: Skorað úr 3 af 5.
Varin skot/viti (skot á sig): Ása
Ásgrímsdóttir 9 (39/4, 23%), Asa Rún
Ingimarsdóttir 1/1 (2/2, 50%)
Brottvisanir: 12 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og
Valgeir Ómarsson (4)
Gœði leiks (1-10): 6
Áhorfendur: 40
Maöur leiksins: Ragna Karen
Sigurðardóttir Gróttu/KR.
Díana Guöjónsdóttir úr Fram smeygir sér inn úr vinstra horninu fram hjá Jónu Björgu Pálmadóttur
hjá Gróttu/KR og skorar eitt fjögurra marka sinna í leiknum. DV-mynd Pjetur
Fylkir-Tindastóll.............2-0
Bjöm Viðar Ásbjörnsson, Ólafur Ingi
Skúlason.
Víkingur-Tindastóll...........1-3
Boban Ristic - Þorsteinn Gestsson,
Björn Ingi Óskarsson, Gunnar
Bachman Ólafsson.
FH-Stjaman....................6-1
Atli Viðar Bjömsson 3, Sigurður
Jónsson, Björn Jakobsson, Baldur
Bett - Rúnar PáU Sigmundsson.
B-riðiU
Keflavík-ÍR...................5-4
Jóhann B. Guömundsson, Hólmar
Rúnarsson, Þórarinn Kristjánsson,
Hjálmar Jónsson, sjálfsmark -
Brynjólfur Bjarnason 3, Njöröur
Steinarsson.
ÍBV-Leiftur...................4-0
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 2,
Hlynur Stefánsson, Páll Almarsson.
Valur-KA......................0-0
BreiðabUk-KR..................2-1
Kristján Brooks, Kristján Óli Sigurð-
arson - Guðmundur Benediktsson.
A-riðiU
FH 4, ÍA 3, Fylkir 3, Tindastóll 3,
Fram 1, Víkingur 1, Stjarnan 1,
Grindavík 0.
B-riðiU
Keflavík 6, Breiðablik 4, KR 3, ÍR3,
ÍBV 3, KA 2, Valur 1, Leiftur 0.
-ósk/ÓÓJ
^ Þýski handboltinn:
Olafur með sjö
- Duranona skoraði níu mörk fyrir Nettelstedt
Magdeburg, lið Alfreðs
Gíslasonar og Ólafs Stefáns-
sonar, vann góðan sigur gegn
Lemgo á útiveili, 28-22, í átta
liða úrslitum EHF-keppninn-
ar á laugardaginn. Ólafur átti
góðan leik, skoraði sjö mörk
og var markahæstur leik-
manna Magdeburg. •
„Leikmenn Lemgo áttu ör-
ugglega ekki sinn besta dag
en við spiluðum vel. Þetta er
bikar og við ættum að vera
búnir að læra það að þar get-
ur allt gerst. Við mætum ein-
beittir í seinni leikinn, stað-
ráðnir í því að klára dæmið," sagði
Alfreð Gíslason eftir leikinn.
Vömin hjá Magdeburg var frábær
og markvörðurinn Henning Fritz
varði eins og
berserkur fyrir
aftan hana.
Seinni leikurinn
á heimavelli
Magdeburg
verður erfiður
fyrir Lemgo sem
þarf að vinna
upp sex marka
forskot
Magdeburg.
Duranona
skoraöi níu
Julian Róbert
Duranona var í miklum ham þegar
lið hans, Nettelstedt, vann
mikilvægan sigur á Solingen, 34-29,
í þýsku 1. deildinni. Duranona
Olafur Stefánsson
skoraði níu mörk í leíknum og var
gjörsamlega óstöðvandi ásamt félaga
sínum, Markus Hochhaus, sem
skoraði tíu mörk.
Gústaf markahæstur
Gústaf Bjarnason var
markahæstur hjá Minden með sex
mörk þegar liðið gerði jafntefli við
Hameln á útivelli, 30-30. Leikmenn
Minden voru klaufar að missa
leikinn niður í jafnteíli því liðið var
yfir, 29-26, þegar skammt var til
leiksloka. Horst Bredemeier, þjáifari
Minden, var ósáttur í leikslok.
„Það er ekki hægt að segja annað
en að við höfum kastað frá okkur
sigrinum og tapað dýrmætu stigi,“
sagði Bredemeier eftir leikinn.
