Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2001, Qupperneq 14
i
í f ó k u s
*
T
Það er engin tilviljun
að Björk Guð-
mundsdóttir er
stórstjarna.
Hún kann öll
brögðin í bókinni
um það hvernig á
aö halda athyglinni
á réttum stað, þ.e. á
henni. Aðrar stjörnur
þurfa slfellt að ganga
lengra I þvi að
hneyksla fólk með því
aö opinbera annars
óopinbera líkamshluta
sína eða nota óhefð-
bundið og óviöur-
kvæmilegt orðfæri. En Björk fer hina leiðina.
Hún klæðir sig og hneykslar. Það er ekki eins
og klæðnaður hennar sé eitthvað lltt hyljandi
og sýni viðkvæma líkamshluta - það hefur
ekki gerst síðan hún sýndi bumbuna á sér I
þætti í sjónvarpinu fýrir alltof mörgum árum
síðan. Björk klæðir sig bara ekki eftir þvl sem
aðrir segia til um. Hún stendur eiginlega í
sama strlði og fórnarlambið Jón Steinar Gunn-
laugsson. Þau eru fórnarlömb pólitískrar rétt-
hugsunar. Björk syndir gegn straumnum og
hvar getur tlskustraumurinn veriö þyngri en
einmitt á hátíöinni þar sem Björk kom fram
svanakjólnum. Hefðbundnar stjörnur leita til
tískukónga Evrópu og greiða svimandi háar
upphæðir til að slá I gegn. Allar Lopezurnar og
Pamelurnar falla I skuggann fyrir andarungan-
um sem fýrir löngu er orðinn svanur.
Dauö klaufdýr eru algjörlega úr fókus. Slðustu
mánuðina hefur kúariðan tröllriðið öllu en nú
er gin- og klaufaveikin komin til sögunnar.
Þetta er auövitað bagalegt fyrir bændur en
þeim mun verra fyrir skepnurnar sjálfar. Og
þaö er ekki slæmt af þvl þær verði svo
svakalegar velkar. Nei, nei. Það eru
ríkisstjórnir Evrópu sem hafa séð ástæðu til
þess að drepa dýrin áöur en þau veikjast.
Þúsundum skepna hefur verið slátrað af því
að þær gætu fengiö þennan sjúkdóm - ekki af
því að þær eru meö hræöilega veiki. Aumingja
meglnevrópsku kindurnar og kýrnar eru því
ekki I mjög góðum fíling þessa dagana. En
’ þær veröa líklega aö sætta sig við að það sé
betra að deyja af svöðusárum slátraranna
frekar en að veikjast og deyja kannski.
Allar fréttirnar sem við höfum heyrt um
veikindi evrópskra klaufdýra hefur einskorðast
við það hvernig er hægt að drepa fleiri dýr til
að bjarga þeim frá veikindum. í allri þessari
umræðu hefur aldrei heyrst til hinna manísku
dýraverndunarsamtaka sem láta til sín taka
reglulega I umræðu um sálarlíf fiska og
einfrumunga. Hvernig er það, hafa dýr ekki
rétt á því að veröa veik og deyja í friði?
Þeir vakna fyrir aliar aldir til að koma ruslinu okkar á leiðarenda og spyrja engra
spurninga. Krakkar flykkjast um þá en hlýða leíðbeiningum foreldra sinna um að fara
ekki of nálægt. Starf ruslakallanna er bæði heillandi og fráhrindandi. Þeir vita ná-
kvæmlega hvað þú borðaðir í gær og hvaða jólagjafir þú hafðir ekki óskað þér. Þeir
þekkja þig betur en mamma þín.
_ wm m _ m
RJdSlti
fljótlega í öskunni
„Velkominn í öskuna,“ segir
Helgi bílstjóri og hefur minnst á
móti aukafarþega. Þeir eru fimm
fyrir, en einn liggur lasinn heima.
Steinar, Skafti og Einar Már
stökkva út við Hagabúðina og hafa
snör handtök við tæmingu troðinna
tunna í jórtrandi ruslapressuna .
