Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Qupperneq 4
18
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
Olafur ekki til Clydebank
Nú er ljóst að knatt-
spyrnumaðurinn Ólafur
Páll Snorrason fer ekki til
reynslu til skoska liðsins
Clydebank. Voru allar
aðstæður þar aðrar en lofað
var í fyrstu.
Ólafur verður því áfram
í herbúðum Bolton Wander-
ers. Honum hefur gengið
mjög vel í leikjum með
varaliðinu undanfarna
mánuði og skorað talsvert
af mörkum. Engu að síður
er hann ekki inni í mynd-
inni hjá framkvæmdastjóra
Bolton, Sam Allardyce.
Samkvæmt heimildum
DV-Sport er Ólafur Páll
ánægður með allt hjá
Bolton nema að fá ekki
tækifæri með aðalliðinu.
Ólafur lék með Vals-
mönnum í 1. deildinni í
sumar en fann sig ekki
nægilega vel með
Hlíðarendaliðinu.
-SK
Evander Holyfield er staðráð-
inn í því að endurheimta
heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt hjá WBA-sambandinu er
hann mætir landa sinum John
Ruiz í hringnum aðfaranótt
næsta sunnudags.
Þeir félagar börðust á siðasta
ári og þá vann Holyfield mjög
nauman sigim á stigum eftir 12
lotu bardaga. Nú segist sá
gamli vera sem táningur og
það verði allt annað að sjá
hann um næstu helgi. Ekki er
ólíklegt að Holyfield berjist við
Mike Tyson eða Lennox Lewis
ef honum tekst aö afgreiða
Ruiz.
Dallas Mavericks hefur fest
kaup á bakverðinum Vernon
Maxwell sem er 35 ára og lék
síðast með 76ers í NBA-deild-
inni. Maxwell, sem hefur átt í
útistöðun við laganna verði
síðustu misserin, meðal ann-
ars vegna eiturlyfjaneyslu,
mun styrkja lið Dallas i úr-
slitakeppninni.
Ron Dennis, keppnisstjóri
McLaren-liðsins í Formula 1,
svaraði í gær nokkurri gagn-
rýni sem fram hefur komiö
undanfarið varðandi lítinn
áreiðanleika McLaren-bílanna
i Formúlunni. Hafði þessi
gagnrýni komið í kjölfar um-
ræðu um að báðir McLaren-bíl-
arnir duttu út í fyrstu keppni
ársins i Ástralíu í fyrra.
Dennis sagði að ekki væri rétt
að saka McLaren um að tefla
fram bilum sem ekki væru
nægilega áreiðanlegir. „Þvert á
móti erum við með þá bila sem
reynst hafa hvað áreiðanleg-
astir i sögu Formúlu 1. Þessi
gagnrýni á því ekki viö rök að
styðjast. Ég get sagt þaö sem
mína skoðun að ég vil frekar
tefla fram hraðskreiðum bíl
sem hugsanlega dettur úr
keppni endrum og eins heldur
en hægfara bil sem aldrei dett-
ur úr keppni."
Violeta Beclea-Szekely, annar
besti langhlaupari kvenna í
Rúmeníu, hefur ákveðið að
stefna besta langhlaupara
Rúmeníu, Gabrielu Szabo.
Þetta er skrautleg uppákoma
því báðar hafa þær verið vald-
ar til aö keppa fyrir hönd Rúm-
eníu á HM innanhúss í Lissa-
bon í næstu viku.
Ástæðan fyrir því aö Beclea-
Szekely ætlar að draga Szabo
fyrir dómstóla í Rúmeníu er
ummæli hennar í sjónvarps-
viðtali á dögunum en þar sagði
Szabo að Beclea-Szekely hefði
ekki veriö boðiö á Grand-Prix
mót í Stuttgart á dögunum og
menn hefðu ekki kært sig um
nærveru hennar. í lok viðtals-
ins heyrðist síöan er Szabo bað
fréttamanninn um að birta
ekki ummælin en hann varð
ekki við þeirri beiðni.
Jim Smith, framkvœmda-
stjóri Derby County, segir að
Þórður Guðjónsson geti leikið
mikilvægt hlutverk á miðjunni
hjá Derby. Nú hefur verið
gengið frá því að Þórður geng-
ur til liðs við enska úrvals-
deildarliðið en hann hefur ver-
ið lánaður frá liði sínu Las
Palmas til loka keppnistíma-
bilsins. Þá hefur Derby rétt á
að festa kaup á Þórði ef það vill
fá hann til langframa.
Jim Smith segir í viötali á
heimasíöu Derby að Þóröur sé
skapandi miðvallarleikmaður
sem geti fært líf í sóknarleik
liðsins. Smith segir að Derby
hafi goldið þess aö Giorgi
Kinkladze sé meiddur og
Stefano Eranio að eldast og
bindur hann vonir við að Þórð-
ur komi til með að styrkja
miðjuspil liðsins. Sem kunnugt
er hittir Þóröur fyrrum félaga
sinn frá Genk, Branko Strupar,
hjá Derby. -SK
Sóknarmaðurinn Andri Sigþórs-
son gekk til liðs við Austria Salzburg
síðastliðið haust eftir sögulega fé-
lagsskiptarimmu við félag sitt, KR.
