Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2001, Síða 4
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2001
Fýrirliðarnir
Þorleifur Ólafsson og Erna R. Magnúsdóttir leiddu
flokka sína til sigurs í bikarkeppni KKÍ um síðustu helgi
og sáu til þess að Grindavík var eina félagið sem vann tvo
flokka.
Erna stjórnaði 10. flokki kvenna eins og herforingi og
stal meðal annars níu boltum. Ólafur sýndi að þar fer
mikið efni sem getur ekki bara skoraö heldur lætur hann
til sín taka í fleiri þáttum tölfræðinnar.
r 1 m ■ * ! W/ m
ö 1 í 1 f\ V 4 Jí 1 % || Ja\
y£) _ jjgj f ,
! í
1 SBhBÍ 1 Íi^B r I ^
Öruggt
- hjá stelpunum
Grindavík sigraði Keflavík ör-
ugglega í 10. flokki kvenna, 64-28.
Yfirburðir Grindavíkur voru
miklir í leiknum þrátt fyrir að Jó-
vönu Lilju Stefánsdóttur vantaði
en hún er einn aðalmáttarstólpi
liðsins. Það kom ekki niður á lið-
inu og fór Ólöf H. Pálsdóttir á
kostum og skoraði grimmt. Hún
hitti 6 3ja stiga körfur sem er frá-
bært hjá 15 ára stúlku. Það er
ljóst að þarna er framtíðarflokkur
hjá Grindavík á ferð sem verður
að hlúa vel að. Flestar þessar
stelpur eru að spila með meistara-
flokki nú þegar og greinilegt að
reynslan sem þær öðlast þar skil-
ar sér niður í yngri flokkana.
Stig Grindavíkur: Ólöf H. Pálsdóttir 34
(7 fráköst, 6/13 í 3ja), Rut Ragnarsdóttir
11, Erna R. Magnúsdóttir 8 (9 stolnir),
Ólöf ísaksdóttir 5, Gígja Eyjólfsdóttir 4,
Petrúnella Skúladóttir 2.
Stig Keflavíkur: Gréta M. Jósepsdóttir
7 (19 fráköst), Sonja Kjartansdóttir 7,
Vala R. Björnsdóttir 5, Bryndís Hjálm-
arsdóttir 3, Andrea Færseth 2, Elín
Ólafsdóttir 2, María Ágeirsdóttir 2.
-BG
Maður leiksins:
Ólöf H. Pálsdóttir, Grindavík
Bikarkeppni KKÍ:
Tveir bikarar
- Grindavík vann bæöi 11. flokk karla og 10. flokk kvenna
Grindavík sigraði Njarðvik í 10.
flokki karla, 85-67, þar sem Grind-
víkingar reyndust sterkari i seinni
hálfleik. Staðan í hálfleik var
37-35 fyrir Grindavík.
Ungur og efnilegur strákur, að
nafni Þorleifur Ólafsson, fór mik-
inn í leiknum og fór illa með vöm
Njarðvíkur. Einnig voru Grind-
víkingar með mikla yfirburöi i frá-
köstunum. Hjá Njarðvik voru
Guðmundur Jónsson og Ólafur
Ingvason atkvæðamestir en Njarð-
vikurliðið náði sér engan veginn á
strik í þessum leik. Þeir hittu bet-
ur úr 3ja stiga skotum sínum en
2ja stiga og er það mjög óvanalegt.
Það verður gaman að fylgjast með
framvindu mála í þessum flokki
þar sem flokkurinn er frekar jafn
og ekkert lið sem hefur einhverja
yfirburði.
Stig Grindavíkur: Þorleifur Ólafs-
son 34 (16 fráköst, 6 stoðs., 4 stolnir, 3
varin, 12/20 í skotum), Ragnar Jóhanns-
son 19 (11 fráköst), Eggert Pálsson 12,
Davíð Hermannsson 11 .(12 fráköst), Ár-
mann Vilbergsson 8, Anthony Berry 1.
Stig Njarðvíkur: Ólafur Ingvason 26,
Guðmundur Jónsson 21, Hreiðar Péturs-
son 9, Jóhann Ólafsson 7, Helgi Guð-
bjartsson 4.
Óvænt mótspyrna
í 10. flokki mættust Valur/Fjöln-
ir og Keflavík og var fyrir fram bú-
ist við auðveldum leik þar sem Val-
ur/Fjölnir hafði unnið Keflavik ör-
ugglega þegar þessi lið hafa mæst í
vetur, þar af einu sinni með rúm-
um 60 stigum.
