Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 3
16
+
17
Sport
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001
DV DV
Sport
Sævar Ámason, fyr-
irliöi KA, átti mjög
góöan leik í gær
áöur en hann
meiddist og skoraöi
5 mörk úr 6 skotum.
Hér brýst hann fram-
hjá Haukamönnun-
um Einari Emi Jóns-
syni og Ásgeiri Hall-
grimssyni.
DV-mynd Brink
Atli Hilmarsson, þjálfari KA:
Hausinn í lagi
- einvígi sem ég er feginn að vera 1-0 yfir í
„Ég er mjög ánægöur með leikinn og
þá sérstaklega varnarleikinn sem hélt
mjög vel. Við lentum oft í stöðunni
einum færri og tveimur færri en héldum
það vel út og reddaði Hörður Flóki okkur
oft í dauðafærum en ég er ánægður
hvernig vörnin hélt í allt kvöld. Það
sýnir mikla skynsemi að geta haldið haus
þegar við erum tveimur færri. Það sýnir
sig í svona leikjum að það verður að hafa
hausinn í laginn, liðið er orðið þreytt
eftir erfiða leiki að undanförnu og þá
þarf að sýna smá skynsemi,“ sagði Atli
Hilmarsson ánægður í leikslok.
Hvað með annan leikinn á
laugardaginn?
„Þetta er einvígi sem ég er feginn að
vera kominn yfir í 1-0. Við erum komnir
með forskot og eigum alltaf oddaleikinn á
heimavelli. Við erum að eiga við íslands-
og bikarmeistarana þannig að þetta
verður mjög erfltt. Við unnum þama
síðast og fórum þangaö til að vinna. Það
væri gott að vinna þetta í þremur
leikjum og taka bikarinn hér á
mánudaginn," sagði Atli Hilmarsson,
þjálfari KA, í samtali viö DV-Sport í
leikslok á 25-20 sigri KA á Haukum í
gær.
Vörnin er okkar aöali
„Við höfum oft spilað betur en það
gekk upp það sem við lögðum upp með;
að vinna leikinn, það tókst og ég er
ánægður með það. Sóknarleikurinn gekk
ágætlega en varnarleikurinn er okkar
aðall og ef viö náum honum góðum þá
vinnum við alla leikina hérna á
heimavelli. Leikurinn á laugardeginum
verður annar svona baráttuleikur en þeir
á heimavelli og þá aðeins með vindinn i
seglin," sagði Sævar Árnason í leikslok.
Sœvar meiddist þegar hann skoraði
fimmta mark sitt en er það alvarlegt?
„Ég tognaði í hinum kálfanum fyrir
áramót, ég vona að ég hafi nú bara fengið
smá krampa í kálfann en ekki tognað. Ég
vona það besta. Það er nuddbekkurinn á
morgun og síðan sér maður til,“ sagði
Sævar að lokum. -JJ
Giedrius Cserniauskas
sést hér í dauöfæri gegn
Bjarna Frostasyni, mark-
veröi Hauka, í fyrsta leik
liöanna í KA-húsinu f
gær.
DV-mynd Brink
IA í undanúrslit
Skagamenn urðu íjórða og síðasta liðið til að
komast í undanúrslit deildabikarsins þegar þeir
lögðu Keflavíkinga, 1-0, í Reykjaneshöllinni í gær.
Hálfdán Gíslason skoraði sigurmarkið á 49. mín-
útu og hefur hann nú skorað flest mörk allra leik-
manna i Deildabikarnum á þessu ári, 8 talsins. ÍA
mætir FH í undanúrslitum 1. maí n.k. -ósk
NBA-DEELDEN
Los Angeles Lakers komst í,
2-0, i einvigi sínu við Portland
Trailblazers í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar með sigri á
heimavelli, 106-88, á heima-
velli. Shaquille O’Neal var at-
kvæðamestur hjá Lakers,
skoraöi 32 stig og tók 12 frá-
köst. Kobe Bryant skor-
aði 25 stig og hitti úr 8
af 11 skotum sínum í
leiknum og Rick Fox
skoraði 19 stig, tók 8 frá-
köst og gaf 6 stoðsendingar.
