Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
I>V
Fréttir
Manndrápið að Leifsgötu:
Kyrktur með
berum höndum
- ákærða kveðst saklaus en saksóknari segir hana reyna að firra sig ábyrgð
Leifsgata 10
Hallgrími Elíssyni var ráöinn bani í þessari íbúö í júlí í fyrra. Aöaimeöferö
mátsins lauk í Héraösdómi Reykjavíkur í gær, en 39 ára kona hefur veriö
ákærö fyrir aö vera völd aö dauöa hans. Konan kveöst saklaus af ákærunni.
Málflutningi í aðalmeðferð mann-
drápsmáls að Leifsgötu í Reykjavík
23. júlí síðastliðinn lauk í gær. Hall-
grími Elíssyni, 47 ára gömlum
Reykvíkingi, var ráðinn bani í kjall-
araíbúðinni en hann var gestkom-
andi í íbúöinni þennan sunnudag
ásamt tveimur mönnum þar af öðr-
um húsráðanda og ákærðu.
Tæplega fertug kona, Bergþóra
Guðmundsdóttir, hefur verið ákærð
fyrir aö bana Hallgrími en hún
kveðst saklaus af ákærunni þótt
hún hafi alltaf viðurkennt að hafa
lent í átökum við hinn látna.
Kyrktur með berum höndum
Sérfræðingurinn sem krufði Hall-
grím sagði dauða hans hafa borið að
með þeim hætti að haldið var með
berum höndum, annarri eða báðum,
um háls hans og þrengt að æðum svo
blóðstreymi stöðvaðist til heilans. Lík
Hallgríms var með mikla áverka á
hálsi er það fannst sem endurspeglaði
kraftinn sem notaður var til verksins.
Ekki gat sérfræðingurinn þó sagt til
um það hvort um eina atlögu að hon-
um var að ræða eða fleiri.
Hallgrímur hafði verið látinn í
nokkra klukkutíma þegar lögregluna
bar að garði. Stúlkan sem fann lík
Hallgríms í annars mannlausri íbúð-
inni aðfaranótt mánudagsins, og
hringdi á lögregluna, bar vitni fyrir
dómnum í gær. Hún sagði frá heim-
sókn sinni í íbúðina fyrr um daginn,
þar sem hún hafði tekið eftir því að
Hallgrímur var illa haldinn og vildi
fara á sjúkrahús.
„Hann var orðinn hálf rotaður. Ég
vildi ekki skipta mér af þessu, ég
vissi bara að Begga sagði að þessi
maður væri búinn að fá nokkur högg
og ætti eftir að fá fleiri,“ sagði stúlk-
an. Verjandi Bergþóru, Hilmar Ingi-
mundarson, benti dómurunum á að
enginn vinskapur væri á milli kvenn-
anna tveggja, þar sem þær voru báð-
ar hrifnar af sama manninum.
„Gaf honum ekki einu sinni
blóönasir"
„Ég gaf honum ekki einu sinni
blóðnasir," sagði Bergþóra fyrir
dómi í gær. Við aðalmeðferð máls-
ins hefur hún haldið því fram að
hún hafi orðið vitni að því að ann-
ar mannanna, sem í íbúðinni voru
þennan dag ásamt henni og Hall-
grími, tók hinn látna kverkataki.
Bergþóra hefur ekki gefið þessa
skýringu áður við yfirheyrslur
lögreglunnar.
Saksóknari, Sigríöur Friðjóns-
dóttir, taldi þetta ekki vera trú-
verðuga skýringu og sagði þaö lík-
legra að Bergþóra væri að reyna
aö firra sig ábyrgð. Hún er jafn-
framt ákærð fyrir að ræna 100.000
krónum af hinum látna, sem og
fyrir búðarþjófnað fyrr um sumar-
ið. Bergþóra hélt því fram í réttar-
sal að Hallgrímur hafi rétt henni
peningana og að hún hafi ekki ætl-
að að stela matvælunum úr versl-
uninni heldur að fá vörurnar lán-
aðar.
Saksóknari sagði Bergþóru oft
hafa orðið missaga í yfirheyrslum
lögréglu en Hilmar Ingimundarson,
verjandi hennar, taldi það eðlilegt
að „blæbrigði" væru á sögu Berg-
þóru þar sem sá sem grunaður er
um að hafa framið morð segir oft
ekki margt til að byrja með viö lög-
regluyfirheyrslur.
