Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2001, Síða 3
30
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2001
35 *
Bílar
APRILLIA RSV 1000 MILLE
Vél: Vatnskæld V2 fjórgengisvél
Rúmtak: 997 rúmsentímetrar j
V-horn: 60' |
Ventlar: 8
Þjappa: 11,4:1 ?
Kveikja: Tvö kerti á hvern strokk
Gírkassi: 6 gíra
Kúpling: Blautkúpling
YRTI TÖLUR
Lengd/breidd/hæð: 2070/725/1170 mm
Hjólhaf: 1415 mm
Sætishæð: 820 mm
Hæð handfanga: 840 mm
Ferill: 99 mm
Halli stýristúpu: 25"
BURÐARVIRKI
Grind: Álgrind
Fjöðrun framan: "Up-side down" 43 mm
Hreyfigeta: 120 mm
Fjöðrun aftan: Algaffall með stillanlegum vökvadempara
Hreyfigeta: 135 mm
Bremsur framan: 320 mm Brembo diskar, 4ra stimpla dælur
Bremsur aftan: 220 mm Brembo diskur, 2ja stimpla dæla
Dekk framan: 120/70 ZR 17
Dekk aftan: 190/50 ZR 17
HAGKV/EMNI
Bensíntankur: 18 lítrar, 4ra I varatankur
Verð: 1.441.000 kr.
Umboð: Aprillia mótorhjól
SAMANBURÐARTÖLUR
Hestöfl/sn: 130/9500
Snúningsvægi/sn: 101 Nm/7250
Þurrvigt: 187 kg
Þyngdardreifing: 50/50
FRÉTTIR UTAN ÚR HEIMI
Citroén mun frumsýna C3 smábíl-
inn sem tekur við af hinum aldna
Saxo á bílasýningunni í Frankfurt
um miðjan mánuðinn. Þessi frum-
legi bíll fer í beina samkeppni við
nýju Fiesta og Polo smábílana sem
frumsýndir verða á sama stað. Eins
og hjá öðrum framleiðendum er
áherslan lögö á mikið innanrými og
hœrri sœtisstöðu. C3 er stœrri á
alla kanta en Saxo og er jafnvel
aðeins stœrri en Peugeot 206 sem
notast við sama undirvagn. Fimm
vélar verða í boði, þrjár bensínvél-
ar og tvcer nýjar dísilvélar sem eru
samvinnuverkefni PSA og Ford. í
bílnum verður mlkið um fjölskyldu-
vœnan búnað eins og niðurfellan-
lega bakka, auka baksýnisspegil til
að fylgjast með börnunum og tvö
hanskahólf og verður hœgt að
panta annað þeirra með kœlingu.
Skottið verður það stœrsta í sínum
• flokki, 305 lítrar í minnstu stöðu. C2,
sem er tveggja dyra útgáfa, er svo
vcentanlegur 2003 og tekur hann
við af þriggja dyra Saxo.
AMG hefur sent frá sér öflugasta
Mercedes bílinn á markaðinum í
dag í formi nýja SL bílsins. Sett var
forþjappa við CL55 V8 vélina og
skilar hún þá 476 hestöflum og
hvorki meira né minna en 700
Newtonmetrum af togi. Hann á
að vera 4,7 sekúndur í hundraðið
og verður aðeins fáanlegur með
fimm þrepa sjálfskiptingu. Bíllinn
kemur á markað í apríl á nœsta
ári.
Öfíugri Impreza
Subaru er í harðri samkeppni við
Mitsubishi í heimsmeistarakeppn-
inni í ralli og um hylli WRX bílsins
gegn Evo VII. Því hafa tœkni-
menn Subaru kynnt nýja útgáfu
WRX með breytfum stimpilhaus-
um, endurhönnuðu heddi og
stœrri forþjöppu. Breytingin skilar
sér í 280 hestafla vél og kallast
þessi gerð bílsins WRX STi. í Evr-
ópuútgáfu sinni verður hann á 17
tommu álfelgum og með sér-
stöku sportbremsukerfi frá Brem-
bo. Hámarkshraði STi bílsins á að
vera 240 km.
Benz á hassolíu
Verið er að keyra Mercedes bíl
þvert yfir Bandaríkin sem vœri
svo sem ekki í frásögur fœrandi
nema fyrir það að hann gengur
fyrir olíu úr hassfrœjum. Um er að
rœða baráttuhóp fyrir lögleið-
ingu kannabis í lœkningaskyni
sem cetlar að keyra 16.000 km
leið til að minna á sig. Hópurinn
treystlr á olíuframiög frá rœkt-
endum á leið sinni.
