Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Síða 4
■ llf ia.FT,.
V T M M M
Vikan 11. maí til 1 7. maí
fókus
Spilaði IVivial
fram á morgun
Um daginn fór
ég í Trivial
; Pursuit partí
j með Sverri
[ Stormsker og
öðrum félögum.
I Við hittumst
klukkan fjögur
] um eftirmiðdag-
I inn, elduöum,
drukkum bjór, spiiuðum og höfð-
um það huggulegt. Ég vann alltaf
sem gerði það að verkum að það
mátti ekki hætta því hann Sverrir
er svo ferlega tapsár. Það var ekki
fyrr en klukkan hálfellefu næsta
morgun sem hann náði að jafna og
allir máttu loksins fara heim að
sofa. Maður hefur ekki vakað
svona síöan maður var táningur.
Alda Björk Ólafsdóttir söngkona.
Keypti flug-
miða til Spánar
Það hafa all-
ir veriö að I
skamma mig j
undanfarið út
af því að bíll-
inn minn er
svo skítugur
þannig að ég
ákvað að taka
hann í gegn.
Ég lét setja < « .
sumardekkin W;
á, þreif hann
og ryksaug. x
Það var alveg rosalega leiðinlegt
enda er ég ekki mikil bílamann-
eskja. Ég bætti samt leiðindin upp
þegar ég fór og keypti mér flug-
miða tO Spánar. Eins og er er ég
enn þá á biðlista en ég reikna með
að fara út í byrjun júní. Ég er að
fara með vinkonu minni í skóla í
Malaga í tvo mánuði og er rosa-
lega spennt fyrir því.
íris Björk Árnadóttir, þátttak-
andi í fegurðarsamkeppni íslands.
Gaman á
lokahófi HSÍ
Síðustu helgi var I
lokahóf HSÍ 2001 og
við fórum þvi allar
stelpurnar í liðinu
til Reykjavikur
ásamt mökum. Við |
byrjuðum i kokk-
teilboði hjá Vífil-1
felli sem hefur j_
styrkt okkur í vetur og eftir það
var farið í diskókeilu. Á laugar-
daginn fórum við á skauta og
horfðum svo öll saman á hand-
boltaleikinn. Um kvöldið var svo
HSÍ-hófiö sjálft á Broadway. Það
var rosalega skemmtilegt og ekki
spillti fyrir að vinna þennan titil.
Vigdís Sigurðardóttir, besti leik-
maóur Nissandeildar kvenna
2000-2001 í handbolta.
Spilaði í fyrsta
sinn eftir aðgerð
Ég er tiltölulega
nýkominn úr upp-
skurði og hef því
verið að taka það ró-
lega að undanfömu.
Síðasta laugardag
spilaði ég í fyrsta
sinn eftir aðgerðina.
Ég var ekki alveg
viss um að ég myndi
þrauka allt kvöldið og var með
varaplötusnúð við hliðina á mér
til öryggis. Sem betur fer gekk
þetta allt mjög vel og ég þurfti
bara einu sinni aö setjast niður og
hvila mig. Ég entist út allt kvöldið
og fannst mjög skemmtilegt að
vera kominn aftur.
Kiddi Bigfoot, plötusnúóur og
rekstrarstjóri Astró.
Viðskipti með eiturlyf tóku miklum stakkaskiptum á áttunda áratugnum og George
Jung varð einn af aðalinnflytjendum kókaíns frá Kólumbíu og breytti þar með stefnu
heillar kynslóðar. Kvikmyndin Blow, sem frumsýnd er í kvöld í Laugarásbíói og Há-
skólabíói, segir söguna af risi og falli Jungs og gefur góða innsýn í heim fíknarinnar.
Fókus býður ykkur að sjálfsögðu á myndina og miðinn þinn er hér í Lífinu eftir vinnu.
Tjillað
George Jung (Johnny Depp) hafði
frá upphafi kosið að feta ekki auðveld-
ustu brautimar í lífrnu. Hann vildi
ekki verða enn einn byggingaverka-
maðurinn eins og faðir hans (Ray
Liotta) og flutti ungur úr öryggi for-
eldra sinna í Boston til Kaliforníu þar
sem hann hóf fljótt að selja eiturlyf til
að framfleyta sér. Hæfileikar George
við að halda ró sinni í lífshættulegum
aðstæðum og vilji hans til aö taka
áhættu gerðu honum fljótlega ljóst að
þetta var heimur sem hann gæti náði
langt í.
Milljón á viku
George verður stærri og stærri í
fikniefnaheiminum og leggur á ráðin
um flytja mikið af marijúana þvert yfir
landið. Örlögin grípa þó í taumana og
hann verður ástfanginn af Barböru.
Það fer þó ekki á besta veg og hún
greinist með heilaæxli. George ákveð-
ur því að nýta tímann sem hann fær
með Barböru, stingur af frá reynslu-
lausn sinni og fer með henni til
Mexíkó. Eftir dauða Barböru fer Geor-
ge aftur til Bandaríkjanna og þá er ein-
ungis tímaspursmál hvenær FBI nær i
rassgatið á honum sem þeir og gera. í
fangelsinu kynnist George og verður
vinur Kólumbíumannsins Diego
Delgado (Jordi Molla) sem er með góð
sambönd í eiturlyfjahring heimalands-
ins. Það er við dreifmgu kókaíns sem
George kynnist ótrúlegum auð og völd-
um.
Gamaniö kárnar hjá Depp.
