Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Side 10
24
4-
Sport
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001 MÁNUDAGUR 15.
DV DV
Grindavík-KR 90-94
0-8, 2-8, 2-10, 10-17, 12-19, (15-24),
19-24, 19-28, 26-28, 31-31, 35-33, 35-39,
36-42, 38-44, 42^4, (4946), 4948,
50-50, 56-52, 58-54, 59-56, 61-60, 62-62,
(65-62), 67-62, 70-65, 73-69, 77-72,
80-74, 80-78, 83-83, 87-87, 90-89, 90-94.
Stig Grindavíkur: Roni Baily 31,
Helgi Jónas Guðfinnsson 25, Páll Ax-
el Vilbergsson 13, Dagur Þórisson 9,
Guölaugur Eyjólfsson 6, Nökkvi Már
Jónsson 4, Miha Cmer 2.
Stig KR: Herbert Arnarson 21, Jón
Arnór Stefánsson 20, Helgi Már
Magnússon 16, Keith Vassell 15, Am-
ar Kárason 14, Steinar Kaldal 4, Her-
mann Hauksson 4.
Fráköst: Grindavík 24 (8 í sókn, 16 í
vöm, Páll Axel 8, Dagur 8), KR 31 (6 i
sókn, 25 í vörn, Vassel 10).
Stoösendingar: Grindavík 17 (Dagur
4), KR 20 (Jón Arnór 6).
Stolnir boltar: Grindavík 10 (Cmer
3, Dagur 3), KR 8 (Arnar 2, Vassell 2).
Tapaóir boltar: Grindavík 8, KR 15.
Varin skot: Grindavík 5 (Dagur 2,
Helgi 2), KR 1 (Jón Arnór).
3ja stiga: Grindavík 23/12, KR 20/9.
Víti: Grindavík 21/14, KR 15/11.
Leikvarpiö var í fyrsta sinn virkt á
þessum leik og gátu netverjar fylgst
með öllum atburöum leiksins í beinni
útsendingu á Netinu.
Vinnu-
sigur
Það var boðið upp á hraðan leik
í Ásgarði í gærkvöldi. Keflvíking-
arnir voru miklu betri og báru
höfuð og herðar yfir heimamenn
úr Stjörnunni. Enda var sigur
þeirra mjög öruggur þótt munur-
inn í lokin hafi aðeins verið tólf
stig.
Gestimir spiluðu mjög hraðan
sóknarleik auk þess að spila stífan
og góðan vamarleik. Damon John-
son var mjög áberandi ásamt Guð-
jóni Skúlasyni sem hitti mjög vel.
í hálfleik höfðu Keflvíkingar tutt-
ugu og tveggja stiga forystu.
Eftir þrjá fjórðunga var tuttugu
og átta stiga munur og leikurinn í
raun búinn en heimamenn gáfust
ekki upp og minnkuðu muninn
mikið í lokm enda varaliðiö hjá
Keflavík inná lengstum.
Það voru greinileg vandræði hjá
Stjörnunni hvað varðaði leik-
stjórnun. Þeir voru að reyna að
spila á sama hraða og Keflavík en
gekk frekar illa. Þeir voru samt
allir af vilja gerðir og börðust eins
og ljón allan tímann. Þeir eiga þó
langt í land með að standa í bestu
liðunum í deildinni.
Besti leikmaður leiksins var
Damon Johnson. Eins og körfu-
knattleiksunnendur vita er þar á
ferðinni frábær leikmaður. Vel
þess virði að borga sig inn á leiki
sem hann er að spila. Hann svíkur
menn ekki. -MOS
Þór Ak.-Haukar 98-85
64, 6-11, 14-14, 17-16, 27-21, (36-23),
41-23, 47-28, 55-32, (55-38), 61-41,
65-46, 65-54, (76-60), 75-65, 77-74,
87-74, 89-80, 98-85.
Stig ÞórsAk.: Stevie Johnson 31, Óö-
inn Ásgeirsson 21, Einar Örn Aðal-
steinsson 14, Hafsteinn Lúöviksson
13, Hermann Hermannsson 9, Hjörtur
Harðarson 5, Sigurður Sigurðsson 3,
Pétur Sigurðsson 2.
Stig Hauka: Marel Guðlaugsson 24,
Ingvar Þór Guðjónsson 17, Jón Arnar
Ingvarsson 12, Guðmundur Bragason
11, Víðir Vipisson 6, Predrag
Bojovic 6, Bragi Magnússon 5, Davíð
Ásgrímsson 2, Bjarki Gústafsson 2.