Scottie Pippen var atkvæða-
mestur hjá Portland, skoraði
21 stig og tók 8 fráköst. Ras-
heed Wallace skoraöi 17 stig,
Steve Smith skoraði 16,
Arvydas Sabonis 11 og Damon
Stoudamire 10. Næstu tveir
leikir í einvíginu fara fram í
Portland.
Toronto Raptors vann stórsig-
ur á New York Knicks, 94-74,
og náði þar með aö jafna met-
in, 1-1, í einvígi þessara liða.
Leikmenn Toronto áttu frá-
bæran þriðja leikhluta sem
vannst með tíu stigum og
lagði grunninn að sætum
sigri. Alvin Williams var
stigahæstur hjá Toronto, skor-
aði 23 stig. Vince Carter skor-
aöi 22 stig og tók 7 fráköst,
Antonio Davis skoraði 15 dtig
og tók 12 fráköst og Charles
Oakley skoraði 12 stig og 10
fráköst. Kurt Thomas var eini
maðurinn með meðvitund í
liöi New York. Hann skoraði
23 stig og tók 12 fráköst. Allan
Houston skoraði 14 stig, Glen
Rice skoraði 13 og Mark
Jackson skoraði 10 stig og tók
9 fráköst. -ósk
0-2, 2-2, 2-3 (7 min.), 5-3,
5-4, 8-4 (19 min), 8-6, 9-7,
11- 7 (26 mín), 11-9, 12-9,
12- 10, (13-10), 13-11, 14-12,
\-Haukar25-20 (13-10)
17- 12 (40 min.), 18-13,
18- 15, 20-16, 20-17,
23- 17, 23-18 (57 min.),
24- 18, 24-20, 25-20.
- gerði KA kleift að leika 18 mínútum lengur manni færri og vinna samt sannfærandi
KA:
Mörk/viti (skot/viti): Halldór Sigfússon
6/3 (9/3), Sævar Árnason 5 (6), Guðjón
Valur Sigurðsson 5/3 (10/3), Giedrius
Cserniauskas 4 (7), Andrius Stelmokas 2
G), Jóhann G. Jóhannsson 1 (1), Heimir
Órn Ámason 1 (3), Amór Atlason 1 (4).
Varin skot/viti (skot á sig):
Hörður Flóki Ólafsson 17/2 (36/6, 47%, 3
af 5 langskotum, 0 af 5 hraðaupphlaupum,
4 af 4 úr homi, 6 af 9 gegnumbrotum, 2 af
7 af línu, 2 af 6 vítum),
Hans Hreinsson 0 (1/1, 0%).
Mörk ú r hraóaupphlaupum: 5
(Csemiaukas 3, Sævar, Heimir).
W Samanburöur^
58% Skotnýting 61%
3 Fráköst frá marki 8
8 Tapaöir boltar 15
46% Markvarsla 39%
1 Varin skot í vörn 6
6/6 Vítanýting 7/5
5 Hraöaupphlaupsmörk 5
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Rúnar
Sigtryggsson 7/5 (10/6), Ásgeir Örn
Hallgrímsson 4 (4), Áliaksandr Shamkuts
4 (5), Andri Þorbjörnsson 1 (1), Styrmir
Gunnarsson 1 (1), Tjörvi Ólafsson 1 (3),
Einar Örn Jónsson 1 (3), Óskar
Ármannsson 1 (5/1).
Varin skot/viti (skot á sig):
Biarni Frostason 13 (29/4,45%, 1 af 2 lang-
skotum, 4 af 9 hraðaupphlaupum, 2 af 2 úr
horni, 5 af 10 gegnumbr., 1 af 2 af línu),
Magnús Sigmundsson 3 (12/2, 25%, 2 af 5
langskotum, 0 af 2 úr homi, 1 af 2 gegn-
umbrotum, 0 af 1 af línu).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 5 (Ásgeir
2, Rúnar, Styrmir, Tjörvi).