Andri fór út til Austurríkis í byrjun
nóvember og lék nokkra leiki með
liðinu fyrir vetrarfrí sem hófst
snemma í desember. Hann hefur æft
af krafti með liðinu undanfama tvo
mánuði og farið mikinn í æfinga-
leikjum síðustu vikurnar. Andri hef-
ur skorað fjögur mörk og virðist
vera klár í slaginn á laugardaginn
þegar austurríska 1. deildin hefst á
ný. Þá mætir Salzburg, sem er í
sjötta sæti deildarinnar, næstneðsta
liðinu, Adm/Moldling, á heimavelli.
Hlakka til
„Ég hlakka mikið til leiksins á
laugardaginn. Ég er búinn að æfa vel
síðustu tvo mánuði og hefur gengið
vel í æfingaleikjum undanfarið. Okk-
ur hefur ekki gengið vel í vetur en
ætlum að snúa við blaðinu nú eftir
frí. Ég býst fastlega við þvi að byrja
inn á í leiknum á laugardag og þá
fyrst kemur í ljós hvar maður
stendur. Mér finnst ég samt vera í
toppformi, bæði líkamlega og
andlega," sagði Andri Sigþórsson.
Finn fyrir pressu
„Ég finn fyrir töluverðri pressu.
Ég hef skorað í fjórum æfingaleikj-
um í röð og ef marka má fjöl-
miðlaumfjöllun hér þá búast menn
við því að ég eigi eftir að raða inn
mörkum. Ég læt þessa pressu þó
ekki hafa nein sérstök áhrif á mig.
Ég hef alla tíð gert miklar kröfur til
sjálfs mín og ætla mér að standa
mig.“
Hraðinn kemur á óvart
„Austurríska knattspyrnan er til
muna betri heldur en ég átti von á
þegar ég kom út. Hraðinn er mikill
og liðin eru mörg hver mjög sterk.
Þetta er ólíkt þýsku deildinni nema
hvað allt er minna í sniðum. Þjálfar-
inn er frábær, með mikla reynslu og
ég er ekki í nokkrum vafa um að ég
á eftir að bæta mig hérna í Salz-
burg.“
Líður vel
„Við erum búin að koma okkur
vel fyrir héma í Salzburg," segir
Andri sem býr úti ásamt Kristínu
unnustu sinni og Eyþóri, tveggja ára
syni þeirra. „Öllum líður vel og það
hefur verið sérstaklega gaman að
fylgjast með því hversu vel Eyþór,
sonur okkar, hefur náð að aðlagast
hlutum hér á skömmum tíma,“
sagði Andri Sigþórsson, atvinnumað-
ur hjá Salzburg í Austurríki í sam-
tali við DV-Sport í gær. -ósk
Rahlves líklegur
Um helgina halda karlkyns þátttakendur í heimsbikarkeppninni í
skíðum til Kvitfjell í Noregi þar sem keppt verður tvisvar í bruni og svo
einnig í risasvigi. Þó svo að stigakeppnin 1 þessum greinum sé að mestu
óspennandi fyrir aðra en Austurríkismenn, þar sem efstu þrir menn í
hvorri grein eru þaðan, þykir Bandarikjamaðurinn og heimsmeistarinn í
risasvigi, Daron Rahlves, líklegur til afreka um helgina.
Fjórir af fimm bestu áröngrum Rahlves í heimsbikarkeppninni til þessa
náðust í Kvitfjell og síðasta ár vann hann þar tvo sigra í bruni, sína fyrstu
og reyndar einu heimsbikarsigra. Það er ekki einsdæmi að Rahlves og
landar hans nái árangri í Kvitfjell því hvergi hafa Bandaríkjamenn verið
eins sigursælir og í Noregi. Að sama skapi má segja að Austurríkismenn
hafi hvergi fagnað sjaldnar sigri á undanfornum árum. -esá
Hörkurimma
Það þurfti fimm hrinu leik til þess að knýja fram úrslit í leik Stjörnunn-
ar og Þróttar R. í gærkvöld, en gestimir lögðu heimaliðið, 3-2, en hrinurn-
ar enduðu 20-25, 25-21, 25-17, 22-25,13-15. Leikmenn Þróttar mættu ákveðn-
ir til leiksins og það var greinilegt að þeir ætluðu að selja sig dýrt, sérstak-
lega eftir að liðið endurheimti Einar Ásgeirsson sem hefur ekki verið með
í vetur. Stjarnan byrjaði betur í úrslitahrinunni og liðið hafði forustu í
hrinunni allt þar til í lokin að leikmenn Þróttar létu heimaliðið kyngja
beiskum ósigri eftir að þeir náðu að jafna, 13-13. Einar Ásgeirsson lék best
í liöi Þróttar í gærkvöld og var sterkur á kantinum og skilaði vel í sókninni
Emil Gunnarsson var öflugur framan af leiknum hjá Stjörnunni en datt svo
niður eftir því sem uppspilið versnaði Það má segja að leikurinn sé hugs-
anlega forsmekkur að því sem koma skal þar sem ljóst er að liðin munu
mætast í úrslitakeppni íslandsmótsins. -GHÞ
Andri Sigþórsson fagnar hér marki á KR-vellinum gegn Fylki síðastliðið sumar. Vonandi fær hann einnig tækifæri til að fagna á laugardaginn kemur
dfWfÍÞ þegar lið hans Austria Salzburg leikur sinn fyrsta leik eftir vetrarfrí. Andri hefur verið að skora í æfingaleikjunum og er til alls líklegur.
I toppformi
- Andra Sigþórssyni líkar lífið vel í Salzburg í Austurríki