Fráköst: Þór 44 (13 í sókn, 31 í vörn,
Óðinn 20), Haukar 28 (10 í sókn, 18 í
vörn, Guðmundur 10).
Stoösendingar: Þór 10 (Hjörtur 4),
Haukar 4 (Guðmundur 2).
Stolnir boltar: Þór 9 (Óðinn 3),
Haukar 8 (Bjarki 2).
Tapaöir boltar: Þór 7, Haukar 20.
Varin skot: Þór 0, Haukar 0.
3ja stiga: Þór 13/5, Haukar 22/11.
Víti: Þór 25/16, Haukar 26/21.
Dómarar (1-10): Jón Bender og
Bjarni Gaukur Þórmundsson (8).
Gteöi leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 120.
Maöur leiksins:
Óöinn Ásgeirsson, Þór Ak.
Páll Kristinsson.
Stjarnan-Keflavík 83-95
3-0, 6-2, 8-12, 13-16, 14-31, (18-33),
18-35, 24-43, 3144, 33-55, (38-60),
41-60, 45-71, 49-47, (53-81), 56-81,
65-85, 69-90, 79-93, 89-95.
Stig Stjörnunnar: Tyson Whitfield
21, Eyjólfur Jónsson 13, Örvar
Kristjánsson 12, Jón Þór Eyþórsson
11, Davíð Guðlaugsson 6, Sigurjón
Lárusson 6, Jón Ölafur Jónsson 5,
Guðjón Lárusson 4, Eiríkur
Sigurösson 3, Magnús Helgason 2.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason
27, Damon Johnson 22, Gunnar
Einarsson 11, Gunnar Stefánsson 10,
Magnús Þór Gunnarsson 9, Jón Nor-
dal Hafsteinsson 6, Sævar Sævarsson
5, Sveinbjörn Skúlason 2, Halldór
Halldórsson 2, Davíð Þór Jónsson 1.
Fráköst: Stjarnan 42 (18 í sókn, 22 í
vörn, Guðjón 8), Keflavík 31 (7 í sókn,
24 í vörn, Johnson 11).
Stoðsendingar: Stjarnan 22 (Whit-
field 6), Keflavík 15 (Johnson 5).
Stolnir boltar: Stjarnan 9 (Whitfield,
Davíð 2), Keflavik 10 (Johnson 3).
Tapaóir boltar: Stjarnan 17, Kefla-
vík 17.
Varin skot: Stjarnan 1 (Örvar),
Keflavík 5 (Johnson 4).
3ja stiga: Stjarnan 42/11, Kefiavík
25/11.
Viti: Stjarnan 15/10, Keflavík 20/13.
Dómarar (1-10): Leifur Garðarsson,
Erlingur Snaer Erlingsson (7).
Gceöi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 100.
Maöur leiksins: Damon
Johnson, Keflavík.
Ómar Sævarsson.
Þægilegt
Njarðvíkingar sigruðu nýliða
Breiðabliks 101-84 í Ljónagryfjunni í
gærkvöld. Heimamenn byijuðu leik-
inn með látum og náðu strax 10 stiga
forskoti, en gestimir komu sterkir til
baka með góðri pressuvöm og náðu
að snúa leiknum sér í hag. Njarðvík-
ingar leiddu þó eftir fyrsta leikhluta
27-24, og var það Páll Kristinsson sem
fór fyrir sínum mönnum í leikhlutan-
um með 10 stig. í öðmm leikhluta má
segja að Njarðvíkingar hafi tekið
stærsta skrefið í að klára leikinn, er
þeir gerðu 13 stig án þess að Breiða-
blik kæmi skoti á körfuna og breyttu
stöðunni úr 32-28 í 45-28.
Staðan í hálfleik var 56-38. I seinni
hálfleik náðu Blikar að vinna á með
sóknarleikinn en þeir náðu ekki að
fylgja því eftir í vörninni og sannfær-
andi sigur Njarðvíkinga því stað-
reynd.
Hjá Njarðvíkingum var það sterk
liðsheild sem skóp sigurinn. Pressu-
vömin var sterk og skilaði þeim
mörgum auðveldum körfum. Páll
Kristinsson var atkvæðamikill í sókn-
inni og spilaði auk þess fina vörn og
reif niður 13 fráköst og þá virtist Logi
Gunnarsson geta skorað þegar hann
vildi. Hjá gestunum átti Ómar Sæv-
arsson finan leik, og Kenneth Ric-
hards og Jónas Ólafsson komust
einnig þokkalega frá leiknum.
