Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2001, Síða 3
16
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001
17
Æfingar að morgni keppnisdags
Kynning keppenda kl. 13 -14
Keppnin hefst kl. 14
Upplýsingar gefa
Marinó 894 2967 og Gunnar 898 2099
Sport
Sport
Jói útherji
KNATTSPYRNUVERSLUN
Ármúla 36 • sími 588 1560
Opið: mánudag-föstudag 10.00-18.00
laugardag 11.00-14.00
Sendum í póstkröfu samdægurs.
Stúdínur
í úrslit
Stúdínur skelltu Víkingsstúlk-
um í öðrum undanúrslitaleik lið-
anna á íslandsmótinu í blaki í
Víkinni í gærkvöld og enduðu
hrinurnar 25-17, 25-17 og 25-10.
Það má segja að leikurinn hafi
verið einstefna frá upphafi til enda
og heimaliðið fann aldrei rétta
taktinn. Það sást best í annarri
hrinunni þar sem stúdínur
komust í 10-0 án þess að svar
kæmi frá Víkingsstúlkum sem nú
eru komnar í fri frá blaki i bili.
Stúdínur áttu flestar ágætan
leik og virtust vel stemmdar. Há-
vörn þeirra og uppgjafir voru góð-
ar og einnig móttakan og Guðrún
Ása Kristleifsdóttir uppspilari
þeirra stóð sig vel. Dagbjört
Víglundsdóttir var Víkingsstúlk-
um líka erfið og þær áttu ekkert
svar við skeflum hennar. Stúdínur
mæta liði Þróttar N. í úrslitaleik
íslandsmótsins sem fram fer í Nes-
kaupstað.
Bikarúrslitin eftir viku
Hápunktur tímabfls blakmanna
verður í Digranesi á morgun en þá
mætast í karlaflokki lið ÍS og
Stjörnunnar og hefst sá leikur kl.
14. í kvennaflokki mætast lið
Þróttar N. og ÍS en sá leikur hefst
kl. 15.30. Það má búast við hörku-
leikjum og miklum baráttuleikj-
um. Stjörnunni hefur aldrei tekist
að vinna bikarmeistartitilinn en
ÍS hefur ekki tapað leik í bikar-
keppni á þriðja ár. Þróttarstúlkur
unnu fyrsta bikarmeistaratitil
sinn i fyrra og ætla sér án efa að
halda honum lengur.
Stjarnan krækti í oddaleik
Stjörnunni tókst að skella Þrótti
í öðrum undanúrslitaleik liðanna í
Ásgarði í fyrrakvöld í þremur
hrinum gegn einni og tryggði liðið
sér þar með oddaleik. Hrinurnar
enduðu 28-30, 25-19, 29-27 og 26-24
fyrir Garðarbæjarliðið. Liöin
munu mætast í Hagaskólanum i
næstu viku og þá fæst úr því skor-
ið hvort liöiö mun leika til úrslita
um íslandsmeistaratitilinn.
-GHÞ
Búlgarar bjartsýnir
Búlgarar eru nokkuð bjartsýn-
ir á að þeim takist að leggja ís-
lendinga að velli í forkeppni
heimsmeistaramótsins á morg-
un. Þeir gera sér grein fyrir mik-
ilvægi leiksins en vinni þeir
ekki leikinn má segja að mögu-
leikar þeirra á að komast áfram
í keppninni séu úr sögunni.
Búigarar ætla að hafa góðar
gætur á Eiði Smára Guðjohnsen
sem þeir óttast mjög.
-JKS
Dagur Sigurðsson og félagar töpuðu slagnum um japanska meistaratitilinn í
Hefur gengið
vonum framar
Þetta er aðeins brot af því sem er á boðstólum.
Láttu sjá þig og gerðu góð kaup.
Vindjakkar.........
Bómullarpeisur.....
Bómullarbuxur......
KR-varatreyja......
Stakarbuxur........
