Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Side 19
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
33
Sport
Michael Schumacher tekur hér viö siguriaunun-
um t Japan um helgina. Reuters
■
lAPAb
Lokastaöa:
1. Michael Schumacher, Ferrari . 123
2. David Coulthard, McLaren .... 65
3. Rubens Barrichello, Ferrari ... 56
4. Ralf Schumacher, Williams ... 49
5. Mika Hakkinen, McLaren .... 37
6. Juan Pablo Montoya, Williams 31
7. Nick Heidfeld, Sauber ........13
8. Jacques Villeneuve, BAR.......12
9. Kimi Raikkonen, Sauber.........9
10. Giancarlo Fisichella, Benetton . 8
11. Eddie Irvine, Jaguar .........7
Bensíndropar
Jean Alesi, ökumaður Jlrfjan, var á meðal keppenda í
sinni síðustu keppni L'Japan. Alesi, sem er 37 ára, var
hafnað af forkólfuiu Jordanlmsins. Honum var tilkynnt
fyrir keppnina að-iíann fengi ek(;i nýjan samning hjá Jor-
dan og nánast samstundis lýsti hann því yfir að hann væri
hættur að nka bil í Formúlu 1. Al«i keppti í 201 keppni i
Kormúlu lyfleiri en nokkur annar cHjumaður, vann eina
keppni oi/náði ráspól einu sinni.
Nú þeg/tr keppnistímabilinu er lokið þettísárið í Formúlu
1 eru menn þegar famir að spá fyrir um næsta tímabil.
Ljóst er að Toyota mætir til leiks með bíla úkeppnina pg
bíða margir spenntir eftir því aö sjá hvernigiToyota, sem
verðu; 12. keppnisliðið, muni reiða af í þeþsari erfiðu
keppnL
Yfirbúróir Michaels Schumachers í tímatökum fyrir
keppnina á Suzuka-brautinni í Japan voru álgerir. Hann
var 7/10 \^r sekúndu á undan næsta bíl og/virtist í algjör-
um sérflol
David CouUhartl &kxe] i Japajnnh helgina en átti aldrei
möguleika á sigri. Hann varði hins vegar 2. sætið í stiga-
keppninni af miklu öryggi. „Ég gerði mitt þesta ag er þeg-
ar á heildina er litiö ánægður með 2. sætið í stigakeppn-
inni. Það var mjög gamaAsað enda tímabilið á verðlauna
pailinum,1' sagði Coulth;|'d>gir keppnina í Japan.
Flestir sérfrœðingar í Formúhinni eru sammála um að
brautin í Japan eigi sþr þá sérstöðuU meðal keppnisbraut-
anna sem ekið er á/baráttunni um htínismeistaratitilinn
að hún geri gríðarfegar kröfur til ökuntínna. í raun mun
meiri kröfur tiLökumannanna en bflannajÞar hafi því yf
irburðir Schmhachers komið vel i ljós og ftunn notið sin
til fulls við po innbyrða 53. sigur sinn á ferlinum.
Ralf Schúmacher var eitthvað vanstilltur i
an. Ham/ gerði út um möguleika sina á einu í
lega í Jap-
\efstu sæt-
unum með of hröðum akstri á viðgerðarsvæðinu og fékk
10 sekúndna refsingu. Hann var síðan heppinn í tvigang
að fá eljki aðra refsingu, fyrir framúrakshu’ á enda við-
gerðarsvæðisins og er hann tók akstuþsiinu af
Barridmlo með því að stytta sér leið yfir gras í krappri
beygju. \ / -SK
Urslit:
1. Michael Schumacher, Feríari,
2. Juan Pablo Montoya, Williams,
3. David Coulthard, McLaren,
4. Mika Hakkinen, McLaren,
5. Rubens Barrichello, Ferrari,
6. Ralf Schumacher, Williame.
Lokastaða bílaframleiðenda:
1. Ferrari 179
2. McLaren 102
3. Williams 80
4. Sauber 22
Xi
<
- Michael Schumacher setti met og jafnaði annað. Öruggur sigur Þjóðverjans á
Suzuka-brautinni í Japan og yfirburðir Schumachers með hreinum ólíkindum
Michael Schumacher er í dag í al-
gjörum sérflokki sem ökumaöur í
Formúlu 1-kappakstrinum.