Skotnýting eftir leikstööum:
Langskot: 15/4, 27% Gegnumbrot: 8/6, 75%
Horn: 3/2,67% Lína: 3/2,67%
- Skot úr stöðum: 29/14, 48% -
Hraðaupphlaup: 8/5, 63%
Vítaskof 6/6,100%
Önnurtölfræði:
Stoðsendingar: 12 (Guðjón Valur 6, Arnór
2, Halldór, Stelmokas, Hreinn, Jónatan).
Fiskuð víti: 6 (Sævar 2, Csemiauskas 2,
Halldór, Stelomokas).
Sendingar sem gáfu viti: 6 (Guðjón Valur
4, Heimir, Halldór).
Boltum náó: 8 (Guðjón Valur 4, Jónatan
Magnússon 2, Sævar, Stelmokas).
Fiskaóir brottekstrar: 2 (Guðjón, Halldór).
Fráköst af skotum: 3 (0 í sókn, 3 i vöm,
Csemiauskas, Hreinn Hauksson, Jónatan).
Varin skot í vörn: 1 (Stelmokas).
22 Refsimínútur 4
Sóknarnýting:
Fyrri hálfleikur:
KA . . 59% (22/13)
Haukar . . 45% (22/10)
Seinni hálfleikur:
KA . . 48% (25/12)
Haukar . . 42% (24/10)
Samtals:
KA . . 53% (47/25)
Haukar . . 43% (46/20)
Dómarar (1~10): Anton Pálsson og
Hlynur Leifsson (7).
Gϗi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 1000. Húsið hélt en nýja
hljóðkerfið þoldi ekki álagið og gaf sig.
Skotnýting eftir leikstööum:
Langskot: 4/2, 50% Gegnumbrot: 6/3, 50%
Horru 4/0, 0% Lina: 6/5, 83%
- Skot úr stöðum: 20/10, 50% -
Hraðaupphlaup: 6/5, 83%
Vitaskot: 7/5, 71%
Önnur tölfræöi:
Stoósendingar: 11 (Rúnar 3, Ásgeir 2, Einar
Öm 2, Tjörvi, Óskar, Einar G., Vignir
Svavarsson).
Fiskuó viti: 7 (Shamkuts 3, Rúnar 2, Einar
Örn, Óskar).
Sendingar sem gáfu viti: 6 (Rúnar 3,
Ásgeir 2, Óskar).
Boltum náó: 4 (Shamkuts 2, Ásgeir, Tjörvi).
Fiskaóir brottekstrar: 11 (Shamkuts 5,
Ásgeir 3, Óskar, Magnús, ein leiktöf).
Fráköst af skotum: 8 (2 í sókn, 6 í vörn,
Ásgeir 2, Shamkuts, Tjörvi, Einar Öm,
Óskar, Rúnar, Vignir).
Varin skot í vörn: 6 (Shamkuts 3, Einar
Öm, Rúnar, Vignir).
Maður leiksins: Sævar Arnason, fyrirliði KA
DV, Akureyri:
KA-menn unnu fyrsta leik-
inn i úrslitaeinvígi sínu við
Hauka um íslandsmeist-
aratitilinn í handbolta karla,
25-20, í fullu KA-húsinu í gær.
Haukar skoruðu tvö fyrstu
mörk leiksins en eftir að KA-
menn skoruöu fyrsta mark sitt
eftir fjórar mínútur komust
þeir á skrið og höfðu frum-
kvæðiö eftir það og út leikinn.
KA-menn skoruðu átta mörk
gegn tveimur á 15 mínútna
kafla í framhaldinu sem inni-
hélt meðal annars sex tapaða
bolta og aðeins eitt mark út úr
tíu sóknum Haukanna í röð.
