Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Qupperneq 3
e f n i
Þóra Arnórsdóttir hefur vakið athygli fyrir vasklega framkomu
og fyrir að vera talnaglögg með afbrigðum. En Þóra verður
ekki við hlið Ármanns Jakobssonar í Gettu betur í kvöld.
Sigtryggur Magnason átti hjartnæma yfirheyrslustund með
Þóru áður en hún steig upp í flugvél á leið til borgarinnar sem
Ketil Stockansöng um í Eurovision fyrir mörgum árum.
Ætla ekki að
byrja með Locga B.
„Minn tími er liðinn á þessum starfsvettvangi, held ég. Ég er iíka að flytja úr
landi í sumar.“
samfelagiö
í f ó k u s
Friðný Herberts-
dóttir er of-
sóknaróður ætt-
fræðifasisti og
skrifar um sam-
félagsmál í
fókus.
Guð
brýtur lög
Ég er kona. Ég er kynvera. Ég er Friðný Her-
bertsdóttir og hef alltaf haft áhuga og áhyggj-
ur af þessu andskotans samfélagi sem við
búum í.
Ég hef verið áreitt. Hef oröiö fyrir áreitni alltfrá
því ég varð gjafvaxta. Strákar hafa sóst eftir
að sjá og snerta líkama minn. Og mér finnst
það óþolandi. En shit haþþens - ég hef bara
svona mikla kynferðislega útgeislun.
Ég hefði haldið að ný lög um þersónuvernd
ættu að vernda mig en svo hefur ekki orðið.
Ég verð sífellt fyrir barðinu á persónuofsókn-
um og eftirlitsþjóðfélaginu.
Guð er með gægjuhneigð. Móðir mín heitin
sagði alltaf að Guð væri yfir og allt um kring og
fólk sem ég treysti fullkomlega hefur tekiö
undir þetta. Ég hef alltaf kosið Sjálfstæðis-
flokkinn því ég hefi treyst honum fyrir því að
verja aukinn rétt borgaranna fyrir persónuof-
sóknum og eftirliti. Flokkurinn hefur gert
margt fyrir mig í þessum efnum og hefur meira
að segja tekist að koma smá böndum á Kára
Stefánsson. En ekki Guð. Ná engin lög yfir
þennan mann?
Líf mitt hefur vegna þessara persónunjósna
veriö heldur fábreytt. Ég hefi aldrei farið nakin
í bað og því síöur farið á almenna sundstaði
þar sem fólk er beinlínis skikkað til að fletta
sig klæðum.
Og kynmök og aðrar lífsins lystisemdir hefi ég
látið kyrrar liggja.
Andrés Ástvaldsson og aðrir piltungar í Miðdal
og eruö fæddir á árunum 1920-1927! Þið
getið vel við unað. Ég var ekki að segja nei viö
ykkur og ykkar tilburðum. Ég sagði nei við Guð.
Sitji Guðs englar saman f hring í eigin íbúðum.
Látið mig vera.
heimasíöan
httpr//www. pixy-
land.org/peterpan/
Það er hann Pétur Pan sem á heimasíðu vik-
unnar að þessu sinni en hann er 47 ára gam-
all Kani frá Florida sem klæðist álfafötum.
Pétur Pan heitir í raun og veru Randy Const-
an og er samkvæmt nafnspjaldi sínu gítaristi,
verkfræðingur, uppfinningamaður og eilífðar-
barn. Randy saumar sjálfur ýmsa álfabúninga
sem hann segist nota á djamminu og sýnir á
síðunni. Pétur Pan vill hössla og að sjálfsögöu
er síða af þessu tagi fullkomin kvennagildra.
Hvaöa kona fellur ekki fyrir fimmtugum Kana
með munkahárgreiðslu í álfafötum?
„Ég minnist þess óljóst þegar ég sá
fyrsta Gettu betur-þáttinn á ævinni,
á seinni hluta níunda áratugarins.
Þá var sem rynni upp fyrir mér ljós
og frá þeim degi kepptist ég við að
tileinka mér talnafræðina sem mest
og best. Síðan hellti ég mér út í stíf-
ar æfingar, með aðstoð fjölskyldu
minnar auðvitað, þegar ljóst var að
draumurinn myndi rætast og ég
fengi að telja stig í Gettu betur.
Bræður mínir fjórir og foreldrar
sátu berfætt i stofunni og ég taldi og
taldi bæði tær og fmgur þar til nær
ómögulegt var að mér flpaðist. Ætli
það megi ekki segja að ég hafi náð
fullum tökum á þessu nokkru fyrir
fyrstu keppni í desember 1998.“
Teluröu aó þetta sé gott í feril-
skrána?
„Tvímælaust. Þú hefur kannski
ekki gert þér grein fyrir því en stiga-
varðarstaðan er sú langvaldamesta í
þættinum. Ég er með græjumar til
að gefa stigin og ef mig langar ekki
til að gefa stig þá bara geri ég
þaðekki. Nema Ármann biðji mjög
fallega. Ég held að liðin hafi ekki
enn gert sér grein fyrir þessu, að
minnsta kosti sendir enginn mér
blóm eða konfekt fyrir keppni."
Dónaleg spurning
Nú er viss hefö fyrir því að stiga-
vörður og spyrill byrji saman eftir
Gettu betur. Hvernig er samband þitt
við Loga Bergmann?
„Finnst þér ekkert dónalegt að
spyrja svona? Það er auðvitað afar
náið. En satt að segja eru bæði kon-
an hans og unnustinn minn eigin-
lega sætari en hann, vissirðu það?