„Ef við leyfum Njarðvíkingunum
að hlaupa svona rosalega eins og við
gerðum í kvöld þá eigum við ekki
möguleika gegn þeim. Sterkur kafli
hjá þeim í 2. leikhluta dró töluvert úr
okkur og þrátt fyrir að fara að skora
aftur þá náðum við ekki að stoppa þá
og forystan hélst út leikinn,“ sagði
Eggert Garðarsson, þjáifari Breiða-
bliks, að leik loknum.
„Okkur hefur gengið illa með Blik-
ana á undirbúningstímabilinu en í
kvöld voru allir að berjast og þó að
við eigum eftir að finpússa leik okkar
þá er ég í heildina nokkuð sáttur við
leik okkar í kvöld,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Njarövíkinga, að
leik loknum. -EÁJ
Utlendingalausir Skallar
- höfðu lítið í ÍR-inga að gera og máttu þola 17 stiga tap
Það voru útlendingalausir Skall-
ar sem mættu í Breiðholtið í gær-
kvöldi og höfðu lítið í heimamenn
að gera fyrir utan kafla í þriðja
leikhluta. ÍR-ingar sigruðu 81-69
eftir að hafa leitt í háifleik 43-31.
Rússi er væntanlegur hjá Borgnes-
ingum en hann verður ekki lögleg-
ur fyrr en 27. þessa mánaðar og
Bandaríkjamaðurinn sem átti að
koma fyrir fyrsta leik ætlar að láta
bíða eftir sér.
Það tók gestina fjórar mínútur
að skora sín fyrstu stig í leiknum
og ÍR komst í 8-0. Heimamenn
komust mest 19 stigum yfir í fyrri
hálfleik, 39-20, og virtust ætla að
valta yfir- máttlausa Borgnesinga.
Skallar gáfust ekki upp og náðu að
minnka muninn í þriðja leikhluta
í þrjú stig, 54-51, en þá skoruðu ÍR-
ingar þrjár 3ja stiga körfur í röð og
munurinn kominn í 12 stig.
Kristján mikilvægur
Allt annað var að sjá til ÍR-inga
en í síðasta leik gegn KR. Þeir slök-
uðu þó á eftir að hafa náð góðu for-
skoti og hleyptu gestunum inn í
leikinn aftur. Kristján Guðlaugs-
son var mikilvægur þegar Skallar
gerðu áhlaup í þriðja leikhluta og
Eiríkur var góður, sérstaklega í
fyrsta leikhluta. Það fór lítið fyrir
Cedrick Holmes í þessum leik og
leyfði hann öðrum leikmönnum
liðsins að njóta sín í sókninni.
Hlynur yfirburöamaður
Hjá Skallagrími var Hlynur
Bæringsson yfirburðamaður. Haf-
þór Gunnarsson átti góðan þriðja
leikhluta þegar Borgnesingar voru
að minnka muninn. Þá var þjálfar-
inn Alexander Ermolinskij góður í
seinni hálfleik þrátt fyrir að vera
meiddur á putta. -Ben
Kristján Guölaugsson, IR, skoraði mikilvægar 3ja stiga körfur gegn Skallagrími í gær.
OKTÓBER 2001
25
Sport
Mikill
viljil
- í mínu liði
sagði Ingi Þór
Steindórsson,
þjálfari KR, eftir
sigur á Grinda-
vík, 90-94.
KR-ingar unnu góðan sigur á
Grindvíkingum í Grindavík í
gærkvöld í úrvalsdeild karla i
körfuknattleik en lokatölur
urðu 90-94, eftir að KR hafði haft
yfir í leikhléi, 40-47.
„Þetta var góður leikur af
okkar hálfu. Við byrjuðum mjög
sterkt og náðum mest 12 stiga
forskoti í fyrri hálfleik. Þeir
komust lítið áleiðis gegn sterkri
vöm okkar og mínir menn léku
mjög vel. Við hittum til að
mynda úr 9 af 15 þriggja stiga
skotum okkar í fyrri hálfleik og
varnarleikurinn var mjög sterk-
ur,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari KR, eftir sigurinn gegn
Grindavík.