Það var samt ýmis tölfræði í
leiknum þar sem ekki mátti
lesa út úr þann sannfærandi
sigur sem norðanmenn unnu á
íslands- og bikarmeisturunum í
gær en KA hefur nú unnið allar
þrjár viðureignir liðanna i vet-
ur. Hér kemur smásýnishom:
1. KA-menn voru út af I 22
mínútur eða 18 mínútum leng-
ur en Haukarnir. Haukar náðu
þó aðeins að gera 3 mörk af
sínum 20 þegar þeir voru
manni fleiri inni á vellinum en
þess í stað gerðu KA-menn sjö
mörk manni færri.
2. Haukarnir nýttu 61%
skota sinna i leiknum, náðu 8
af 11 fráköstum sem í boði voru
og misstu boltann aðeins 10
sinnum eftir misheppnað skot.
3. Haukar vörðu sex skot í
vörninni, fimm fleiri en KA-
menn hinum megin og mark-
verðir liðsins vörðu að auki 16
skot í leiknum.
Það var aðallega hik
Haukanna i sókninni sem og
óyfirvegaður leikur liðsins sem
olli því hversu illa þeim gekk
að nýta sér refsimínútur KA-
manna. Haukar náðu meðal
annars að misnota fjórar sókn-
ir tveimur mönnum fleiri og í
einni þeirra fengu þeir dæmda
á sig leiktöf sex gegn fjórum.
Aðdáunarverö vörn
Framliggjandi vörn KA-
manna var vissulega aðdáun-
arverð í þessum leik, Jónatan
Magnússon var frábær og naut
auk þess góðs stuðnings Guð-
jóns Vals Sigurðssonar og
Hreins Haukssonar við að loka
fyrir götin meö frábærri fóta-
vinnu. Þessi vörn kostaði
vissulega fjölmarga brott-
rekstra sem Haukar hefðu eins
og áður sagði getað refsað
þeim meira fyrir en gerðu
ekki, einkum fyrir ótúlega
vinnslu ungu strákanna sem
vinna upp skort á sentímetr-
um með mikilli vinnusemi og
áræðni.
Mikiö lagt á heröar Ás-
geirs
Það var mikið lagt á herðar
hins 17 ára Ásgeirs Hallgrims-
sonar hjá Haukum og framan
af sýndi þessi bráðefnilegi
strákur frábær tilþrif og gerði
4 mörk úr 4 skotum í fyrri hálf-
leik. Ásgeir hefur tekið við
hlutverki Halldórs Ingólfsson-
ar en það er nokkuð ólíkt á
komið með leikreynslu þess-
ara tveggja.
KA-menn gerðu sér vel
grein fyrir þessu og gengu hart
út í aðra sóknarmenn
Haukanna sem gerði það að
verkum að Ásgeir þurfti að
taka af skarið auk þess sem
Sævar Árnason var duglegur
að keyra á hann í vörninni og
þreyta hann þeim megin vall-
arsins líka. Ásgeir var því orð-
inn mjög þreyttur í seinni hálf-
leik og gerði í kjölfarið nokkuð
að mistökum.
Aliaksandr Shamkuts var
KA-mönnum erfiður enda
skoraði kappinn fjögur mörk
auk þess að fiska þrjú víti og
fimm menn út af en Shamkuts
fékk lika góða mötun frá Rún-
ari Sigtryggssyni sem átti góð-
ar sendingar og nýtti vítin vel.
Hornamenn Haukanna fundu
sig engan veginn i gær en þeir
Einar Öm Jónsson og Þorvarð-
ur Tjörvi Ólafsson höfðu gert 9
mörk að meðaltali í fyrstu fimm
leikjunum en skoruðu aðeins
tvö mörk saman í gær úr 6 skot-
um og hvorugt þeirra úr hom-
inu, Einar Öm af línu eftir
sóknarfrákast og Tjörvi úr
hraðaupphlaupi.
