Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2001, Page 4
20
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2001
Sport
DV
Valur-Grótta/KR 30-25
0-2, 2-4, 4-4, 4-6, 6-6, 7-9, 8-10, 10-10, 12-11,
(15-12), 16-12, 16-16, 20-16, 20-18, 21-19,
26-19, 26-21, 27-24, 28-25, 30-25.
Valur:
Mork/viti (skot/víti): Bjarki Sigurðsson
8/2 (12/2), Markús Máni Michaelsson 8
(16/1), Sigfús Sigurðsson 7 (8), Sigurður
Eggertsson 3 (5), Snorri Steinn Guöjónsson
2/1 (4/1), Einar Gunnarsson 1 (1), Ásbjörn
Stefánsson 1 (2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 4 (Sigurður
2, Bjarki, Einar).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuú viti: Sigurður 2, Markús, Snorri.
Varin skot/viti (skot/vlti á sig): Roland
Eradze 17 (42/1, hélt 5, 40%, eitt viti ógilt,
eitt víti fram hjá).
Brottvisanir: 6 minútur.
Grótta/KR:
Mörk/viti (skot/viti): Jóhann
Samúelsson 6 (11), Aleksandrs Petersons 5
(15), Atli Þór Samúelsson 4 (11), Davíð
Ólafsson 3 (5/1), Alfreð Finnsson 2 (3),
Magnús Agnar Magnússon 2 (5), Sverrir
Pálmason 1 (1), Gísli Kristjánsson 1 (2),
Kristján Þorsteinsson 1/1 (4/2).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 7 (Petersons
3, Davið, Alfreð, Gísli, Sverrir).
Vitanýting: Skorað úr 1 af 3.
Fiskuð víti: Atli Þór 2, Gísli.
Varin skot/viti (skot/víti á sig): Hlynur
Morthens 9 (39/3, hélt 0, 23%).
Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjami Viggósson og
Valgeir Ómarsson (6). Áhorfendur: 300.
Gœði leiks (1-10): 7.
Maður leiksins:
Markús Michaelsson, Val.
Íshokkí:
Stórsigur
- SA enn ósigrað
SA vann Björninn ööru sinni á ís-
landsmótinu í íshokkí er liðin mætt-
ust á Akureyri á laugardag. Nú
vann SA 7-1 en fyrri leikurinn
vannst 2-5 hjá SA fyrir sunnan.
Leikurinn fór af staö með mikl-
um látum og þurfti dómari leiksins,
Viðar Garðarsson, að taka á honum
stóra sínum strax á upphafsminút-
unni. Mikill hiti virtist vera í leik-
mönnum sem fuku hvað eftir annað
út af.
Aðeins eitt mark var skorað í
fyrst lotunni en í annarri lotunni
bættu SA-ingar við þremur mörkum
en Bjarnarmenn náðu að klóra í
bakkann. Við það mark brutust út
slagsmál á meðal nokkurra leik-
manna og voru fimm menn reknir í
sturtu. Fyrr í lotunni hafði soðið
upp úr hjá öðrum tveimur og þeir
einnig verið reknir í sturtu.
'í síðustu lotunni sýndu íslands-
meistararnir mátt sinn og megin og
bættu við þremur mörkum án þess
að Bjamarmenn næðu aö svara fyr-
ir sig, lokastaðan 7-1 og Akureyr-
ingar enn ósigraðir í deildinni.
Mörk/Stoðsendingar hjá SA:
- Stefán Hrafnsson 2/1, Sigurður Sigurðs-
son 1/2, Chris Supak 1/1, Björn Jakobs-
son 0/2, Gunnar Jónsson 1/0, Tibor Tatar
1/0, Jón Gíslason 1/0, Arnór Bjamason
0/1.
Mörk/Stoðsendingar Bjarnarins:
Sergei Zak 1/0, Birgir Hansen 0/1, Daði
Heimisson 0/1. -ÓÓJ
Magnús Agnar Magnússon, fyrirliöi
Gróttu/KR, segir aö liöiö sé aö ná aö
vinna sig út úr slæmu gengi aö
undanförnu.
