Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Qupperneq 15
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001
33
Sport
Gustar héldu vetrarleika ný-
lega. í pollaflokki sigraði Guðný
Birna Gudmundsdóttir á Litla-
Rauð frá Svignaskarði, í bama-
flokki Freyja Þorvaldsdóttir á
Teklu frá Reykjavík, í unglinga-
flokki Vala Dís Birgisdóttir á
Kolgrími frá Hellnatúni, í ung-
mennaflokki Sigridur Þorsteins-
dóttir á Gusti frá Kópavogi, í
kvennaflokki Birgitta D. Krist-
insdóttir á Nótt frá Hlemmiskeiði,
í karlaflokki Haraldur Gunnars-
son á Geisla frá Akureyri og í
heldri manna flokki Victor
Ágústsson á Kyndli frá Bjarna-
nesi.
Nokkrir knapar hafa þegar
verið valdir á ísmótið í Danmörku,
sem verður haldið 31. mars. Fyrir
Danmörk keppa: Jóhann Rúnar
Skúlason á Snarpi frá Kjartans-
stöðum, Þórður Púl ni Jónsson á
Svip frá Katulabo, Anne Balslev á
Hrammi frá Þóreyjarnúpi, Isa-
belle Felsum á Garpi frá Hemlu,
Lone Banke á Tinna frá Lækjar-
dal, Höskuldur Þrdinsson á Vor-
dísi frá Aðalbóli, Sigurður Ósk-
arsson á Káti frá Stördal og Mette
Logan á Austri frá Austurkoti.
Fyrir Noreg keppa: Stian Pett-
erson á Trúum frá Wethsinge, Eg-
ill Þórarinsson á Spegli frá
Kirkjubæ og Rune Svendsen á
Skorra frá Hvítanesi. Fyrir Sví-
þjóð keppa: Göran Montan á
Þræði frá Hvítárholti, Reynir Örn
Púlmason á Funa frá Hvítárholti,
Alexandra Montan á Hlyni frá
Blesastööum og Gurri Ágústsson
á Rauðhettu frá Steinholti.
Elsa Albertsdóttir sigraði í
opnum flokki á töltmóti Neista í
Reiðhöllinni Arnargerði á Blöndu-
ósi og stýrði hún Kjarki. Keppend-
ur voru 19. Finnur Björnsson
sigraði í flokki áhugamanna á
Loksins.
Þútttaka ú fyrra vetrarmóti
Fáks var mikil. í pollaflokki sigr-
aði Eva María Þorvarðardóttir á
Neista frá Bakka, í barnaflokki
sigraði Sara Sigurbjörnsdóttir á
Fógeta frá Oddhóli, í unglinga-
flokki sigraði Signý Ásta Guð-
mundsdóttir á Straumi frá Hofs-
staðaseli, í ungmennaflokki sigr-
aði Guöni S. Sigurðsson á Takti
frá Stóra-Hofi, í kvennaflokki I
sigraði Mirja Plischke á Hyl frá
Stóra-Hofi, í kvennaflokki II sigr-
aði Hallveig Fróðadóttir á
Pardusi frá Hamarshjáleigu, i
karlafokki I sigraði Auðunn
Valdemarsson á Skunda frá
Grenstanga og í karlaflokki II
Ragnar Tómasson á Tinna frá
Heiði.
Sjö hestamannafélög á höfuð-
borgarsvæðinu standa að æsku-
lýðsmóti 11. mars í Reiðhöllinni í
Reykjavík. Tilgangurinn með
æskulýðsdeginum er aö sýna það
sem er að gerast í hestamannafé-
lögunum en þar er unnið mikið
æskulýðs- og forvamarstarf. Þema
dagsins er vímulaus æska.
Æskulýðsdagurinn var fyrst
haldinn árið 1996 í Reiðhöll Gusts
en fljótlega braut umfang sýning-
anna af sér öll bönd og var sýning-
in flutt í Reiðhöllina í Reykjavík.
Von er á heimsókn Spænska reið-
skólans í Vín og Jóhanna Guörún,
söngkonan unga, kemur og syng-
ur. Ungmenni úr hestamannafé-
lögunum eru með atriði, fimleika-
flokkur úr Gerplu sýnir listir sín-
ar og að lokum kemur íþróttaálf-
urinn í heimsókn. Dagskráin byrj-
ar kl. 14 en húsið opnar kl. 13 Öll
börn fá gefins bol merktan æsku-
lýðsdeginum i boði Búnaðarbank-
ans í Grafarvogi, Emmessís býður
upp á ís og yngstu börnunum er
boðið upp á andlitsmálun. F T
Nýstárlegar stóöhestasýningar
Að sögn Ágústs Sigurðssonar,
landsráðunautar I hrossarækt,
eru ekki fyrirsjánlegar neinar
breytingar á reglum eða öðru
tilheyrandi dómkerfinu fyrir
kynbótahross næsta sumar.