Fleiri Haukar
vom fjarverandi
í þessum leik og
þá sérstaklega í
sókninni. Óskar
Ármannsson
lenti sérstaklega
í basli með hina
snöggu varnar-
menn KA-liðs-
ins. Haukar eiga
mikið inni og því má ekki
gleyma að þegar þeir unnu titil-
inn i fyrra voru þeir ekki líkleg-
ir eftir 10 marka tap í fyrsta leik
lokaúrslitanna gegn Fram í
Safamýri. Þeir svöruðu með
þremur sigrum í röð og unnu
titilinn en til að eitthvað í lík-
indum við það gerist aftur í ár
þarf margt að breytast til batn-
aðar i leik liðsins fyrir laugar-
daginn.
Sævar kom sterkur inn
Hjá KA kom Sævar Árnason
mjög sterkur inn og nýtti sér
oft vel hversu stíft Einar Örn
Jónsson gætti Guðjóns Vals
Sigurðssonar. Guðjón Valur,
sem bjó til 10 mörk fyrir félaga
sina i leiknum (6 stoðsending-
ar + 4 sendingar sem gáfu víti
og mark), var rólegur og skaut
aðeins sex sinnum á mark eft-
ir uppsetta sókn og KA-menn
eiga hann inni ásamt Heimi
Erni Árnasyni. Guðjón lék
samt vel, skoraði 5 mörk og
stal 4 boltum og gerði 23.
markið með glæsilegu skoti
sem kom KA í 23-17 og kveikti
sigurhátíð á pöllunum.
Það mátti vissulega sjá glitta
í meistaraefni í KA-liðinu í
þessum leik. Liðið hefur unniö
14 heimaleiki i röð og tapi þeir
ekki á heimavelli vinna þeir
titilinn. -ÓÓJ
Margir staöir til að bæta
„Þetta var erfiður leikur. Við spiluðum alveg skelfilega allan leikinn og er
ekki hægt annað en að bæta sig fyrir næsta leik gegn þeim. Við gerðum
okkur þetta sjálfum erfitt með lélegri spilamennsku en náðum okkur ekki á
strik í vörninni og þaðan af síður í sókninni. Við höfum marga staði til að
bæta okkur á og munum mæta þeim óhræddir á ÁsvöOum á laugardaginn,“
sagöi Bjarni Frostason, markmaður Hauka og einn besti maður liðsins, eftir
tap liðsins gegn KA á Akureyri i gær. -JJ
Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliöi KR, var valin besti leikmaöur 1. deildar kvenna aö mati DV-Sport.
Kristín Björk Jónsdóttir, best í kvennakörfu, að mati DV-Sport:
„Auðvitað alveg
rosalegur vetur"
„Þetta var auðvitað alveg rosaleg-
ur vetur og alveg ævintýri líkastur.
Við uppskárum eins og við sáðum og
erum í sjöunda himni með afrakstur-
inn,“ sagði Kristín Björk Jónsdóttir,
besti leikmaður nýliðins tímabils í
körfuknattleik kvenna, að mati DV-
Sport, í gær er hún hafði veitt verð-
launum sínum viðtöku.
Kristín Björk átti stórbrotið tíma-
bil með liði KR. Hún tók við fyrir-
liðastöðunni í upphafi leiktíðarinnar
er Guðbjörg Norðdahl hvarf á braut
i barneignarfrí. Og á fyrsta ári sem
fyrirliði hampaði hún fimm bikur-
um af fimm mögulegum. Að auki
náði hún bestum árangri sínum í
stigaskorun, stoðsendingum og frá-
köstum á ferlinum.
„Þrátt fyrir að við misstum Guð-
björgu í byrjun móts auk Lindu Stef-
ánsdóttur kom aldrei annað til
greina en að ná góðum árangri. Við
náðum að stilla saman okkar strengi
og liðið var mjög samhent í öllum
sínum aðgerðum. Viö lögðum höfuð-
áherslu á vörnina og það var fyrst og
fremst hún sem skilaði okkur þess-
um frábæra árangri."