Síðari hálfleikurinn var mjög
jafn og spennandi og jafnt á
flestum tölum. KR-ingar voru í
nokkrum villuvandræðum en
undir lokin voru þeir Keith
Vassell, Jón Amar Stefánsson
og Helgi Már Magnússon allir
komnir með fiórar villur. En
KR-ingar náðu að innbyrða sig-
urinn í lokin og tryggja sér kær-
kominn sigur.
„Við komum hingað til að
sigra og ætluðum okkur ekkert
annað en sigur. Við höfum ekki
tapað leik hér í þrjú ár og það
stóð ekki til að breyta því. Ég er
mjög ánægður með þennan sig-
ur. Strákamir léku mjög vel og
það var mikill vilji í minu liði
til að klára þennan leik. Það var
fyrst og fremst sterk liðsheild
sem skóp þennan góða sigur,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari KR-inga.
Friðrik Ingi Rúnarsson var
auðvitað ekki ánægður í leiks-
lok með að ná ekki að sigra en
sá samt ýmislegt gott við leik
sinna manna: „Þetta var rosa-
lega skemmtilegur leikur
tveggja góðra liða. Þetta gat dott-
ið báðum megin í lokin en KR-
ingar höfðu heppnina með sér
að þessu sinni og náðu hér
tveimur góðum stigum. Mitt lið
lék mun betur en í fyrsta leik og
þó að ég sé auðvitað hundfúll
með að tapa þá sá ég ýmislegt já-
kvætt við leik minna manna
sem gefur mér vonir um að við
getum gert góða hluti í næstu
leikjum," sagði Friðrik Ingi
Rúnarsson, þjálfari Njarðvík-
inga.
Hörð rimma
Það var hörð rimma sem fram fór á Króknum í
gærkvöld þegar Tindastólsmenn fengu Hvergerð-
inga í heimsókn. Leikurinn var mjög jafn aOan
tlmann. Gestimir þó yfirleitt með frumkvæðið al-
veg framundir lok þriðja leikhluta, þegar Tinda-
stólsmönnum tókst að komast yfir og ná loks jafn-
vægi i leik sinn. Þetta var einn af þessum leikjum
sem lítið má út af bregða þannig að sigurinn faUi
ekki á hvorn veginn sem er.
Baráttan var mikil strax í upphafi og sýnt að
hvomgt liðið ætlaði að gefa neitt eftir en talsvert
um mistök á báða bóga. Hamarsmenn vom sterk-
ari undir körfunni og nokkuð um að þeir næðu
gagnsóknum á Tindastólsmenn. Þannig voru gest-
imir með frumkvæðið lengst af og voru banda-
ríkjamaðurinn Nate og Svavar Birgisson, fyrrum
leikmaður Tindastóls, mjög atkvæðamiklir.
Bandaríkjamaðurinn í liði Tindastóls, Brian
Lukas, fór fyrir sínum mönnum og þegar á reyndi
undir lok þriðja leikhluta kom Kristinn Friðriks-
son og skoraði mikilvægar körfur. Hann hélt svo
uppteknum hætti í síðasta leikhlutanum, Tinda-
stólsmenn sigu fram úr á lokakaflanum og eins
gott að Óli Barðdal og Friðriks Hreinsson hittu af
vítalínunni undir lokin þegar Nate gerði sér lítið
fyrir og skoraði í tvígang þriggja stiga körfur fyr-
ir Harmarsmenn, en þrátt fyrir mikla baráttu á
lokamínútunni tóks þeim ekki að jafna metin.
Hjá Tindastóli var Brian Lukas mjög góður,
Kristinn mjög sterkur, sérstaklega þegar á leið, og
Óli Barðdal átti mjög góðan leik. Hjá Hamri var
Nate geysigóður og Svavar mjög öflugur þannig
að Rússinn Andropov í Tindastólsliðinu sást
varla.