Tækjaakstur nr. 27
Kostir: Afl, sœtisstaða, fjöðrun
Gallar: . Yfirstig, ofurnœm
afturbremsa
Aprilla er framleiðandi mótorhjóla
sem ekki hafa sést á íslandi áður. Fyrir-
tækið hefur verið þekktast fyrir fram-
leiðslu á litlum tvígengishjólum en eftir
að þeir hófu þátttöku í GP heimsmeist-
arakeppninni með góðum árangri hafa
þeir verið að koma á markaðinn með
nokkur alvörugötuhjól á síðustu árum.
Eitt þeirra er RSV 1000 Mille-hjólið sem
kom á markað i fyrra og hefur fengið
góða dóma erlendis að undanfórnu.
Hjólið var fyrst sýnt á íslandi á DV
Sportbílasýningunni og því var ekki
seinna vænna að prófa það áður en að
sumarið klárast hér á klakanum.
Minnir fyrst mikið á Ducati
Þegar ég settist á hjólið í fyrsta skipti
og setti i gang gat ég ekki gert að því að
hugsa hve mikið það minnti mig á
Ducati 996. Yfirstigið er mjög hátt sem
getur komið sér illa fyrir lágvaxnari
ökumenn. Sætisstaðan er svipuð og
hljóðið í vélinni einnig þrátt fyrir mis-
munandi uppsetningu. Hjartað í hjólinu
er V2 1000 vélin með 60" horni sem er
minna en hjá keppinautunum og er
ástæðan sú að það leyfir minna hjólahaf
með betri aksturseiginleikum. Minna
horn þýðir venjulega meiri titring frá
mótor en Aprillia hafði svar við því með
þvi að tvöfalda sveifarásinn á aftur-
stimpli og snýst sá hluti öfugt miðað við
framhlutann. Á hverjum strokki eru
fjórir ventlar og tveir knastásar og tvö
kerti til að kveikja í blöndunni frá inn-
spýtingunni. Gírkassinn er sex gira
með sleipkúplingu sem kemur í veg fyr-
ir hikst þegar gírað er hratt niður. Eins
og í Ducati 996 er fyrsti gírinn nokkuð
hár sem gefur möguleika á að notkun í
kröppum beygjum og sleipkúplingin
kemur þar sér vel þegar girað er niður.
Vel heppnuö fjöðrun
Fjöðrunin að framan kemur frá
Showa og þar eru það öfugir 43 mm sem
sjá um verkið. Að aftan er einn stillan-
legur Sachs-dempari með mikla hreyfi-
getu. Fjöðrunin gerir þetta hjól mjög
þægilegt í akstri þrátt fyrir verklegt út-
litið. Hægt er að hafa hana þónokkuð
mjúka fyrir heíðbundinn akstur en svo
er hægt að stífa hana þónokkuð ef þurfa
þykir. Afturgaffallinn er aftursveigður
og fer keðjan í gegnum hann. Bremsurn-
ar eru þær sömu og í Ducati 996 sem
DV-bílar prófuðu í hittifyrra. Eini mun-
urinn er á bremsuslöngunum sem eru
hefðbundnar á Mille en stálbarkar á
ítalska frændanum. Dekkin koma frá
Pirelli, enda ekki við öðru að búast frá
ítölskum framleiðanda. Þau eru af gerð-
inni Dragon Evo sem eru götuútgáfur
að Cobra keppnisdekkjum þeirra. Mæla-
borðið er kapítuli út af fyrir sig. Flestir
mælar, eins og hraðamælirinn, eru staf-
rænir og tengdir tölvu. Til dæmis er
hægt að láta það mæla brautartíma og
er kveikt á því með því að blikka háu
Kemur á óvart hve viðráð-
anlegt það er og hvað það
þreytir lítið ökumann
ljósunum. Einnig er hægt að stilla
hvenær skiptiljósið í mælaborðinu
kviknar ef menn vilja spara mótorinn.
Hjólið slær út öðru kertinu í 10.200
snúningum og því seinna 300 snúning-
um ofar.
Þreytir ekki ökumanninn
Hjólið er auðvelt í akstri miðaö við
þessa gerð af hjóli. Sætið er rúmgott,
sætisstaðan góð og þótt kúplingin sé
frekar stíf venst hún fljótt. Aflið í
hjólinu er yfirdriflð og skemmtilegt
hversu vel það endist upp snúnings-
sviðið. Bremsurnar að framan eru
góðar en afturbremsan tekur fljótt og
vel í og þarf því að gæta sín á henni.
