Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Qupperneq 6
24 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport DV Henning Henningsson, þjálfari KR, fagnar sigri um leið og lokalflautiö gall í Höllinni á laugardaginn. Henning hefur þegar á sínu fyrsta ári sem þjálfari kvennaliðs KR skilaö tveimur titlum í hús. DV-mynd Gaman - átti ekki von á eins góðum leik frá Heather Henning Henningsson, þjálfari KR, var alsæll með sigurinn og þakkaði hann góðu hugarfari leikmanna sinna. „Ég er mjög sáttur. Stelpurnar mættu með gott hugafar og greinlega tilbúnar að spila þennan leik. Miðað við hvernig leikur- inn þróaðist þá var þessi sigur aldrei spurn- ing. Það kom í ljós í morgun að Hanna yrði ekki með en hinar stelpumar þjöppuðu sér saman og kláruðu þetta bara með stæl. Svo spilaði Heather Corby hreint ekki illa þannig að það kom maður í manns stað. En það sýnir styrk að missa besta mann íslandsmótsins til þessa og vinna samt. Við spiluðum svæðisvöm og maður á mann skiptivörn til skiptis eins og við höfum gert í allan vetur og það kemur engum á óvart. Við spilum bara okkar leik og höfum ekkert að fela. Síðan settum við pressuna inn á miUi þegar ákveðin leikatriði voru í leikn- um. Kristín Jónsdóttir spilaði frábæra vöm á Kanann hjá þeim þó svo að hún hefði skorað 30 stig. Að mínu mati leituðu Kefl- víkingar aUtof mikið að henni í sókninni og lögðu allt sitt traust á hana. Ég átti ekki von á eins góðum leik frá Heather og raunin varð. Hún hefur sýnt okkur á æfingum hvað hún getur í vöm og fráköstum en ég vissi ekkert á hverju ég mátti eiga von frá henni í þessum leik. Hún er alveg frábær stelpa. Annars er ég mest ánægður með hugafarið og þá stemningu sem var í byrj- un leiks og það var nákvæmlega það sem við þurftum," sagöi Henning ánægður. Virkilega gaman Heather Corby, ný leikmaður KR, átti frábæran leik og er rétt að komast inn í hlutina hjá liðinu. „Ég var nokkuð stressuð í byrjun leiks þar sem ég var að koma landsins og er bú- in að vera kynnast leikmönnunum siðustu daga og svo kemur svona mikilvægur leikur strax. Þetta eru frábærar stelpur og gaman að spila með þeim. Við erum með góðan þjálfara og fengum góðan stuðning frá áhangendum liðsins i dag. Það kom mér á óvart hvað ég og stelpurnar náðum vel saman í dag. Allar hlakka til að mæta á æf- ingar og allar hafa virkilega gaman af þessu. Liðmenn hér eru kannski lágvaxnari en ég á að venjast en engu að síður eru góð- ir leikmenn hér. Sjálf er ég ekki í neinu toppformi og á eftir komast fljótlega í betra form. Ég átti von á því að fá kannski 2-3 mínútur i hvíld en fannst allt í lagi að spila allan leikinn. Þær fóru að tvídekka mig í leiknum en þá opnuðust skot fyrir hinar stelpurnar og þær hittu gríðarlega vel. Vonandi verður skotnýting okkar áfram svona góð eins og hún var í dag,“ sagði Heather. -BG Bikarúrslit 2001 Kanadískur leikmaður KR, Heather Cor- by, setti þrjú met í bikarúrslitaleik kvenna um helgina. Corby bætti 15 ára stigamet Lindu Jónsdóttur um tvö stig er hún skoraði 35 í leiknum, auk þess sem hún bætti fjögurra ára frákastamet Guðbjargar Norðfjörð með því að taka 17 slík og loks eins árs met Öldu Leifar Jónsdóttur í vörðum skotum með því að verja sex skot Keflavíkurstúlkna á laug- ardag. Kristin Björk Jónsdóttir, fyrirliði KR, kom heldur betur vel stemmd inn í