Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Qupperneq 6
t p v V i k a n 11.maí t i I 1 7»
^ X 1 f* X ð F F
Föstudagur
3 11/5
Popp
■ FÖSTUDAGSBRÆÐINGUR HINS HÚSSINS
Á föstudagsbræðingi Hins Hússins koma fram
hljómsveitirnarDust og Kuai. Dust hefur verið
starfandi frá áramótum og spilar alternative
metal. Hljómsveitin Kuai hefur verió starfandi í
tvö ár og spilar instrumental rokk. Tónleikarnir
hefjast kl. 20 og eru á Geysi Kakóbar.
•Klúbbar
■ CREAMQTHOMSEN Opnunarkvöld Cream í
Reykjavík sumarið 2001 á Kaffi Thomsen, að
sjálfsögðu. Paul Bleasdale (cream resid.jog
Jan Carbon (lærisveinn Sasha) gera allt vitlaust
með aöstoð visuals-sérfræðinga Cream og
Árna E. auk dj. Sidekick. Frekari upplýsingar á
www.thomsen.is. 1000 kr. fyrir 01:00 og 1500
kr. eftir 01:00. Þú getur sleppt Ibiza í sumar,
Ibiza er komið til þín!
■ DJ. CESAR Á SPOTLIGHT Dj. Cesar í léttri
sveiflu og kátur að vanda með frábæran tónlist-
arsmekk sinn á Spotlight. Það er enginn svik-
inn af því að starta helginni með stæl á Spott-
anum.
•Krár
■ BÆNASTUND Á SKUGGANUM Beðið verður
fyrir Two Tricky á Skugganum frá kl. 23-24og á
meðan verður boðið upp á rautt messuvín í
sterkari kantinum. Nökkvl dj sér um aftansöng
og almenna músík. Aldurstakmark er 22 ár og
það kostar 500 kr. inn eftir miðnætti. Eftir mið-
nætti hefst almennt PRE-Eurovisionpartí meö
öllu tilheyrandi.
■ DJ PÉTUR STURLA Á 0210 Það er aldrei
vöntun á fjöri á Ozio og sérstaklega ekki í kvöld
þar sem Dj Pétur Sturla verður í búrinu og spil-
ar fjöruga tónlist.
■ FYNDNIR Á FÖSTUDEGI Þó það sé föstu-
dagur í dag ætla Örn Árnason og Karl Ágúst
Úlfsson að skemmta gestum Leikhúskjallar-
ans I kvöld eins og þeir hafa gert á Fyndnum
fimmtudögum undanfarið. Húsiö opnar klukkan
20 fyrir matargesti og skemmtun hefst klukkan
22.
nýtt í bíó
■ BARA 2 Á CATALINA Ofurstuðbandið Bara 2
verður í stuöi á Catalina, Hamraborg, í kvöld.
Ekki klikka á að mæta meö góða skapið og í
sparidressinu.
■ DJ. TOMMI Á VEGAMÓTUM Plötusnúðurinn
Dj. Tommi sér um tónlistina á Vegamótum.
■ EILÍFÐARROKKARI Á PLAYERVS Eilífðar-
rokkarinn Pétur Kristjáns mætir á PlayerYs
ásamt Garginu sínu og rokkar feitt.
■ FJÖR Á FJÖRUKRÁNNI Það er hljómsveitin
KOS sem leikur í kvöld fyrir djammara og fleiri
á Fjörukránni. Be there or be sorry.
■ LE CHEF Á NELLYYS Dj. Le Chef sér um
rokna stemningu á Nelly¥s café.
■ LÉTTIR SPRETTIR Á GULLÖLDINNI Hljóm-
sveitin Léttir sprettir dúkkar upp á Gullöldinni.
■ LÚPÓ-SEXTETT Á KRINGLUKRÁNNI Lúdó-
sextett og Stefán skemmta gestum Kringlu-
krárlnnar.
■ NASISTAMELLUR Á DUBLINER Hinn feiki-
hressi og vel upp aldi dúett Nasistamellurnar
leikur og syngur fyrir gesti öldurhússins
Dubliner.
