Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Side 9
fókus Vikan ll.maí til 17. maí imij.............nfmi....rli.....^ T T R V T M M II JQI Kringlubíó, Bíóhöllin og Nýjabíó á Akureyri frumsýna í kvöld myndina Sweet November. Engill þíðir kaldan karl Myndin Sweet November er enn ein myndin sem fjallar um hið óendanlega flókna mynstur sem samskipti kynj- anna geta á stundum verið og flestir þekkja af eigin raun, enda er það óþrjótandi brunnur og margir sem geta samsamað sig sögupersónum slíkra ræmna. Að þessu sinni er sögð saga Nelsons nokkurs sem er til- finningalega einangraður ef ekki geldur viðskiptakall, og vel heppnaður sem slíkur, sem sér ekkert nema vinnuna sina og hefur engan tíma fyrir neitt annað. Einn góðan veðurdag hittir hann síðan álfkonuna hana Söru. Hún er algjör andstaða Nelsons, í snertingu við sitt innra sjálf, ham- ingjusöm, opin, ástrík, o.s.frv. I einu orði sagt algjör engill. Eftir stutt kynni ákveða þau að gera með sér samning þar sem þau skuldbinda sig í mánaðarsamband sem lýkur með því að báðir aðilar ganga sinn í hvora áttina, engin eft- irmál. Á meðan á þessu sambandi stendur flettir Sara tilfinningaleg- um klakabrynjum Nelsons með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Eða hvað? Gömul kynni endurnýjuð Aðalleikararnir í myndinni ættu ekki að minnka áhorfið á hana þar sem hvert um sig er kyntröll i augum hins kynsins. Keanu Reeves leikur, þrátt fyrir að sumir segi að hann geti það ekki, Nelson hinn kalda. Hlut- verkið á sjálfsagt ágætlega við hann til að byrja með en gaman verður að komast að þvl hvernig tilfinningahitinn verður túlkaður að lokinni tilfinningalegri þið- ingu. í hlutverki Söru er Charlize Theron. Hún er ekki alveg af sama stórstjömukaliberi og Ke- anu en það er hins vegar ömggt að þeir sem hafa séð hana einu sinni gleyma ekki þessari for- kunnarfogru konu. Þau tvö eru ekki alveg ókunn- ug hvort öðru í gegnum uppskáldaðar biópersón- ur því þau léku hjónin ungu í myndinni Devil’s Advocate sem þurftu að kljást við satan sjálfan sem tekið hafði sér ból- festu í A1 Pacino á þeim tíma. Einn úr Ally Mc Keanu og Charlize til fulltingis eru svo þeir Jason Isaacs, sem lék breska illmennið í The Patriot, og Greg Germann, sem best er þekkt- ur fyrir túlkun sina á lögfræð- ingnum Richard Fish i hormóna- seríunni Ally McBeal. Leikstjóri myndarinnar er sið- an írinn Pat O’Connor. Á meðal afreka hans má telja The January Man með Kevin Kline í aðalhlut- verki en Pat er sjálfsagt þekktari fyrir myndina The Circle of Fri- ends með þeim Minnie Driver og Chris O’Donnell í aðalhlutverk- um. reykjavíkin mín Karl Magnús Grönvold, starfsmaður Skjás eins, handknattleikskappi og tantrari ilORGUNilATUR MÚLAKAFFI Ég borða morgunmatinn yfirleitt heima hjá mér. Ef ég ætti að velja einhvern stað til að fara á yrði það líklega Múlakaffi. Ég hef aldrei far- ið þangað inn en get ímyndað mér að þar sé góður félagsskapur og gott kaffi. Ég drekk reyndar ekki kaffi. Annars veit ég varla hvað morgunn er. Vinnunnar vegna vakna ég yfirleitt frekar seint á daginn. HÁDEGISNAT- URINN PÍTAN Vegna þess hvaö það er stutt að fara enda ég oft á Pítunni í Skipholtinu. Það er frekar iátlaus staður og maöur fær alltaf góðan borgara þar og alltaf eins borg- ara. Það er reyndar misjafnt hvað maður fær sér, það er allur fjand- inn til, meira að segja kótilettur. Yfirleitt eru svona staöir bara vin- sælir í smátima og svo hamra þeir á tilboðum og fjöl- skyldufólki en Pitan stendur alltaf fyrir sínu. PRIKIÐ Ef ég fer á prikið er það til að fá mér eggjaköku eða Dúndursamloku. Það gerist frekar oft vegna þess að þarna eru margir vinnufélagar af Skjá einum og hægt að ræða málin. Gummi yfirmaður sér líka