^ Valsmenn taplausir í 2. sætinu eftir sjötta sigurinn í sjö leikjum:
I koti er katt
Markús Máni Mlchaelsson skoraöi átta mörk á
Sigfús Sigurösson nýtti sjö síöustu skot sín í
leiknum og varöi auk þess fimm skot í vörninni.
föstudagskvöld, þar af sex meö langskotum.
Nóg að gera að gefa eigin
„Fyrr var oft í koti kátt...,“ sungu
glaðir stuðningsmenn Valsmanna
þegar sigur á Gróttu/KR var í höfn á
föstudagskvöldið en orðinu fyrr er
kannski ofaukið í sigursöngvunum
því leikgleðin og kátínan er allt í öllu
í Hlíðarendakoti þessa dagana. Vals-
menn héldu þannig áfram sigurgöngu
sinni í 1. deild karla i handbolta með
30-25 sigri en Seltirningar máttu þola
sitt ijórða tap í síðustu fimm deildar-
og bikarleikjum.
Gróttu/KR-menn ætluðu ekki að
gefa besta leikmanni DV-Sport í októ-
ber, Snorra Steini Guðjónssyni, mikil
tækifæri til að blómstra því hann var
tekinn úr umferð frá fyrstu sekúndu.
En 1 íjarveru Snorra Steins,
blómstruðu þeir Markús Michaelsson
og Bjarki Sigurðsson sem gerðu 10
mörk saman í fyrri hálfleik á meöan
Snorri fékk aðeins að fylgjast með af
miðlínunni.
Taktík Gróttu/KR virtist ætla að
ganga upp og liðið var jafnan með
tveggja marka forustu fyrstu 17 mín-
útur hálíleiksins. Þá tók Geir Sveins-
son, þjálfari Vals, leikhlé sem herti á
Valsvöminni, breytti úr 5:1 í 6:0 og
Valsmenn enduðu á að skora 6 mörk
gegn tveimur og leiddu 13-12 í hléi.
Það má með sanni segja að mark-
varslan hafi verið engin hjá
Gróttu/KR í fyrri hálfleik því Hlynur
Morthens varði ekkert skot fyrsta
hálftíma leiksins og þrátt fyrir að hún
lagaðist aðeins eftir hlé var hún mesti
akkilesarhæll liðsins í leiknum ásamt
slæmri færanýtingu en alls fóru 32
skot Seltiminga til spillis.
Snorri Steinn fékk að taka meiri
þátt í seinni hálfleiknum og var ekki
lengi að finna Sigfús Sigurðsson á lín-
unni og leggja sínum mönnum línurn-
ar. Alls fékk Sigfús fjórar sendingar
til viðbótar í hálfleiknum sem hann
nýtti allar, þrjár frá Markúsi og aðra
til viðbótar frá Snorra. 10-3 kafli um
miðjan hálfleikinn færði Valsmönn-
um líka ömgga forustu, 26-19, sem
átti síðan eftir aö duga út leikinn þó
Gróttu/KR-menn hafi náð að minnka
muninn með fjórum hraðaupphlaups-
mörkum á 4 mínútum.
Það er gaman að horfa á Valsliðið
þessa dagana og landsliðsstrákarnir
nýkrýndu sýndu og sönnuðu í þessum
leik hvernig á að meðhöndla slíka við-
urkenningu. Markús Michaelsson
skoraði átta glæsileg mörk og átti sjö
stoðsendingar að auki og félagi hans á
hægri vængnum, Bjarki Sigurðsson,
átti líka sjö stoðsendingar og nýtti
jafnfranit 6
af 10 skotum
Bjarki Sigurösson úr Val skoraöi átta mörk úr 12
skotum og gaf auk þess 7 stoösendingar.
sínum og hefur nú nýtt 61% skota
sinna í vetur. Roland Eradze varði
einnig jafnt og þétt út leikinn og Sig-
fús Sigurðsson sýndi með sjö mörkum
og 5 vörðum skotum í vörninni að þar
er á ferðinni línumaður sem má
treysta á í vöm og sókn. Snorra beið
erfitt verkefni í þessum leik en þökk
sé sýningu Bjarka og Markúsar ætti
hann ekki að þurfa mikið að hafa
áhyggjur af sams konar frystingu í
næstu leikjum.