Annað kom á daginn eg börðust
Keflvíkingar alveg eins og ljón all-
an tímann og voru klaufar að
vinna ekki þar sem þeir höfðu sjö
stiga forskot, 61-54, þegar rúmar 3
mínútur voru til leiksloka. Þá fór
Magnús Pálsson í liði Vals/Fjölnis
í gang eftir að hafa verið frekar ró-
legur í leiknum. Hann skoraði, tók
fráköst, gaf stoð-sendingar, átti
stolna bolta og sá til þess að landa
bikarnum annað árið í röð hjá
þessum strákum.
Lokatölur urðu
69-66.
Það var þó fátt í
upphafi leiks sem
benti til að leikur-
inn yrði spennandi
og var Val-
ur/F)ölnir mun
sterkari aðilinn í
byrjun. Viðar
Jónsson var góður
á upphafsmínútun-
um. Sigurður
Gunnarsson í liði
Keflavíkur fór fyr-
ir sínu liði og átti
heldur betur eftir
að eiga stórleik og
sinn besta á ferlin-
um. Leikmenn
Vals/Fjölnis fundu
enga leið til að
stoppa piltinn.
Maður leiksins:
Þorleifur Ólafsson, Grindavik
10. flokkur karla hjá Fjölni varð bikarmeistari annað árið í röð.
DV-mynd BG
Hann fékk síðan sína flmmtu villu
í lok leiksins og saknaði Keflavík
að hafa hann ekki í lokinn en hann
var búinn aö skora 41 stig áður en
hann þurfti að yfirgefa völlinn.
Sigurður langbestur hiá
Keflavík
Eins og áður sagði voru Keflvik-
ingar klaufar að klára ekki leikinn í
lokin en engu síður eiga þeir hrós
skilið fyrir góðan leik og geta borið
höfuðið hátt. Sigurður var þeirra
langbesti maður og sá um stigaskor-
ið að þessu sinni á meðan Gunnar
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
Ásgeirsson reif niður fráköst, stal
boltum og mataði félaga sína. Val-
ur/Fjölnir sýndi góöan karakter í
lokin og sýndi Magnús Pálsson enn
og aftur að hann er leiðtogi liðsins.
Hann steig upp á réttum tíma og
dreif sína menn áfram á lokakaflan-
um. Guðmundur Sæmundsson kom
líka með mikilvæga stolna bolta
þegar þess þurfti og Bjarki Þor-
steinsson byrjaði leikinn vel en
minna fór fyrir honum þegar leið á
leikinn og sömu sögu má segja um
Viðar.
„Þetta var miklu tæpara en ég
reiknaði með, það verður bara að
segjast alveg eins og er. Ég held að
menn hafi verið nokkuð sigurvissir
og verð ég að taka það á mig þar
sem ég byggði ekki nógu mikla
spennu fyrir leikinn. Það er líka
erfitt að byggja upp spennu gegn
liði sem við höfum verið að vinna
með 50-60 stigum í vetur. Það var
ekki fyrr en í blálokin sem menn
sáu að við vorum virkilega að tapa
leiknum og þá fór þetta í gang og
small. Þetta hefði getað farið á
hvorn veginn sem er,“ sagði Hlynur
Skúli Auðunsson, þjálfari
Vals/Fjölnis.
Stig Vals/Fjölnis: Magnús Pálsson 26
(14 fráköst, 5 stolnir, 3 varin, 3 stoös.),
Viðar Jónson 14, Guömundur Sæmunds-
so'n 8 (8 stolnir), Bjarki Þorsteinsson 8 (7
fráköst, 4 stoðs.), Bjarni Hauksson 7,
Ingólfur Pálsson 4 (8 fráköst, 5 stolnir),
Daníel Ragnarsson 2.
Stig Keflavíkur: Sigurður Gunnarsson
41 (14 fráköst, 3 varin, 6/13 3ja), Ólafur
Geir Jónsson 12, Bjarki Elíasson 6, Hilm-
ar Hilmarsson 4, Gunnar Ásgeirsson 2 (10
fráköst, 7 stolnir, 4 stoðs.), Guðni Krist-
jánsson.
________________________________-BG
Maður leiksins:
Sigurður Gunnarsson, Keflavík