Liverpool sweet shirt
,40% afsláttur
.50% afsláttur
,50% afsláttur
,20% afsláttur
.......frá990
,20% afsláttur
Breytingar fram undan hjá kvennalandsliðinu í handbolta:
Ágúst hættir
- með kvennalandsliðið eftir að hafa stjórnað liðinu í eitt ár
Ágúst Jóhannsson,
landsliösþjálfari kvenna i
handknattieik, hefur til-
kynnt forystu Handknatt-
leikssambands íslands að
hann muni ekki halda
áfram með landsliðið þeg-
ar samningur hans
rermur út í vor.
Ágúst, sem er aðeins 24
ára gamafl, hefur stjómað
liðinu í eitt ár og er það Ágúst Johannsson
mál manna innan hand-
knattleikshreyfingarinnar að hann
hafi sýnt mikinn metnað í starfi. I
hafa verið mjög ánægður við
stjómvölinn hjá kvennalands-
liðinu en það væra aðrar
ástæður sem réðu þvi að hann
ákvað að hætta sem þjálfari
kvennalandsliðsins.
Ekki erilsamt starf
„Þaö hefur verið mjög gott að
vinna með því fólki sem hefur
starfað við kvennalandsliðið.
Ég hef lært mikið og þroskast
sem þjálfari á þessu ári og
fyrir það er ég þakklátur. Þetta er hins
vegar ekki mjög erflsamt starf og ég
samtali við DV-Sport sagðist Ágúst sakna spennunar og áreitisins sem
skapast við þjálfun félagsliða," sagði
Ágúst Jóhannsson, aðspurður um
ástæður fyrir ákvörðun sinni.
Hef náö toppnum
„Mér finnst að ég hafi náð toppnum
í kvennahandboltanum og vil gjarnan
ná lengra sem handknattleiksþjálfari,
hvort sem það er hér heima eða
erlendis."
Samkvæmt heimildum DV-Sport
hafa nokkur lið í Nissandeild karla
sett sig í samband við Ágúst, auk þess
sem liö á Norðurlöndum hafa sýnt
honum áhuga. -ósk
Pað mun eflaust mikiö mæða á Eiöi Smára
Guöjohnsen gegn Búlgörum á morgun.
Búlgarar munu hafa góöar gætur á honum.
ísland mætir Búlgörum á HM á morgun:
Hörkuleikur
- segir Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari
íslenska landsliðið mætir Búlgör-
um í forkeppni heimsmeistaramóts
landsliða í knattspymu í Soflu á
morgun. Liðið æfði tvívegis í gær
við ágætis aðstæður en um 15 stiga
hiti var i borginni í gær. Hópurinn
var loksins fullskipaður í gær en
Helgi Sigurðsson kom akandi frá
Aþenu en hann lék með liði sínu í
grísku 1. deildinni í fyrrakvöld.
Atli Eðvaldsson sagði eftir kvöld-
æfinguna mikinn hug vera í mann-
skapnum. Allir væru heflir og til-
búnir að leggja sig fram og knýja
þannig fram hagstæð úrslit í leikn-
um á morgun.
„Þetta verður eflaust hörkuleik-
ur. Ég er búinn að sjá leik Búlgara
gegn Dönum á myndbandi og þar
léku Búlgarar vel. Þar kom greini-
lega fram að þeir hafa sterku liði á
að skipa og verða örugglega harðir í
horn að taka hér á heimavelli,"
sagði Atli Eðvaldsson.
Leikurinn á morgun fer fram á
þjóðarleikvanginum í Sofiu og tek-
ur hann um 70 þúsund áhorfendur.
Búist er við 10-15 þúsund áhorfend-
um á leikinn á morgun.
„Við ætlum að leggja okkar leik
svipað upp og gegn N-írum sem við
unnum í síðasta leik í riðlinum. Ég
yrði ánægður með að fara héðan
með jafntefli. Það yrðu í raun
áhugaverð úrslit. Við verðum að
halda vöku okkar og megum ekki
sofna á verðinum. Með skynsömum
leik er ég bjartsýnn fyrir leikinn,“
sagði Atli og sagðist ætla að til-
kynna byrjunarliðið eftir æfingu
síðdegis í dag.
21 árs landsliðið mætir Búlgörum
klukkan 15 í dag.