Dómsstaðir verða þeir sömu
og dómar á svipuðum tíma og
undanfarin ár. Byrjað verður
um 20. maí. Áætlað er þó að gera
tilraun með skemmtilega nýj-
ung þar sem boðið verður upp á
stóðhestadóma á þremur stöðum
í lok apríl. Það er i Skagafirði,
Hellu og Reykjavík. Hæst
dæmdu stóðhestunum verður
boðið að koma á sýningu í Reið-
höllinni í Reykjavík um mán-
aðamótin apríl/maí þar sem
þeir yrðu kynntir með nýstár-
legum hætti en á þeirri sýningu
verður nú lögð meiri áhersla á
hrossarækt en verið hefur.
Stærð sýninganna fer eftir þátt-
töku en gert er ráð fyrir einum
degi á hverjum stað.
Fundarstaðir
19.2. Höfn - Hótel Vatnajökull
20.2. Egilsstaðir - Valaskjálf
21.2 Eyjafjörður - Hrafnagils-
skóli
26.2. Mosfellsbær - Harðarból
27.2. Borgaríjörður - Hvanneyri
28.2. Sauðárkrókur - Ljósheimar
1.3. Blönduós
2.3. Ölfus - Ingólfshvolur
Fundirnir hefjast kl. 20.30.
-EJ
Ágúst Sigurösson viö dómsstörf ásamt Víkingi Gunnarssyni og Jóni Vilmundarsyni.
DV-mynd Eiríkur Jónsson
„Ræðum það sem
er efst á baugi“
segir Agúst Sigurðsson landsráðunautur í hrossarækt
Síðastliðinn mánudag hófst
fundaherferð aðila sem tengjast
hestamennsku á víðum grund-
velli. Þetta eru: Ágúst Sigurðs-
son, landsráðunautur í hrossa-
rækt, Ólafur H. Einarsson, for-
maður Félags tamningamanna,
Kristinn Guðnason, formaður Fé-
lags hrossabænda, Hulda
Gústafsdóttir, verkefnisstjóri
átaks í hestamennsku og Jón A.
Sigurbjörnsson, formaður Lands-
sambands hestamannafélaga.
„Fyrir ári var gerður samning-
ur við ríkið um átaksverkefni, að
koma gæðahugtakinu betur að í
hestamennsku og hrossarækt,"
segir Ágúst Sigurðsson.
„Hluti af þessu átaksverkefni
er til dæmis Veraldarfengur -
gagnagrunnur fyrir íslenska
hrossarækt, markaðsmál og
menntakerfi fyrir hestamennsku
þar sem reiðkennsla er stiguð frá
A-ö. Það er ekki búið að klára
það mál, það er í vinnslu, verið
að útfæra kennsluefni og þess
háttar.
Tilgangurinn með fundaferð-
inni er að kynna stefnumótun
sem við höfum verið að vinna að
í þessu átaki fyrir hestageirann
og einnig að ræða við hestamenn
um það sem er efst á baugi í
þeirra málum.
Þetta hefur ekki verið gert með
þessum hætti áður. Við Kristinn
Guðnason höfum farið fundaferð
um landið á sama tíma undanfar-
in tvö ár en ákveðið var að bæta
í flotann núna, meðal annars i
tilefni af þessu átaksverkefni
sem öll félögin standa saman að.
Hulda Gústafsdóttir verður
með aðalframsögnina en einnig
verður stutt framsögn hjá hverj-
um aðila. Þeir munu reifa það
sem er efst á baugi hjá félögum
sinum.
Það var byrjað á Höfn í Horna-
firði, svo var farið til Egilsstaða
þá Akureyrar og þannig koll af
kolli. Farið verður á átta staði
um landið á tveimur vikum með
smá hléi.
„Getum flutt út ferskt
sæöi“
„Það sem mig langar meðal
annars að ræða við hestamenn er
útflutningur á tækniteknu erfða-
efni. Ég ætla að reyna aö varpa
ljósi á það um hvað er að ræða -
draga fram staðreyndir. Það er
ný staða og við verðum að átta
okkur á hverjir eru kostirnir og
ógnanirnar. Það er ljóst að þetta
eykur hróður íslenska hesta-
kynsins því hér eru bestu hross-
in og með þessu yrði aðgangur
erlendra ræktenda greiðari að
því besta. Hitt er annað að þetta
getur haft vissar markaðslegar
breytingar í for með sér. Það er
ekkert sem bannar þetta og þetta
er hægt miðað við fersksæðingar
i dag en djúpfrysting er ekki
möguleg enn sem komið er.
Það þarf að ræða fleiri hluti,
meðal annars hvernig við getum
hagrætt, gert félagskerfið skil-
virkara og hafið nýja sókn í
markaðsmálum. Menn vilja
gjarnan ræða það. Þess vegna
forum við saman á þessa fundi.
Ég vona að mæting verði góð.
Það er ástæða fyrir menn að
koma núna þegar allir forsvars-
menn hestamennskunnar eru á
einum stað. Mér hefur heyrst á
mönnum að þeir ætli að mæta,“
segir Ágúst.
Eiríkur Jónsson
V