Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 3
fókus
wL X ^ F
X-L-B V-í-M-R-U-
viö mælum meö
l'i V/ ii ti ií' j i: r- fi U i', fi
gera um helgina
Eftir vinnu á föstudaginn ætla ég
út að borða á Ítalíu með félögunum
í hljómsveitinni. Svo förum við
beint á hljómsveitaræfingu. Ef æf-
ingar standa ekki langt fram á nótt
getur vel verið að maður kíki í bíó.
Á laugardaginn ætla ég að vera
heima og slappa af og kannski leika
mér í tölvunni. Síðan fer ég og fæ mér
einhvern góðan bita en mér finnst sér-
staklega gott að borða á Tex Mex. Um
kvöldið verða svo aftur strangar æfingar
með hljómsveitinni. Ég ætla að hitta
mömmu á sunnudaginn og eiga smá
family-time með henni. Svo er aftur
æfing um kvöldið en i þetta sinn
verðum við búnir klukkan átta og
þá fer ég á samkomu.
Oddur Carl Thorarensen, söngvari í
hljómsveitinni Trompet.
Norski kitsch-máiarinn Odd Nerdrum vekur umræðu hvar sem hann fer. Auglýsingar
um sýningu Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum á verkum hans komust í fréttir
um leið og þær voru settar upp. Odd segist hataður af gagnrýnendum víða um
heim en sérstaklega segir hann að þeim sænsku sé í nöp við sig. Honum er nokk
sama, hann er ekki listamaður - hann er kitsch-málari
Odd Nerdrum er ekki bara hatað-
ur af gagnrýnendum. Mörgum al-
mennum borgurum er ekki vel við
hann. Hann er hálfgert ólíkindatól
og lítur út fyrir að vera það. Hann
klæðist ekki venjubundnum fatnaði.
Hann gengur um í kufli og hár hans
er úfið og strítt. Hann er hár og mik-
ill um sig í kuflinum og óárennileg-
ur. Þegar ég sest niður andspænis
honum hugsa ég með mér að hann
sé örugglega göldróttur.
Síðustu 15-20 árin hefur Odd Ner-
drum notað íslenskt landslag í
myndum sínum. Hann vissi hins
vegar ekki hvaðan þetta landslag
var komið. Það var bara í myndun-
um hans.
„Andrúmsloft íslensks landslags
er villt,“ segir Odd. „Tilfinning mín
fyrir íslensku landslagi er að það sé
svart og fullt af sorg. Sálfræðileg
áhrif þess eru þunglyndislegur tóm-
leiki sem ég elska. Ég þoli ekki tré.
Það er allt í lagi með eitt og eitt en
mörg eru þau hrein andstyggð."
Hrafn vekur
Odd kom til íslands i fyrsta sinn
eftir að hann hafði séð Hrafninn
flýgur, kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar. Odd segir Hrafn snill-
ing.
„Allir snillingar eru umdeildir.
Voltaire sagði að þegar allir væru
sammála væri ekkert frelsi. Því á að
gleðjast yfir því að einn skeri sig út
úr og geri og segi annað en aðrir í
samfélaginu. Það er mjög mikilvægt.
Þegar leitað er eftir þvi að allir séu
eins er komið hættulegt ástand. Þá
eru allir sofandi. Hrafn vekur.“
Afurð 18. aldar
„Ég er ekki hluti af listamanna-
samfélaginu. Ég er kitsch-málari og
það mjög góður. Þegar maður er
kitsch-málari þá er ekkert skjól; það
er enginn sem verndar mann. Engin
heilög lög listarinnar. Þess vegna
var í lagi að fela hluta af málverk-
inu mínu í auglýsingum. Það væri
aldrei gert við listaverk."
Af hverju skilgreiniröu þig ekki
sem listamann?
„List var fundin upp síðast á 18.
öld. Emmanuel Kant setti reglur um
Lákerol
Hið sænska
Lákerol hefur
endanlega
leyst ópalið af
hólmi. Það er
ekki bara rosa-
lega gott heldur
líka frá Sverige
og eins og allir vita koma bara
góðir hlutir þaðan. Spyrjið bara
þá sem eiga Volvo.
