Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2001, Blaðsíða 1
15 Föstudagur 23. mars 2001 dvsport@ff.is Daniel Amokachi sést hér i leik KR og Everton i Evropu- keppni bikarhafa i september 1995 en Siguröur Örn Jónsson reynir aö hlaupa hann uppi. DV-mynd PÖK Þunnskipað - hjá Víkingum í knattspyrnunni Arnar Hallsson, leikmaður Víkings í knattspyrnu, fótbrotnaði i fyrra- dag í leik gegn Leikni í Reykjavíkurmótinu og verður frá í 2-3 mánuði. Það er ekki til að bæta ástandið hjá Víkingi en hópurinn þar er mjög þunnskipaður. Þeir hafa misst Stefán Þórðarson í Val, Zoran Miljkovic, Frey Karls- son í Fram og Egil Sverrisson. Hólmsteinn Jónasson er í Bandaríkjunum í skóla og óvíst hvort hann verður með i sumar. Þá eru 3 leikmenn að auki í skóla í Bandaríkjunum og koma ekki heim fyrr en í maí og þeir bræður, Haukur og Valur Úlfarssynir, eru að leika í Þýskalandi og koma heim að loknu tímabili þar. Víkingar hafa aftur á móti fengið íjóra leikmenn, þá Hauk Gunnars- son og Ágúst Guðmundsson úr Leikni, ívar Benediktsson úr Skallagrími og Boban Ristic úr Stjörnunni. Lúðvík Jónasson hefur einnig verið að æfa með Víkingi en ekki er komið á hreint hvort hann leikur með þeim í sumar. -RG íslandsmeistararnir hyggjast styrkja iid sitt verulega fyrir sumaríð: ^ Haukar-Metkovic Jambo: Mikið álag íslandsmeistarar Hauka í hand- knattleik mæta á sunnudag króatíska liðinu Metkovic Jambo í fyrri leiknum í undanúrslitum EHF-keppninnar. Króatíska liðið er geysisterkt og öruggt að við ramman reip verður að draga hjá meisturunum. Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, hefur að mörgu að hyggja fyrir leikinn en liðið hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum í Nissandeildinni. „Þeir eru með mjög sterkt lið, ég er búinn að sjá tvo leiki með lið- inu á myndbandi. Það er mjög jafnt, þó svo að aðra skyttuna megi flokka sem stórskyttu," sagði Viggó í gær. „Liðið er mjög hávax- ið, lægsti maður er um 1,85 m og flestir við tvo metra. Leikstjórn- andinn Goluza er öflugur og góður varnarmaður og mjög ósvifinn og grófur í vörninni. Þeir spila 6:0 vörn sem er hreyfanleg og góð, hraðaupphlaupin eru góð hjá þeim, sem og markverðimir báöir. Við höfum spilað 3:3 í vöminni eða 5:1 en ég er ekki búinn að taka ákvörðun um það hvernig við spilum. Við ætlum okkur náttúr- lega að vinna heima og eiga þá kannski eitthvað uppi i erminni á útivelli en til þess þarf að tjalda öllu sem til er heima. Við erum búnir að spila geysi- lega mikið undanfarið og sem þjálf- ari liðsins er ég hættur að geta stjórnað álaginu út frá æfingunum. Fram undan er mjög erfitt plan og ég skil reynda ekki hverjum datt í hug að setja þetta svona saman en við verðum bara að sætta okkur við þetta. Það er ekki spurning að liðið hefur dottið niður getulega og kannski andlega líka. Þá er ekki annað að gera en að vinna sig út úr þessu, taka á vandanum og koma öflugir til baka. Petr Baumruk er nánast úti það sem eftir er tímabils en aðrir eru að mestu heilir, Rún- ar er slæmur í hné og Halldór og Óskar eru aðeins lemstraðir," sagði Viggó. -ÓK - Nígeríumaðurinn sterki hefur sýnt áhuga á að koma til KR Nígeríski sóknarmaðurinn Daniel Amokachi gæti verið á leið- inni til íslandsmeistara KR. KR-ingar hafa lengi leitað að sóknar- manni og komust þeir í samband við Amokachi í gegnum enska umboðsskrifstofu. Amokachi tók fyrirspurn KR vel en enn sem komið er hafa forráðamenn KR ekki sent honum nein tilboð. KR- ingar eru greinilega stórhuga því það er ekki á hverjum degi sem leikmaður á borð við Amokachi er orðaður við íslenskt félagslið. „Við erum þokkalega bjartsýnir á að hann komi. Miðað við þau samtöl sem við höfum átt við hann þá virkaði hann mjög áhuga- samur en hann hefur þó ekki fengið neitt tilboð frá okkur. Það er engum blöðum að fletta að leikmaður í þessum gæðaflokki mun koma til með aö verða dýr og við erum að skoöa fjármögnunarleið- ir þessa stundina. Viö ætlum okkur stóra hluti i sumar og það er ljóst að viö þurfum mjög góðan sóknarmann ef markmið okkar eiga að nást,“ sagði Leifur Grímsson, framkvæmdastjóri Rekstrar- félags KR, í samtali við DV-Sport í gærkvöld. Leifur bætti við að vissulega væri meiöslasaga hans áhyggjuefni en ef samningar nást mun Amokachi gangast undir ítarlega læknisrannsókn áður en hann gerist leikmaður KR. Amokachi, sem var síðast á mála hjá tyrkneska liðinu Besiktas, hefur ekki spilað knattspyrnu síðan 1998 vegna meiðsla á hné. Hann reyndi fyrir sér í vetur hjá þýska liðinu 1860 Múnchen og enska liðinu Manchester City en forráðamenn þessara félaga vildu ekki taka áhættuna á að kaupa kappann vegna meiðslanna. Amokachi, sem er 28 ára gamall, skaust fyrst fram á sjónarsvið- ið með nígeríska landsliðinu í heimsmeistarakeppninni í Banda- ríkjunum árið 1994. Þar átti hann hvern stórleikinn á fætur öðr- um og var um haustið keyptur til enska liðsins Everton frá belgíska félaginu Club Brúgge fyrir þrjár milljónir punda. Hann lék með Everton gegn KR í Evrópukeppni bikarhafa haustið 1995 og skoraði meðal annars sigurmarkið í 3-2 sigri Everton á Laug- ardalsvelli. Hann var síðan seldur til tyrkneska félagsins Besiktas fyrir tæpar tvær milljónir punda í ágúst 1996 og spilaði með þeim þar til á síðasta ári þegar samingnum var rift vegna meiðsla. Síð- an þá hefur hann ekki verið félagsbundinn neinu liði en hefur æft með franska liðinu Paris St. Germain. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.