■ NJALLI í HAFNARFIRÐI Hann Njalli í Holti
spilar létta stuðtónlist á Kaffi-Læk í Hafnarfirö-
inum í kvöld.
■ PENTA Á KAFFI AMSTERDAM Stuðgrúppan
Penta sér um rífandi stemningu á Kaffi
Amsterdam.
■ ROKK Á CLUB 22 Andrea Jónsdóttir sér um
gleðina og þeytir skífur fram undir morgun Club
22. Húsið opnað kl. 24. Fritt inn til klukkan 3,
500 kr. eftir 3. Frítt inn gegn framvísun stúd-
entaskírteinis.
■ SIXTIES Á KAFFl REYKJAVÍK Rokkhundarn-
ir í Sixties sjá um fjörið á Kaffi Reykjavík.
■ SPILAFÍKLARNIR Á FÓGETANUM Hljóm
sveitin Spilafíklarnir skemmtir gestum og gang-
andi á Fógetanum.
■ T.I.C.-KVÖLP Á GAUKNUM T.I.C.-kvöldið
byrjar snemma á Gauki á Stöng eöa um kl. 22.
Meðal þeirra sem koma fram eru Helga
Braga.Dj. Exos Funk, Jagúar og síöan mun
Buttercup slá botninn í kvöldið með brjáluðum
I dansleik eins og henni er einni lagið.
■ TILBQÐSHELGI Á WALL STREET Wall
Street Bar heldur áfram að bjóða kokkteila, nú
lce Blue. Alltaf góð stemning.
■ TOMMI WHITE í KJALLARANUM Dj. Tommi
White sér um tónlistina í Leikhúskjallaranum.
BÖl 1
■ COUNTRY FESTIVAL Á BROADWAY Það
verður alvöru sveitaball haldið á Broadway í
kvöld þar sem köntrístjörnur og sveitasöngvar-
ar stíga á svið og leika listir sínar. Fram koma
kúrekarnir Anna Vilhjálms, Edda Viðars, Geir-
mundur Valtýs, Guðrún Árný, Hallbjörn Hjartar-
son, Hjördís Elin, Kristján Gísla, Ragnheiður
Hauks og Viðar Jóns. Eftir sýninguna leikur
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fyrir dansi.
•Klassík
■ TÍBRÁ Á AFMÆLI KÓPAVOOS Tíbrá tón-
leikaröð á afmæli Kópavogs. Dagskrá helguð
verkum Jóns úr Vör þar sem fram koma Ölöf
Kolbrún Harðardóttir sópran, Hjalti Rögnvalds-
son leikari ogjónas Ingimundarson píanóleik-
ari. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
■ KIRKJUUSTAVIKA Á AKUREYRI Aftansöng-
ur verður í Akureyrarkirkju kl. 18 í tilefni kirkju-
listaviku. Prestur er sr. Guðmundur Guðmunds-
son héraðsprestur. Kammerkór Akureyrar-
kirkju syngur og organisti og kórstjóri er Björn
Steinþór Sólbergsson.
■ TÓNLEIKAR í SELFOSSKIRKJU Skagfirska
söngsveitin heldur tónleika í Selfosskirkju kl.
20.00 og fagnar um leið 30 ára afmæli sínu í
vetur. Af því tilefni verða tónleikarnir með glæsi-
legasta móti. Einsöngvarar á tónleikunum eru
þau Ragna Bjarnadóttir sópran, Dóra Steinunn
Ármannsdóttir sópran, Magnús Sigurjónsson
tenór og Eiður Otto Guölaugsson baríton.
Stjórnandi Björgvin Þ. Valdimarsson og píanó-
undirleikur er í höndum Sigurðar Marteinsson-
ar. Kammerkór Skagflrsku söngsveitarinnar
mun einnig koma fram á tónleikunum. Efnis-
skrá tónleikanna er fjölbreytt og mun kórinn
meðal annars flytja syrpu úr Leöurblökunni eft-
ir Jóhann Strauss og syrpu úr söngleikjum eftir
þá Rogers og Hammerstein. Auk þess eru á
dagskránni verk eftir innlenda höfunda. Þar má
nefna Á Sprengisandi, þjóölag viö Ijóö Gríms
Thomsens. Þess utan verða frumflutt þrjú lög
eftir Björgvin Þ. Valdimarsson viö Ijðö Bjarna
Stefáns Konráðssonar.
