Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 20
34 MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001 Andri Sigþórsson. Andri með heilahristing Andri Sigþórsson fór ekki meö liði sinu, Molde, til Óslóar í fyrrakvöld og tók ekki þátt í viðureign liðsins við Stabæk í gær. Ástæðan er að á æf- ingu fyrir helgi lenti Andri í sam- stuði vð einn félaga sinna og lá óvígur eftir með heilahrist- ing. Læknir liðsins tók þá ákvörðun að ekki kæmi til greina að Andri léki gegn Stabæk svo fljótt eft- ir höfuðhöggið. Það er leitt fyrir þá Is- lendinga sem voru á Nadderud og ætluðu að fylgjast með Andra í leik með Molde. Það sem er kanski verst fyrir Andra er að milli tuttugu og þrjátíu sendisveinar frá liðum á Englandi, Þýskalandi og Italíu verða í Bekkestua í dagtilþessað fylgj- ast með leiknum. -GÞÖ Guðfinnur Kristmannsson skoraði J fimm mörk og þar af eitt úr víti þegar lið hans, GIK Wasaiterna, vann IF Guif 20-14 í sænsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik á laugardag. Wasaiterna er í fimmta sæti með fimm stig eftir fimm leiki en liðin bæði fyrir ofan og neðan eiga flest einn leik til góða á Guðfinn og félaga. Michael Jordan virðist vera aö ná sér rækilega á strik eftir endurkomuna I NBA-deildina. Kappinn skoraði 18 stig á 12 mínútum þegar Washington Wiz- ards sigruðu Miami Heat 99-79 í æfinga- leik í fyrrinótt. Jordan hitti úr sjö af tíu skotum sínum utan af velli og úr öllum Qórum vítaskotum sínum. Bandaríkjamaðurinn Mike Tyson vann í fyrrakvöld Danann Brian Nielsen í þungavikt hnefaleika á Parken í Kaup- mannahöfn. Það var fyrir 7. lotu sem úrslitin réðust þegar dómarinn ákvað að best væri fyrir Nielsen að halda sig bara í horninu og byrja ekki lotuna. Daninn mun hafa sagt dómaranum að hann sæi vart út um vinstra auga. Áhorfendur voru ekki ánægðir með ákvörðun dómarans en þeirra elskuleg- ur ofur-Brian gekk í gegnum ansi harð- ar barsmíðar þar til ákvörðunin var tekin og virtist ekki geta vikið sér und- an höggum Tysons. Nielsen fór einu sinni í gólfið og það strax í 2. lotu. Dino Zoff fyrrverandi þjálfari Lazio og ítalska landsliðsins, hefur lýst yfir áhuga sínum á að taka við stöðu lands- liðsþjálfara Skota en Craig Brown var sagt upp störfum fyrir viku. „Ég vil fyr- ir alla muni komast aftur í boltann og þessi staða vekur áhuga minn,“ segir Zoff sem hefur verið atvinnulaus síðan Lazio sagði honum upp fyrir skömmu. „Það væri stórt skref að flytja til annars lands en ég er tilbúinn að gera það ef ástandið er mér að skapi.“ Gústaf Bjarnason skoraði fjögur mörk þegar lið hans Minden sigraði Solingen, 24-30, á útivelli i þýska handboltanum á laugardag, Ölafur Stefánsson skoraði fimm mörk i stórsigri Magdeburg á Post Schwerin, 35-19 og Sigurður Bjarnason var með átta mörk í 27-29 sigri Wetzlar á Willstátt á útivelli. Essen lék ekki um helgina. Bandarikjamaðurinn Maurice Greene, spretthlauparinn litríki, hefur ákveðið að láta sauma handa sér keppnisbúning í fánalitunum til þess að sýna foður- landsást sína. Greene var, ásamt félög- um sínum, gagnrýndur fyrir það að sýna fánanum óvirðingu á Ólympíu- leikunum í Sydney eftir sigur þeirra í 4x100 m boðhlaupi. Þeir notuu fánann sem höfuðbúnað að hætti araba og not- uðu hann sem bakgrunn við ýmsar uppstillingar fyrir ljósmyndara. Ný alda þjóðernishyggju í Bandaríkjunum í kjölfar hryðjuverkanna í síðasta mán- uði hefur náð til Greene sem vill heiðra fánann á þennan hátt. Geir Kristinn Aðalsteinsson, horna- maður Þórsara í Nissandeild