Kristín Björk hóf að iðka
körfuknattleik á Sauðárkróki: „Ég
var þá 14 ára gömul. í dag heitir það
að byrja seint ef maður byrjar 14
ára. 17 ára fluttist ég til Reykjavíkur
og gekk þá strax í KR,“ segir fyrirliði
KR sem er sammála því að nýafstað-
ið keppnistímabil sé það besta á
hennar ferli: „Og þessi verðlaun nú
frá DV-Sport eru skemmtileg viðbót
við tímabilið. DV-Sport á hrós skilið
fyrir umfjöllun sína sl. vetur um
kvennakörfuna."
En hvað með framtíð kvennakörf-
unnar?
„Framtíðin er nokkuð björt. Lið-
unum hefur að vísu fækkað en það
eru ung og mjög efhileg lið í augsýn.
Boltinn sl. vetur var betri en hann
hefur áður verið og það sem gerði
deildina mjög skemmtilega var hve
spennandi toppbaráttan var.“
Kristín Björk er dóttir Jóns Sig-
urðssonar, sem lengi gerði garðinn
frægan með Ármanni og KR. Systir
hennar leikur með henni í KR og
bróðir hennar leikur með KR og ann-
ar með Tindastóli. Fósturfaðir henn-
ar er Kári Marísson sem lengi var
með snjallari leikmönnum landsins í
KFR og Val. Kári er enn að og lék af
og til með Tindastóli í vetur sem
langelsti leikmaður deildarinnar:
„Hann er ótrúlegur og eiginlega má
segja að hann sé ekki hægt,“ sagði
Kristín Björk Jónsdóttir um
fósturfóður sinn. -SK
Topplistarnir
Flest stig í leik:
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . 13,2
Hafdís Helgadóttir, ÍS ........12,73
Hildur Sigurðardóttir, KR . . . 12,69
Hanna B. Kjartansdóttir, KR .. 12,6
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 12.4
Kristín Björk Jónsdóttir, KR . . 12,2
Stefanía Ásmundsdóttir, KFÍ. . 10,3
Sólveig Gunnlaugsdóttir, KFÍ . 10,2
Gréta María Grétarsdóttir, KR 10,1
Sigríöur Anna Ólafsdóttir, Gr, . 9,1
Gegn KR: Kristln Blöndal, Keflavík
14,3.
Gegn Keflavík: Kristín Björk Jóns-
dóttir, KR 17,0.
Gegn KFl: Gréta María Grétarsdótt-
ir, KR 15,3.
Gegn ÍS: Hildur Sigurðardóttir, KR
14,8.
Gegn Grindavík: Hanna B. Kjartans-
dóttir, KR 23,3.
Flest fráköst í leik:
Hafdís Helgadóttir, ÍS...........11,2
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik . 10,5
Lovfsa Guðmundsdóttir, ÍS . .. 10,3
Hiidur Sigurðardóttir, KR .... 8,1
Hanna B. Kjartansdóttir, KR .. 6,9
Gegn KR: Erla Þorsteinsdóttir, Kefla-
vik 9,3.
Gegn Keflavík: Lovísa Guðmunds-
dóttir, lS 12,0.
Gegn KFÍ: Hafdís Helgadóttir, ÍS 14,0.
Gegn ÍS: Erla Þorsteinsdóttir, Kefla-
vík 10,3.
Gegn Grindavík: Erla Þorsteinsdótt-
ir, Keflavík 12,7.
Erla Þorsteinsdóttir, Kefiavík, fékk verölaun fyrir flest stig aö meöaltali í
leik, 13,2 stig. DV-mynd E.ÓI
Theódóra Káradóttir, Keflavík, var með besta vítanýtinguna á liöinni leiktíö
og hitti úr 83,3% vítaskota sinna. DV-mynd E.ÓI