bikar- úrslitaleikinn. Kristin Björk hitti úr fimm fyrstu skotum sínum og gerði átta af fyrstu 10 stigum KR-liðsins í leiknum. Kristín Björk nýtti 8 af 13 skotum sín- um í leiknum en hún hefur gert 98 stig í flmrn leikjum KR gegn Keflavík í vetur og hitt þar úr 47% skota sinna. Hildur Siguróardóttir setti persónulegt met í bikarúrslitaleiknum með því að gefa níu stoðsendingar. Hildur var reynd- ar ekki langt frá því að jafna bikarúrslitaleiksmet Limor Mizrachi frá 1999 því hún var í raun búin að gefa tí- undu stoðsendinguna á Heather Corby sem mistókst að nýta dauðafæri undir körfunni. Hildur og Corby náðu frábær- lega saman í leiknum og það var vel við hæfi að Hildur setti niður síðustu körfu leiksins um leið og flautan gall því auk níu stoðsendinga tók hún átta fráköst og skoraði sjö stig. KR var búió aó tapa sex bikarleikjum i röð gegn Keflavík fyrir bikarúrslitaleik- inn á iaugardag og enn fremur hafði Keflavík unnið fimm bikarúrslitaleiki í röð. KR vann ÍS i undanúrslitaleiknum en að slá út ÍS er farið að þýða að bikar- inn komi í viðkomandi hús. Það lið sem slegið hefur út stúdínur hefur orðið bik- armeistari síðustu fjögur ár og í tólf skipti af síðustu átján. Tvisvar á þeim tíma hefur ekkert lið unnið ÍS og stúdín- ur hampað bikarnum sjálfar. Tölfrœói Heather Corby í leiknum á laugardaginn var annars eftirfarandi, KR-Keflavík 76-58 19-12, 16-13, (35-25), 17-15, 24-18 Q Skot%: 45%(20) - 35%(17) Víti%: 50%(2) - 0 Fráköst (í sókn): 9 (2) - 9 (2) Tapaðir boltan 1-3 0 Skot%: 39%(18) - 29%(17) Viti%: 100%(2) - S0%(2) Fráköst (í sókn): 14 (3) - 9 (1) Tapaðir boltar 4-3 0 Skot%: 18%(17) - 29%(21) Víti%: 83%(6) - 50%(2) Fráköst (í sókn): 14 (3) -13 (4) Tapaðir boltar: 2-2 Q Skot%: 47%(17) - 30%(20) Víti%: 58%(12) - 83%(6) Fráköst (í sókn): 11 (3) -11 (5) Tapaðir boltar. 2-4 4-0, 4-2, 12-2, 13-6, 19-8, (19-12), 21-12, 25-14, 29-19, 29-22, 35-22, (35-25), 35-27, 37-32, 48-32, 48-36, 52-36, (52-40), 54-40, 54-44, 58-46, 61-53, 66-53, 71-56, 71-58, 76-58. Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson og Eggert Þór Aðalsteinsson (9), Gœöi leiks (1-10): 8. Áhorfendur: 600. ÍPsamanburður^Í 40% Skotnýting 31% 48 Fráköst 42 11 Sóknarfráköst 12 14/3 3ja stiga skot 18/5 25 Stoösendingar 14 68% Vítanýting 70% 9 Tapaöir boltar 12 16 Villur 19 Leikmenn KR Mfn Skot 3ja stiga Víti Fráköst (só-vö) Stoö Vi Fvi Bt Bn Vs Stig Heather Corby 40 25/13 (52%) 0 14/9 (64%) 17 (3-14) 5 0 10 3 3 6 35 Kristín Björk Jónsdóttir 36 13/8 (62%) 1/0 (0%) 2/2 (100%) 5(2-3) 4 4 2 2 1 0 18 Hildur Sigurðardóttir 40 14/3(21%) 5/1 (20%) 2/0 (0%) 8(2-6) 9 2 2 2 0 1 7 Helga Þorvaldsdóttir 28 9/2 (22%) 3/1 (33%) 2/2 (100%) 5(0-5) 2 0 1 0 0 0 7 Gréta Maria Grétarsdóttir 37 6/1 (17%) 3/1 (33%) 2/2 (100%) 11 (2-9) 5 4 4 2 3 1 5 Guðbjörg Norðfjörð 12 5/2 (40%) 2/0 (0%) 0 2(2-0) 0 5 0 0 0 0 4 Sigrún Skarphéðinsdóttir 7 0 0 0 0 0 1 0 0 1 0 0 Birna Eiriksdóttir 0 Guðrún A. Sigurðardóttir 0 Maria Káradóttir 0 Samtals 200 72/29 (40%) 14/3 (21%) 22/15 (68%) 48 (11-37) 25 16 19 9 8 8 76 Leikmenn Keflavfkur Mín Skot 3ja stiga Víti Fraköst (só-vö) Stoö Vi Fvi Bt Bn Vs Stig Brooke Schwartz 40 28/12 (43%) 5/1 (20%) 6/5 (83%) 14 (6-8) 4 3 7 5 3 0 30 Erla Þorsteinsdóttir 37 18/5 (28%) 3/2 (67%) 0 6(0-6) 0 4 1 0 2 2 12 Svava Ósk Stefánsdóttir 27 4/3 (75%) 1/0 (0%) 2/1 (50%) 6(0-6) 1 2 2 