-ósk
Sport
Blak:
Heimaliðin
töpuðu
Það var leikið á Akureyri og á
Norðfírði í 1. deild karla um helg-
ina. Skemmst er að segja frá því
að heimaliðin þurftu að játa sig
sigruð í báðum viðureignum sín-
um. Reykjavíkur-Þróttur skellti
liði KA á Akureyri um helgina
tvívegis og enduðu báðir leikimir
3-0 fyrir gestina sem sigla lygnan
sjó í öðm sæti deildarinnar. Leik-
irnir vom líka keimlíkir og bar
þó mest á þeim Ólafi Heimi Guð-
mundssyni, kantskelli Þróttar, en
hann og Valur Guðjón Valsson
uppspilari vom bestir í liði gest-
anna en Jón Ólafur Valdimarsson
kom á óvart með ágætum tilþrif-
um inn á milli. Hjá KA vom það
hins vegar gömlu brýnin, Sigurð-
ur Arnar Ólafsson og Hafsteinn
Jakobsson, sem að bám hitann og
þungann af leik liðsins, auk út-
lenda leikmannsins Shailen
Ramdoo. KA-menn voru klaufar
að krækja ekki í stig í seinni
leiknum en þeir voru yfir í þriðju
hrinuni lengi framan af og voru
klaufar að innbyrða ekki stig en
hrinan vannst með minnsta mun,
26-24. KA er sem stendur í neðsta
sæti og á liðið í baráttu við Þrótt
N. um að komast inn í úrslita-
keppnina, en lið Þróttar N. tapaði
einnig tvívegis á Norðfirði um
helgina en báðir leikirnir enduðu
3:0 fyrir Stjörnuna sem færðist
fyrir vikið í þriðja sæti deildar-
innar. Leikmenn Stjörnunnar
voru ívíð sterkari aðilinn í báð-
um leikjunum. Lið Þróttar er sem
stendur í fjóröa sætinu með 18
stig en KA kemur fast á eftir með
15 stig og ljóst að spennandi loka-
umferðir em fram undan um það
hvort liðið kemst í úrslitakeppn-
ina.
Eftir bókinni
Víkingsstúlkur sóttu ekki gull í
greipar íslands- og bikarmeistar-
anna úr Þrótti í Neskaupstað,
frekar en stöllur þeirra úr öðrum
liðum hafa gert á leiktíðinni þar
sem Þróttur skellti gestunum tvi-
vegis, 3:0, með nokkuð afgerandi
hætti. Með sigrunum á Víkings-
stúlkum tryggðu Þróttarstúlkur
sér deildarmeistaratitilinn en
þær hafa unnið alla sína leiki í
vetur og ekki tapað hrinu í þeim
tíu leikjum sem þær hafa leikið.
Þróttarstúlkur eiga eftir að leika
tvo útileiki í deildinni og líklegt
verður að telja að þær tapi þeim
ekki sé mið tekið af gengi liðanna
í vetur og hinna tveggja rúss-
nesku leikmanna liðsins sem eru
frábærir. Víkingsstúlkur þurfa
nú að brynja sig fyrir undanúr-
slitin í bikarkeppni BLÍ um
næstu helgi. Þá fá þær nýkrýnda
deildarmeistara í heimsókn í Vík-
ina og þá er það allt eða ekkert.
1. deild karla í blaki
Þróttur N.-Stjarnan ................8-3
(22-25, 22-25, 21-25)
KA-Þróttur R........................0-3
(20-25, 16-25, 24-26)
Þróttur N.-Stjarnan ................0-3
(18-25, 21-25, 18-25)
KA-Þróttur R........................0-3
(16-25, 24-26, 20-25)
ÍS 13 12 1 38-12 38
Þróttur R. 15 9 6 31-25 31
Stjarnan 13 6 7 23-24 23
Þróttur N. 14 4 10 18-34 18
KA 13 3 10 15-30 15
1. deild kvenna í blaki
Þróttur N.-Víkingur.............3-0
(25-10, 25-23, 25-13)
Þróttur N.-Víkingur.............3-0
(25-17, 25-13, 25-15)
Þróttur N. 10 10 0 30-0 30
ÍS 10 7 3 23-14 23
Víkingur 10 3 7 12-25 12
KA 10 0 10 4-30 4
-GHÞ