Schumacher sýndi það enn og aftur
um helgina þegar hann af gríðar-
legu öryggi innbyrti níunda sigur
sinn á tímabilinu sem lauk á
Suzuka-brautinni í Japan aðfara-
nótt sunnudagsins.
Schumacher var fyrir keppnina í
Japan löngu orðinn heimsmeistari.
Þrátt fyrir þessa öruggu stööu hefur
Schumacher barist áfram af mikilli
hörku í síðustu keppnum og sankað
að sér hinum og þessum metum.
Eitt féll um helgina og annað var
jafnað. Schumacher vann níunda
sigurinn á tímabilinu og þar með
jafnaði hann met Nigel Manssefls.
Eftir sigurinn í gær hefur
Schumacher unnið sér inn 801 stig á
sínum ferli sem ökumaður í
Formúlu 1 og það er nýtt met. Eldra
metið átti Allen Prost. Verður þetta
met Schumachers eflaust seint eða
aldrei slegið.
Keppnin um helgina í Japan var
aldrei verulega spennandi.
Schumacher var á ráspól og náöi
feiknagóðu viðbragði á fisléttum
bílnum og sagði strax skiliö við
keppinauta sína. Lengi vel var for-
ysta hans 12 sekúndur .en eftir við-
'kóúíur á'þjöhíístúSýáiðUln. þar si‘hi
Ferraribílarnir stöðvuðu þrívegis,
var ljóst að sá eini sem eitthvað gat
ógnað Schumacher var Juan Pablo
Montoya á Williams. Munurinn á
Montoya og Schumacher var öðru
hvorum megin við fimm sekúndur
allan síðari hluta keppninnar og
virtist Schumacher alltaf geta aukið
það forskot. Sigur Schumachers var
þess vegna aldrei í nokkurri
minnstu hættu.
„Þaö var frábært að Ijúka góðu
tímabili í 1. sæti hér í Japan. Þetta
var góður endir á góðu timabili fyr-
ir alla. Gengi okkar í ár hefur verið
stórkostlegt en við höfum svo sann-
arlega þurft að hafa fyrir hlutun-
um,“ sagði heimsmeistarinn Mich-
ael Schumacher eftir keppnina í
Japan.
Rubens Barrichello, félagi
Schumachers hjá Ferrari, átti
möguleika á að ná öðru sæti í stiga-
keppni ökumanna með því að sigra
í Japan og að David Coulthard gengi
um leið afar illa. Það gerðist auðvit-
að ekki enda vitað fyrir keppnina í
Japan að einungis slys gat komið í
veg fyrir sigur Schumachers eftir
tímatökur og æfingar þar sem yfir-
burðir hans voru hrikalegir.
Reyndar hlýtur það aö vera
mönnum áhyggjuefni hve yfirburðir
FeífariiógiS'chlírfiáðhéri Vöt-ci‘mlkI-:
ir á þessu tímabili. Ef þessu verður
þannig varið á því næsta verður
baráttan um heimsmeistaratitilinn
ekki spennandi og henni í raun lok-
ið eftir nokkrar keppnir um mitt
sumar. „Það verður bara að koma í
ljós hvort við höfum sömu yfirburði
á næsta tímabili og við höfðum á
því sem nú er nýlokið. Við munum
leggja mikla vinnu í að bæta okkur
enn frekar fyrir slaginn á næsta
ári,“ sagði Schumacher í gær.
Tveir ökumenn voru líklega að
aka í síðasta sinn á formúlubíl um
helgina. Margir telja að Mika
Hakkinen snúi aldrei aftur í slaginn
eftir ársleyfi sem er framundan.
Hakkinen ók allvel í gær og hafnaði
í fjórða sæti. Jean Alesi kvaddi með
árekstri við Kimi Raikkonen þar
sem Raikkonen slapp ótrúlega vel
frá sundurtættum bílnum. Reyndar
voru fleiri ökumenn heppnir því öll
dekkin fjögur undan bíl Raikonens
spýttust í allar áttir og nokkrir öku-
menn gátu með naumindum forðað
sér frá dekkjunum á brautinni.
Það sem kom mest á óvart í Jap-
an um helgina var frammistaða
Fernando Alonso á Minardi. Hann
náði 11. sæti í kappakstrinum og er
það ótrúlega góður árangur hjá
þessu litia og fjárvana liði. -SK
■
Mika Hakkinen veifar til áhorfenda
Heimsmeistarinn fyrrverandi kveður Formúlu 1, kannski í síðasta sinn-