Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
31
I>V
Sport
DV-Sport fer yfir efnilegustu unglingana:
Efnilegar stelpur
- Ragnhildur Guðmundsdóttir úr FH sú efnilegasta hjá stelpum 17 ára og yngri
Síðasta mánudag birtum við
lista yfir efnilegustu stelpurnar í
handboltanum á aldrinum 18-19
ára. Núna er komið af stelpum
sem eru 17 ára og yngri og er af
nægu að taka þar sem margar
stelpur eru mjög svo efnilegar og
er gaman að sjá þær framfarir
sem eru hjá stelpum i dag.
Tvö ár meö meistaraflokki
DV-sport fékk Ágúst Jóhanns-
son, unglingalandsliðsþjálfara
kvenna, aftur með sér í lið og má
sjá hér til vinstri allar þær efni-
legustu og umsögn á fyrstu tíu en
síðan koma þær sem eru þar rétt
á eftir.
Þann lista leiðir FH-ingurinn
Ragnhildur Guðmundsdóttir en
Ragnhildur hefur, þrátt fyrir ung-
an aldur, verið að leika með
meistaraflokki FH undanfarin tvö
timabil. Þá hefur hún bæði leikið
Umsjón:
Benedikt Guðmundsson
með 20 ára landsliðinu sem og 18
ára liðinu. Ragnhildur er dóttir
Guðmundar Karlssonar sem þjálf-
ar meistaraflokk karla hjá FH og
þarf því ekki leita langt til að fá
ráðleggingar.
Næst á eftir henni kemur Elísa-
bet Gunnarsdóttir úr Stjörnunni
en hún er mjög efnilegur linu-
maöur. Elísabet hefur einnig ver-
ið að leika með U-20 og U-18 þrátt
fyrir að vera nokkuð yngri en
aðrir leikmenn liðsins.
Fylkir meö efnilegar stelpur
Það er gaman að sjá að Árbæj-
arfélagið Fylkir á tvær stelpur á
topp 10-listanum en Fylkir hefur
ekki verið áberandi í kvenna-
handbolta en virðist eiga mikið af
efnilegum stelpum.
Sé tekið mið af 20 manna list-
anum þá á Stjarnan úr Garðabæ
flesta leikmenn eða alls sex tals-
ins. -Ben
Hi
Þær Ragnhildur Guömundsdóttir úr FH og Elísabet Gunnarsdóttir úr Stjörnunni eru tvær efnilegustu
handboltastelpurnar á landinu í dag hjá stelpum 17 ára og yngri. DV-mynd Ben
20 efnilegustu
- handboltastelpurnar - 17 ára og yngri
1. Ragnhildur Guðmundsdóttir (1984) FH
Öflug skytta sem getur einnig leikið á miðju. Hún er líkamlega sterk miðað við
aldur og hefur yflr að ráða fjölbreyttum skotum, hún hefur jafnframt gott auga
fyrir línuspili. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún öðlast þó nokkra reynslu, hún
hefur leikið með m.fl. hjá FH síðustu tvö ár og einnig hefur hún leikið bæði með
U-18 og U-20 ára landsliðinu.
2. Elísabet Gunnarsdóttir (1984) Stjarnan
Ein af efnilegustu línumönnum landsins. Hennar helstu styrkleikar eru líkam-
legur styrkur og góður leikskilningur, það er erfltt að stoppa hana ef hún fær bolt-
ann. Hún þarf að bæta sig í varnarleik. Hún hefur tekið miklum framforum síð-
ustu ár og hefur alla burði til að ná langt. Eins og Ragnhildur hefur hún bæði
leikið með U-18 og U-20 ára landsliðinu.
3. Helga Dóra Magnúsdóttir (1984) ÍR
Efnilegur markvörður sem hefur bætt sig mikið síðustu ár. Hún er hávaxin
með góða snerpu og flnar staðsetningar. Hún þarf að bæta sig töluvert tæknilega
en ef hún heldur áfram að leggja jafn mikið á sig hefur hún alla burði til að ná
langt.
4. Eva Margrét Kristinsdóttir (1985) Grótta/KR
Eva er hávaxin og líkamlega sterkur leikmaður, hún hefur æft línu og skyttu
síðustu ár en er farin að einbeita sér meira að skyttunni. Hún er öflug skytta og
sterkur varnarmaður, ef hún bætir við sig snerpu og kraft verður hún erfið viður-
eignar í framtíðinni.
5. Geröur Rún Einarsdóttir (1985) Grótta/KR
Gerður er sterk maöur á mann, jafnframt er hún með góð gólfskot. Hraði og
snerpa eru hennar stærstu kostir. Hana skortir áræðni við að taka af skarið og
einnig mætti hún bæta sig í vörn.
6. Helga Björk Pálsdóttir (1984) Fylkir
Helga Björk er hávaxin skytta sem erfitt er að stoppa í loftinu. Hún er góð í
gegnumbrotum en hún þarf að styrkja sig töluvert líkamlega.
7. íris Dögg Haröardóttir (1985) ÍR
Öflug skytta með gott auga fyrir línuspili. Hana skortir meiri fjölbreytileika og
einnig þarf hún að styrkja sig meira líkamlega.
8. Olga Hrönn Jónsdóttir (1984) Fylkir
Efnilegur hornamaður sem hefur vaxið mikið sem leikmaður undanfarið. Hún
er sterk maður á mann og nýtir færin sín vel.
9. Sólveig Lára Kjærnested (1985) Stjarnan
Teknískur hornamaður með skemmtilegar hraðabreytingar, hún er með fjöl-
breytt skot og nýtir færin sín vel. Hún þarf að styrkja sig mikið líkamlega.
10. Jóna Kristín Heimisdóttir (1984) FH
Efnilegur leikmaður sem stendur alltaf fyrir sínu og getur leikið allar stöður
fyrir utan. Hún er sterk maður á mann en mætti vera fjölbreyttari í skotum.
Næstar inn á listann:
11. Dagmar Ýr Arnardóttir (1985) Stjarnan, 12. Margrét Lára Viðarsdóttir
(1986) ÍBV, 13. Rakel Bragadóttir (1986) Stjaman, 14. Valgerður Árnadóttir
(1984) Víkingur, 15. íris Sverrisdóttir (1985) ÍR, 16. Anna Úrsula Guðmunds-
dóttir (1985) Grótta/KR, 17. Arna Gunnarsdóttir (1986) Stjaman, 18. Björk
Gunnarsdóttir (1986) Stjarnan, 19. Ásta Gunnarsdóttir (1984) Fjölnir, 20.
Hrönn Kristinsdóttir (1984) Fylkir.