Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2001, Blaðsíða 4
18 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 dvsport@ff.is Gréta María Grétarsdóttir, KR, var meö flestar stoösendingar að meöaltali í leik í vetur, 4,1 stoðsendingu aö meöaltali. DV-mynd E.ÓI. Þær Hafdís Helgadóttir og Hanna B. Kjartansdóttir unnu til fimm verðlauna hjá DV-Sport aö þessu sinni. Hafdís fékk verölaun fyrir flest fráköst, flest varin skot og bestu nýtingu í 3ja stiga skotum. Hanna fékk verðlaun fyrir flesta stolna bolta og bestu skotnýtingu. DV-mynd E.ÓI. Lovísa Guömundsdóttir, ÍS, var hnífjöfn Grétu Maríu í flestum stoösending- um í leik, 4,1 sendingu aö meðaltali. DV-mynd E.ÓI. Topplistarnir Flestar stoðsendingar í leik: Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 4,1 Gréta María Grétarsdóttir, KR . 4,1 Kristín Blöndal, Keflavík......3,6 Hildur Sigurðardóttir, KR .... 3,5 Tinna B. Sigmundsdóttir, KFf . 3,2 Gegn KR: Tinna B. Sigmundsdóttir, KFÍ, 5,0. Gegn Keflavik: Hildur Sigurðardótt- ir, KR, 4,3. Gegn KFÍ: Gréta María Grétarsdóttir, KR, 4,8. Gegn ÍS: Gréta María Grétarsdóttir, KR, 5,0. Gegn Grindavík: Hildur Sigurðar- dóttir, KR, 4,8 og Kristín Blöndal, Keflavík, 4,8. Flestir stolnir boltar í leik: Hanna B. Kjartansdóttir, KR . . 3,3 Gréta María Grétarsdóttir, KR . 2,9 Stella Rún Kristjánsdóttir, ÍS . . 2,6 Hafdís Helgadóttir, ÍS............2,5 Marín Rós Karlsdóttir, Keflavík 2,3 Flest varin skot í leik: Hafdís Helgadóttir, fS............4,3 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 4,1 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 2,9 Svava Ósk Stefánsd., Keflavík . 1,6 Birna Valgarösdóttir, Keflavík . 1,5 Flest varin skot í leik: Hafdís Helgadóttir, ÍS.........4,3 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 4,1 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . 2,9 Svava Ósk Stefánsd., Keflavík . 1,6 Birna Valgarðsdóttir, Keflavík . 1,5 Besta skotnýting Hanna B. Kjartansdóttir, KR . 44,3% Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . 43,0% Gréta Maria Grétarsdóttir, KR 42,8% Stefanía Ásmundsdóttir, KFl 41,4% Sigríður Guðjónsdóttir, Keflav. 41,3% Besta 3ja stiga skotnýting Hafíds Helgadóttir, ÍS..34,4% Birna Valgarösdóttir, Keflavík 29,8% Marín Rós Karlsdóttir, Keflav. 28,8% Gréta María Grétarsdóttir, KR 26,8% Helga Þorvaldsdóttir, KR . .. 25,6% Besta vítanýting Thedóra Káradóttir, Keflavík . 83,3% Sólveig Gunnlaugsdóttir, KFÍ . 82,3% Marín Rós Karlsdóttir, Keflav. 75,8% Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík 74,0% Hanna B. Kjartansdóttir, KR 73,7% Erlendir atvinnuleikmenn deildar- innar eru ekki gjaldgengir á þessa topplista DV-Sport. -ÓÓJ Fræðsla um Elliðavatnið „Á morgun verður kynning á El- liðavatni í sal SVFR að Háaleitis- braut milli kl. 15:00 og 17:00. Um er að ræða fyrsta fjölskyldudag félags- ins á þessu ári en sambærilegur dagur sem haldinn var á siðasta ári var talinn hafa lukkast mjög vel þannig að ákveðið var að halda áfram á svipaðri braut," sagði Berg- ur Steinsgrímsson hjá SVFR í sam- tali við DV-Sport. „Að þessu sinni verður haldin kynning á töfrum Elliðavatns og sér hinn kunni veiðimaður Guttormur Einarsson um kynninguna. Hann mun fjalla um galdra vatnsins; feng- sælustu