Vindvömin er einnig mjög góð og ef
maður hallar sér vel fram finnur mað-
ur ekkert fyrir mótvindi á líkama.
Hjólið er létt og meðfærilegt og auð-
velt að henda þvi til í beygjum þar
sem það er mjög stöðugt og traust-
vekjandi. Segja má að Aprillian henti
vel sem bæði kapþaksturshjól og hjól
til daglegra nota. Ef þú ert að leita þér
að hjóli með eiginleika kappaksturs-
hjóls en gerir þig ekki ónýtan í baki
og höndum eftir nokkur hundruð
kílómetra akstur er þetta einmitt hjól-
ið fyrir þig. Þá er verðinu stillt í hóf
þegar komið er að því að bera það
saman við verð á helstu keppinautum
eins og Ducati 996 og SP Hondunni.
-NG
© Gaffallinn og sver hljóökúturinn
setja svip á afturhlutann.
QSmátíma tekur aö venjast útlitinu
sem vinnur vel á, þríhyrningslaga
formið á framljósinu er til dæmis
nokkuö sér á parti.
© Mælaboröið er háþróaö og gott
aflestrar. Einnig má breyta kílómetr-
um í mílur og Celsíus í Fahrenheit.
®4ð framan er sama Showa-fjöör-
unin og sömu Brembo-bremsurnar
og í Ducati 996.
Qsætisstaöan er sérlega þægileg
og vindvörnin góö á Mille hjólinu.
Bílar
DV-MYNDIR: GASSI & ANNA
Bílarnir fengu aö reyna margar torfærur á leiöinni og hér er veriö aö leiðbeina blaöamönnunum
yfir sprungu uppi á Langjökli.
Blaöamennirnir fengu einnig aö kynnast íslenskum fjallajeppum í sinni hrikalegustu mynd, en þeir voru notaöir
til aö flytja hóþinn upp á hábunguna. Þaö var því ánægöur hópur sem stillti sér hér upp fyrir Ijósmyndarann.
Freelander kynntur amer-
ískum blaðamönnum
Hópur bílablaðamanna frá mörg-
um stærstu og mest lesnu bílablöð-
um í Bandaríkjunum hefur verið
hér að undanförnu við prófanir á
Land Rover Freelander með V6
vélinni. Þann bU er verið að kynna
fyrir þeirra markaði og þá aðeins
sjálfskiptan með valskiptingu.
Blaðamennimir hafa látið vel af
því að prófa bUinn við íslenskar
aðstæður þar sem þeir hafa verið
sendir með bUana upp á Langjökul
og yfir ár og aðrar torfærur. ís-
lensk náttúra er að verða sífeUt
vinsælli í kynningum á nýjum bíl-
um og þetta er ekki í fyrsta sinn
sem bílablaðamenn fara upp á
Langjökul á þessu ári tU prófana. I
vor var hér stór hópur við prófun
á nýrri gerð vetrardekkja. Einnig
má sjá íslenskt landslag í mörgum
bUaauglýsingum í dag og ekki er
langt síðan hópur var hér við tök-
ur á auglýsingu fyrir nýja Range
Rover-lúxusjeppann sem frum-
sýndur verður í nóvember. -NG
Bond aftur á Aston Martin
Gengið hefur verið frá því að of-
urnjósnari nr. 007, James Bond, aki
nýjasta sportbíl Aston Martin i
næstu mynd sinni. Myndin, sem er
sú tuttugasta í röðinni, hefur ekki
ennþá fengið nafn en kemur út á
næsta ári. Aston Martin-biU var
fyrst notaður í Bond-mynd árið 1964
í Goldfinger. Sá bUl var af gerðinni
DB5 og var útbúinn með
slöngvisæti, oliusprautu til að tefja
aöra bUa og vélbyssu. Síðast var
notast við Aston Martin í The Liv-
ing Daylights árið 1987 en sá bíU var
með aðeins betra vopnabúri,
laserbyssum og ílugskeytum. f síð-
ustu myndum sínum hefur Bond
ekið um á BMW bUum og mótor-
hjólum. BUlinn sem Bond fær til af-
nota í nýju myndinni er hinn eftir-
tektarverði Aston Martin V12
Vanquish sem smíðaöur er í 200 ein-
tökum á ári hverju. Vanquish, sem
er 460 hestöU og 4,4 sekúndur í
hundraðið, er uppseldur út árið
2003. -NG
Vél: V12 álvél
Rúmtak: 5.805 lítrar
Ventlar: 48
V-horn: 60“
Þjappa: 10,5:1
Hestöfl: 460
Hámarkshraði: 306 km
Hröðun 0-100 km: 4,4 sek.