Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Blaðsíða 28
10 0 Gengl deCODE
,9 - í gær að bandarískum túna
deCODE hækkar
Höfundagjöld:
Lækkuð um
helming
Menntamálaráðherra hefur ákveðið
að breyta ákvæðum reglugerðar um
innheimtu höfundaréttargjalda af óá-
teknum geisladiskum og tækjum til
stafrænnar upptöku.
Ráðherrann hefur rætt við fulltrúa
innflytjenda, netverja og höfundarétt-
arhafa um efni reglugerðarinnar og
ákvaö að gjald af óáteknum geisla-
diskum lækki um 50 prósent.
Einnig var ákveðið að ekki skyldi
innheimt gjald af tölvum með inn-
byggðum geisladiskaskrifurum. -JSS
Samningar halda
Samkvæmt nýju samkomulagi
launanefndar Alþýðusambands ís-
lands og Samtaka atvinnulífsins
munu desember- og orlofsuppbót
hækka á samningstímanum. Á
þessu ári nemur hækkunin ríflega
16.000 krónum. Samkomulag var I
nefndinni um aö ekki hafi veriö for-
senda til að segja upp kjarasamn-
ingum. Verðlagsþróunin hafi verið
á þann veg, að verðbólga hafi lækk-
að um 1,5 prósent á síðustu tólf
mánuðum. -JSS
Banaslys
Einn maður lést þegar flutningabíll
fór út af veginum við Gunnólfsvíkur-
Qall í Finnafirði á milli Bakkafjarðar
og Þórshafnar síðdegis f gær. Bíllinn
lenti ofan í ánni Geysirófu við ein-
breiða brú sem liggur yfir ána.
Maðurinn var einn í bílnum er slys-
ið varð. Ekki er vitað um tildrög
slyssins og ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu. -SMK
Beðið í fjórar klukkustundir
með að hefja formlega leit
- eftir aö flugstjórn missti allt samband viö vélina
Eftir því sem næst verður komist
hófst formleg leit að bandarísku
flugvélinni sem fórst við suður-
strönd ísland í gær ekki fyrr en um
fjórum klukkustundum eftir að vél-
in hvarf af ratsjá. Samkvæmt upp-
lýsingum frá flugstjórn í Keflavík í
morgun var eftirgrennslan eigi að
síður þegar hafin þegar ljóst var að
vélin var horfin af ratsjá og ekki
náðist talstöðvarsamband við flug-
vélina. Leit virðist hins vegar ekki
hafa verið hafin fyrr en ljóst þótti
að flugvélin hafði ekki skilað sér á
áfangastað í Skotlandi samkvæmt
upplýsingum sem send var fjölmiöl-
um eftir hádegi í gær.
Flugvélin var bandarísk tveggja
hreyfla af gerðinni Aero Command-
er 56 og fór hún í loftið frá Keflavík-
urflugvelli kl. 08.19 í gærmorgun.
Síðast var haft samband við vélina
um kl. 08.55 var vélin þá komin í
farflughæð í 15 þúsund fetum vestur
af Vestmannaeyjum. Allt virtist þá í
lagi um borð. Fimm mínútum
seinna, eða um kl. 09.00, var flugvél-
in horfm af ratsjá og ekkert sam-
band náðist við flugmennina i tal-
stöð. Flugstjórn í Keflavík segir ým-
islegt geta hafa orsakað að vélin
hvarf af ratsjá. Þar er t.d. nefndur
svokallaður ratsjársvari í vélinni
sem gæti hafa bilað og mögulega
aðrar truflanir. - Sjá bls. 2
-HKr.
Hlutabréf í deCODE hækkuðu um
18,48 prósent í gær og seldust þau í lok
dags, það er i gærkvöld, á 9,625 doll-
ara á hlut. í upphafi dags var gengið á
9,062 doliara. Um miðjan dag var
gengið komið upp i 10,125 dollara á
hlut. Auk þessa hækkaði Nasdaq-vísi-
talan um 4,5 prósent i gær.
Hækkunina á gengi bréfa í deCODE
má rekja til frétta í vikunni um stór-
an samning sem kveður á um víðtækt
samstarf tslenskrar erfðagreiningar
og Roche Diagnostics við þróun á
DNA-greiningarprófum. -Ótt
FARFHANN
EKKI STÆRRI
SKRIFSTOFU?
.-m
Krani valt á hliðina
Mikil mildi þykir aö enginn skyldi slasast er þessi krani féll á hliöina á nýbyggingarsvæöi viö Reykjaveg i Mosfellsbæ í gærdag.
Kraninn og byggingin skemmdust eitthvað við atvikiö.
- 5--
SYLVANIA
—~
P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strlkamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport_______
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Bilhermar
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
Fangi á Litla-Hrauni ákærður fyrir milljónafjársvik og fimm aðrir fyrir hylmingu:
Hafði fimm frjálsa
„aðstoðarmenn"
35 ára fangi, sem nú situr á
Litla-Hrauni, hefur verið ákærður
fyrir stórfeUd fiársvik sem ákæru-
valdið gefur honum að sök að hafa
framið er hann var innan veggja
fangelsisins á fyrri hluta ársins
1999. Fanginn, sem hefur hlotið
fiölda refsidóma, er sem stendur
að afplána samtals 42 mánaða
refsidóm fyrir önnur brot.
Samkvæmt lögreglurannsókn
og gögnum ákæruvaldsins hafði
fanginn fimm aðstoðarmenn utan
fangelsisins við að fremja verkn-
aðina sem komu niður á við-
skiptavinum Landsbankans og
Búnaðarbankans. Bótakröfur
verða lagðar fram af hálfu hluta
Fjársvik innan fangelsis
35 ára fangi hefur verið ákæröur
fyrir stórfelld fjársvik er hann var
innan veggja fangelsisins á fyrri
hluta ársins 1999.
fórnarlambanna þegar réttarhöld
hefiast í málinu eftir nokkrar vik-
ur.
Fanganum er gefið að sök að
hafa fyrst svikið út 72 þúsund
krónur af tékkareikningi. Eftir
það tókst honum, samkvæmt
ákæru, að svíkja út tæp 370 þús-
und krónur, þar á eftir 470 þúsund
krónur af öðrum tékkareikningi,
næst voru 520 þúsund krónur
sviknar út og þar á eftir 822 þús-
und krónur. 1 málinu er einnig
ákært fyrir skjalafals og hylm-
ingu. Þar er átt við þá fimm sem
ákærðir eru með fanganum í mál-
inu.
Brotin voru framin með því að
hringt var í bankana og óskað - 1
heimildarleysi - eftir því að
ákveðnar upphæðir yrðu milli-
færðar. Þannig er „aðstoðarfólk-
inu“ ýmist gefið að sök að hafa
millifært, veitt fénu viðtöku eða
hagnýtt það með ólögmætum
hætti - með þá vitneskju að féð
væri illa fengið. Fanginn er sá
sem borinn er þyngstum sökum
hvað varðar fiárdrátt upp á á
þriðju milljón króna. I ákæru eru
bótakröfur fyrir hluta þeirrar
upphæðar af hálfu tjónþolanna.
Sýslumaðurinn á Selfossi sækir
málið fyrir Héraðsdómi Suður-
lands á næstu vikum.
-Ótt
é
*