Sparibaukar j
Hver kannast ekki -J '
við óþolandi
klink sem
þvælist fyr-
ir í vösum
og veskj-
um? Með því
að safna því
saman í sparibauk
má sleppa við að dröslast um með
fimm°þúsund kall i klinki og í
staðinn safna fyrir utanlandsferð.
Það er fátt skemmtilegra en að
borga 30.000 króna flugmiða með
klinki.
Markvisst kynlíf
í nokkra áratugi höfum við
stundað æf-
ingakynlíf
sem miðar
ekki að
neinu nema
bæta kyn-
ferðislegt
úthald. Af
hverju ekki
að hætta
tilgangs-
lausu hjakki og rándýrum getnað-
arvörnum og láta kviði þenjast út
og börn skríða úr mæðrum sínum.
Börn eru ágæt. Svo stækka þau
líka og geta sótt mann í partíin
þegar maður verður orðinn mið-
aldra og þau komin með bílpróf.
Fæði ríka mannsins
Farið út í verslun og sláið um
ykkur. Kaupið nokkur kíló af
papriku til að sýna að þið séuð rik
og flott.
Ad hjóla í jnkbjóli er eim og að sogast inn í svarthoL ________T?1
Túnbm líður sifclll haegar og hargar.
Kitsch er
listarinnar
satan
„Ég veit líka að ef íslenskir gagnrýnendur skrifa um þessa sýningu verða þeir mjög neikvæöir," segir Odd Nerdrum. „Þeir
eru menntaðir." Innfelda myndin er verk Odds, Reifabarn.
list og eftir þeim fara gagnrýnendur
í mestu. Þess vegna má segja að list-
in sé trúarbrögð. Það liggur eitthvað
að baki listaverkum. í mínum verk-
um er allt á yfirborðinu. Ég hef kos-
ið mér klassíska aðferð við málverk
sem var ríkjandi fyrir daga Kants.
Hann afneitaði klassíska verkinu.
Hann sagði að það gæti verið meira
á bak við krot en gott klassískt
handverk. Þannig varð listin til.
Þess vegna varð ég að segja skilið
við myndlistina og gerast kitsch-
málari. Kitsch er satan listarinnar.
Það varð gælunefni þeirra sem ekki
fylgdu lögmálum listarinnar."
Eilíft andrúmsloft
„Ég hata ekki listina. Hún er að
mörgu leyti yndisleg. Opinberlega
er hún góð. Ég hef ekki áhuga á því.
Ég hef áhuga á hinu eilífa þar sem
draumurinn ræður. Nútíminn vek-
ur ekki áhuga minn því eftir fimm-
tíu ár verður hann orðinn gamall.
Ég vil ekki fylgja þeirri þróun held-
ur stíga út úr henni og öðlast and-
rúmsloft eilífðarinnar. Þess vegna
hef ég tileinkað mér tækni endur-
reisnarinnar."
Fullir haturs
Eru gagnrýnendur alltaf neikvœö-
ir gangvart verkum þínum?
„I Bandaríkjunum hafa þeir
stundum verið mjög jákvæðir. í
Noregi eru þeir yfírleitt hræðilegir
og í Sviþjóð hafa þeir verið afar nei-
kvæðir; stundum fullir haturs.“
Þótt Odd sé ekki vinsæll á Norð-
urlöndum segja sumir að hann hafi
öðlast nokkrar vinsældir í Banda-
rikjunum. Ég tek upp bók sem ligg-
ur á borðinu og í eru hugleiðingar
og heimspeki Odds um kitsch. Hún
er nýkomin út á ensku og er á leið-
inni til Bandaríkjanna.
Og Bandaríkjamönnum líkar vel
viö þig, ekki satt?
„Nei, ég held ekki. Kannski
nokkrum en ég held að það séu ekki
margir hrifnir af mér og því sem ég
geri. Og ég veit hvers vegna. Það er
af því ég er ekki á réttum stað en ég
veit alveg hvar ég er. Ég veit líka að
ef íslenskir gagnrýnendur skrifa um
þessa sýningu verða þeir mjög nei-
kvæðir. Þeir eru menntaðir."
Tffí
ma.