Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 20
38
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
>
j?
2. Helgi Reynir Árnason .....42
3. Árni Þór Bjarnason........41
4. Reynir Stefánsson ........36
Pro Stockflokkur
- varð stigahæstur
Úrslit í
snjókrossi 24.
febrúar
Pro Open flokkur
1. sæti.....Alexander Kárason
2. sæti.....Helgi Reynir Árnason
3. sæti.........Árni Þór Bjarnason
4. sæti. . .Helgi Sigursteinn Ólafsson
5. sæti . . Skarphéðinn Eymundsson
6. sæti.........Þorsteinn Marel
7. sæti....................Reynir Stefánsson
Pro Stock flokkur
1. sæti .......Halldór Óskarsson
2. sæti.............Baldur Hólm
3. sæti.....Ingvar Þór Óskarsson
4. sæti ....Kristinn Gunnarsson
5. sæti.....Jón Baldvin Árnason
6. sæti.....Ingi Þór Tryggvason
7. sæti....................Markús Gústafsson
Sport Open flokkur
1. sæti ......Steinþór Stefánsson
2. sæti.....................Víðir Garðarson
3. sæti ........Sævar Áskelsson
4. sæti ........Steindór Jónsson
5. sæti.....Sveinbjörn Jóhannsson
6. sæti ........Hafþór Eiriksson
7. sæti.....Hilmar Ingi Ómarsson
Sport 500flokkur
1. sæti.....Óðinn Þór Baldvinsson
2. sæti.........Stefán Vignisson
3. sæti.........Snorri Sturluson
Staðan í íslandsmóti
Pro Open flokkur
1. Alexander Kárason ...53
Vélsleöamenn sýndu oft á tíðum
glæsileg tilþrif á íslandsmótinu í
snjókrossi sem fram fór á
Egilsstöðum síðastliðinn
laugardag. DV-Mynd MS
allra keppenda í snjókrossi á Egilsstöðum
1. Baldur Hólm ...............51
2. Halldór Óskarsson..........47
3. Kristinn Gunnarsson........43
4. Ingvar Þór Óskarsson ......42
Sport Openflokkur
1. Steinþór Stefánsson........54
2. Víðir Garðarsson...........48
3. Sævar Áskelsson............43
4. Steindór Jónsson...........42
Sport 500flokkur
1. Óðinn Þór Baldvinsson .....53
2. Stefán Vignisson ..........50
3. Snorri Sturluson ..........45
Fyrsta umferð í WSA snjókross-
inu var á Egilsstöðum í frábæru
veðri á Fjarðarheiði síðastliðinn
laugardag.
Það voru um 30 keppendur sem
mættu til leiks eldsnemma á laugar-
dagsmorgun til æfmga.
Keppnin hófst svo kl. 14 og voru
keyrðir fjórir flokkar, Pro Open,
Pro Stock, Sport Open og Sport 500.
Heimamaðurinn Reynir Stefáns-
son tók forystuna í Pro Open flokkn-
um í tveimur fyrstu riðlunum en
hann sprengdi sig enda reynslulítill
á sínu öðru ári í greininni. Þá fóru
gömlu jaxlarnir að síga fram úr,
þeir Alexander og Helgi Reynir. Al-
exander sýndi mikla skynsemi og
sparaði sig í byrjun þegar fá stig
voru í boði. í úrslitunum stakk
hann síðan alla af og vann örugg-
lega.
Keppnin heppnaðist að mestu
leyti vel en Árni Grant fór fram fyr-
ir sig og kom þá annar keppandi
fljúgandi á hann. Nokkur rifbein
urðu að gefa eftir en kallinn ber sig
vel og er sprækur.
í Pro Stock sigraði Halldór „Wise
Grip“ Óskarsson eftir magnaða bar-
áttu við Baldur Hólm. Þeir voru
hlið við hlið nánast allan daginn og
á síðasta hring réðust úrslitin.
Kristinn Gunnarsson byrjaði dag-
inn vel en úthaldið kláraðist alltof
snemma til að hann gæti veitt þeim
Halldóri og Baldri einhverja keppni
í lokin þegar mest á reyndi.
Heimamaðurinn Steinþór Ste-
fánsson sigraði Sport Open flokkinn
og Óðinn Þór Baldvinsson frá Akur-
eyri sigraði Sport 500 flokkinn.
Keppnishaldarar voru Akstur-
íþróttaklúbburinn Start og Vélsleða-
klúbbur Ólafsfjarðar og keppt var
eftir reglum MSÍ.
Önnur umferð í snjócrossi fer
fram á Mývatni helgina 9.-11. mars
og verður keppt í fleiri greinum, svo
sem GPS fjallaralli, samhliða braut,
ískrossi á mótorhjólum og go-kört-
um.