Við yfirheyrslur í dómsal hefur
komið fram að á meðan tímasetn-
ingar annarra vitna, svo sem ná-
granna, standast nokkum veginn
samanburð sín á milli, passi þær
ekki við þær tímasetningar sem
Bergþóra hefur fullyrt að séu réttar.
Jafnframt benti saksóknari á að
geðlæknir sagði Bergþóru vera
haldna persónuleikaröskun, vera
tortryggna og fljóta að skipta skapi.
Geðlæknirinn sagði einnig að fólk
með persónuleikatruflanir getur
skaðað sjálft sig og aðra.
Gloppótt mlnni málsaðila
Erfiðlega hefur gengið að setja
saman atburðarás i íbúðinni þenn-
an dag þar sem allir þeir sem í íbúð-
inni voru er Hallgrímur lést voru
mjög drukknir og muna málsaðilar
oft á tíðum lítið. Við það bætist að
húsráðandinn, karlmaður á sjötugs-
aldri, fékk blóðtappa í heila í nóv-
ember og hjartastopp á milli jóla og
nýárs, og sagði hann dómurum að
hann hefði misst minnið við fyrra
áfallið. Húsráðandi er ákærður fyr-
ir hylmingu og aö hafa tekið við
hluta ránsfengs Bergþóru.
í sóknarræðu sinni minnti sækj-
andi málsins dómarana þrjá á að
þrátt fyrir að maðurinn sem Berg-
þóra sagðist hafa séð í átökum við
Hallgrím hefði verið dauðadrukk-
inn þennan dag þá hefði saga hans
varðandi hvað hann sá í íbúðinni að
Leifsgötu hafa verið stöðug frá því
hann var fyrst yfirheyrður. Engin
sýni voru tekin af honum þar sem
hann var ekki grunaður um að hafa
átt hluta að dauða Hallgríms. Mað-
urinn, sem er um fertugt, er ákærð-
ur fyrir að hafa tekiö við hiuta
meints ránsfengs Bergþóru en verj-
andi hans hélt því fram að hann
hafi ekki vitað hvaðan peningurinn
var kominn þar sem Bergþóra var
komin með hann í hendurnar þegar
maðurinn mætti á Leifsgötuna.
Vitnið sagðist hafa verið eitt um
að hafa reynt að blása lífi í Hallgrím
þegar það tók eftir því að hann var
látinn. Maðurinn lærði handbrögð-
in í Stýrimannaskólanum á sínum
tíma. Bergþóra hefur sagt þau bæði
hafa reynt lífgunartilraunir og að
þær hafi borið árangur áður en þre-
menningamir yfirgáfu íbúðina -
Hallgrímur hafi verið á lífi er þau
skildu við hann á dýnu í íbúðinni
að Leifsgötu.
Búast má við að dómur falli í lok
þessa mánaðar.
-SMK
Akureyri:
Fimm íkveikjur
rannsakaðar
PV, AKUREYRI:
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur nú til rannsóknar fimm tilfelli
þar sem kveikt hefur verið í. Þrjú
tilfellanna eru frá nýliðinni helgi en
tvö eldri. Þau voru er eldur var bor-
inn að vinnuskúr við Kaldbaksgötu
og er kveikt var í rusli í húsinu þar
sem KEA-Nettó var áður á Óseyri.
Um helgina bættust þrjú tilfelli
við. í fjölbýlishúsi við Tjarnarlund
var i tvígang kveikt í gardínum í
stigagangi en eldurinn uppgötvaðist
áður en alvarlegt tjón hlaust af. Þá
var kveikt í rusli við KA-heimilið
með þeim afleiðingum að vifta á
húsinu dró mikinn reyk inn í það.
Þar stóð yfir árshátíö háskólanema
á Akureyri og varð að rýma húsið
vegna reyksins og sóts sem barst
einnig inn.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
biður þá sem geta veitt uppiýsingar
sem leitt gætu til að þessi mál upp-
lýstust að hafa samband við sig.-gk
Akureyri:
6 tekin meö
fíkniefni
DV, AKUREYRI:______________
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur upplýst fíkniefnamál sem upp
kom í bænum um helgina. Þar voru
sex aðilar handteknir í herbergi í
gistiheimili og þar fundust 25
grömm af hassi og 10 grömm af am-
fetamíni. Bæði var um að ræða
heimamenn og utanbæjarmann.
Yngst í hópnum voru 17 ára stúlka
og 18 ára piltur en þeir elstu um þrí-
tugt.
