Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Síða 10
*
\
Gælir við
lessu na
Poppstjarnan Gerl Hall-
iwell viðurkenndi á dögun-
um í viðtali við blaðið
Attitude í Bretlandi að á
hana leituðu oft samkyn-
hneigðir hugaróar. Fyrrum
Kryddpían sagði að hún
efaðist oft um kynhneigð
sína og að í partíi á aög-
unum hafi hún íhugað
hvort hún ætti að
stökkva út úr skápnum margfræga. Geri sagði:
„Ég hitti tvær stelpur í partíi og varð hugfangin
af því hvort auðveldara væri að skilja hvort ann-
að ef um er að ræöa tvær stelpur. Maður getur
orðið ástfanginn af hverju sem er, það er neist-
inn í augunum sem gildir." Annars staðar í við-
talinu sagði Geri að hún stundaði það oft að
daðra á spjallrásum á Netinu. „Það er öruggt
kynlíf, ekki satt? Þegar ég er spurð hverjum ég
líkist segist ég vera lítil og Ijóshærð með stór
brjóst - svolítið lík Geri Halliwell."
9
fyrir morð
Þungarokkshausarnir í Slayer eiga von á nýrri
lögsókn þar sem því er haldið fram að tónlist
þeirra hafi leitt til nauögunar og morðs á tán-
ingsstelpu árið 1995.1 janúar var bandið sýkn-
að af ákærum um að þeir væru ábyrgir fyrir
dauða Elyse Pahler sem lést eftir djöflaathöfn
þriggja bekkjarfélaga hennar. Fjölskylda
stúlkunnar fékk þó að áfrýja sem hún hefur nú
gert. Lík Pahler fannst nálægt heimili hennar í
^ Kaliforníu í mars 1996. Hún hafði verið lokkuð
þangað átta mánuðum fyrr af bekkjarfélögunum
sem kyrktu hana og stungu þar til hún lést en
sneru svo aftur og nauðguðu henni. Drengirnir
þrír voru miklir Slayer-aðdáendur sem töldu að
þeir þyrftu að færa djöflinum fórn til að hljóm-
sveitin þeirra, Hatred, yrði nógu villt til að kom-
ast á meðal þeirra bestu. Þeir viðurkenndu
glæpinn og afplána nú dóm upp á 25 ár til lífs-
tíðarfangelsis. Pahler fjölskyldan höfðaði mál
gegn Slayer og plötufyrirtæki þeirra, American
Recordlngs, dótturfyrirtæki Sony, þar sem því
var haldið fram að þeir bæru að hluta til ábyrgð
á morðinu. Slayer hafa ekki enn gefið út yfirlýs-
ingu vegna málsins en þeir hafa 30 daga til að
svara kröfunum.
Allt búið
Japönsku poppstjörnurn
ar Pizzicato Five er tald-
ar vera að leggja upp
laupana eftir að hafa
haldið saman í næstum
tvo áratugi. Bandið var
stofnað í byrjun níunda
áratugarins af stúdent-
unum Keitaro Tak-
anaml, Ryo Kamamlya
og Konlshl Yasuharu. Er
stefnt aö því að haldnir verði kveðjutónleikar f
Tokyo nú í lok mánaðarins. Þá er búist við þvf
að gefið verði út best-of safn í lok ársins.
Kærkomin
At The Drlve-ln hefur tilkynnt að hún ætli að
taka sér gott frf á næstunni og hefur aflýst
Bandarfkjatúr sem átti að hefjast 11. aprfl. í
yfirlýsingu frá hljómsveitinni
segir að hún sé búin
að stunda það í sex
ár að gera plötu og
á túr þar til
gerð næstu
plötu hefst.
Meðlimirnir vilja
nú fá að lifa
eins og mann-
eskjur og komast
að þvf hvenær þeir
vilja byrja aftur.
Hljómsveitin var
stofnuð 1994 en
það var ekki fyrr
en með útgáfu
Relatlonship of
Command !
fyrra sem hún
sló f gegn.
