Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Síða 14
Undanfarna mánuði hefur ýmislegt gengið á hjá söngkonunni Írisí Kristinsdóttur. Eftir að upp úr sam-
bandi hennar og Vals í Buttercup slitnaði ákvað íris að segja skilið við hljómsveitina og hefur hún nú
stofnað eigin hljómsveit undir nafninu Ber. Fókus hafði uppi á stelpunni sem sungið hefur í kirkjukór
Grindavíkur, eignaðist son á unglingsárunum, er jafnhá og Pamela Anderson og segist aldrei hafa ver-
ið hamingjusamari en einmitt í dag.
„GuS gaf mér ekki nógu marga sentí-
metra svo ég varð að kaupa þáu
„Þegar ég var lítil stelpa
ætlaði ég mér alltaf að verða
fræg. Annaðhvort vildi ég
verða dansari, fyrirsæta eða .
leikari. Eg sá reyndar strax
að ég ætti enga möguleika (
dansinn þar sem ég var svo
spéhrædd að ég gat ekki
hugsað mér að dansa í flegn-
um suðuramerískum kjól-
um. Ég fór í prufu vegna
hlutverks en þegar ég fékk
ekkert svar tók ég því sem
hinti um að ég hefði enga
leiklistarhæfileika. Allir
draumar um frægð og frama
sem fyrirsæta runnu svo út í
sandinn þegar ég hætti að
stækka við 158 cm. Þess
vegna ákvað ég að einbeita
mér að söngnum," segir Iris
Kristinsdóttir, oftast kennd
við hljómsveitina Butt-
ercup.
NÝ HLJÓMSVEIT MEÐ NÝJ-
UM KÆRASTA
Það var árið 1999, þegar
Iris söng lagið Orginal með
hljómsveitinni Sálinni, að
nafn hennar skaust upp á
stjömuhimininn með hraði.
Lagið varð geysivinsælt og í
kjölfarið af því var þessi
óþekkta söngkona kosin
söngkona ársins x sam-
keppni urn hlustendaverð-
laun FM957 árið 2000 og
lagjð Orginal lag ársins.
íris segist hafa verið
syngjandi frá því að hún var
krakki enda mikill tónlist-
aráhugi í fjölskyldunni.
Sjálf segir hún að sinn eig-
inlegi söngferill hafi hafist í
smáuglýsingum DV. „Eg sá
að það var verið að auglýsa
eftir söngkonu í dúettinn
Staff og fékk starfið," segir
íris. Síðan leiddi eitt af öðru,
íris lék m.a í Grease-sýn-
ingunni á Hótel Islandi,
gerðist söngkona í írafári og
fór þaðan yfir í Buttercup.
„Irafár og Buttercup voruað
æfa hlið við hlið. Þegar Butt-
ercup ákvað að fá meiri vídd
í bandið og taka inn söng-
konu þurfti ég ekki að hugsa
mig tvisar um og söðlaði
um,“ segir Iris sem verið
hefur söngkona sveitarinn-
ar síðastliðin tvö ár og ein-
nig kærasta söngvarans
Vals í sömu hljómsveit.
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum slitnaði upp úr
sambandi Irisar og Vals í
haust og ákvað Iris í kjölfar-
ið að hætta í sveitinni.
Ástæðan er þó ekki sú að
hún treysti sér ekki til að
vinna áfram með Val þó
þau væru hætt saman heldur var hún ósátt við þá ákvörðun að
trommuleikarinn Egill Orn Rafnsson væri rekinn úr sveitinni þegar
þau íris og Egill fóru að slá sér upp.
íris er nú komin (sambúð með Ágli og saman hafa þau stofnað nýja
hljómsveit undir nafninu Ber sem mun fljótlega láta að_ sér kveða.
„Við spilum fágað popp með (slenskum texturn," útskýrir Iris og neit-
ar því ekki að sveitin muni berjast um sama markað og Buttercup.
Auk þeirra írisar og Egils skipa þeir Ómar Freyr Kristjánsson og Þór
Óskar Fitzgerald hina nýju hljómsveit. „Tíminn með Buttercup var
alveg frábær og ég hefði ekki viljað missa af honum,“ segir íris sem
óskar sínum gömlu félögum alls hins besta.
Hætt á Steríó
Ymsar sögusagnir hafa verið á kreiki varðandi sambandsslit Irisar og
Vals enda má segja að þau hafi verið heitasta popppar íslands. Spurð
hvort hún sé ekkert hrædd við að endurtaka leikinn, þ.e.a.s að fara
aftur ( hljómsveit með kærastanum sínum, hefur hún þetta að segja:
„Samstarfið í hljómsveitinni var síður en svo það sem fór með sam-
band okkar Vals, það var miklu frekar það sem hélt því saman. Við Eg-
ill höfum verið starfsfélagar (eitt ár og ég treysti sambandi okkar full-
„Það fer vírkilega í mig hvað „sexið“ skiptir miklu máli í þessum tónlistarbransa þvítónlistin missir marks
í þessari sölumennsku. Söngkonur með mikla hæfileika fá ekki einu sinni tækifæri af þvíað þær eru einu kílói
of þungar,“ segir íris sem er búin að stofna nýja hljómsveit undir nafninu Ber.
