Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 3
Ifókus Vikan 11. maí til 17. maf ULLLö-e. ■Æ—^—I—B iLLJOLll Billi BiHimt' er ekki likur langafa sínum i utiiti en fiiaqgt i listrœnu fari haiis svipar til lians. V Í Ö 1um meö Bill Bourne er barnabarnabarn Stephans G. Stephanssonar sem flutti úr Skagafirði til Bandaríkjanna og síðar til Kanada. Biil er vei þekktur í heimalandi sínu og víðar og hefur til dæmis fengið Juno-verðlaunin fyrir tónlist sína en þau verðlaun jafngilda Grammy-verðlaunum Bandaríkjamanna. Bill verður hér á landi næstu þrjár vikurnar ocj heldur tónleika víða um landið. Ég vildi sjá land langafa míns „Af hverju kem ég til íslands núna?“ segir Bill Bourne á litlu og þægilegu kaffihúsi í póstnúmeri 101. „Þetta er góð spurning. Fyrir einu ári fékk ég tölvupóst frá íslensk- kanadíska félaginu þar sem mér var boðið til íslands. Því miður komst ég ekki þá þvi ég var þúinn að skipu- leggja tónleika og ferðalög. Þá vakn- aði hjá mér trúin um að ég gæti kom- ið til Islands. Ég hef lengi hugsað um að koma hingað; langaði að sjá land- ið þar sem langafi minn fæddist. Þá kynntist ég Viðari Hreinssyni. Hann hafði samband við mig síðasta haust og bað mig að koma til Islands. Hann er að skrifa ævisögu langafa míns. Þetta small allt saman og hingað er ég kominn." Frekar orð en vopn Bill Bourne segist alltaf hafa hugs- að lagasmíðar sínar og texta á hnatt- rænan hátt. ísland hafi í huga hans ákveðinn sess vegna hins aldagamla Alþingis. „íslendingar leggja mikla áherslu á orð. Ég geri það líka eins og allir þeir sem fást við texta. Þegar litið er yfir heiminn sér maður hvernig fólk notar líkamlegt vald og ógn vopna og peninga í stað þess að tala saman. Mér þykir mjög forvitnilegt að koma og upplifa ísland út af þessari sér- stöðu. ísland hvarf frá heiðni fyrir eitt þúsund árum með orðum en ekki vopnum. Ég las fyrir ári eina íslend- ingasögu og þar var mikið lagt upp úr samskiptum og gáfum frekar en líkamlegu atgervi." Hjónaband lags og orða Tónlist Bills hefur verið lýst sem blöndu af blues, keltneskri tónlist og indlánatónlist. Sjálfur vill Bill lýsa tónlist sinni sem danstónlist. „Dans er fyrir mér fognuður sem allir geta tekið þátt í. Dansinn styrk- ir tónlistina. Ég dreg saman ýmis einkenni tónlistar víða að. Þegar ég er að semja lag þá er ég mjög opinn fyrir mörgum gerðum tónlistar. Ég hef alltaf haft gaman af allri tónlist og ég legg mikla rækt við það því það vekur orku hjá mér að semja ólík lög. Lag er, ólíkt ljóðum, sambland tón- listar og orða. Ef gott hjónaband verður úr sambandi tónlistar og orða þá verður textinn og skilaboð hans mun sterkari." Oðlast eigið líf. Bill byrjaði aö semja tónlist þeg- ar hann var um tuttugu og fimm ára aldur. Fyrir þann tíma hafði hann dundað sér við yrkingar. „Ég syng mest um bróðerni og samlíðun. Það eru svo margar leiðir til að skrifa um slíkt. Text- inn getur verið saga og svo getur hann verið á tilfinningasviðinu; blanda af orðum, setningum, myndhvörfum og tilfinningum. Oft hreyfa þau síðarnefndu meira við fólki.