Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Page 10
Endurvakningar voru nokkuð áberandi á árinu. Hinir síungu Hljómar komu saman á nýjan leik og spiluðu m.a. fyrir fullri Laugar- dalshöll á Reykjavík mini-festival sem Hljómalind stóð fyrir um hvítasunnuhelgina. Jet Black Joe spilaði f sumar með nokkuð breyttri mannaskipan og gerði mikla lukku, en hljómsveitin f sinni upphaflegu mynd kom svo saman f desember. Mesta athygli fékk samt endurkoma hinnar goð- sagnakenndu rokksveitar Ham, en þeir spiluðu á þrennum tónleikum f sumar, settu m.a. aðsóknarmet á Gauki á Stöng og hituðu upp fyrir Rammstein. Tónleikarnir á Gaukn- um voru gefnir út á disknum Skert flog og Ham-endurvakningin var svo kórónuð flok árs með sýningu á heimildarmyndinni Lifandi dauð- ir sem hefur fengið frábærar við- tökur, enda rokksögulegt stór- virki þar á ferðinni sem rekur allan feril sveitarinnar frá upphafi og til tónleikanna fsumar. Það má segja að hip-hop bylgja hafi skollið á landanum á árinu. Mesta athygli vakti plata XXX Rottweiler hunda sem kom loks út um miðjan nóvember eftir miklar tafir, m.a. vegna þess að textalegt innihald hennar þótti eldfimt. Um tfma voru uppi hug- myndir um að ritskoða bæði tón- listina sjálfa og textabókina, en frá þvfvar horfið þegar undirfyrir- tæki Skffunnar, Dennis, tók við út- gáfunni af Japis. XXX Rottweiler hunda-platan fékk mjög góða dóma gagn- rýnenda og viðtökur almennings voru Ifka f lagi - platan náði gull- sölu nokkrum dögum fyrir jól. Eitt af þvf sem gaf fslensku hip-hop bylgjunni byr undir báða vængi var nýja útvarpsstöðin muzik 885, en lög með fslenskum hip-hop tón- listarmönnum hafa verið á meðal mest spiluðu laganna á stöðinni frá upphafi. Um áramót er venjan að líta um öxl og skoða afraksturinn á árinu sem var að líða. Trausti Júlíusson velti fyrir sér ís- lenska poppárinu 2001. Hvað skyldi nú vera markverðast á þessu fyrsta poppári nýrrar aldar og hvers er að vænta á nýja árinu? Fjölbreytnin aldrei veriS meiri Það er óhæct að segja að íslenskt tónlistarlíf hafi verið við ágæta heilsu á árinu 2001. Það sem öðru fremur einkennir árið er fjölbreytnin sem aldrei hefur verið meiri. I rokkinu bar mest á harðkjarna- senunni annars vegar og rólegu deildinni hins veg- ar. I harðkjarnanum var Mínus auðvitað áberandi, en auk þeirra spiluðu sveitir eins og Klink, Snafu, Vígspá og I Adapt mikið á árinu og svo sigraði Andlát í Músíktilraunum. _ I rólegu deildinni voru hljómsveitir eins og Úlpa, Lúna, Sofandi, Suð, Náttfari og Stolið áber- andi, en þær þrjár fyrstnefndu sendu allar frá sér plötur á árinu sem mæltust vel fyrir. Auk rokksins var mikið að gerast í raftónlistinni, íslenskt hip-hop sprakk út með hvelli og ýmis önnur tónlistarafbrigði lifðu góðu lífi, t.d. fönkið sem Jagúar héldu á lofti m.a. með frábærri plötu og mynd og svo var líka mikil gróska í ýmiskonar djasstengdri tónlist og margar áhugaverðar uppákomur og útgáfur í þeim geiranum, allt frá Jóel Páls til JFM. Gömlu hetjurnar skiluðu líka sínu ágætlega á ár- inu. Megas sendi frá sér tvær mjög flottar en ólík- ar plötur, hljómorðadiskinn Haugbrot og snilldar- rokkverkið Far...þinn veg. Bubbi sendi frá sér sína ferskustu plötu í nokkum tíma með hljómsveitinni Stríð og friður og Sálin brást ekki aðdáendum á sinni tíundi plötu Logandi ljós. Mikil cróska í tónleikahaldi Það var haldið ótrúlega mikið af tónleikum í Reykjavík á árinu. Flesta daga var hægt að hlusta á einhverja lifandi tónlist í höfuðborginni og oft var úr nokkrum kostum að velja. Stefhumótin á Gauk á stöng á þriðjudögum klikkuðu t.d. ekki. Erlendar gestakomur voru nokkrar og bar mest á stórtónleik- um Rammstein og Coldplay, en auk þeirra stóðu Hljómalindarmenn fyrir tveimur sjálfstæðum tón- listarháu'ðum, Reykjavík mini festival sem haldið var um hvítasunnuna og sem skartaði bæði Blonde Redhead og Alex Gifford úr Propellerheads auk íslenskra sveita á borð við Hljóma