■ TÓNLEIKAR j ÝMI Jórukórinn og Karlakór
Selfoss halda sameiginlega tónleika í Ými, húsi
Karlakórs Reykjavíkur við Skógarhlíð, kl. 20.30.
Stjórnandi Jórukórsins er Helena Káradóttir og
undirleikari Þórlaug Bjarnadóttir. Stjórnandi
Karlakórs Selfoss er Loftur Erlingsson og und-
irleikari Helena Káradóttir. Efnisskráin er afar
fjölbreytt.
•Sveitin
■ BILL BOURNE í BORGARNESI Kanadíski
vfsnasöngvarinn og gitarleikarinn Bill Bourne
heldur tónleika í Búðarkletti, Borgarnesi.
■ GLEÐI Á DUSSA-BAR Gleöigjafinn Ingimar
leikur, syngur og gefur gleði á Dússabar í Borg-
arnesi í kvöld. Það er alltaf jafnmikið fjör að
dansa þegar harmonikka er spiluð.
■ EINAR ÓRN Á Á EYRINNI Trúbadorinn og
Bolvíkingurinn Einar Örn ætlar að trylla lýðinn á
Isafirði á staðnum Á Eyrinni.
■ EINN&SJÖTÍU Á VIÐ POLLINN Stuðgrúp[>
an Einn&sjötíu sér um fjörið á Við Pollinn, Ak-
ureyri.
■ HAFRÓT Á RÁNNI Hljómsveitin Hafrót sér
um stuðið hjá stuöþyrstum gestum Rárinnar i
Keflavík i kvöld.
■ JÚRÓUPPHITUN Á ODD-VITANUM Þaö verð-
ur hitað upp fyrir Júróvisjón í kvöld á Odd-vitan-
um, Akureyri. Öll vinsælustu Júró-lögin verða
spiluð og svo verður karaoke þar sem bæði
amatörar og prófessíónal söngvarar koma
fram.
■ LISTAMAÐUR í BORGARNESI Tónleikar
kanadíska söngvarans, gitarleikarans, fiðluleik-
arans, munnhörpublásarans og tónskáldsins
Bills Bourne verða haldnir í kvöld klukkan 22 á
Búðarkletti, Borgarnesi.
■ SKUGGABALDUR Á H-BARNUM Dj.
Skuggabaldur veröur í ofurstuöi á H-barnum,
Akranesi í kvöld. Kappinn ætlar að þeyta skif-
um langt fram á nótt og hver veit nema hann
spili nokkra Júróvisjónsmelli í tilefni dagsins.
Það kostar 500 kall inn eftir miðnætti.
■ EVA Einleikurinn Eva verður sýndur i kvöld á
Hótel Selfossi. Miðasala á hótelinu og miða-
pantanir í síma 8681085. Ljúffengur matur fýr-
ir sýninguna.
■ LÓMA Möguleikhúsið er enn og aftur að
leggja land undir fót og með í för ertröllastelp-
an Lóma, sem er alveg sama þótt einhver sé
að hlæja að henni. Á næstu dögum verða fjöl-
margar sýningar víðs vegar á Norðurlandi og
Vestfjörðum. I dag veröur flakkað um Mel-
rakkasléttuna og klukkan 13 veröur sýning i
grunnskólanum í Lundi.
■ LÓMA Möguleikhúsið er enn og aftur aö
leggja land undir fót og meö í för er tröllastelp-
an Lóma, sem er alveg sama þótt einhver sé
að hlæja að henni. Á næstu dögum verða fjöl-
margar sýningar víðs vegar á Norðurlandi og
Vestfjöröum. í dag verður flakkað um Mel-
rakkasléttuna og klukkan 16 veröur sýning i
grunnskólanum í Hnitbjörgum á Þórshöfn.