-ÞÁ
Staðan í úr-
valsdeildinni
Þór 2 2 0 201-167 4
Njarðvík 2 2 0 193-160 4
KR 2 2 0 178-162 4
Tindastóll 2 2 0 167-158 4
Keflavík 2 1 1 185-176 2
Hamar 2 1 1 179-178 2
ÍR 2 1 1 156-153 2
Haukar 2 1 1 163-170 2
Grindavík 2 0 2 164-172 0
Breiöablik 2 0 2 154-180 0
Skallagr. 2 0 2 147-178 0
Stjarnan 2 0 2 165-198 0
Nœsta umferö í úrvalsdeiid karla í
körfubolta fer fram sunnudaginn 21. október kl. 20. Þá mætast: Skallagrímur-Grindavík, Hauk- ar-Stjarnan, Hamar-Njarövík, Kefla-
vik-Tindastóll, KR-Þór, Breiða-
blik-lR
Fyrsta umferö Kjöríss-bikarsins
verður haldin í vikunni. Þá mætast: Stjarnan-Haukar, KFS-Keflavík, Sel-
foss-Tindastóll, ÍR-Skallagrímur,
DV-mynd Pjetur
Þór, Þorlákshöfn-Njarðvík, Val-
ur-KR á fimmtudaginn og á föstudag-
inn mætast Þór, Akureyri-Grindavík
og Breiðablik-Hamar. Allir leikir
hefiast kl. 20.
Njarðvík-Breiöablik 101-84
5-0, 13-3, 13-14, 26-20, (27-24), 32-28,
45-28, 47-32, 54-34, (56-38), 66 40,
70-51, 74-52, 76-57, (77-61), 83-63,
91-69, 94-74, 98-80, 101-84.
Stig Njarðvikur: Páll Kristinsson
21, Logi Gunnarsson 21, Brenton
Birmingham 14, Halldór Karlsson 13,
Teitur Orlygsson 12, Sævar Garðars-
son 8, Ragnar Ragnarsson 5, Arnar
Smárason 4, Sigurður Einarsson 3.
Stig Breióabliks: Kenneth Richards
16, Ómar Sævarsson 15, Jónas Ólafs-
son 12, Pálmi Sigurgeirsson 10, Þórar-
inn Andrésson 9, Þórólfur Þorsteins-
son 8, Ingvi Logason 8, Mirko Viri-
jevic 4, Isak Einarsson 2.
Fráköst: Njarðvik 42 (26 í vörn, 16 í
sókn, Páll Kristinsson 13), Breiðablik
36 (22 í vörn, 14 í sókn, Ómar Sævars-
son 11).
Stoösendingar: Njarðvík 14 (Logi 3,
Brenton 3, Halldór 3) Breiðablik 12
(Pálmi 4).
Stolnir boltar: Njarðvík 21 (Teitur 5)
Breiðablik 14 (Pálmi 4).
Tapaóir boltar: Njarðvík 13, Breiða-
blik 23.
Varin skot: Njarðvik 5 (Logi 2,
Brenton 2), Breiðablik 2 (Omar,
Kenneth).
3ja stiga: Njarðvík 23/35, Breiðablik
12/21. Víti: Njarðvík 5/20, Breiðablik
5/19.
Dómarar (1-10): Rögnvaldur Hreið-
arsson og Björgvin Rúnarsson (8).
Gceði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 200.
Maöur leiksins:
Páll Kristinsson, Njarövík
Tindastóll-Hamar 88-86
5-4, 7-8, 9-15, 17-15 (19-22) 25-22,
27-31, 32-31, (38-42) 42-50, 50-50,
55-61, 59-62 (65-62) 69-67, 75-72, 75-77,
80-77, 86-80, 88-86.
Stig Tindastóls: Brian Lukas 29,
Kristinn Friðriksson 20, Friðrik
Hreinsson 13, Óli Barödal 10, Lárus
Dagur Pálsson 6, Mikhail Andropov
4, Axel Kárason 2, Helgi Rafn Viggós-
son 2 og Matthías Rúnarsson 2.
Stig Hamars: Nathanial Pondexter
25, Svavar Birgisson 19, Lárus Jóns-
son 9, Óskar Pétursson 8, Svavar
Pálsson 7, Gunnlaugur Erlendsson 6,
Pétur Ingvarsson 5, Kjartan Orri Sig-
urðsson 5 og Sigurður E. Guðjónsson
2.
Fráköst: Tindastóll 39 (9 í sókn, 30 í
vöm, Kristinn Friðriksson 7), Hamar
44 (17 í sókn, 27 í vörn, Poindexter
14).
Stoösendingar: Tindastóll 21
(Kristinn 9) Hamar 18 (Nathanial 7).
Stolnir boltar: Tindastóll 16 (Óli B.
5) Hamar 13 (Nathanial 6).
Tapaóir boltar: Tindastóll 14,
Hamar 24.