2 0 2 7 Marín Rós Karlsdóttir 29 8/2 (25%) 3/1 (33%) 0 5(1-4) 3 1 1 1 0 0 5 Kristín Blöndal 27 10/1 (10%) 5/1 (20%) 2/1 (50%) 2(1-1) 6 3 3 0 0 0 4 Bima Valgarðsdóttir 21 5/0 (0%) 1/0 (0%) 0 2 (1-1) 0 5 1 3 1 3 0 Guðrún Ósk Karlsdóttir 16 2/0 (0%) 0 0 6(3-3) 0 0 1 1 0 1 0 Theódóra Káradóttir 3 0 0 0 1(0-1) 0 1 0 0 0 0 0 Bonnie Lúðvíksdóttir 0 Sigriður Guðjónsdóttir 0 Samtals 200 75/23 (31%) 18/5 (28%) 10/7 (70%) 42 (12-30) 14 19 16 12 6 8 58 Maður leiksins: Heather Corby, KR Skammstafanir Mín=Mínútur spilaðar, Skot=Skotnýting úr 2ja og 3ja stiga skotum, Só=sóknarfráköst, Vö=vamarfráköst, Stoð=Stoðsendingar, Vi=Villur, Fvi=Fiskaðar villur, Bt=Tapaðir boltar, Bn=Boltum náð, Vs=Varin skot. skipt niður á leikhlutana fjóra: 1. leikhluti: 7 stig, 3 fráköst, 3 varin skot, 2 stoðsendingar, 1 stolinn, hitti úr 3 af 6 skotum (50%) og 1 af 2 vítum. 2. leikhluti: 10 stig, 7 fráköst, 1 varið skot, 1 stoðsending, 1 stolinn, hitti úr 4 af 10 skotum (40%) og 2 af 2 vítum. 3. leikhluti: 9 stig, 5 fráköst, 1 varið skot, hitti úr 3 af 5 skotum (60%) og 3 af 4 vít- um. 4. leikhluti: 9 stig, 2 fráköst, 1 varið skot, 2 stoðsendingar, 1 stolinn, hitti úr 3 af 4 skotum (75%) og 3 af 6 vítum. Birna Valgarðsdóttir náði ekki að skora stig á 21 mínútu en Birna er stiga- hæsti leikmaður Keflavíkurliðsins, með 14,1 stig að meðaltali í ieikjum vetrarins fyrir bikarúrslitaleikinn um helgina. Erla Þorsteinsdóttir, miðherji Keflavík- ur, varð að sætta sig við sitt fyrsta tap í bikarúrslitaleik eftir að hafa sex sinnum fagnað bikarnum. Erla, sem hafði nýtt 57% skota sinna i siðustu fimm deildar- leikjum, nýtti aðeins 28% þeirra á laugar- dag og, það sem meira er, hún fékk ekk- ert víti í leiknum. Guóbjörg Noröfjörö hjá KR lék sinn átt- unda bikarúrslitaleik og fagnaði sínum þriðja bikarmeistaratitli. Guðbjörg skor- aði sínar fyrstu körfur utan af velli eftir barnsburð og komst með þeim í fjórða sætið yfir stigahæstu leikmenn bikarúr- slitaleiks kvenna frá upphafi. Guðbjörg hefur skorað 81 stig i átta bikarúrslita- leikjum sínum. Guðbjörg varð líka fyrsta konan til að vinna bikarúrslitaleik gegn Keflavík i annað sinn en Keflavik hefur aðeins tapað þremur af þrettán bikarúr- slitalejkjum sínum í kvennaílokki. -ÓÓJ Erla Þorsteinsdóttir, lykilmaöur Keflavíkurliðsins, komst lítiö áleiöis gegn Heather Corby (til hægri) og varö aö sætta sig við sín fyrstu silfurverðlaun í bikarúrslitaleik. Kristinn Óskarsson, þjálfari Keflavíkur: Flæðið vantaði Kristinn Óskarsson bar sig vel eftir tapiö en var engu að síður óhress með silfurverðlaunin. „Við töpuðum fyrir góðu liöi sem kom vel undirbúið. Við lentum strax undir og við það riðlaðist þetta svolít- ið hjá okkur. Brooke Schwartz, sem spilaði frábærlega, tók af skarið en reyndi stundum fullmikið og í kjölfar- ið vantaði meira flæði í sóknarleikinn hjá okkur. Þær komu boltanum ekki inn á Erlu og svo var Birna Valgarðs- dóttir alveg út úr leiknum. KR-stelpur komu ákveðnari til leiks og svo var nýi erlendi leikmaðurinn mjög góður. Það vantaði Hönnu Kjartansdóttur hjá KR en hinar þjöppuðu sér grein- lega vel saman. Henning á hrós skilið fyrir. Nú verðum við bara vinna í þeim hlutum sem þarf að laga og koma betur undirbúin," sagði Krist- inn þegar DV-Sport hitti hann eftir leikinn. -BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.