-JKS
- fús að framlengja samninginn við Wakunaga i Hiroshima
Dagur Sigurðsson lauk fyrsta
keppnistímabili sínu með jap-
anska handknattleiksliðinu
Wakunaga frá Hiroshima í vik-
unni en lokaspretturinn um jap-
anska meistaratitilinn var
æsispennandi. Dagur og samherj-
ar hans léku til úrslita við Honda
i Tokyo og urðu að lúta í lægra
haldi, 25-24, eftir að hafa verið
fjórum mörkum yfir í hálfleik.
Uppskeran á tímabilinu hjá
Wakunaga var mjög góð engu að
síður. Liðið varð deildarmeistari
og sigraði i tveimur af þremur
minni mótum sem haldin eru
samhliða deildarkeppninni.
I úrslitaleiknum gegn Honda
skoraði Dagur eitt mark og var
lengstum tekinn úr umferð. Dag-
ur segir það hafa verið súrt að
tapa leiknum því Wakunaga hafi
verið yfir nær allan leikinn.
Mjög mikill áhugi var á úrslita-
keppninni en undanúrslitaleik-
irnir fóru fram í stórri íþrótta-
höll í Tokyo. Úrslitaleikurinn
sjálfur var sýndur beint í jap-
anska sjónvarpinu. Þess má og
geta að nokkrir íslendingar, bú-
settir í Tokyo, fylgdust með Degi
í úrslitaleiknum.
Súrt aö tapa en menn samt
ánægðir með tímabilið
„Leikurinn þróaðist nokkuð
undarlega í síðari hálfleik. Þegar
um tíu mínútur voru til leiksloka
missti Honda sterkustu leikmenn
sína út af vegna rauðra spjalda,
Frakkana Frederic Volle og
Stephane Stocklin, og héldu þá
flestir að leikur Honda-liðsins
myndi hrynja. Það var öðru nær,
leikmenn Honda tvíefldust við
mótlætið, tókst að jafna 22-22 og
skora síðan sigurmarkið tveimur
sekúndum fyrir leikslok. Þetta
var svekkjandi niðurstaða en
engu að síður eru allir sáttir við
útkomuna á þessu tímabili. Þetta
er besti árangur liðsins eftir að
útlendingar komu inn í deildina
fyrir nokkrum árum. Wakunaga
stóð Honda alltaf að baki en í dag
eru þessi lið svipuð að styrk-
leika,“ sagði Dagur Sigurðsson í
spjalli við DV.
Á leiö í frí til lítillar eyju
fyrir utan Malasíu
Þaö hlýtur að vera skrýtin til-
finning aö tímabilinu skuli lokiö í
mars. Þú varst því ekki vanur
þegar þú lékst í Þýsklandi.
„Það er þægileg tilfinning að
þessu er lokið. Nú getur maður
slappað vel af og hefur fjölskyld-
an tekið stefnuna á fri á lítilli
eyju utan við Malasíu. Að vísu
verður mót í júlí en það tekur
ekki nema nokkra daga. Við er-
um ákveðin að koma heim til ís-
lands í sumar og vera þar ein-
hvern tíma. Það verður gaman að
komast í veiði sem ég hef mikinn
áhuga á. Ég verð kominn hingað
aftur í byrjun september en þá
hefst undirbúningurinn fyrir
tímabilið sem hefst í október."
Nú er fyrsta tímabiliö af tveim-
ur lokiö. Ertu ánœgöur með veru
þína i Japan?
„Já, ég er mjög ánægður með
veruna hér. Það er óhætt að segja
að þetta hafi gengið vonum
framar og aðbúnaður allur er frá-
bær. Álagið er miklu minna en í
Þýskalandi þar sem ég lék nokk-
ur ár. Fyrir vikið verður leik-
gleðin meiri og maður nýtur þess
að æfa og leika handbolta. Fjöl-
skyldan unir hag sínum vel. Önn-
ur dætra okkar, sem er þriggja
ára, er farin á leikskóla og líkar
vel. Hin dóttirin er 20 mánaða og
það gefst góður tími til þess að
vera með henni heima.“
Opinn fyrir því að vera
nokkur ár í viðbót
Heföir þú jafnvel áhuga á því
aö vera lengur l Japan en áœtl-
anir stóöu til í upphafi?