Varin skot: Tindastóll 8 (Lukas 6)
Hamar 5 (Nathanial 3)
3ja stiga: Tindastóll 5/19, Hamar
8/23.
Víti: Tindastóll 20/34, Hamar 14/21.
Dómarar (1-10): Eggert Þór Aðal-
steinsson og Georg Andersen (5).
Gceöi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 380.
Maöur leiksins:
Nathanial Pontdexter, Hamri
Annar sig-
ur Þórsara
Þórsarar tóku á móti Haukum í
gærkvöld og höíóu óvæntan sigur,
98-85.
Til að byrja með voru Haukar
með yfirhöndina og komust Þórs-
arar fyrst yfir í stöðuna 17-16. Eft-
ir það var ekki aftur snúið. Þórsar-
ar tóku öll völd í leiknum og náðu
sjö stiga forskoti í fyrsta leikhluta.
Öðrum leikhluta vilja Haukamenn
örugglega gleyma sem fyrst.
Fyrsta stigið þeirra í leikhlutan-
um kom þegar rúmar þrjár mínút-
ur voru búnar þegar Guðmundur
Bragason setti niður eitt víti.
Haukar skoruðu aðeins 15 stig í
leikhlutanum og þar af voru níu
úr vítum.
Haukar vildu hins vegar ekki
gefast upp svo auðveldlega og bitu
heldur betur frá sér í þriðja leik-
hluta og voru búnir að minnka
muninn niður í tíu stig þegar leik-
hlutinn leið undir lok. Þeir héldu
svo uppteknum hætti í þeim fjórða
og þegar hann var um hálfnaður
var munurinn aðeins um þrjú stig.
Þórsarar fundu einhvers staðar
aukaorku og komu til baka og
tryggöu sér sigurinn með frábærri
vörn og skynsömum sóknarleik.
Hjá Haukum var Marel Guðlaugs-
son stigahæstur og þeirra besti
maður. Ingvar Guðjónsson var
einnig skæður í leiknum og var að
setja niður þriggja stiga körfur
þegar Hauka vantaði þær. Það
dugði þó ekki til og unnu Þórsarar
sanngjarnan sigur. Þórsarar stóðu
sig vel í leiknum og var þar Óöinn
Ásgeirsson frábær á öllum svið-
um.
Ljóst er á fyrstu tveimur leikj-
unum að Þórsarar verða erfiðir í
vetur og viröast þeir fara batnandi
meö hverjum leik. Þótt að það
gangi vel á leikjunum má ekki
gleyma blaðamönnunum en engin
leikskýrsla barst blaðamönnum á
leiknum. Mikill munur er á Akur-
eyrarliðunum hvað þetta varðar.
-JJ
Óöinn Ásgeirsson, Pór.
ÍR-Skallagrímur 86-69
8-0, 16-10, 22-12, (22-16), 28-16, 39-20,
41-23, 41-29, (43-31), 46-31, 50-37, 54-40,
54-51, (63-51), 68-57, 77-57, 82-66, 86-69.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 25,
Kristján Guðlaugsson 15, Cedrick
Holmes 10, Krst Serafimovski 8,
Sigurður Þorvaldsson 7, Hreggviður
Magnússon 7, Halldór Kristmansson
7, Björgvin Jónsson 4.
Stig Skallagrims: Hlynur
Bæringsson 26, Finnur Jónsson 11,
Hafþór Gunnarsson 10, Steinar
Arason 10, Alexander Ermolinskij 9,
Egill Egilsson 3.
Fráköst: ÍR 42 (9 i sókn, 33 í vörn,
Holmes 15), Skallagrímur 27 (6 i sókn,
21 i vörn, Hlynur lO).
Stoösendingar: ÍR 23 (Holmes 9),
Skallagrímur 14 (Hlynur 5).
Stolnir boltar: ÍR 3 (Hreggviöur,
Krst, Guðni), Skallagrímur 12
(Hlynur 3).
Tapaöir boltar: ÍR 15, Skallagrímur
7.
Varin skot: lR 3 (Halldór, Siguröur,
Krst), Skallagrímur 1 (Hlynur).
3ja stiga: IR 12/20, Skallagrimur
8/33. ,
Víti: ÍR 11/16, Skallagrímur 16/21.
Dómarar (1-10): Sigmundur
Herbertsson og Helgi Bragason (8).
Gceöi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 200.
Maöur leiksins:
Hlynur Bæringsson, Skallagrími