karla, verður frá keppni í um mánuð eftir að i Ijós kom að hann hafði riflð kross- band. Frá þessu var gre'int á vefsíðu Þórsara. Þetta er nokkur blóðtaka fyrir nýliðana þar sem Geir hefur verið einn af sterkustu mönnum liðsins og skoraði 10 mörk úr 11 skotum í fyrstu 2 leikjun- um. Velsverjinn lan Woosnam varð í gær heimsmeistari í holukeppni i golfi þeg- ar hann sigraði Irann Padraig Harr- ington í úrslitum á Wentworth-vellin- um á Englandi. Woosnam átti tvær hol- ur á Harrington þegar ein var óleikin. Woosnam, sem er 43 ára, varð elsti maðurinn til að vinna titilinn sem hann vann einnig 1987 og 1990 en þetta var fyrsti stóri sigur hans í meira en fjögur og hálft ár. Harrington er orðinn vanur því að vera í öðru sæti, hann hef- ur gert það á sjö stórum mótum á ár- inu. Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðs- ins Chelsea hafa ákveðið að fela leik- mönnum það að ákveða hvort þeir fara með liðinu til ísrael til aö leika við Hapoel Tel-Aviv í Evrópukeppni félags- liða á fimmtudag. Þessa ákvörðun tek- ur félagið í ljósi atburða í Mið-Austur- löndum undanfarið og því má búast við að einhverra verði saknað í leiknum. -ÓK/ÓÓJ Skagamenn fullkomnuðu eftir- minnilegt Skagasumar í fótboltan- um með því að fá öll þrjú stærstu einstaklingsverðlaunin á lokahófi Knattspyrnusambandsins sem var haldið á fóstudagskvöldið. Hjörtur Hjartarson hóf kvöldið á að taka við gullskónum og i lok þess eignuðust Skagamenn einnig besta leikmann mótsins í fyrirliða sínum, Gunnlaugi Jónssyni, sem og þann efnilegasta, í Grétari Rafni Steinssyni. Gunnlaugur varð þriðji vamar- maðurinn á fjórum árum til þess að hljóta þessi verðlaun og ennfremur sjötti Skagamaðurinn sem er met. Þá var Gunnlaugur fyrsti fyrirliði íslandsmeistaraliðs í sex ár sem er kosinn bestur en síðastur á undan honum til að leika þann leik var Ólafur Þórðarson, núverandi þjálf- ari hans, meö ÍA 1995. Grétar Rafn varð aftur á móti fyrstu miðjumað- urinn í tíu ár sem er kosinn sá efni- legasti og Skagamenn eru jafnframt það félag sem oftast hefur haft þann efnilegasta innan sinna raða en þetta var í fimmta skipti. Hjörtur fékk eins og áður segir gullskóinn, Ásmundur Arnarsson, Fram, fékk silfurskóinn og Þórar- inn Kristjánsson, Keflavik, brons- skóinn þar sem hann spilaði færri mínútur en Grétar Hjartarson, Grindavik. Olga kosin í annaö sinn Olga Færseth var kosin leikmað- ur ársins í kvennaflokki í annað sinn á fjórum árum, en Olga fékk einnig gullskóinn fyrir þau 28 mörk sem hún gerði fyrir KR i 14 deildar- leikjum sumarsins. Dóra Stefáns- dóttir úr Val var kosin efnilegasti leikmaðurinn hjá stelpunum en hún var ekki á lokahófinu þar sem hún er nú í aðalhlutverki hjá ung- mennalandsliðinu sem er að gera góða hluti þessa dagana í Rúss- landi. Olga varð fyrsti leikmaðurinn í sex ár í kvennaflokki sem er kosinn þrátt fyrir að vera ekki í meistara- liði. Olga fékk eins og áður segir gull- skóinn, Pauline Hamill, ÍBV, fékk silfurskóinn og Bryndís Jóhannes- dóttir, ÍBV, fékk bronsskóinn þar sem hún spilaði færri mínútur en Hrefna Jóhannesdóttir, KR. Fimm lið áttu leikmenn í liði árs- ins í karlaflokki, Skagamenn þá flesta eða þrjá en FH, Grindavík, ÍBV og Fylkir áttu öll tvo leikmenn hvert. Liðið var annars þannig skipað: Birkir Kristinsson, ÍBV, Hilmar Björnsson, FH, Gunnlaugur Jónsson, ÍA, Hlynur Stefánsson, ÍBV, Ólafur Órn Bjarnason, Grinda- vík, Sinisa Kekic, Grindavík, Ólaf- ur Stígsson, Fylki, Heimir Guðjóns- son, KR, Grétar Rafn Steinsson, ÍA, Sævar Þór