■ LÓMA Möguleikhúslö er enn og aftur að
leggja land undir fót og með í för er tröllastelp-
an Lóma, sem er alveg sama þótt einhver sé
að hlæja að henni. Á næstu dögum verða fjöl-
margar sýningar víðs vegar á Norðurlandi og
Vestfjorðum í dag verður flakkað um Mel-
rakkasléttuna og klukkan 8.30 verður sýning á
Þórshöfn.
•Leikhús
■ PÍKUSÓGUR Píkusögur eftir Eve Ensler
verður sýnt i kvöld klukkan 20 i Borgarieikhús-
inu. Leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir en
leikkonur eru þær Halldóra Geirharðsdóttir,
Sóley Elíasdóttir og Jóhanna Vigdís Arnardótt-
ir. Uppselt.
■ SYNGJANDI i RIGNINGUNNI Leikritið Syngj-
andi í rigningunni eftir Comden, Green, Brown
og Fred verður sýnt klukkan 20 í kvöld á Stóra
sviði Þjóðleikhússins. Uppselt.
■ KONTRABASSINN Leikritið Kontrabassinn
eftir Patrlck Suskind verður sýnt í kvöld klukk-
an 20 á Litla sviði Borgarlelkhússins.
■ PLATANOF Nemendaleikhúsið og Hafnar-
fjaröarleikhúsið sýna í kvöld Platanof eftir Ant-
on Tsjekhov. Sýningin hefst klukkan 20 og mið-
inn kostar 700 krónur. Uppselt.
■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR Leikritið Á sama tíma
síöar verður sýnt í kvöld klukkan 20 í Loftkast-
alanum. Örfá sæti laus.
■ FÍFL í HÓFI Gamanleikritið Rfl í hófi verður
sýnt klukkan 20 í kvöld í Gamla bíói (hús ís-
lensku óperunnar). Leikstjóri er María Sigurö-
ardóttir. Miöasala f sfma 51142 00. Uppselt.
■ VÍST VAR INGJALDUR Á RAUÐUM SKÓM
Hugleikur sýnir I kvöld leikritið Víst var Ingjald-
ur á rauöum skóm f Tjarnarbíól klukkan 20 í
kvöld. Miðapantanir allan sólarhringinn f sfma
5512525. Allra síðasta sýning.
■ BALL í GÚTTÓ Leikfélag Akureyrar sýnir f
kvöld klukkan 20 leikritið Ball í Gúttó eftir Maju
Árdal.
Hlutverkaleikafíklar geta nú tekið gleði sína þar sem
Regnboginn tekur til sýninga í kvöld myndina Dungeons
and Dragons.
Dýflissur, drekar og
darraðardans í
ævintýrah e i m u m
Á síðustu tveim áratugum 20.
aldarinnar fóru að ryðja sér æ
meira til rúms svokallaöir hlut-
verkaleikir. Sá fyrsti á markað
var leikurinn Dungeons&Dragons
sem út kom árið 1974. Sá leikur
hefur haldið sér í fararbroddi á
hlutverkaleikjamarkaðinum allt
til dagsins í dag og nú er svo kom-
ið að búið er að framleiða eitt
stykki kvikmynd sem byggð er á
miðaldarævintýraheimum D&D,
eins leikurinn er yfírleitt kallaður
á meðal eldheitra spilara.
Þrátt fyrir að leikurinn hafi yf-
irleitt verið tengdur tölvuhakk-
andi, samsæriskenninga-tilbúandi
og Star Trek-glápandi nördum þá
hafa vinsældir hans náð að teygja
anga sína út fyrir þann hóp. Með
nútímatækni ætti útkoman líka
að geta orðið að heiilandi ævin-
týraheimi þar sem „alvöru“-drek-
ar, tröll, álfar og aðrar kynjaverur
ógna aðalsöguhetjunum. Því hefur
heyrst fleygt að tæknibrellur í
myndinni séu meðal þess flottasta
sem sést hefur. Auk þess er mynd-
in tekin upp í Prag í Tékklandi en
sú borg hentar einstaklega vel þar
sem byggingarstíll gotneskur og á
tíðum drungalegur er algengur og
risastór kastali með risadóm-
kirkju í hallargarðinum er hvað
mest áberandi.