Hjá Gróttu/KR sýndi Jóhann Samú-
elsson það með sex góðum langskots-
mörkum aö liðið þarf ekki að örvænta
þó það hafi misst Dainis Tarakanvos í
meiðsli en vandamálin í þessum leik
voru meira tengd „betri vængnum“
enda átti Aleksandrs Petersons
óvenju mistækan dag. Markvarslan
framan af leik og slæm skotnýting var
þó það sem réð mestu um stigalausan
leik hjá liðinu. -ÓÓJ
Valsmenn hafa gert mikiö í að
rífa upp stemningu í kringum
handboltaliðið sitt í vetur og státa
nú örugglega af flottustu umgjörð
um leiki i 1. deild karla.
Eftir leik er sem dæmi opinn
fundur Geirs Sveinssonar þjálfara
og eins leikmanns liösins þar sem
þeir fara yfir nýlokinn leik og
svara spurningum stuðnings-
manna.
Valsmenn gáfu einnig út blað
meö myndum og upplýsingum um
alla leikmenn liðsins fyrir leikinn
gegn Gróttu/KR.
Blaðið höfðaði mikið til yngri
stuðningsmanna liðsins sem gátu
þar safnað eiginhandaráritunum
frá leikmönnum meistaraflokks-
ins.
Það er óhætt að segja að vel hafi
verið tekið í þetta framtak á
Hlíðarenda á föstudaginn og höfðu
leikmenn í nógu að snúast við að
rita nöfn sín fyrir og eftir leik en
margir varamannanna gátu á móti
lítið hitað upp i hálfleik.
Allt þetta ásamt stórskemmti-
legu og unga liði Valsmanna gerir
ferð á handboltaleik á Hlíðarenda
hina mestu og bestu skemmtun
fyrir alla aldurshópa. -ÓÓJ
Magnús Agnar Magnússon, fyrirliöi Gróttu/KR, um slæmt gengi liðsins:
Raunhæft markmið
er ekki titill lengur
„Það var áfall fyrir okkur að
missa Dainis en þessi leikur gegn
Val sýnir að Jói (Jóhann Samúels-
son) er að koma mjög sterkur inn,“
segir Magnús Agnar Magnússon,
fyrirliði Gróttu/KR-liðsins sem
mátti þola sitt fjórða tap í fimm
leikjum gegn Val á föstudagskvöld.
Hér talar Magnús Agnar um
Lettann snjalla, Dainis Tarakoan-
vos, sem kom til liðsins í haust en
meiddist síðan illa.
„Dainis er einn sterkasti leikmað-
ur sem hefur komið hingað til lands
og hefði gert ofboðslega margt fyrir
okkur. Raunhæft markmið hjá okk-
ur nú er ekki titill, við verðum bara
að horfast í augu við það en hins-
vegar getum við farið í hvern ein-
asta leik til þess að vinna hann. Viö
vorum nú að mæta Valsliðinu sem
er taplaúst og mjög skemmtilegt lið
en við erum inni i leiknum stóran
hluta leiksins. Með aðeins meiri
markvörslu hjá Bubba félaga mín-
um (Hlyni Morthens) og ef Alex
hefði spilað af eðlilegri getu þá held
ég að við hefðum veitt þeim meiri
mótspyrnu undir lokin. Við gáfumst
ekki upp og það er mjög jákvætt en
við erum ekki að spila eins sann-
færandi og við gerðum í upphafí
móts,“ segir Magnús en Grótta/KR
vann fimm fyrstu leiki vetrarins í
deild og bikar.
„Ég held að við höfum náð að
vinna okkur út úr þessum vanda-
málum sem hafa verið að hrjá okk-
ur og náðum því með sigrinum á
Fram. Síðan þá hafa æfingarnar
verið mjög jákvæðar, hópurinn
hefur þjappast mikið og við ætlum
að leggja okkur hundrað prósent í
framhaldið," segir Magnús. -ÓÓJ