Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Síða 4
NÝ SÖNGKONA í BUTTERCUP Svo virðist sem Valur í Butt' ercup treysti sér ekki til að sjá einn um. sönginn hjá hljómsveitinni eftir að Iris yfirgaf bandið nú um áramótin. Sveitin hefur því ákveð- ið að fá nýja söngkonu í stað írisar og herma fregnir að þessa dagana sé sveitin að taka stúlkur í prufur vegna þessa og kemur f íjós á næstu vikum hver fær starfið. Cemsavefur Fyrsta kvikmynd Mikacls Torfasonar, Gemsar, verður frum- sýnd föstudaginn 1. feþrúar næskomandi. Gemsar hefur verið langan tíma í vinnslu og má búast við því að einhverja sé forið að lengja eftir frumsýning- unni. Til að stytta biðina hefur verið settur upp vefur á Vísi.is þar sem verður að finna ýms- an fróðleik en eins og margir muna eflaust var svipaður vefur ( gangi þegar verið var að taka myndina. Málið er sem sagt að taka forskot á sæluna inni á Vísi.is. Frikki laminn Það er greinilega ekki tekið út með sældinni að stjórna einum af vinsælli pöbbum borgarinnar um þessar mundir eins og Friðrik Weisshappel á Kaupfélaginu fékk að reyna um daginn. Frikki heldur þeirri ströngu reglu að myndatökur séu bannaðar á staðnum en helgina fyrir jól fór það meira en lftið í taug- arnar á einum gesti staðarins. Sag- an segir að þegar Frikki reif af gest- inum vélina og tók filmuna út hafi umræddur gestur ekki hugsað sig tvisvar um og hjólað í kappann. Ekki veit Fókus nákvæmlega hvernig leikum lauk, en hitt er vit- að að eftir þetta var staðnum lokað í nokkru fússi. Veitingastaður í Vesturbænum Veit' ingamað' urinn Örn Garðars' son sem rekið hef' ur Brass- erie Borg af mikl- myndar- S D H D skapund' REYKJAVÍK með jjwillwWWiBiaiaí splúnkunýjan veitingastað á prjón- unum. Veitingastaðurinn er í vest- urbænum, nánar tiltekið í gamla Héðinsshúsinu og hefur hann fengið nafrtið Soho Reykjavík. Ekki er um endurreisn Skugga- barsins að ræða heldur fyrsta flokks veitingahús með lífrænt ræktuðu hráefni í besta gæðaflokki. Fram- kvæmdir eru nú í fullum gangi en áætlað er að staðurinn verði opnaður fljótlega. f ó k u s Fyrsta desember voru 286.275 einstaklingar búsettir á íslandi. Fókus fór á stúfana og fann út hvað allir þessir einstaklingar hefðu haft fyrir stafni síðasta árið. Hverjir fluttu hvert og hvaðan, hvað prumpuðu íslendingar oft, hversu mikið var reykt og hvað var drukkið mikið af áfengi? Hér fyrir neðan finnurðu svör við öllum þessum spurningum og ögn meira ... 2001 f tölum Þann l.desember 2001 voru 286.275 einstaklingar búsettir á landinu. Þar af 143.302 karlar og 142.973 konur. Það samsvarar fólksfjölgun upp á 1,21% sem er minna en árið á undan. Flestir útlendinganna komu frá Evrópu eða rétt tæplega 1.000 manns. 246 þeirra komu frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðis- ins en af öðrum þjóðum komu hingað flestir Pólverjar eða 271 maður. Fólki frá Asíu fjölgaði einnig á klakanum en alls fluttust 387 Asíubúar til landsins og komu flestir þeirra frá Filippseyjum, alls 135. Fólk frá öðrum heimsálfum lét líka sjá sig en þó ekki í nándar nærri jafn miklum mæli. 66 fluttu frá Afríku, 50 frá Mið- og Suður'Ameríku, 37 frá Norður-Ameríku og 13 frá Eyjaálfu. Ekkert lát virðist vera á landsbyggðarflóttanum en aðfluttir umfram brottflutta á höfuðborgarsvæðinu voru 3.039. Aðeins fjórir landshlutar fyrir utan höfuðborgina ná að bæta við íbúatölu sína frá í fyrra en það voru Suðurnesin þar sem fjölgaði um 225, Suðurlands- búum fjölgaði um 203, á Vesturlandi fjölgaði íbúum um 183 en á Norðurlandi eystra um 159. Af þeim sem flúðu til annarra staða voru flestir Vestmannaeyingar eða 94 og 52 frá Raufarhöfn og nærsveitum. Ef fram heldur sem horfir verður Raufarhafnarhreppur þvf orðinn íbúalaus innan örfárra ára, í byrjun árs 1999 bjugga þar 409 manns en þeim hef- ur nú fækkað í 294. Flestir virðast flytja til Kópavogs, íbúum þar fjölgaði um 707 eða 3% en 592, einnig 3%, fluttu til Hafnarfjarðar. Reykvíkingum fjölgaði um 864 sem er þó ekki nema 0,8%. Síðastliðinn áratug hefur íbúum fjölgað um 28.548 á höfuðborgarsvæðinu eða 19,1%. Á síðustu 10 árum hefur íbúum fækkað á Vestfjörð- um um 1.744 eða 17,9%, á Norðurlandi vestra um 1.032 eða 10,0% og á Áusturlandi um 1.385 eða 10,5%. Tæplega 1500 manns skiptu um trúfélag á árinu en 54% þeirra má rekja til úrsagna úr þjóðkirkjunni. Vinsælustu trúfélögin til að skrá sig í voru hins vegar Fríkirkjumar í Hafnarfirði og Reykjavík en tæplega 150 manns fóru í hvort félag um sig. Meðalmanneskja leysir vind um 14 sinnum á dag sem samsvarar því að íslenska þjóðin hafi losað gas um 1.500.000.000 sinnum yfir allt árið. Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs seldi ÁTVR 315.482.600 sígaretturog 1.0812.207 vindla. íslendingar drukku 315.977 lítra af ókrydduðu brennivíni eða vodka, 9.230.280 lítra af bjór og 959.327 lítra af rauðvíni árið 2001. Þá er desember- mánuður ekki talinn með en þar er drykkjan einna mest, auk þess sem smygl og brugg er ekki tekið með í Erlendum ríkisborgurum fjölgaði til muna en að fluttir útlendingar voru 1.532 umfram þá brott- fluttu. Síðustu tíu ár hefur landsmönnum fjölgað um nær 27.000 eða 10,3% og jafngildir það 0,98% fjölgun að meðaltali á ári. Um 4.200 börn fæddust á árinu sem leið enl800 manns létust. Árið 2001 fluttu 4.825 manns til landsins. 3.511 fluttu burt. reikninginn. Atvinnuþátttaka var 83,6% á síðasta ári sem þýðir að 159.900 manns stunduðu einhvers konar störf en 163.800 voru skráðir sem nothæft vinnuafl þetta árið og því voru 3.900 manns án atvinnu eða 2,4%. 4 4. janúar 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.