í vikunni kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar Gorillaz,
en lag hennar, Clint Eastwood, hefur verið í töluverðri
spilun undanfarið. Myndbandið sýnir fjórar teikni-
myndafígúrur í góðri sveiflu en hverjir eru eiginlega
Gorillaz. Trausti Júlíusson kannaði málið.
og raunveruleika
Hljómsveitin Gorillaz er skipuö Qór-
um meðlimum. Fyrstan skal nefna
Murdoc sem er bassaleikarinn og
hugmyndasmiður bandsins. Hann er
ættaður frá Stoke-On-Trent í Englandi
og er undir áhrifum frá hlutum eins
og Black Sabbath, döbb tónlist og
Dennis Wilson.
Hann er þessi svarthærði með
krossinn um hálsinn. Hann hitti
söngvarann 2D í hljóðfæraversluninni
sem hann vann í áður en Gorillaz
urðu til. 2D syngur eins og engill.
Hans helstu fyrirmyndir eru Lucio
Fulci og Phil Oakey. Þriðji maðurinn
sem þeir fengu tU liðs við sig er svo
trommarinn stórgerði Russel, sem er
hip-hop haus frá Bandaríkjunum.
Hann kann á mörg hljóðfæri og er að
auki andsetinn, rapparinn Del blund-
ar í honum og brýst fram með reglu-
legu miUibUi. Murdoc hitti Russel þar
sem hann var að afgreiða í rapp-plötu-
búð í Soho í London eftir að hann
hafði flutt yfir Atlantshafið með for-
eldrum sínum. Helstu áhrifavaldar
hans eru Chaka Kahn og harð-
línupólitíkusinn Farrakhan. Og þá
vantaði bara gítarleikara.
GoriUaz auglýsti eftir einum í tón-
listarblaðinu NME og í framhaldi af
þvi kom kassi með FedEx-hraðflutn-
ingsfyrirtækinu frá Japan og út úr
honum stökk hin 10 ára smáa en knáa
Noodle sem er ekki bara gítarleikari
heldur líka sérfræðingur í austrænum
bardagalistum. Hennar fyrirmyndir
eru Richie Sambora og haiku-ljóð-
skáldin.
Margir gestir á plötunni.
Plata Gorillaz, sem heitir eftir
hljómsveitinni, var tekin upp í Kong-
hljóðverinu. Upptökustjóri var enginn
annar en hip-hop-snillingurinn Dan
the Automator, maðurinn á bak við
plötur Dr. Octagon og Deltron 3030.
Á meðal samstarfsmanna og gesta eru
Damon Albarn, sem er mjög áber-
andi á plötunni, og Del Tha Fimky
Homosapien sem rappar í nokkrum
lögum, þar á meðal í laginu Clint
Eastwood. Auk þeirra koma við sögu
Miho Hatori úr New York-sveitinni
Cibo Matto, Tina Weymouth og
Chris Franz úr Talking Heads og
Tom Tom Club, Kid Koala sem
skratsar í einhverjum lögum og Ibra-
him Ferrer úr Buena Vista Social
Club sem syngur lagið Latin Simone.
Fjölbreytt og metnaðarfullt
Það kemur ekki á óvart þegar allir
þessir tónlistarmenn eru hafðir í
huga að útkoman er mjög fjölbreytt
og skemmtileg. Þetta er allt frá þvi að
vera gitartónlist sem minnir á sumt
af þvi sem Blur hafa verið að gera
(t.d. lögin 5/4 og M1 Al) út í rólegt og
frekar poppað hip-hop (t.d. Clint
Eastwood og Rock The House), döbb
tónlist (Slow Country, Starshine og
Tomorrow Comes Today) og latin
(lagið Latin Simone sem Ferrer syng-
ur er algjör perla).