um sína og maður fær toppþjón- ustu frá úrvalsstarfsfólki. KVÖLDNATUR PIZZAHÖLLIN Ég fer svo sjaldan út að þorða vegna þess að ég elda svo ynd- islegan mat heima hjá mér. Ef mig langari skyndibitann endar það oftast á pítsu frá Pizzahöllinni. Það eru bestu pítsurnar og alltaf hægt að treysta á það að þær séu jafn- góðar, sama hitastig og allt. Ég á mér fasta blöndu, pepperóní, sveppi og kannski skinku á góðum degi. ÍTALÍA Þegar ég vil gera mér glaðan dag fer ég á Ítalíu. Mér finnst það einn besti stað- ur sem ég hef borðað á á !s- landi og þeir eru margir. Hann er líka svo huggulegur. Ég er mikill pastamaður og í miklu uppáhaldi er ostapasta með fjór- um tegundum af osti. ÚT NED VINUN PRIKIÐ Það er mjög misjafnt hvert maður fer að skemmta sér. Ég á svo stóran vinahóp ab þaö fer eftir því með hverjum maður er. Prik- ið hentar vel að kvöldi líka. Þar er dúndurtón- list, rapp, fönk, allt eftir plötusnúðum. Stað- urinn er náttúrlega svo litill að hann hent- ar ekki vel til að dansa á en er góður til að byrja djammið og hita upp með nokkrum bjórum. R Ó N - ANTÍK Það eru frekar fáir mjög róm- antískir staðir á íslandi, finnst mér, en ég veit kannski ekki að hverju ég er að leita. Rómantíkin getur auðvitað verið svo margt. Það getur verið rómantískt að vera heima hjá sér. Það fer mest eftir þvi með hverjum maður er hvaða staðir eru rómantískir. En ef ég fer á stefnumót verður veitinga- hús oftast fyrir valinu. Til dæmis Lækjarbrekka eða Argentína, þar sem er gott næði. HEILSAN HÁKON DIGRI Ég æfi handbolta með HK og þreksalinn í HK-hús- inu, Hákon digra, nota ég mest í líkamsrækt. Svo er það körfuboltinn á vellinum í hverfinu mínu. Alltaf þegar veðrið er gott er hægt að fá einhverja með sér og taka leik. VERSLUN Ég á enga uppá- haldsfataversl- un. Síðast fór ég í Top Shop en ég kaupi méryfirleitt bara eina og eina flík úr mis- munandi búðum. Svo reyni ég að ^ fara út i verslunar- ferð árlega. Matar- innkaupin geri ég i Bónusi. Maður er svo praktískur, sjáðu til. En oft þegar ég er að vinna lengi fram eftir droppa ég inn í 10-11 í Lág- múlanum af því að þar er opið allan sólar- hringinn. HÚS MÁLARANS Ég fer yfir á Hús Málarans ef ég vil dansa og lyfta mér betur upp. Mik- iö af fólki sem ég þekki stundar staðinn og því er gaman aö fara þangað til að hitta kunningja. Ég fíla það að staðurinn er tvT skiptur. Niðri er kaffihúsastemn- ing með kósí tónlist og svo þegar upp er komið æsast leikar og þá kemst mað- ur í sjöunda himin. tónleikar Vox academica heldur vortónleika sína í Seltjarnarneskirkju næsta sunnudag: Margir hugmyndaheimar mætast A sunnudag klukkan 17 heldur kammerkórinn Vox academica sína árlegu vortónleika i Seltjarn- arneskirkju. Að vanda er efnis- skráin fjölbreytt en kórinn ílytur meðal annars madrigala frá Englandi og Ítalíu, þjóðlög í út- setningum Gustavs Holst og Vaug- hans Williams og trúarleg kórverk eftir Randall Thompson, Javier Busto og Samuel Barber en þrír síðastnefndu eru allir tuttugustu aldar tónskáld. Auk þessara verka flytur kór- inn nýtt verk Atla Heimis Sveins- sonar við ljóð Bjarna Thorarensen en Atli samdi verkið sérstaklega fyrir kórinn. Fluttir verða þættir úr spænska verkinu Misa Fla- menca eftir Paco Pena en í því mætast tveir meg- inþættir spænskr- ar menningar sem eru hug- myndakerfi kaþ- ólsku kirkjunnar og hugarheimur flamencodansins. Stjórnandi kórs- ins er Hákon Leifsson en Sím- on ívarsson leik- ur á gítar og Guðni Franzson á klarínettu. Miðar eru seldir við inn- ganginn. Gáður bíl&tjóri t ... I li Á I í i er alltafi ttf , /, :v , y |i gcðum gir ra , h', Ih'k' P ÍL / Eins og þú vilt að hinir aki skalt þú og sjálfur aka

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.