Þar sem hann er eini Bandarikja-
maðurinn í kókaínbisnessnum sem
Kólumbíumenn ráða er litið á hann
sem fávísan útlending. Hann nær aftur
á móti að heilla eiturlyfjabaróninn
Pablo Escobar (Cliff Curtis) og saman
mynda þeir bandalag sem sér Banda-
ríkjamönnum fyrir 85% af kókaínþörf
þeirra. George er farinn að þéna yfir
mifljón dali á viku og gæfan virðist
blasa við honum. Hann kynnist Mirtu
Calderon (Penelope Cruz) glæsilegri
konu sem ætlar sér að ná langt en gæf-
an tekur þó enda þegar hann er svik-
inn af félaga sinum Diego. Hann sér að
ferill hans sem dópinnflytjanda er á
enda runninn og ákveður að leggja upp
laupana og helga sig að Mirthu og dótt-
ur þeirra, Kristinu Sunshine, sem
hann vill að sjái sig ekki bara sem ein-
Lífiö leikur viö Johnny Depp þegar hann kynnist Penelope Cruz. Peningarnir flæöa og hann lifir hátt en það getur varla
enst aö eilífu.
hvern dópsaia. Það verður þó ekki auð-
velt því hann lendir í verri hindrunum
en hann hefði getað ímyndað sér.
Ray Liotta snýr aftur
Leikstjóri Blow er Ted Demme en
hann leikur einnig lögfræðing Jungs í
myndinni. Demme hefur leikstýrt
nokkrum myndum í sjónvarpi og á
hvíta tjaldinu. Fæstar þeirra hafa náð
mikilli hylli áhorfenda og frægust er
líklegast Who’s the Man? Demme
framleiðir einnig myndina og hefur
gert nokkuð af því, m.a. kvikmyndina
Rounders. Aðrir framleiðendur Blow
eru meðal annarra þeir Denis Leary
og Joel Stillerman.
Með smærri hlutverk í myndinni
fara þau Jordi Molla sem leikið hefur i
mörgum myndum í heimalandi sínu,
Spáni, Franka Potente úr Run, Lola
Rim og meistarinn Ray Liotta sem sið-
ast sást í Hannibal en hefur í gegnum
tíðina staðið sig hvað best í myndum
eins og Goodfellas, Unlawful Entry
og Copland.
Þaö er ekkert grin aö eiga viö menn Pablo Escobar eins og Depp fær aö
kynnast.
Nýjasta óskabamið
Aðalhlutverk myndarinnar er í
höndum Johnny Depp sem hefur verið
á stöðugri uppleið sem leikari síðustu
árin. Depp fæddist árið 1963 og var á
sífelldum þeytingi með fjölskyldu
sinni þar til foreldrar hans skildu þeg-
ar hann var 15 ára. í framhaldinu
hætti Depp í skóla og fór að einbeita
sér að því að spila á gítar. Hann flutti
til Los Angeles og fyrsta starfið fólst í
því að selja penna í gegnum síma en
hann varð fljótlega vinsæll leikari í
sjónvarpsþáttunum 21 Jump Street.
Fyrsta bíómynd Depp var A Night-
Penelope Cruz leikur Mirthu Calderon.
hún lítur alla vega vel út.
Þaö má segja ýmislegt um kókaín en
mare on Elm Street árið 1984 og síð-
ar lék hann í Platoon. Fólk áttaði sig
þó fyrst á hæfileikum hans þegar hann
lék aðalhlutverkið í mynd John Wa-
ters, Cry-Baby árið 1989 og í fram-
haldinu lék hann á einstakan hátt að-
alpersónuna í mynd Tim Burtons, Ed-
ward Scissorhands. Eftir þetta hefur
leiðin legið upp á við og hlutverk hans
í myndum eins og What’s Eating Gil-
bert Grape, Ed Wood, Don Juan
DeMarco, Dead Man, Nick of Time,
Donnie Brasco, Fear And Loathing
In Las Vegas, Ninth Gate, Sleepy
Hollow og nú síðast Chocolat hafa
gert hann að einum eftirsóttasta leik-
ara ungu kynslóðarinnar í drauma-
verksmiðjunni.
Eftirsótt gyðja
Hin 27 ára spænska þokkagyðja
Penélope Cruz leikur aðalkvenhlut-
verkið á móti Depp í myndinni. Frá
bamæsku hefur
hún verið dug-
leg við að koma
fram og valdi
hún dansinn í
upphafi. Eftir að
hafa lært klass-
iskan ballett i
níu ár sló hin 15
ára Cruz 300 öðr-
um stúlkum við
í hæfileikaprófi
og fékk 1 kjölfar-
ið flölmörg hlut-
verk í spænsk- Þeir ættu aö geta
um sjónvarps- peningahaug.
þáttum og tón-
listarmyndböndum. Þetta opnaði leið
hennar í kvikmyndirnar og veðjaði
hún á réttan hest í þriðju mynd sinni.
Það var óskarsverðlaunamyndin
Glæstir tímar og þó hlutverkið væri
ekki stórt gafst henni í framhaldi tæki-
færi til að fá að vinna með snillingnum
Pedro Almodóvar í eðalræmunni
Kvikt hold. Árið 1998 náði hún sér í
fyrstu Goya-verðlaunin sín í heima-
landinu og árið eftir kom breikið í út-
landinu og aftur var það með
Almodóvar. Allt um móður mina
kom henni endanlega á kortið og nú
þurfti hún að svara atvinnutilboðum
beggja vegna Atlantshafsins. Eftir
þetta lék hún í grínmyndinni Woman
on Top og á móti Matt Damon í mynd
Billy Bob Thomton, All the Pretty
Horses, auk þess sem nokkur verkefni
hafa verið í bígerð eftir að Blow var
kláruð.
hent í nokkrar línur meö þessum