“ Stephan G. Stephansson var af- kastamikið skáld þrátt fyrir að hann hafi þurft að strita mjög til að hafa í sig og á. Kvæðasafn hans hét Andvökur og var mjög lýsandi fyrir þann hátt sem hann hafði á skrifum sínum: nóttin var eini tíminn sem hann hafði aflögu til að lyfta andanum. Bill Bourne hef- ur ekki alveg sama háttinn á og afi hans. „Ég hef reynt að beita mig aga; sest niður til aö skrifa og stundum kemur mjög gott út úr því. En þeg- ar hugmynd að lagi kemur til mín og hún þróast á löngum tíma þá er útkoman oft best. Ég reyni því frekar að nota innblástursaðferð- ina; ég vil heldur bíða eftir því að lagið komi. Það gerir það að verk- um að ég geri kannski ekki jafn mörg lög og ég gæti gert en lögin verða sterkari og öðlast frekar eigið líf.“ Plkusögum. Þær eru sýndar í Borgarleikhúsinu í glimrandi kaffihúsastemningu og þær eru bæði fróðlegar og fyndnar. Og það er ekkert hættulegt fyrir karla að fara þangað, það eina sem þeir eiga mögulega á hættu er að vita meira um konuna sína. Brauðbakstri. Það er fátt eró- tískara en að vera með hendurnar í röku deigi og hnoða það daglangt. Og ger er málið. Það virkar flókið í uppskriftum og er flóknara í praktík en fyllilega þess virði. Eftir nokkurra klukku- stunda uppibyggilegrar baráttu við hveiti og ger þá er hægt að éta brauðið - og byrja aftur. Selfossi. Farið til Selfoss og horfið á Eurovision þar t vöggu ís- lenskrar dægurlagamenningu. Þar eru foreldrar islenskra sveitaballa og það fólk kann sko að skemmta sér. Og Selfyssingar ganga ekki um á gúmmískóm, þeir eru meira trendí en allt trendí. Stuttmyndum. Þær hafa þann ótvíræða kost aö vera stuttar sem er mikilvægt í annríki dagsins. Auk þess er hugs- unin á bak við þær yfirleitt önn- ur og minna hóllí- vúdísk. Það er stutt í Stutt- myndahátíðina þar sem áhuga- samir geta troðið sig út af stuttri en andlegri næringu. /1 h V f'i O rl’ 'i. ,1 O l'- h IJ gera um helgma Ég er nýkomin til landsins og nánast öll búslóðin mín er enn í kössum og á helgin líklega eftir að fara að mestu í að taka upp úr þeim. Á fóstudag- inn ætla ég að taka svolítið til ef ske kynni að ég haldi parti daginn eftir. Á laugardaginn ætla ég að slappa af og klára að taka til. Svo ætla ég að hringja í vinahópinn og athuga hvort það sé ekki stemning fyrir partíi hjá mér. Seinni- partinn fer ég aö hafa mig til en það getur tekið marga klukkutíma. Um kvöldið verður Eurovisionpartí hjá mér eða einhverjum í vina- hópnum. Það mæta líklega fleiri gamlir Eurovisionfarar í það partí. Það fer svo eftir stemningunni hvort við förum út á lífið eða ekki. Ef þetta verður góð keppni förum við líklega út að dansa og skála. Á sunnudaginn verð ég heima að slappa af og ná mér eftir djammið. Svo er bara að taka upp úr fleiri kössum. Á sunnudags- kvöldið fer ég annaðhvort í heimsókn eða fæ fólk í heimsókn til mín. Sigrún Eva Ármannsdóttir, söngkona og reyndur Eurovisionfari. mríí\A Qu&í SC U /’U' <úrt volcnvcý, tó crt 2$ vera mefl \ tvo goldrhrín$a, '(\ 't'ítnjhUíWffln vi& hrGtddír 2$ j»u rr\un(Jíf f (á K&cfO 3 f Það er auðvelt að vei-a gáfaður eftir á fyrir þá sem eru gáfaðir fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.