Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Side 9
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
27
Sport
Lið aldarinnar í
karlaflokki
Hér til vinstri eru verö-
launahafar hjá körlunum.
Taliö frá vinstri: Friörik Ingi
Rúnarsson, aöstoöarþjálf-
ari liös aldarinnar, Jón Otti
Ólafsson, besti dómarinn,
Torfi Magnússon, Guö-
mundur Bragason, Pétur
Guömundsson, Símon
Ólafsson, Valur Ingimund-
arson og Einar Bollason,
besti þjálfarinn og leikmaö-
ur liösins.
Neöri röö frá vinstri: Leifur
Garöarsson aöstoöardóm-
ari, Teitur Örlygsson,
Pálmar Sigurðsson, Kol-
beinn Pálsson, Porsteinn
Hallgrímsson, Jón Sig-
urösson og Jón Kr. Gísla-
son.
DV-myndir PÖK
Lið aldarinnar hjá KKI tilkynnt í bikarúrslitaleikjunum á laugardaginn:
kempur heiðraðar - Einar Bollason, spilandi þjálfari - mæðgur í kvennaliðinu
Fjörutíu ára afmælishátlð
Körfuknattleikssambands íslands fór
fram um helgina. Sambandið kynnti
bæði glæsilega bók um sögu körfu-
boltans og kallaði einnig saman besta
körfuboltafólk síðustu aldar á bikar-
úrslitaleikjunum tveimur sem fram
fóru í Höllinni á laugardag.
KKÍ hafði kallað saman góðan hóp
körfuboltaáhugafólks til að velja
saman tólf manna lið aldarinnar í
bæði karla- og kvennaflokki, sem og
besta þjálfarann, besta dómarann og
besta leikmann aldarinnar í karla- og
kvennaflokki.
Valinn var 50 manna dómanefnd í
karlaflokki og 25 mann dómnefnd 1
kvennaflokki. Gunnar Freyr Steins-
son, umsjónarmaður heimasíðu KKl
og heimasíðu KKDÍ, hafði veg og
vanda af þessari kosningu og afhenti,
ásamt Ólafi Rafnssyni, formanni
KKÍ, þeim leikmönnum sem komust í
liðið verðlaunaskjöld til minja.
Ýmsir skemmtilegir hlutir voru ör-
ugglega rifjaðir upp í þessum góðra
vina hópi en athygli vakti að karla-
liðið tefldi fram spilandi þjálfara og í
kvennaliðinu voru mæðgur.
Haföi þjálfaö alla
Einar Bollason, sem þjálfaði bæði
KR, Hauka og islenska landsliðið
með árangri, var valinn besti þjálfar-
inn og hann var einnig í liði aldar-
innar sem leikmaður. Það vakti
mikla kátínu að Einar hafði líka
þjálfað alla hina 11 leikmennina í liði
aldarinnar á ferli sinum sem þjálfari.
Aðastoðarþjálfari Einars var valinn
Friðrik Ingi Rúnarsson.
Pétur Guðmundsson, eini íslend-
ingurinn sem hefur komist í NBA-
deildina, var valinn besti leikmaður
aldarinnar og þeir Jón Otti Ólafsson
og Leifur Garðarson bestu dómararn-
ir.
í karlaliðið völdust eftirtaldir leik-
menn: Byrjunarliðið skipuðu þeir
Jón Sigurðsson, Jón Kr. Gíslason,
Teitur Örlygsson, Valur Ingimundar-
son og Pétur Guðmundsson. Aðrir
leikmenn eru Þorsteinn Hallgrims-
son, Pálmar Sigurðsson, Kolbeinn
Pálsson, Torfi Magnússon, Símon
Ólafsson og Einar Bollason, KR.
Anna María Sveinsdóttir var valin
besti leikmaður aldarinnar en hún
gat því miður ekki verið viðstödd þar
sem hún eignaðist barn í vikunni á
undan. Kvennaliðið innihélt mæðgur
því Kolbrún Leifsdóttir og dóttir
hennar, Alda Leif Jónsdóttir, voru
báðar valdar í liðið, Kolbrún sem
miðherji og Alda Leif sem bakvörð-
ur.
í kvennaliðið völdust eftirtaldir
leikmenn: Byrjunarliðið skipuðu þær
Björg Hafsteinsdóttir, Linda Jóns-
dóttir, Linda Stefánsdóttir, Guðbjörg
Norðfjörð og Anna María Sveinsdótt-
ir. Aðrir leikmenn eru Emilia Sig-
urðardóttir, Erla Reynisdóttir, Alda
Leif Jónsdóttir, Hafdís Helgadóttir,
Hanna Kjartansdóttir, Erla Þor-
steinsdóttir og Kolbrún Leifsdóttir.
-ÓÓJ
Lið aldarinnar hjá konunum
Hér til hægri er liö aldarinnar í kvennaflokki. Efri
röð frá vinstri: Kolbrún Leifsdóttir sem tók einnig
viö verölaunum dóttur sinnar, Öldu Leifar
Jónsdóttur, sem var aö spila í Danmörku, Emilía
Sigurðardóttir, Linda Stefánsdóttir og Erla
Porsteinsdóttir. Neðri röö frá vinstri: Hafdís
Helgadóttir, Guöbjörg Noröfjörö sem tók einnig
við verölaunum Hönnu B. Kjartansdóttur sem var
veik, Helga Ragnarsdóttir sem tók viö verö-
launum dóttur sinnar, Erlu Reynisdóttur, sem er
viö nám erlendis, Björg Hafsteinsdóttir sem tók
einnig viö verölaunum Önnu Maríu Sveinsdóttur
sem er aö ná sér eftir barnsburö og loks Linda
Jónsdóttir. Anna María Sveinsdóttir, hér aö
neöan, var kosin besti leikmaöur aldarinnar í
kvennaflokki.