„Það
vera
mæli
því.
oft í
að
er æðislegt
í kirkjukór, ég
virkilega með
Ég átti reyndar
erfiðleikum með
að syngja í jarðarför-
um því ég er svo mikil
tilfinningavera og fór
bara að hágráta".
Texti: Snæfríður Ingadóttir
Mynd: Hari
komlega í þetta,“ segir íris
og hreinlega geislar af
hamingju. „Ég held ég
hafi aldrei verið ham-
ingjusamari með nokkrum
manni, ég hef fundið
minn betri helming," seg-
ir Iris opinská.
En það eru fleiri breyt-
ingar sem Iris stendur
frammi fyrir. „Já, ég er at-
vinnulaus þannig að ef
einhver vill ráða mig í
vinnuætti hann endilega
bara að hafa samband,"
segir íris hlæjandi. Síðan í
sumar hefur hún unnið við
dagskrárgerð á útvarps-
stöðinni Steríó 89,5 en
hún sagði upp fyrir jólin
vegna ósættis vegna
launa. „Ég kann afskap-
lega vel við mig ( útvarpi
Óg gæti alveg hugsað mér
áð vinna meira á því
sviði,“ segir Iris sem leitar
nú logandi ljósi að nýrri
vinnu.
Jafnhá oc Pamela
Anderson
íris er fædd í Hafnarfirði
en uppalin á sveitabæ í
Húnavatnssýslu. Skóla-
ganga hennar varð ekki
löng, hún kláraði grunn-
skólann, byrjaði aðeins í
FG og hóf svo söngnám í
FÍH þar sem hún hefur
lokið fyrsta stigi. „Eg hætti
í skólanum þegar ég varð
ólétt en ég eignaðist sön
þegar ég var rétt orðin 18
ára gömul,“ segir Iris. Hún
og bamsfaðir hennar voru
saman í fimm ár og bjuggu
m.a í Grindavík þar sem
íris söng í kirkjukórnum.
„Það er æðislegt að vera í
kirkjukór, ég mæli virki-
lega með því. Eg átti
reyndar oft í erfiðleikum
með að syngja í jarðarför-
um því ég er svo mikil til-
finningavera og fór bara
að hágráta," segir íris og
bendir á þá staðreynd að
það að vera ( kirkjukór er
launað starf.
Það sem hefur farið mest
í taugarnar á írisi við feril-
inn sem söngkona er þessi
endalausa fókusering fjöl-
miðla á kynþokka. „Það fer
virkilega í mig hvað „sex-
ið“ skiptir miklu máli í
þessum tónlistarbransa,
því tónlistin missir marks
í þessari sölumennsku.
Söngkonur með mikla
hæfileika fá ekki einu
sinni tækifæri af því að
þær eru einu kílói of
þungar," segir Iris sem er enn hneyksluð yfir því að þegar hún var
kosinn söngkona ársins hlotnaðist henni einnig titillinn kyn-
þokkafyllsti popparinn en fjölmiðlar virtust einungis hafa áhuga á
seinni titlinum. Iris stundar enga líkamsrækt og segist vera svo
heppin að vera með hraða brennslu af guðs náð. Ef það er eitthvað
sem fer í taugamar á henni varðandi útlit sitt þá er það hæðin en
hún er einungis 158 cm há. „En það er lx'ka Pamela Anderson,
Prince og Paula Abdul, þannig að það er líklega ekki svo slæmt,"
segir íris og hlær þegar talið berst að þessum háu Buffalo-skóm
hennar sem hún sést oft og iðulega í. „Guð gaf mér ekki nógu marga
sentímetra svo ég varð að kaupa þá,“ segir hún, kankvís.
Nú eru líklega einhverjar ungar stelpur sem lesa þetta, stelpur sem
dreymir um að verða söngkona eins og þú. Hefurðu einhver góð ráð að
gefa þeim?
„Ef þú hefur trú á sjálfri þér þá skaltu aldrei gefast upp. Ég fékk
fullt af blautum tuskum í andlitið á leiðinni og fór í fullt af prufum
sem gengu ekki vel en það bara herti mig. Það er um að gera að æfa
sig. Eg hef þurft að hafa mikið fyrir því að læra að syngja," segir Iris
að lokum.
14
f ó k u s 4.janúar 2002