Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2001, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2001
I>V
Fréttir
Önnur keppnisgögn verða afhent gegn skilatryggingu að upphæð kr. 10.000.
hjá trúnaðarmanni.
Skilafrestur
Tillögum skal skila til trúnaðarmanns, á skrifstofu Arkitektafélags íslands að Hafnarstræti 9,
2. hæð 101 Reykjavík eigi síðar en 5. nóvember 2001.
Nánari upplýsingar og samkeppnislýsingu er að finna á heimasíðu samkeppninnar,
http://www.midborg.net, sem opnar 13. júní. Upplýsingar verða einnig veittar á skrifstofu
Arkitektafélags íslands í síma: 551 1465 milli 09:00-12:00 virka daga og hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur í síma: 563 2340, milli 10:00-16:15 virka daga.
Reykjavík, 9. júní 2001.
Stangaveiöifélag Reykjavíkur:
Nýir samningar í
Norðurá og Hítará
„Við erum mjög hressir með
þessa nýju saminga í Norðurá í
Borgarfirði og Hítará á Mýrum.
Norðurársamingurinn er til fjög-
urra ára en Hítarársamingurinn til
þriggja ára,“ sagði Bjami Ómar
Ragnarsson, formaður Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í samtali við DV
í gærdag, þegar samingarnir voru í
höfn. Veiðifélag Norðurár sam-
þykkti saminginn í fyrrakvöld á
fundi í Norðurárdalnum og stóð
hann lengi yfir. „Það er alltaf góð
stemning fyrir Hítaránni, og það er
löngu uppselt á svæði eitt í henni,
og Norðuráin er sterk í veiði og sölu
veiðileyfa.
Núna hafa veiðst 70 laxar þá daga
sem áin hefur verið opin,“ sagði
Bjami í lokin. G. Bender
Nýr þjónustusamningur við heilbrigðisráðuneytið:
Ráðherra semur
við systurnar
Frá undirritun þjónustusamningsins
Hér er skrifaö undir nýjan þjónustusamning. Frá vinstri eru systir Petra
Leewens, stjórnarformaöur St. Franciskusspítala og fyrrverandi príorinna
St. Franciskusreglunnar, Jón Kristjánsson, heilbrigöis- og tryggingamálaráð-
herra, og Róbert IV. Jörgensen, framkvæmdastjóri St. Franciskusspítala.
DV, STYKKISHÓLMI:
Heilbrigðisráðuneytið og St.
Franciskusspítali í Stykkishólmi
skrifuðu undir þjónustusamning
síðastliðinn þriðjudag sem gildir frá
Hugmyndasamkeppni,
um skipulag miðborgar
og hafiiarsvæðis við Austurhöfii
Að höföu samráði við samstarfsnefnd ríkis og borgar um tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð
og hótel, efnir Reykjavíkurborg til hugmyndasamkeppni um skipulag miðborgar og
hafnarsvæðis við Austurhöfn.
Keppnissvæðið
Keppnissvæðið afmarkast í megindráttum af Suðurbugt / Norðurstíg í vestur, Klapparstíg og
Ingólfsstræti í austur og Sæbraut, Tryggvagötu og Hafnarstræti.
Tilgangur og markmið
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram hugmyndir að skipulagi svæðisins sem er um margt
sérstakt, áhugavert og einstakt í miðborg Reykjavíkur. Gera má ráð fyrir að byggingar á
samkeppnissvæðinu verða mjög áberandi úr ýmsum áttum og ekki ólíklegt að þær geti orðið
einskonar "viti" eða tákn miðborgar Reykjavíkur í framtíðinni.
Tegund og tilhögun samkeppninnar
Samkeppnin er hugmyndasamkeppni. í því felst að útbjóðandi er fýrst og fremst að leita eftir
grundvallarhugmyndum, tilhögun að skipulagi svæðisins miðað við þá starfsemi sem gert er
ráð fyrir að þar verði s.s. tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð, hótel, miðstöð fyrir
almenningsvagna svo eitthvað sé nefnt.
Verðlaun
Heildarverðlaunafé samkeppninnar er kr. 8.000.000. Fyrstu verðlaun verða aldrei lægri en
40% þeirrar fjárhæðar.
Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 2.000.000.
Þátttökuréttur
Samkeppnin er opin öllum er taka vilja þátt með fyrirvara um tengsl við dómnefndarmenn.
Tekið skal fram að það takmarkar ekki rétt til þátttöku hafi aðilar, á fyrri stigum, unnið
tillögur af skipulagi svæðisins eða hluta þess enda verða öll opinber gögn og tillögur, sem
unnar hafa verið af svæðinu, aðgengileg keppendum á heimasíðu samkeppninnar.
Dómnefnd
Formaður er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. Meðdómendur eru Inga Jóna
Þórðardóttir, borgarfulltrúi, Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi, Ólafur B. Thors, formaður
samstarfsnefndar ríkis og Reykjavíkurborgar um tónlistarhús, ráðstefiiumiðstöð og hótel,
Albína Thordarson, arkitekt, Sólveig Berg Björnsdóttir, arkitekt og
Knud Fladeland Nielsen, arkitekt.
Afhending keppnisgagna og þátttökugjald
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust frá og með 13. júní 2001 á skrifstofu
Arkitektafélags íslands, Hafnarstræti 9, milli 09:00-12:00 virka daga og í afgreiðslu
Borgarskipulags Reykjavíkur, Borgartúni 3, milli 10:00-16:15 virka daga. Hana má einnig
nálgast á heimasíðu samkeppninnar, http://www.midborg.net.
1. janúar sl. til ársloka 2003.
í samningnum kemur fram að St.
Franciskusspítalinn er einkasjúkra-
hús í eigu St. Franciskusreglunnar.
Stofnunin tók að sér að annast
heilsugæsluþjónustu á svæðinu frá
og með 1. janúar 1998. Hún starfar
eins og áður samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustu og í samræmi
við reglugerðir og önnur stjórn-
valdsfyrirmæli er varða starfsemi
hennar.
Grunnhlutverk St. Franciskus-
spítala er að þjóna íbúum á Snæ-
fellsnesi og í Dölum, en sérhæfð
deild spítalans fyrir sjúklinga með
háls- og bakvandamál tekur við
sjúklingum alls staðar af landinu. í
skipuriti stofnunarinnar eru fag-
svið hennar skilgreind sem sjúkra-
svið og heilsugæslusvið.
Stofnunin skal meta þörf fyrir
heilbrigðisþjónustu á starfssvæði
sínu og með hvaða hætti henni
verði mætt. í því ljósi skal stofnun-
in setja fram í áætlunum sínum
skýr markmið, meðal annars tölu-
lega um árangur af starfseminni,
leiðir að settu marki og hvemig
staðið skuli að mati á árangri. Til
þess að sinna þeim verkefnum sem
samningurinn kveður á um mun
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið beita sér fyrir að árlegar fjár-
veitingar til starfseminnar verði
miðaðar við fjárlög hvers árs, á
þessu ári kr. 213.900.000.
Róbert Jörgensen framkvæmda-
stjóri sagði það von sína að sá
samningur sem verið var að undir-
rita verði til að stuðla að því að hér
verði áfram veitt markviss og góð
þjónusta og samningurinn verði
stofnuninni gott verkfæri til að
styðjast við í þeirri hröðu þróun
sem er til staðar í heilbrigðiskerf-
inu í dag. Miklar breytingar hafa
orðið á síðustu árum og nokkuð
ljóst að þeim er ekki lokið. Róbert
þakkaði heilbrigðis- og trygginga- !
málaráðherra, Jóni Kristjánssyni,
og sagðist óska þess að þjónustu-
samningurinn styrkti starfsemi og
starfsöryggi St. Franciskusspítala,
til hagsbóta fyrir þá, sem þjónustu
hans njóta. -DVÓ
DV-MYND ÞORSTEINN ÓLAFS
Skrifaö undir
Sigurjón Valdimarsson, formaöur Veiðifélags Noröurár, og Bjarni Ómar Ragn-
arsson, formaöur Stangaveiöifélags Reykjavíkur, handsala nýja saminginn í
veiöihúsinu viö Noröurá í Borgarfiröi.