Klukkan 6:45 er miðstöðin þægi-
legri félagsskapur en kuldaboli,
sem reynir að narta gammosíuvar-
in í eistun á þeim sem úti eru.
Helgi viðurkennir að hann upp-
skeri öfund samstarfsfélaganna á
köldum dögum sem þessum. „Þegar
snjór er þá er þetta algjör viðbjóð-
ur. Eins og að vera í moldarflagi
allan daginn, með tunnu á eftir
sér,“ segir hann. „En við erum
alltaf að. Það er ekki stoppað fyrr
en orðið er ófært.“ Kröfur borgar-
búa um hreinlæti eru heldur ekki
bundnar við veðurfar og veita
öskuköllunum aðhald. Ef sama blei-
an blasir við þeim nógu oft hika
þeir ekki við að láta 118 gefa sér
beint samband við hreinsunardeild-
ina og hella sér yfir mannskapinn
með styggðaryrðum og skítkasti af
sama kaliber og ósótta bleian hefur
að geyma.
Karate og fallnir englar
Strákarnir kippa sér hvorki upp
við að þeir séu kallaðir öskukallar,
né ruslakallar, en á þessum tímum
pólitískrar réttsýni bendir Helgi á
að orðið sorptæknir gæti fyrirbyggt
öll leiðindi. Þetta fellur í góðan
jarðveg hjá hinum sem plægja hann
með hlátri. Mörgum þykir askan
vera forvitnilegur starfsvettvangur
og undrast hvernig hægt sé að end-
ast í því að þrifa upp skítinn eftir
aðra. Húsmæður enda yfirleitt
starfsævina í samfelldri sérri-
drykkju sem er aftur annaðhvort
orsök eða afleiðing þess að þær
horfa á Leiðarljós. Jafn svipleg ör-
lög bíða ekki „sorptækna". „Maður
sýkist fljótlega þegar maður kemur
í þetta. Svo húkkast menn einhvem
veginn á þetta og hanga hér heil-
lengi,“ útskýrir aldursforsetinn
Steinar, Helgi og Skafti standa fyrir aftan hirðskáld öskukallanna, Einar Má.
Helgi. Hann sýktist árið ‘72. Kost-
irnir við starfið eru ótviræðir i
huga strákanna. Hressandi útivera
og hreyfing er það sem heillar. „Ég
hef alla tíð verið jafn hissa á því
hvemig í andskotanum menn geta
verið feitir í þessari vinnu - menn
sem eru kannski búnir að vera í
þessu í 20 ár, og við erum að tala
um 120 kílóa skrokka," segir Helgi
sem hefur gert meira en að gæla
við gírstöngina á löngum öskuferl-
inum. Eins og Steinar og norðan-
maðurinn Skafti hefur hann
nokkurn áhuga á íþróttum og lærði
á sínum tíma karate hjá föður Dóru
Takefusa. Skafti stundar sömu iðju
um þessar mundir og er með gult
belti og því eins gott að fokka ekki
í appelsínugulum mönnum vestan
Tjarnarinnar; 40% þeirra eru gang-
andi vopn. Steinar, á hinn bóginn,
skemmtir sér betur yfir ensku og
íslensku tuðrusparki en austur-
lenskum vindhöggum og minnist
gömlu, góðu daga Fram með hlýju.
Einar Már stundar allt aðra íþrótt
en afgangur hópsins. Hann yrkir.
Ljóðabækurnar í myrkvuðum
heimi og I góðri trú gaf hann út fyr-
ir nokkrum árum og nú er ný bók
væntanleg. Þá ætlar skáldið að til-
einka látinni vinkonu sinni og ber
hún heitið Fallnir englar. Einar
fellst á að flytja eitt erindi úr sam-
nefndu ljóði og gerir vel:
Fallnir englar á himnum skína,
finna loks sálarró.
Fljúga um meó fegurð þína,
litla blómió sem dó.