Hinn árlegi minningarleikur um
Gunnhildi Líndal, fer fram í kvöld í
íþrótthúsinu í Keflavík og hefst hann
klukkan átta. Þar mætast kvennalið
Keflavíkur og Grindavíkur eins og
áður en Gunnhildur var leikmaöur
með meistaraflokki Keflavíkur en
lést í bílslysi í upphafi árs 1998.
*
Stoke tapaði dýrmætum stigum í
toppbaráttu 2. deildarinnar þegar
liöið beið lægri hlut fyrir Rotherham,
2-1, á útivelli. Peter Thorne skoraði
mark Stoke. Rotherham komst með
sigrinum í 3. sæti deildarinnar en
Stoke er áfram í 6. sætinu. Birkir
Kristinsson, Brynjar Gunnarsson,
Bjarni Guðjónsson og Ríkharður
Daðason voru allir í byrjunarliði
Stoke en Stefán Þórðarson kom inn á
sem varamaður á 66. mínútu.
Bjarki Gunnlaugsson var í byrjun-
arliði Preston sem vann Sheffield
Wednesday, 2-0. Bjarki átti mjög góð-
an leik og átti þátt í báöum mörkum
Preston.
Heióar Helguson var í byrjunarliði
Watford gegn Stockport en fór út af í
leikhléi án þess að setja mark sitt aö
verulegu leyti á leikinn.
Ólafur Gottskálksson og ívar Ingi-
marsson voru að vanda í byrjunar-
liði Brentford sem vann Notts
County, 3-1.
-ÓÓJ/ósk
Met hjá Sunnu
Sveinn Margeirsson stórbætti sig í 1500 metra hlaupi
Sveinn Margeirsson,
UMSS, varð í öðru sæti í
1500 m hlaupi á danska
meistaramótinu sem
fram fór í Malmö um
helgina.
Sveinn stórbætti ár-
angur sinn og hljóp á
3.53,59mín. Er það rúm-
um Qórum sekúndum
betra en hann átti innan-
húss og meira að segja
betri tími en hann á best
utanhúss í greininni.
Robert Andersson ann-
ar Kenya-Daninn sem
keppir fyrir Danmörku
ásamt Wilson Kipketer
sigraði í hlaupinu.
Sveinn veitti honum
góða keppni allt hlaupið
og leiddi lengi vel en
varð að gefa eftir á sið-
ustu 200 m.
Arangurinn boðar
gott
Annars leggur Sveinn
aðaláherslu á 3000 metra
hindrunarhlaup og boðar
þessi árangur mjög gott
fyrir sumarið og nýtt ís-
landsmet ætti örugglega
að falla í hindruninni i
sumar.
Sveinn er einn af okk-
ar nýju afreksmönnum
og framtíðarmaður, að-
eins 23 ára og er að nálg-
ast lágmörk á stórmót
eins og HM, EM og
Ólympíuleika. Sveinn
sýndi mikla keppnis-
hörku í hlaupinu og bar
enga virðingu fyrir kepp-
endum sínum og var
ákveðinn í að selja sig
dýrt og það gekk upp.
Gull og silfur hjá
Fríðu
Fríða Rún Þórðardóttir
ÍR keppti í 1500 m hlaupi
kvenna og bætti sinn
besta tíma innanhúss og
hljóp á 4.38,16mín. Þetta
er betri tími en Fríða
hljóp á á sl. ári utanhúss
þannig að hún er greini-
lega á góðri siglingu og
stefnir á Smáþjóðaleika
og var nálægt því að ná
lágmarki til þátttöku þar
með árangri sínum um
helgina. Fríða Rún
keppti í 3000 metra
hlaupi í gær og bar sigur
úr býtum, hljóp á
tímanum 9.51,6 mínútum.
Vilborg Jóhannsdóttir,
UMSS, sjöþrautarkona
stökk langstökk 5,39m og
hástökk 1,61 sem er vel
frambærilegur árangur
fyrir hana en þó ekki
hennar besti. Vilborg
varð einnig þriðja í 60
metra grindahlaupi.
Met hjá Sunnu
Sunna Gestsdóttir,
Tindastóli, sigraði i 200
m hlaupi á norska meist-
aramótinu í frjálsum
íþróttum innahúss í gær
og setti nýtt íslandsmet.
Hún hljóp á 24, 80 sek. og
bætti met Geirlaugar
Geirlaugsdóttur, Ár-
manni, frá árinu 1996 um
5/100 úr sekúndu. Á laug-
ardaginn varð Sunna,
sem búsett er í Noregi og
æfir með liði Raufoss, í
þriðja sæti í 60 metra
hlaupi.
Sunna Gestsdóttir