Álfar með boga og örvar eru bara ein af fáum ómennskum en hugsandi teg-
undum sem láta Ijós sitt skína í D&D.
Söguþráðurinn er, eins og D&D,
byggður á ævintýri þar sem hóp-
ur einstaklinga, ekki bara
mennskra, reynir að ná ákveðnu
markmiði. Þeir sem leika þá ein-
staklinga og eru um leið í aðal-
hlutverkum eru flestir úr jaðri
kvikmyndaleikara og ekki margir
sem þekkja þá. Þó er þama einn
af hinum stóru, sjálfur Jeremy
Irons, sem ætti að smellpassa inn
í ævintýraheiminn með sinn eilífa
og óræða sjarma. Einnig birtist
Marlon nokkur Wayans, sem bet-
ur er þekktur fyrir grín og læti en
ævintýramyndir, auk þess sem
Richard O’Brien leikur eitt hlut-
verk. Hann er best þekktur fyrir
að hafa skrifað The Rocky Horror
Picture Show og lék sjálfur þjón-
inn Riff Raff í myndinni. Leik-
stjóri og framleiðandi myndarinn-
ar er Kanadakall að nafni Courtn-
ey Solomon. Þetta er hans fyrsta
stóra mynd og ræðst hann ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur.
mii Ífókus
•Kabarett
■ INNSETNING PATRICK MAROLD í HAFNAR-
HÚSINU Bandaríkjamaðurinn Patrlck Marold
mun breyta porti Hafnarhússins í hangandi maga
úr ull, sem hann gefur yfirskritina HUM með inn-
setningu sinni í dag klukkan 17. Þetta útilistaverk
tekur við öllum sveiflum veðurs og umhverfis, og
mun ásýnd þess breytast eftir því sem áhrif Ijóss,
þyngdarafls og hreyfingar loftsins gefa tilefni til.
HUM innsetningin er líkt og lifandi verk og ber að
nálgast hana sem slika. Samstilling hinna fjöl-
mörgu ullarstrengja við orku vindsins gerir verk-
inu mögulegt að ná fram viðkvæmri og jafnri
hreyfingu, sem takmarkast þó af eiginleikum efn-
isins. Einstakir þræðir munu tengast og flækjast
til að finna stuðning hver í öðrum, þar til þeir
verða að einni flækju, sem vindurinn tekur minna
í. Þannig munu náttúruöflin ráða lokpm sýningar-
innar, að þvi er fram kemur í fréttatilkynningu.
Patrick Marold er ungur bandariskur listamaður,
sem hlotið hefur Fulbright-styrk til að. dvelja og
starfa að list sinni hér á landi í vetur. Hann stund-
aði m.a. listnám í Rhode Island School of
Design, og hefur undanfarin ár einkum starfað
við Colorado Institute of Art. Eftir dvöl sína hér á
landi mun hann snúa aftur til Colorado í Banda-
rikjunum.
■ SKYNDILIST I BÓNUS Á LAUGAVEGI
Skyndilist er sköpuð til þess að nálgast almenn-
ing á þeirra forsendum. Aðgengi, verðlag og hag-
kvæmni eru höfð til hliðsjónar og reynt eftir bestu
getu að vefa úr þeim heildarpakka sem ætti að
höfða til sem flestra. F.art mun selja Skyndilist í
Bónus á Laugavegi í dag frá kl. 13-18. Þar mun
verða hægt aö versla Skyndilist þegar keypt er
inn matvaran fyrir helgina. Eitt listaverk mun
kosta 499kr, og hentar hvort sem er til gjafar eða
eignar. F.art er með þessu aö færa myndlistina
inn á hinn almenna neyslumarkað í stað þess að
hafa listina á illa aögengilegum stöðum og úr al-
faraleið. Það sem neysluaukning hefur haft í för
með sér eru breyttir verslunarhættir. Nú heimtar
neytandinn að varan sé aðgengileg og á viðráðan-
legu verði. Aö afgreiðsla gangi skjótt fyrir sig og
að pakkningar séu neysluvænar, allt gerir þetta
það að verkum að varan selst. Myndlist hefur
löngum þótt óaðgengileg og vill almenningur
veigra sér við að nálgast hana, en F.art kemur til
móts við þarfir neytenda og býður iistina til sölu
þar sem mesta sala til heimilisins fer fram, ímat-
vöruverslun, að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. F.Art-hópurinn samanstendur af Lónu Dögg
Christensen, Þibrlki Hanssynl og Hlldi Margrét-
ardóttur en þau eru málarar af yngri kynslóðinni.