Sætari en við bæði reyndar, ef út í
það er farið... svo ég reikna eiginlega
með að við rjúfum þessa hefð. Alltaf
þessi þörf fyrir að vera öðruvísi."
Af hverju verðurðu ekki í síðasta
þœttinum?
„Ég var svo heppin að fá styrk til
að fara til Berlínar til tveggja mán-
aða dvalar að vinna á þarlendri út-
varpsstöð. Þetta er svona skiptipró-
gramm milli norrænna fjölmiðla-
manna og þýskra og útvarpið var
svo vænt að gefa mér tveggja mán-
aða frí til að taka þátt í því úr því ég
var valin. Ég veit nú ekki hvort ég
fæ að búa til heila þætti á þýsku en
ég læri að minnsta kosti vinnubrögð
Þjóðverjanna við dagskrárgerð,
tækni og hitt og þetta. Þetta byijar
með stífri sameiginlegri dagskrá í
Ósló 29. mars en Gettu betur er sent
út beint að kvöldi hins 30. Því mið-
ur. En ég treysti Kötu Jakobs til að
forða bróður sínum og Loga frá
miklum hneyksli-smálum."
Nú þegar þú ert laus undan Gettu
betur - hvorir heldurðu að vinni?
„Það er rétt, ég má segja hvað sem
er. Ég held að Borgarholtsskóli komi
öllum á óvart og fari með hljóðnem-
ann upp í Grafarvog. Síðan loka þeir
Gullinbrúnni og þar verður veisla
fyrir alla Grafarvogsbúa fram á
þriðjudag.
Pylsur og bjór og harmóníka.
Finnur Ingólfsson Grafarvogsbúi
mun halda ræðu og Sigmundur Ern-
ir og Ari Trausti og Kristín Marja
ábyggilega líka, Grafarvogsskáldin,
þú veist - verða búin að semja sér-
stakan brag af þessu tilefni. Þetta
mun gerast vegna þess að Hjalti
Snær mætir í vitlausum buxum í úr-
slitaþáttinn.“
Veróurðu aftur í Gettu betur?
„Nei, ætli það. Minn tími er lið-
inn á þessum starfsvettvangi, held
ég. Ég er líka að flytja úr landi í
sumar.“
John Isaacs er einn fremsti ungi listamaður Bretlands og leggur mikið upp úr því að
hreyfa við fólki. Sjálfsmynd hans, sem birtir hann þar sem búið er að fletta af hon-
um holdinu og sýna „hans innri mann“, hefur bæði vakið hroll og hlátur. Nú ætlar
John að hreyfa við íslendingum í Listasafni Reykjavíkur.
Stundum líður yfir fólk
John Isaacs stundaði nám í líffræði
um nokkurra mánaða skeið en gafst
upp á vísindamannsferlinum þegar
hann sá að þar var ekkert lagt upp úr
einstaklingnum heldur reynt að steypa
alla í sama vísindamótið. Þá sneri
hann sér að listinni. Áhugi hans á vis-
indum er þó langt í frá flarri því segja
má að líffræðin og þá ekki síður líf-
færafræðin gangi aftur í verkum hans.
Kjöt er heimskt
Yfirskrift sýningarinnar er „Eruð
þið enn reið við mig?“ og með því vís-
ar hann til fyrri innsetningar Johns í
Bretlandi þar sem hann skoðaði tengsl
líffærafræði og tungumálsins og þekk-
ingar. Viðbrögð við verkum Johns eru
oft þannig að fólk hrekkur við.
„Fólk á að hrökkva við. Á sýningu í
London setti ég upp verk sem er ekki
ósvipað því sem fólk getur séð hérna. í
London leið yfir einhverja. Aðrir hóp-
uðust um verkið hugfangnir af raun-
veruleika þess. Fólk þóttist stundum
fmna lyktina af kjöti en þetta er bara
vaxmynd. Þetta er hluti af gægjuhneigð
sem birtist okkur meðal annars þegar
ekið er fram hjá slysstað; fólk hægir á
sér og vill sjá það sem er að gerast en
vill samt ekki horfa. Eina leiðin til að
sjá blóð nú til dags er að fara til slátr-
ara.“
Og John leitaði í verslanir slátrara
þegar hann var að vinna verkin til að
ná áferð kjötsins sem best.
„Þetta á að vera mjög „kjötlegt". Kjöt
er heimskt; það hefur enga greind eins
og heilinn. Fólk fær vægt áfall en fær
vonandi samúð með því sem birtist í
verkinu."
John tekur undir það að á ákveðinn
hátt séum við að verða dofnari og erfið-
ara að hneyksla okkur.
„I verkum mínum reyni ég oft að
skapa umhverfi þannig að fólki finnist
það ekki vera að horfa á list. Þetta ætti
að vera list en er eins og eitthvað ann-
að. í því umhverfi er hægt að hneyksla,
þótt það sé ekki nauðsynlegt, eða alla
vega koma fólki úr jafnvægi. Þá er
hægara að komast inn i huga fólks.“
Blómabarnið
Insol:
Vantar
umba
Nanna Kristín:
Sakleysi og fegurð
Örið mitt:
Örið er karl
mennsku-
tákn
ísland sekkur:
Örkin hans Jóa
í öskunni:
Skáld og karatemenn
www-visir-is/fokus
fokusSfokus • is
I# m » v
ÍTIO
IM3DnslKCE!ES3
Lalli Johns á Hrauninu
Finnsku konunaarnir
Eðalborið lamadvr
Lióti andarunainn er í FBI
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Hilmar Þór af
Nönnu Kristínu Magnúsdóttur
30. mars 2001 f Ó k U S
3