Innblásturinn fær Einar gjarnan
í vinnunni en hann hefur þó aldrei
nennt að hnoða neinu ljóði saman
um rusl þó ekki sé þar skorti á rími
um að kenna. Hann er snöggur að
benda á að orðin rusl og busl gætu
hæglega stutt hvort annað.
Norskar alfræðibækur
Strákarnir eru með góðan rúnt.
Þeir tæma allt rusl frá Birkimeln-
um að Seltjarnarnesi og þar á milli
leynist margt fyrirmenna. Stundum
sjá þeir æðsta foringja sinn, Ingi-
björgu Sólrúnu, þeytast um á hjóli.
Hún bjó í þeirra hverfl, eins og
Davíð Oddsson, Óli gamli land-
læknir og Vala Matt. Ýmiss konar
óhefðbundinn varningur fellur
strákunum í skaut og Helgi geymir
til dæmis norskar alfræðiorðabæk-
ur frá 1916 og hafnaboltakylfu
frammi í. Um daginn fannst fullur
poki af geisladiskum og í hlýjunni
dundar hann sér við sjálfsnám í
þýskri málfræði eftir að bókin
Þýska fyrir þig gægðist upp úr
tunnu á Hringbrautinni. Helgi seg-
ist halda að launin í öskunni séu
aðeins hærri en annarra borgar-
starfsmanna en gæði flokkanna eru
mismikil. Sjálfur telur hann sig
heppinn með stráka. „Yfirleitt end-
ast menn í einhvern tíma eða gefast
strax upp. Menn hafa komið hingað
og enst í tvo tíma.“ Það þýðir ekki
að tefja framgang „sorptækna" og
nú þarf Helgi að losa, losa rusl.
*
hverjir voru hvar
Það var mikið af föngulegu kvenfólki á
Prikinu enda þurfa Ungfrú Island.is
stelpurnar mikið að halda hópinn þessa
dagana eftir að hafa kynnst svo vel I
keppninni. Um helgina sást þar meðal
annars i Eddu Pétursdóttur og Chloe
Opheliu auk Barkar Sigþórssonar Ijós-
myndara en kollegi stelpnanna, Þórdís
Anna Oddsdóttir, var aftur á móti I góð-
um félagsskap á Húsi málarans um
helgina þar sem sást líka I Gunnar Haf-
liðason rafvirkjameistara sem lét bókstaflega allt
flakka þessa helgina.
Hinn stórskrýtní staður Klaustrið var fullur af fólki
sem kann vel að meta eldspúandi barþjóna og fleira
i þeim dúr. Kokkarnir Rúnar og Jón Amar duttu inn,
Þórdis leikkona og söngkona mætti með yfirplöggar-
anum Eika, tískulöggan og Júróvisjónhönnuðurinn
Svavar Örn lét sjá sig
og hið sama gerði Helgi
Eysteinsson, fjármála-
mógúll og sjónvarps-
stjarna, ásamt Maríkó
Margréti, fyrrum
verslópíu og núverandi
stefnumótamiðlara. Jé-
hannes Ásbjörns af
PoppTívi hékk á barn-
um eins og sönnum
herramanni sæmir og
sötraði koniak, Jón
Baldur og félagarnir úr Hanz, Amar
Laufdal var með veitingablóðið I æðun-
um, Örn Arnarson sundkappi sleppti
miðnæturæfingunni og Þórhildur Ungfrú
ísland-keppandi lét sig hafa það að taka
Hannes maka sinn með. Jón Gunnar
var hvergi sjáanlegur þegar Harpa kon-
an hans fór á kostum á dansgólfinu,
Maggi og Dóri mættu galvaskir ofan úr
Laugarásblói, útvarpsmennirnir Pétur
Jóhann og Doddi sátu sem fastast,
Gassi og Ingó töluðu um töfra útvarpsins, Sveinn
Waage sagði konunni brandara allt kvöldið, Jói Guð
var I diskóstemningu (hann var nota bene sá eini I
þeirri stemningu) og FM957 súkkulaðin Jóhannes
Egilsson, Þröstur, Jól Jó og Gústi Bjarna (hvað vinna
eiginlega margir á þessari útvarpsstöð?).