og Sigur rós og svo Vetrardagskrá Hljómalindar en á henni fengu landsmenn m.a.að sjá og heyra Trans Am, The Fucking Champs, Dismemberment Plan, Will Oldham, Par Lind Project og Low. Iceland Airwaves-hátíðin tókst líka sérstaklega vel og þó að ekkert stórt erlent nafn hafi verið á dagskránni þetta árið þá klikkuðu hvorki Sparta né Chicks On Speed, þó að tónleikar þeirra síðarnefndu hafi reyndar ekki verið öllum að skapi. Svo má ekki gleyma finnsku raftónlistarfrömuðunum í Pan Son- ic sem áttu eina af flottari uppákomum ársins í Listasafni Reykjavíkur í sumar. Glás af flottum plötusnúðum sótti okkur heim á árinu og nægir þar að nefna Ashley Beedle, Lee Burridge, Dego úr 4 Hero, breakbeat snillinginn Tayo, Andrew Weatherall, Doc Scott og Dave Clark að ógelymdum Timo Maas sem gerði allt al- brjálað á Gauknum á afmælishátíð Partyzone og Þrumunnar í október. Gengisþróun hefur samt gert það öllu erfiðara að fá þekkta plötusnúða til landsins og þess yegna var mun minna af stórum nöfnum á ferðinni á seinnihluta ársins en á þeim fyrri. Hip-hop bylgja En það voru ekki bara plötusnúðar og rokkhljóm- sveitir sem komu til landsins á árinu. Hip-hop djömm hafa ekki verið mjög algeng á Islandi í gegn- um tíðina, en á árinu 2001 fengum við þó nokkur slík, aðallega á Gauki á Stöng. Það voru að vísu sorg- lega fáir þegar breski snillingurinn Ty tróð þarupp í vor, en það var allt brjálað þegar sænsku „terrorð"- istarnir Loop Troop fóru þar hamförum í júlímán- uði og það sama má segja um uppákomu Guru í des- emberbyrjun. Islenskt hip-hop sprakk líka út á árinu. Loksins segja einhverjir. XXX Rottweiler hundar og Ses- ar A sendu frá sér plötur með íslensku rappi á fs- lensku. Það voru þær fyrstu, en örugglega ekki þær síðustu því að liscamenn á borð við Afkvæmi guð- anna, Mezzias og Skytturnar frá Akureyri hafa þegar búið til efni sem er komið í loftið og þess því væntanlega ekki langt að bíða að þeir sendi frá sér plötur. Uppstokkun oc hræringar í plötuútcáfu Eitt af því sem einkenndi árið voru breytingar á plötuútgáfulandslaginu. Japis, sem lengi var aðal- keppinautur Skífunnar, hvarf af sjónarsviðinu en í staðinn spratt jafnharðan upp ný útgáfa með fjár- hagslegt bolmagn og tónlistarlegan metnað til að keppa við Skífúveldið, sem reyndar fagnaði 25 ára afmæli á árinu. Það er Edda sem sendi frá sér eitt- hvað nálægt 20 plötum á árinu, þ. á m. Megas, Jagúar, Klink og Úlpu. Auk Eddunnar jók Thule- útgáfan mjög umsvif sín á árinu, og gaf út eina tólf diska á árinu þar á meðal Trabant, Funerals, Sof- andi, Exos og Tomma White, en eins og sjá má á listanum er sú tíð liðin að Thule gefi eingöngu út raftónlist. Auk þessara breytinga hjá plötuútgáfun- um þá hefur aldrei verið auðveldara að taka upp og gefa út sjálfur og einyrkjaútgáfur hafa örugglega aldrei verið fleiri. Nú geta menn tekið upp með litl- um tilkostnaði og skrifað þetta í tölvu í stykkjatali og smellt í sölu milliliðalaust. Verslanir eins og 12 tónar og Hljómalind luma á ýmsu óvæntu úr smiðju einyrkjanna fyrir forvitna tónlistaráhuga- menn. Ódýrar útgáfur eins og Stefnumótadiskaröð Undirtóna og Harðkjarnaútgáfan sáu okkur lfka fyrir efni á árinu. Okkar menn erlendis Islenskir popparar vöktu enn og aftur athygli úti í hinum stóra heimi á árinu. Mest bar auðvitað á Björk, en auk hennar voru Mínus, Sigur Rós og múm töluvert í sviðsljósinu. Sigur Rós spiluðu nokkuð vfða og hlutu líka Virgin Megastore tón- listarverðlaunin sem veitt voru f fyrsta sinn f Bandaríkjunum í haust (Virgin Megastore Award For Artistic Achievment In Music eins og þau heita). Verðlaunin, sem er ætlað að verða einskonar bandarísk útgáfa af Mercury-verðlaununum í Bret- landi, eru veitt tónlistarmönnum sem skara fram úr, en sem hafa selt innan við 500 þúsund eintök af plötunum sem þeir eru tilnefndir fyrir. múm héldu áfram að vekja athygli fyrir fyrstu plötuna sína og fyrir remix-plötuna Please Smile