flugurnar, breytingar sem hafa orðið á umhverfi fiska og veiði- manna og auðvitað bestu veiðistað- ina við vatnið. Hægt verður að fá léttar veiting- ar þ.e. kaffi, kökur, safa og gos. Yngri félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að koma en af mörgum hefur Elliðavatnið verið kallað há- skóli stangaveiðinnar." -G. Bender - Henning Henningsson, besti þjálfarinn í kvennakörfunni 2001 að mati DV-Sport. Hafdís nældi sér í þrenn verðlaun og Hanna tvenn DV-Sport gerir í dag upp kvennakörfuna i vetur og veitir þeim leikmönnum sem sköruðu fram úr í tölfræði deildarkeppninnar verðlaun auk þess að velja leikmann og þjálfara ársins. Kristín Björk Jónsdóttir úr KR var valin leikmaður ársins en hún hefur átt frá- bært tímabil og leikið einkum best i stærstu leikj- unum þegar mest lá við. Kristín Björk náði sínum besta árangri í stigum, frá- köstum og stoðsendingum á ferlinum í vetur en þetta var fyrsta tímabilið hennar sem fyrirliði KR-liðsins og lyfti hún öllum 5 bikurum sem í boði voru. Það kemur eflaust fáum á óvart að Henning Hennings- son var valinn þjálfari ársins en á fyrsta ári undir hans stjórn vann KR alla Qóra stóru titlana sem í boði voru. Verður líklega áfram „Ég er auðvitað mjög sátt- ur við veturinn. Ég tók strax eftir því þegar ég tók við lið- inu að mikill sigurvilji var á meðal leikmanna og allar voru stelpurnar ákveðnar i að standa sig sem allra best. Þetta var stór hópur góðra leikmanna sem stóð þétt saman. Ég tók við góðu búi þegar ég byrjaði að þjálfa liðið og það var svo sannar- lega kominn tími til að þetta lið færi að vinna titla. í raun var ekki spurning um hvort heldur hvenær það gerðist," sagði Henning Henningsson, þjálfara hins sigursæla kvennaliðs KR, í samtali við DV-Sport. Mjög líklegt er að Henning verði áfram þjálfari KR-liðs- ins en viðræður standa yfir DV-Sport lið ársins: Hildur Sigurðardóttir . . . KR Kristín Björk Jónsdóttir . . . . . . KR Gréta María Grétarsdóttir .. . . . KR Hafdís Helgadóttir . . . ÍS Hanna B. Kjartansdóttir .... . . . KR Næst inn: Lovísa Guðmundsdóttir .... . . . ÍS þessa dagana. Líklegt er að KR missi tvo leikmenn fyrir næstu leiktíð. Sigrún Skarp- héðinsdóttir mun vera ákveðin í að hætta og líklegt er að Hanna B. Kjartansdótt- ir fari utan. „Það var virkilega gaman að þjálfa KR-liðið í vetur og i raun enginn munur á því að þjálfa þetta lið og karlalið. Það voru allar stelpurnar tilbúnar í að leggja sig 100% fram og ef eitthvað var þá vildu þær æfa meira en ég lagði til. Það er virkilega gaman að fá þessa viðurkenn- ingu og henni fylgir mik- 01 heiður. Þetta er gott framtak hjá DV-Sporti og ég veit að þessi verðlaun á meðan á leiktíðinni stendur hafa gert það að verkum að allir sem nálægt kvennakörf- unni koma reyna að leggja sig enn betur fram,“ sagði Henning Henningsson. Hér á síðunni má finna upplýsingar um aðra verð- launhafa að þessu sinni og myndir af þeim með verð- launin. Auk þess má finna lið ársins valið af DV-Sporti. Hafdís Helgadóttir úr ÍS fékk flest verðlaun eða þrenn en hún komst að auki á topp fimm í 2 öðrum tölfræðiþátt- um. Hanna B. Kjartansdóttir úr KR fékk tvenn verðlaun og var auk þess á topp 5 í þrem- ur öðru þáttum. -ÓÓJ/SK Mikill heiður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.