Fólkið var allt handtekið og flutt
á lögreglustööina en það var allt
undir áhrifum fikniefna. Fjórum
var sleppt að loknum yfirheyrslum
en tveir voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Áður en til þess kom
fékkst niðurstaða í rannsóknina,
málið upplýstist og mennirnir voru
látnir lausir. -gk
Kópavogur:
Lýst eftir bíl
Lögreglan i Kópavogi lýsir eftir
grárri Hyundai-bifreiö, árgerð 2000,
sem stolið var úr bifreiðastæði við
Þinghólsbraut 32 í Kópavogi
snemma á sunnudagsmorguninn.
Skráningarnúmer bifreiðarinnar er
RJ-993. Þeir sem gætu hafa orðið
varir við bifreiðina eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í
Kópavogi.
-SMK
V<-Ar*A i kyöld
Norðaustanátt í kvöld
Noröaustan 8 til 13 m/s en 13 til 18
norövestan til. Rigning með köflum en
snjókoma eða él og vægt frost norðan- og
norðvestanlands.
EIBJHSBÍira f L/JJ
Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síödegisflóö Árdegisflóö á morgun 19.05 08.10 17.05 05.23 AKUREYRI 18.46 08.00 21.38 09.56
Skýrfeigar á veðurtálcnum ^VINDÁTT 10O—H,TI -10° SVINÐSTYRKUR V roncr S mfitrum á sekúndu % 1 HEIÐSKÍRT
I LÉHSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ €3 SK/JAÐ o ALSKÝJAO
W ■ w RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOMA
Vcðrlð a morfjun
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- POKA
VEÐUR RENNINGUR
Hálka á Norður- og Austurlandi
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegageröinni er fært um helstu vegi í
nágrenni Reykjavíkur en á Mosfellsheiði
er snjór og krapi. Vegir í Borgarfiröi,
Snæfellsnesi, Vestfjörðum og norður og
austur um voru hreinsaöir í morgun.
Hálka er á vegum um allt norðan- og
austanvert landið en greiöfært um vegi
á Suðurland.
BYGGT A UPPLYSINGU.M FRA VE
CZZ3SNJÓR
M ÞUNGFÆRT
M ÓFÆRT
Dálítiil rigning sunnanlands
Austan- og norðaustanátt á morgun, 10 til 15 m/s á Vestfjörðum og með
suðurströndinni en hægari vindur annars staðar. Él norövestaniands en
dálítil rigning sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig en vægt frost norðvestan til.
Hiti O” til 7° t- í, i.
Hiti
wiWlw
m
Vindur;
8—13 tn/a
Hiti 0° tit 7“
Austlæg átt, viba 8 tll 13
m/s. Rlgnlng eöa slydda
meö köflum og hltl 0 tll 7
stlg.
Austlæg átt, víöa 8 tll 13
m/s. Rlgnlng eöa slydda
meö köflum og hiti 0 tll 7
stlg.
Austlæg átt, viöa 8 til 13
m/s. Rigning eöa slydda
meö köflum og hltl O tll 7
stlg. ;
Ví-öríA ki
AKUREYRI snjókoma -1
BERGSSTAÐIR alskýjaö 0
BOLUNGARVÍK snjóél -4
EGILSSTAÐIR 2
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 3
KEFLAVÍK rigning 2
RAUFARHÖFN alskýjaö 1
REYKJAVÍK rigning 5
STÓRHÖFÐI þokumóöa 5
BERGEN léttskýjaö 0
HELSINKI snjókoma -2
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa -1
ÓSLÖ hálfskýjaö -3
STOKKHÓLMUR -2
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 5
ÞRÁNDHEIMUR skýjað -3
ALGARVE þokumóöa 15
AMSTERDAM rigning 4
BARCELONA þokumóöa 9
BERLÍN léttskýjaö -3
CHICAGO heiösklrt -2
DUBLIN skýjaö 9
HALIFAX snjókoma -1
FRANKFURT skýjaö 1
HAMBORG hálfskýjað -2
JAN MAYEN snjóél -4
LONDON rigning 10
LÚXEMBORG rigning 3
MALLORCA skýjað 10
MONTREAL heiöskírt -4
NARSSARSSUAQ heiöskírt -15
NEW YORK alskýjaö 1
ORLANDO léttskýjaö 10
PARÍS skýjaö 11
VÍN léttskýjaö 0
WASHINGTON alskýjaö 1
WINNIPEG alskýjaö -3