Gíslason, Fylki og Hjört- ur Hjartarson, ÍA. Ólafur Þórðar- son, þjálfari Islandsmeistara Skaga- manna, var síðan kosinn þjálfari ársins. Fimm lið áttu leikmenn í liði árs- ins í kvennaflokki, Blikar flesta eða fjóra en KR átti þrjá. Liðið var ann- ars þannig skipað: Þóra Björg Helgadóttir, Breiðabliki, Björg Ásta Þórðardóttir, Breiðabliki, Eva Sól- ey Guðbjörnsdóttir, Breiðabliki, Auður Skúladóttir, Stjörnunni, Rósa Júlía Steinþórsdóttir, Val, Ás- dís Þorgilsdóttir, KR, íris Sæ- mundsdóttir, ÍBV, Edda Garðardótt- ir, KR, Dóra Stefánsdóttir, Val, Sarah Pickens, Breiðabliki og Olga Færseth, KR. Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari íslandsmeistara Breiðabliks, var síðan kosinn þjálfari ársins. Kristinn Jakobsson var valinn dómari ársins fjórða árið I röð og í sjötta sinn á átta árum en auk þess að standa sig vel hér heima hefur hann verið að sanna sig á erlendri grundu líka. Róbert Magnússon, FH og Mar- grét Ákadóttir, Breiðabliki, fengu síðan háttvisisverðlaun einstak- linga hjá KSl og Fylkir í karlaflokki og Breiðablik í kvennaflokki fengu þau sem lið. -ÓÓJ Þau bestu og efnilegustu í ár. Talið frá vinstri: Gunnlaugur Jónsson, ÍA, besti leikmaöur íslandsmóts karla, Olga Færseth, KR besti leikmaöur íslandsmóts kvenna, Rósa Júlía Steinþórsdóttir, fyrirliöi Vals sem tók viö verðlaunum Dóru Stefánsdóttur, efnilegasta leikmanns íslandsmóts kvenna, sem var aö keppa meö íslenska unglingalandsliöinu í Rússlandi og aö lokum Grétar Rafn Steinsson, ÍA, efnilegasti leikmaöur íslandsmóts karla. DV-mynd EinarJ Skagasumar - Gunnlaugur Jónsson, ÍA og Olga Færseth, KR, valin bestu leikmenn ársins Arni Gautur ekki á leið frá Rosenborg Arni Gautur Arason átti frábæran leik i markinu hjá Rosenborg þegar lið- ið sótti Lilleström heim á Árásen í úr- slitaleiknum um meistaratithinn í norsku úrvalsdeildinni. Leikiö var fyr- ir framan 12 þúsund áhorfendur, þar af fjölmarga njósnara frá evrópskum iið- um, byijuðu heimamenn betur en eftir að Árni Gautur varði, einn á móti áströlsku markamaskínunni, komust meistararnir meira inn i leikinn og í leikslok höfðu þeir komið annarri höndinni á meistaratitilinn eftir 1-2 útisigur á spútnikliði sumarsins, Lil- leström, sem flestir spáðu erfiðri fall- baráttu í sumar. Sigurd Rusfelt og Frode Johnsen skoruðu fyrir Rosen- borg áður en fyrirliðinn, Torgeir Bjar- man, minnkaði muninn fyrir Lille- ström fimm mínútum fyrir leikslok. Árni Gautur var að vonum ánægður með sigurinn. „Jú það var mjög mikil- vægt fyrir okkur að vinna þennan leik. Nú er áframhaldiö í okkar eigin hönd- um. Það er gott að þurfa ekki að treysta á hjálp frá andstæðingunum." Þið eruð nánast búnir að tryggja ykkur tíunda titilinn i röð. Hvernig er tilfinningin hjá liðinu eftir slik- an árangur? „Við erum ekki öruggir ennþá en getum tryggt okkur titilinn á heima- velli í næstu umferð þegar við mætum Stabæk. Við getum ekkert leyft okkur að slaka á fyrr en sá leikur er búinn og þá aðeins ef við vinnum hann. Við þurfum minnst tvö stig til að tryggja okkur." Þaö var sægur af sendiboðum frá lið- um í Evrópu sem fylgdist með Lil- leström og Rosenborg, m.a. átti Arsenal sina' fulltrúa á Árásen sem fylgdust með Árna Gauti. „Ég hef ekkert heyrt sjálfur en eins og aðrir þá les ég fréttirnar af sjálfum mér bara i blöðunum. Meðan ég heyri ekkert er ég ekki á leið í burtu. Ég er mjög ánægður hjá Rosenborg og þarf því ekkert að flýta mér neitt annað.“ -GÞÖ .niistf: )iiaUindsJt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.