Greifarnir sáu um fjöriö á Gauknum um siðustu helgi
og þar bar hæst að Siggi Bolla hefur svikist um og
er hættur að mæta á
Astró. Betti hjá KPMG
var I góðu stuði, Hann-
es var útbelgdur af Góu
kúlum, Viddi klippari og
Eiki kvikmyndafram-
leiðandi sáust, Sirrý frá
Amnesty var afar róleg
enda allt vitlaust úti I
heimi og handbolta-
mennirnir Arnar Pét-
ursson og Sigurður
Bragason héldu uppi merki dreifar-
anna. Á sunnudeginum sáu Dúndur-
fréttir um tónlistina og sást þá i Jón
Ólafsson Skífumann, Egil Ólafsson og
Evu Ásrúnu söngkonu aukjúróvisjónfar-
ans Gunnars Ólasonar sem ætlar al-
deilis að endurvekja Oasis-hárgreiðsl-
una og Wham skeggið hans George
Michael.
Astró var upp á sitt besta um síðustu
heigi ef svo má segja þvl þar sást I Hlin
Hawaiian Tropic ásamt vinkonum sln-
um, Phillipe Dreamworld var i rólegheitum að vanda,
Andri Már kynnti sumarbæklinginn fyrir stelpunum
og reyndi að plata einhverjar I að sitja fyrir, Herbert
Arnarsson körfuboltamaður sötraði vatn af áfergju
og harmaði slappt timabil, Siggi Johnny Taboo-kóng-
ur var á svæðinu, Magga stóra hjá Rolf, Sveinn
Waage reytti af sér gamla efnið og Sammi Jagúar
skransaði i r&b tónlistina, Aldavinirnir
Rúnar Freyr leikari (hvar var drottning-
in?) og SUS-formaðurinn Sigurður Kári
voru áberandi rólegir þessa helgina,
Siggi frá Zoom skoðaði bæði stelpur og
stráka, Auður Valmiki var vel klædd og
leikarinn Stefán Kari Stefánsson heill-
aði hvern sem vildi með stælunum. Þór
Jósepsson, módel og leikari, var með
augun opin fyrir öllum tækifærum,
Gunnar Andri sölukennari var óvenju
sorglegur, Tommi Jr. lét eins og hann
ætti staðinn með FM-gellunum (sorglegt
viðurnefni) Mariu, Elinu og Lovisu.
Magnús Geir Þóröarson leikhússtjóri
tók upp gömul spor á dansgólfinu, Addi
Fannar úr Skítamóral beitti sömu belli-
brögðum á stelpurnar og hljómsveitin er
þekkt fyrir, Anna Eiriksdóttir tók eró-
bikkspor á gólfinu á meðan Konráð
Ólafsson handboitamaður faldi sig fyrir
þjálfaranum úti í horni. Ragga konan
hans Eiðs Smára var á svæðinu með
vinkonum slnum, Kristján Jónsson
Ólafssonar var með veskið á lofti og gömlu Sálar-
poppararnir Stefán Hilmarsson og Guðmundur Jóns-
son létu fara vel um sig. Þá sást í Róbert Marshall
fréttamann, Simba klippara, snillinginn Helga
Bjömsson, Yesmine dansara sem er vist að fá ótal
tílboð um dansverkefni þessa dagana, Einar Karl há-
stökkvara og Gunna Möller. Ólíver og Fjölnir Þor-
geirs styrktu vínskapinn á barnum uppi,
Auðunn kraftajötunn var stórkarlalegur
og það var Ingvar Þórðarson einnig.
Berglind fegurðardrottning var mætt að
vanda, Svavar Örn tískulögga tók út
fólkið, Björn Jörundur var I sjónvarps-
skapi, Vernharð Þorleifsson júdómaður
henti í eitt ippon, Elva módel lét taka
myndir af sér hægri vinstri og Bjarni
Guðjónsson Stoke-maður skemmti sér
vel þrátt fyrir að hafa litlu að fagna eftir
hörmulegt gengi undanfarið.
f Ó k U S 30. mars 2001