My Noise Bleed sem Morr útgáfan í Berlín gaf út í haust. Á næsta ári má búast við því að íslenskir tónlist- armenn verði ennþá meira í sviðsljósinu þvf að bæði múm og Sigur Rós munu senda frá sér nýjar plötur til að fylgja eftir hinum virtu og vinsælu Yesterday Was Dramatic og Agætis byrjun. Sigur Rósar-plat- an á að koma út fyrir haustið og inniheldur að sögn þeirra félaga „svipaða tónlist, en samt aðeins rokk- aðri“, en múm-platan er væntanleg í mars eða apr- íl. Svo styttist í að Quarashi platan Jinx komi út á vegum Sony í Bandaríkjunum og metsöluplatan hennar Svölu, The Real Me, kemur væntanlega út á Bandaríkjamarkaði fljótlega og hin unga og upp- rennandi Védís Hervör stefnir líka á alþjóðamark- að með frumsmíðina sína In The Caste. Land og synir eru líka komnir á samning og væntanlega fáum við að heyra afraksturinn á nýja árinu og svo er Hafdís Huld að vinna sólóplötu í London. Trabant, Funerals og Apparat Orgel Quartet vöktu allar mikla athygli á Airwaves 2001 og það er aldrei að vita nema það skili einhverju á nýja árinu. Loks má nefna hljómsveitina Leaves sem spilaði í fyrsta sinn opinberlega á Airwaves. Þeir hafa verið að vekja athygli fyrir fyrstu demó-upptökurnar og eru komir með samning beggja vegna Atlantshafs- ins. Þeir eru m.a. búnir að vera að spila í Bretlandi með sveitum eins og Bluetones og The Coral sem er önnur hljómsveit sem miklar vonir eru bundnar við á árinu sem var að byrja. Mfnus gaf út plötuna sfna frá þvf f fyrra, Jesus Christ Bobby, á harðkjarnamerkinu Victory vet- stanhafs og fékk mjög góða dóma. Þeir eru nú ekkert orðnir heims- fraegir, en það er bókað að þeir eiga eftir að bæta við aðdáenda- hópinn á tónleikaferðinni sem þeir eru að fara á úti f Bretlandi núna í janúar. Þar munu þeir spila á veg- um Kerrang-tímaritsins, en útsend- ari Kerrang á lceland Airwaves-há- tfðinni f október átti varla nógu sterk orð til að lýsa hrifningu sinni, sagði m.a. eitthvað á þessa leið: „Það má bóka að Mfnus var besta hljómsveitin á íslandi þetta kvöld. Fokk! Mfnus var besta hljóm- sveitin í heiminum þetta kvöld." Ekki slæmt veganesti það. Og jú, hann kallaði pródúserinn þeirra, (Bibba Curver) „hinrt fslenska Ap- hex Twin“... Björk var mikið f sviðsljósinu á árinu. Hún sendi frá sér plötuna Vespertine f lok sumars og fytgdi henni eftir með tónleikaferðalagi og kom aðallega við f óperuhús- um, kirkjum og leikhúsum. Sfð- ustu tónleikarnir á ferðataginu voru f Reykjavík rétt fyrir jólin, en þá spilaði hún bæði í Laugardals- höllinni og Háskólabíói. Með henni á tónleikunum spiluðu Sin- fónfuhljómsveit fslands, græn- lenskur kvennakór, hörpuleikar- inn Zeena Parkins og San Francisco raftónlistardúóið Mat- mos. Tónleikaferðalag Bjarkar hófst f Parfs, en þar ríkti hálfgert Bjarkar-æði f haust. Menningar- málráðherra Frakklands, Jack Lang, veitti Björk heiðursorðu franska ríkisins, en Jack uppgötv- aði hæfileika Bjarkar þegar hann kíkti inn á tónleika með Sykurmol- unum á Ouus-húsi fyrir nokkrum árum ásamt Francois Mitterand, þáverandi Frakklandsforseta. Nokkuð var um tónleika erlendra listamanna árið 2001 eins og undanfarin ár. Langmesta athygli og að- sókn fékk þýska rokkvélin Rammstein sem spilaði tvö kvöld í röð fyrir stappfulla Laugardalshöll fbyrjun sum- ars. Spenningurinn fyrir komu Rammstein var svo mikill að það seldist upp á hvora tveggju tónleikana á örskömmum tíma. Það tók enn skemmri tfma að klára miðana á seinni tónleikana og eftirspurnin var slík að fjötmargir þeirra sem höfðu beðið f biðröð í langan tíma fengu ekki miða. Eitt af þvf sem skýrir þennan mikla áhuga er sú staðreynd að Rammstein höfða til mjög breiðs hóps af rokkaðdáend- um. Á tónleikunum mátti jafn sjá gamla hippa, pönk- ara, þungarokkara, mennt- skælinga og allt niður f börn og unglinga. Og enn hefur ekki frést af neinum sem varð fyrir vonbrigðum. 10 4. janúar 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.