•Opnanir
■ ELÍNBORG_____KJARTANSDÓTTIR______í
VEISLUGALLERÍ Elínborg KJartansdóttir málm-
listakona opnaöi á dögunum sýningu í Veislugall-
eri í Listhúslnu í Laugardal. Þar sýnir Elínborg
koparristur og fleira en stúlkan starfaði á tímabili
fyrir Oasis í Bretlandi þar sem hún hannaði mess-
ing- og koparskartgripi. Sýning Elínborgar stendur
til 31. maí.
■ UÓSMYNDASÝNING Á BLÓNDUÓSI Þessa
dagana stenduryfir Ijósmyndasýning I kaffihúsinu
viö Árbakkann á Blönduósi. Það er Bjarni Helga-
son sem sýnir 24 Ijósmyndasamsetningar sem
teknar eru víösvegar um heiminn og eru nokkrar
þeirra frá Blönduósi. Sýningin stendurtil 26. maí
og er opin á opnunartíma kaffihússins.
•Fundir
■ NÁMSKEID í MARGMIÐLUN Sérfræðingar frá
fimm löndum kenna á námskeiðl um margmiölun
hjá Endurmenntunarstofnun HÍ dagana 28., 29.
og 30. maí. Námskeiðið er ætlað öllum sem
vinna við upplýsingamiðlun; blaða- og fréttamönn-
um, kennurum, vefurum, starfsfólki í prentiðnaði,
margmiðlurum og hönnuöum. Margmiðlunarefni I
kennslu, listum og leik verður skoðað, fyrirlestrar
verða haldnir um grunnþætti í hönnun á gagn-
virku efni fyrir tölvuskjáinn, frásagnartækni í skrif-
um og mynd- og hljóðvinnslu og farið í skipulag
við vinnslu á margmiðlunarefni.Þá verða vinnu-
smiðjur í skrifum fyir Netið, gagnvirkri kvikmynda-
gerð og hönnun á margmiðlunarefni. Námskeiðið
er evrópskt samstarfsverkefni styrkt af Leonardo-
áætluninni. Meðal fyrirlesara eru Tim Gasperak
og Hrönn Þormóðsdóttir frá Gagarin, breski marg-
miðlunarlistamaðurinn Chris Hales, Kelly Goto frá
bandaríska netfyrirtækinu Idea Integration,
danski blaðamaöurinn Sören Kuhn, Irinn Joseph
Shevlin frá Margmiðlunarskólanum, Hrannar Haf-
berg frá Prenttæknistofnun, Guðmundur Oddur
Magnússon frá Listaháskóla íslands, Sigriður
Pétursdóttir dagskrárgeröarmaður og Margrét El-
ísabet Ólafsdóttir listfræöingur. Frekari upplýsing-
ar um námskeiðið eru á vefsetrinu www.endur-
menntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig.
Skránirigarnúmer er 201.
Bí ó
■ F1LMUNDUR SÝNIR BLADE RUNNER Kvik
myndaklúbburinn Filmundur sýnir myndina Blade
Runner frá 1982 í salarkynnum Háskóiabíós kl.
22.30. Hér er um að ræða án efa eina af bestu
framtíðarmyndum sem gerö hefur verið, leikstýrt
af hinum virta leikstjóra Ridley Scott. Hér er um
aö ræða leikstjóraútgáfu frá 1991 sem er af
mörgum talin taka upprunalegu útgáfunni fram.
Óvenju miklar breytingar voru gerðar þegar mynd-
in var endurútgefin og ber hæst að endinum, sem
þótti helst til væminn og formúlukenndur var
breytt, og jafnframt fékk rödd Harrison nú fyrst að
njóta sín þar sem talað hafði verið fyrir hann í fyrri
útgáfunni.