„Ég samdi til tveggja ára
við liðið og nú er eitt þeirra
aö baki. Ég ætla að setjast
niður með forráðamönnum
liðsins á næstunni og þá ætti
að koma í ljós hugur þeirra til
málsins. Frá mínum bæjar-
dyrum séð ætla ég að skoða
þaö með opnum huga ef mér
býðst að vera hér einhver ár í
viðbót. Ég get ekki neitað því
að hér er flest betra en ég átti
von á í upphafi.
Mig langaði alltaf að prófa
eitthvað nýtt og ég sé ekki eft-
ir þeirri ákvörðun að fara til
Japans. Handboltinn hefur
komið mér á óvart og hann er
í mikilli sókn. Ég er viss um
það að landsliðið á eftir að
fylgja á eftir en Japanar
stefna ótrauðir að því að kom-
ast á Ólympíuleikana í Aþenu
2004. Síðan hafa þeir sóst eftir
þvl að halda leikana í Osaka
2008.“
Svo viröist sem aukning sé á
því aö leikmenn frá Evrópu
hafi áhuga á því aö freista
gœfunar í japanska handbolt-
anum?
„Það getur vel verið að
þeim fjölgi eitthvað á næsta
tímabili. Rússneska skyttan
Kudinov hefur þegar gert
samning við Kumamoto en
þar er fyrir Sergei Zisa sem
lék meö KA-mönnum á sínum
tíma. Hann hefur staðið sig
vel með sínu liði. Þá hefur það
einnig heyrst að á leiðinni sé
tékkneskur landsliðsmaður sem
gangi til liðs við lið sem er að
koma upp úr 2. deildinni.
Á þessu sést að það verður ein-
hver fjölgun erlendra leikmanna
í deildinni næsta vetur. Það er
hugur í flestum liðum og eru þau
jafnari en áður. Honda-liðið vann
t.d. alla titlana sem í boði voru i
fyrra. Breiddin mætti hins vegar
alveg vera meiri en það stendur
Dagur Sigurðsson lætur vel af verunni í Hiroshima. Hann segir Japan vera fjölskylduvænt land og er hann opinn fyrir aö framlengja samning sinn við félagið.
eflaust allt til bóta. Erlendu leik-
mennirnir láta allir vel af veru
sinni í Japan og hafa Frakkarnir
Volle og Stocklin báöir sótt um
japanskan ríkisborgararétt. Það
hefur reynst torveldara en þeir
áttu von á en manni skilst að það
sé siður en svo auðvelt að sækj-
ast eftir japönsku ríkisfangi."
Leturgerðin er svakalega
erfið
Hvernig gengur aö aölagst jap-
anskri menningu og lœra máliö?
„Það hefur gengið vel að að-
lagast flestum hlutum hér. Japan
er mjög fjölskylduvænt land og
fjölskyldan er sett hér í öndvegi.
Það er betra aö vera hér með fjöl-
skyldu en í Þýskalandi en það
hefur hins vegar tekið tíma að
koma sér inn í tungumálið. I
Þýskalandi var það ekkert mál en
maður þarf að hafa meira fyrir
því í Japan af skiljanlegum
ástæðum. Þaö kemur til okkar
einkakennari nokkrum sinnum í
viku og okkur hefur sóst námið
vel og við getum bjargað okkur
úti á götu. Það er hins vegar ekk-
ert launungarmál að japanskan
er mjög erfitt mál. Leturgerðin er
svakalega erfið en framburður-
inn og málfræðin eru nokkuð að-
gengileg. Þetta tekur sinn tíma
en mjög gaman að takast á við
námið.“
Islenska landsliðið leikur viö
Hvíta-Rússland í forkeppni Evr-
ópukeppninnar í byrjun júní. Gef-
ur þú kost á þér í liöiö veröir þú
valinn?
„Það hefur nú ekki enn þá ver-
ið ráðinn nýr landsliðsþjálfari.
Ég held nú samt að ef til mín
verður leitað muni ég gefa kost á
mér í liðið,“ sagði Dagur Sigurðs-
son sem var fyrirliði landsliðsins
á heimsmeistaramótinu í Frakk-
landi í vetur.
-JKS
L.