Gorillaz er ekki sólóplata með
Damon Albarn, eins og áður hafði
verið talað um, heldur er hún sam-
starfsverkefni sem er unnið undir
stjórn Dan the Automator og
Damons, en þeir hittust einmitt þeg-
ar Dan fékk Damon til liðs við sig við
upptökur á framtíðar hip-hop plötu
Deltron 3030 sem kom út í fyrra. Hug-
myndin með teiknimyndahljómsveit-
inni var að skapa „alvöru hljóm-
sveit“ í kringum verkefnið þannig að
aðdáendur tónlistarinnar gætu
kynnst mönnunum á bak við tónlist-
ina, eignast sinn uppáhaldsmeðlim
og svo framvegis. „Flestar popp-
hljómsveitir eru hvort sem er tilbún-
ingur,“ segir Damon. Það er kannski
erfitt að neita því á þessum timum
þegar allt snýst um ímyndir, Qöl-
miðla og mynbönd.
Tónleikaferð fram undan
Gorillaz spilaði á sínum fyrstu tón-
leikum í Scala-klúbbnum í London
fyrir rúmri viku siðan. Það voru
margir spenntir að sjá hvernig
teiknimyndapersónur færu að því að
spila á tónleikum. Það er vissulega
eitthvað sem hægt er að velta vöng-
um yfir. En það gerðist þannig að
hljómsveitin spilaði á bak við tjald
þannig að aðeins útlinur þeirra
sáust. Á tjaldið var líka varpað
myndum af alls konar umhverfi
þannig að í raun voru áhorfendur að
fylgjast með teiknimyndahljómsveit
sem var að spUa í teiknimyndaum-
hverfi, en líka „live“ á staðnum. Á
sama tíma mátti sjá myndbönd
hljómsveitarinnar og fleira efni á
skjám hér og þar i salnum. Tónleik-
amir þóttu heppnast mjög vel og
fram undan eru fleiri tónleikar og
það er staðfest að Damon kemur fram
á þeim, eins og hann gerði í Scala.
Viðskiptavinír Skífunnar og Músíkur & mynda geta gert góð kaup á heitustu plötun-
um þessa dagana, Það eina sem þarf að gera er að klippa út afsláttarmiðann
í Lífinu effir vinnu og mæta niður eftir.
það heitasta
Það eina sem þú þarft að gera er
að klippa út miðann í Lífinu eftir
vinnu og þá færð þú 1000 króna af-
slátt ef keyptar eru tvær plötur í
Heitt-flokknum í Skífunni eða Músík
& Myndum.
Plöturnar
sem eru í
boði eru af ýmsum toga en
eiga það sameiginlegt að hafa far-
ið vel i tónlistarunnendur um heim
allan. Fyrst ber að nefna plötu Dav-
ids Grays, White Ladder, sem verið
hefur á topp tíu á breska breiðskífu-
listanum frá því síðasta sumar. Lög
eins og Babylon og Please Forgive
Me tala sínu máli. írska tríóinu JJ72
hefur verið líkt við Coldplay, Travis
og Muse og hefur samnefnd plata
þ e i r r a
slegið í
gegn með
lögum eins og
Oxygen, October
Swimmer og Snow.
Plata söngkonunnar Anastaciu er
að sjálfsögðu í boði enda hafa lög
eins og I’m Outta Love og Not That
Kind virkað vel á fólk. Platan
S.I.O.S.O.S. Volume 1 með Spooks
ætti að henta þeim vel sem eru farn-
ir að bíða eftir næstu Fugees-plötu.
Wu Tang Clan bjóða okkur svo upp
á plötuna The W sem inniheldur
nokkrar af skærustu stjörnur
rappheimsins. Þá ber að
nefna nýjustu plötur
þeirra Fatboy Slim
og Johnny Cash
auk platna frá
1 i s t a -
mönnum
eins og Shaggy,
Snoop Dogg, Linkin
Park, At the Drive-
In, Daft Punk og PJ
Harvey. Þá má ekki
gleyma tónlistinni úr
kvikmyndinni Almost
Famous, plötu Sugababes,
Hed P.E., nýjustu plötu Blink
182 sem er tónleikaplata og
tónlistinni úr O Brother, Where
Art Though. Heildarlista yfir plöt-
urnar er annars að finna í áður-
nefndum verslunum.
10
f Ó k U S 30. mars 2001